Morgunblaðið - 23.03.1990, Side 2

Morgunblaðið - 23.03.1990, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 23. MARZ 1990 Álverið; Hlífheim- ilar verkfall FÉLAGSFUNDUR í Verkamanna- félaginu Hlíf í Hafiiarfirði sam- þykkti í gær að veita trúnaðar- ráði heimild til verkfallsboðunar í Álverinu í Straumsvík. í 'leynilegri atkvæðagreiðslu var samþykkt að veita heimild til verk- fallsboðunar með 102 atkvæðum gegn 1. 3 seðlar voru auðir. Trúnaðarráð Hlífar fundaði í gær- kvöldi og var búist við að þar yrði tekin ákvörðun um að boða til verk- falls þann 31. þessa mánaðar. Banaslys við Blönduvirkjun RUMLEGA tvítugur maður beið bana í vinnuslysi við Blönduvirkj- un í fyrrakvöld. Maðurinn var að vinna við að leiðbeina ýtu og stóð upp á fjögurra metra háum snjóruðningi sern brast undan fótum hans. Maðurinn féll niður, grófst á kaf og fékk yfir sig stórt klakastykki. Talið er. að hann hafi látist samstundis. Ekki er unnt að greina frá nafni mannsins að svq stöddu. ' Þorsteinn Pálsson: Mikilvægt að fá álver á lands- byggina „ÉG TEL að það hafi mikla þýð- ingu ef unnt er að ná samningum um að nýtt álver verði staðsett á landsbyggðinni," sagði Þorsteinn Pálsson' formaður Sjálfstæðis- flokksins í samtali við Morgun- blaðið, en hann lét þessa skoðun í ljós á fundi Sjálfstæðisflokksins um atvinnumál á miðvikudag. Þorsteinn sagði að vitaskuld yrðu menn að gæta hagkvæmnisjónar- miða í komandi samningum um ál- ver. Hins vegar kvaðst hann vera þessarar skoðunar í ljósi aðstæðna hér á landi, ekki síst þess hve brýnt sé að auka ljölbreytni atvinnulífsins utan höfuðborgarsvæðisins og draga úr þeim mikla mismun sem sé á skipulagi atvinnugreina eftir því hvar fyrirtækin starfa. Þorsteinn var spurður hvort líta bæri á þetta sjónarmið sem stefnu Sjálfstæðisflokksins og sagði hann ekki svo vera, hann hefði verið að kynna sína skoðun. Aðstöðugjalds- prósenta dag- blaða lækkuð Borgarráð hefur ákveðið að breyta samþykkt borgarstjómar um aðstöðugjaldsgreiðslur af prentmiðl- um í þá vem að í stað þess að greitt sé 1,2% af aðstöðugjaldsstofni, eins og verslunar- og þjónustugreinar gera, greiðist 1% af prentun og út- gáfu dagblaða. Þar með greiða dag- blöð sama aðstöðugjald og iðnaður. NGAFÖLK! Morgunblaðið/Árni Helgason Tvö gömul akkeri íúndust við Þórishólma á Breiðafirði rétt utan við Stykkishólmshöfii. Talið er að þar séu akkeri skútunn- ar Póseidon komin frá síðustu aldamótum. Stykkishólmur; Fékk ævagömul akkeri í skelplógmn Stykkishólmi TVÓ gömul akkeri með keðjum fundust við Þórishólma á Breiða- firði rétt utan við bryggjuna í Stykkishólmi. Er talið að þarna séu komin akkeri sem skútan Pósidon missti um síðustu alda- mót á þessum slóðum. Það var áhöfnin á Gísla Gunnarssyni SH85 sem fann akkerin þegar báturinn var að skelfiskveiðum við hólmann. Þórishólmi er skammt frá höfn- inni í Stykkishólmi og var skel- fiskplógurinn á 25 faðma dýpi þegar hann festist í botni að því er fyrst var talið. Þegar í Ijós kom að svo var ekki var ákveðið að draga plóginn á minna dýpi og á 11 föðmum náðist hann upp. Kom þá upp stærðar akkeri með langri keðju og ekki nóg með það heldur líka annað minna akkeri með keðju en þau ekki bundin saman. Skipveijar sáu að engin leið var að ná þeim upp í bátinn án aðstoð- ar og kölluðu í bát, sem þar var skammt frá og tókst þeim í sam- einingu að ná akkerunum upp úr sjónum. Ekki er enn vitað með vissu hvað akkerin hafa verið lengi í sjónum en Eggert Björnsson skipsstjóri á Gísla Gunnarssyni segir að um síðustu aldamót hafi skútan Póseidon verið á líkum slóðum og hafi hún þá misst bæði akkerin og keðjur og komst skút- an naumlega í Brokey, þar sem 18 skipveijar komust af. En síðan hefði ekkert fundist hvorki af akkeri né keðjum. ; J - Arm Frumvarp að nýrri auglýsingalöggjöf: Lýtalaus íslenzka verði á öllum aug’lýsingum VIÐSKIPTARÁÐHERRA, Jón Sigurðsson, hefúr kynnt í ríkisstjóm- inni frumvarp til laga um breytta auglýsingalöggjöf. I frumvarpinu felast breytingar á gildandi lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Fmmvarpið gengur í ýmsu lengra en gild- andi lög og gerir meðal annars ráð fyrir sérstakri varúð í auglýsing- um, sem höfða til barna og ákvæði um lýtalausa íslenzku í öllum aug- lýsingum. Frumvarpið er lagt fram á grund- velli þingsályktunartillögu frá árinu 1987, en árið eftir skipaði Jón Sig- urðsson sérstaka nefnd til að vinna að gerð frumvarpsins. Formaður nefndarinnar var Jón Ögmundur Þormóðsson, skrifstofustjóri í við- skiptaráðuneytinu, og aðrir nefndar- menn Jón Magnússon hdl., Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri, Sól- veig Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands íslenzkra auglýsinga- stofa, og Þórhildur Gunnarsdóttir, verzlunar- og markaðstjóri. Jón Ögmundur segir frumvarpið byggt á grunni almennra verðlags- laga um villandi auglýsingar, en það gangi í ýmsu mun lengra en gild- ándi lög og taki á ýmsum grundvall- aratriðum er varði birtingu auglýs- inga. Jafnframt sé í frumvarpinu gert ráð fyrir ítarlegri reglugerð um auglýsingar og skipan sérstakrar nefndar er fari með svokallað úr- lausnarvald. I nefndina' skipi ráð- herra lögfræðing sem formann og annan fulltrúa með sérþekkingu á fjölmiðlun og síðan þijá til viðbótar eftir tilnefningu frá Sambandi íslenzkra auglýsingastofa, Verzlun- arráði íslands og Neytendasamtök- unum. Nefndin hafi vald til að banna auglýsingar, sem bijóti í bága við lögin eða reglugerðir þeim fylgjandi svo og að leita leiða til sátta. Þetta vald er nú hjá Verðlagsráði. Jafn- framt er gert ráð fyrir því að ýmis sérákvæði um auglýsingar gildi áfram og má þar nefna ákvæði er varða tóbak og áfengi, lyf og lækna og þjóðsönginn. Bíðum leyfis ráð- herra fyrir samruna - segir Sverrir Hermannsson SVERRIR Hermannsson banka- stjóri Landsbankans segir að nú, þegar Landsbankinn hefúr eign- ast nægan meirihluta hlutabréfa í Samvinnubankanum, sé beðið eftir leyfi bankamálaráðherra fyr- ir samruna bankanna í eina stofh- un. Sverrir segir að í fyrstu hafi verið rætt um að reka Samvinnu- bankann sem sjálfstæða stofhun eða deild. „En nú eru menn þeirr- ar skoðunar að stefha eigi að samruna, en það gæti tekið ein- Franskur viðskiptavin' ur SIF fær undirboð Tilboð fi*á Islandi, Danmörku og Hollandi Grindavík. FRANSKUR viðskiptavinur Sölusamtaka islenskra fiskframleiðenda, Nord-Morue, hefúr fengið nokkur kauptilboð um tandur saltfisk frá íslandi, Danmörku og Hollandi. Verðið sem Nord-Morue er boðið er að meðaltali 25% lægra en það verð sem SÍF býður fyrirtækinu. Keraur þetta fram í skeyti fi-á hollenska söluaðilanum Norpesca. Samkvæmt . skeyti sem Nord- Morue hefur sent SÍF, þar sem þetta verð eru tíundað, er ýjað að því að SÍF lækki sitt verð til sam- ræmis við undirboðið. Þá hafa, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, fleiri kaupendur að íslenskum saltfiski sem versla við SIF, aðallega á Spáni, látið vita að þar séu einnig undirboð í gangi án þess að geta þess hvaða verð sé nefnt og liggur í loftinu að þau fyrirtæki séu að undirbúa verð- lækkunarkröfur gagnvart SÍF. Morgunblaðið hafði samband við Jón Ásbjömsson til að leita álits hans á þessum fréttum og sagði hann að fullyrðingar um undirboð gagnvart SÍF á íslenskum saltfiski væru í algjörri þversögn við stöðu saltfiskmarkaðarins í Evrópu, þar sem ríkir geysileg eftirspurn og hækkandi verð. „Söluverð SÍF er langt fyrir neð- an markaðsverð enda kaupa nú evrópskir saltendur þorskinn okkar frá Islandi léttsaltaðan utan sölu- samtaka SIF á mun hærra verði en framleiðendur fá skilað frá SÍF,“ sagði Jón. „Sjálfur sel ég fullunninn íslensk- an saltfisk frá Danmörku og Eng- landi. Einnig eru nú seld fullunnin saltfiskflök frá íslandi til Spánar og er söluverð mitt 21-48% hærra en söluverð SÍF samkvæmt útflutn- ingsskjölum utanríkisráðuneytisins á útflutningi í mars 1990. Að birta frétt nú um undirboð gagnvart SÍF er byggt á röngum forsendum og getur aðeins verið gert til að slá ryki í augu lands- manna til að réttlæta og viðhalda einokunarsölu SÍF í saltfiskútflutn- ingnum, nú, þegar umræða um ein- hveija losun á þessari einokun fer fram,“ sagði Jón. Gunnar Tómasson, saltfískverk- andi í Grindavík og stjórnarmaður í SÍF, sagði að eftir að sjávarútvegs- ráðherra setti tímabundið bann við útflutningi á flöttum ferskum físki hafí hafíst mikil umræða um það verðmæti sem væri fólgið í þessum útflutningi og þá jafnan borið sam- an við það verðmæti sem saltfisk- afurðir okkar gæfu. „Nefndar voru háar prósentur um það sem græddist með þessum nýja útflutningi en staðreyndin er sú, að ef allur sá fískur sem SÍF flutti út á síðasta ári væri umreikn- aður í þennan nýja útflutning þá tapaði þjóðfélagið fjórum milljörð- um króna fyrir utan allt vinnutap hér heima,“ sagði Gunnar. Hann bætti við að þessi undirboð kæmu ekki á óvart því nú væru allir þess- ir aðilar að reyna að koma út salt- fiski og þá væri gjaman gripið til þess ráðs að undirbjóða til að losna við vöruna. Það væru gömul sann- indi. Kr. Ben. hver misseri áður en hann verð- ur,“ segir hann. Landsbankinn á nú um það bil 75% hlutaíjár í Samvinnubankanum og getur þar af leiðandi ákveðið að sameina hann Landsbankanum, en til þess að svo geti orðið þarf leyfi ráðherra og segir Sverrir Hermanns- son að nú sé þess beðið. Á meðan sé ekki hægt að tímasetja hvenær af samruna verður. Landsbahkinn keypti fyrr í vik- unni hlutabréf Olíufélagsins hf., Vátryggingafélags íslands, Sam- vinnulífeyrissjóðsins, Kaupfélags Borgfírðinga og KEA í Samvinnu- bankanum, alls nálægt fjórðungi hlutabréfanna. Kaupverðið var 2,749 sinnum nafnverð bréfanna sem er sama verð og Sambandinu var greitt fyrir hlutabréf þess. Að sögn Vilhjálms Jónssonar forstjóra Olíufélagsins hf. em kaupin miðuð við 1. janúar síðastliðinn og greiðir Landsbankinn vexti á upphæðina frá þeim tíma. Heildarkaupverð hluta- bréfanna sem Landsbankinn keypti nú er um 300 milljónir króna og hefur hann þá í heild keypt hluta- bréf í Samvinnubankanum fyrir um 900 milljónir króna, auk vaxta. Karl tapaði, Helgi gerði jaftitefli FIMMTA umferð Reykjavík- urskákmótsins var tefld í gær. Helgi Ólafsson og Pol- ugajevskíj gerðu jaftitefli; Azmajparasvílíj vann Karl Þorsteins; Dolmatov vann Jón L. Árnason; Benjamin vann Hannes Hlífar; Margeir Pét- ursson vann Tómas Björns- son; Snorri Bergsson vann Levitt; Halldór Grétar Einars- son vann Winsnes. Makarítsj- ek og Dreev skildu jafiiir, einnig Vaganjan og Razúvajev, Wojekevicz og Bronstein og Sokolov og Mortensen. Polugajevskíj og Azmapar- asvílíj eru nú efstir og jafnir með 4 ’Avinning, Helgi Ólafsson, Dolmatov og fleiri hafa 4 vinn- inga; Karl Þorsteins er í hópi nokkurra skákmanna sem hafa 3 'Avinning. Sjötta umferð verð- ur tefld í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.