Morgunblaðið - 23.03.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990
Morgunblaðið/Bjami
Richard Best sendiherra afhendir Vigdísi Finnbogadóttur forseta fjárstuðning breskra yfirvalda
við skógræktarátakið Landgræðsluskógar - átak 1990. Þau Hulda Valtýsdóttir og Valdimar Jóhann-
esson fylgjast með afhendingunni.
Bretar gefa skógræktargjöf
BRESKI sendiherrann á íslandi, Richard Best, afhenti í gær Vigdísi
Finnbogadóttur forseta o'g verndara skógræktarátaksins Land-
græðsluskógar — 1990 400 þúsund króna fjárframlag til átaksins.
Stjórn þess hefur ákveðið að'verja gjöfínni til svonefiidra vina-
skóga, líkt og öðrum Qárframlögum sem koma til með að berast
átakinii. frá útlöndum.
Fyrsta vinaskóginum hefur verið
valinn staður í landi Kárastaða í
Þingvallasveit. Fyrir gjöf Breta
verður plantað í a.m.k. 4 hektara
lands, eftir því sem segir í frétt sem
stjóm átaksins sendi frá sér af
þessu tilefni. Forseti þakkaði sendi-
herranum þessa höfðinglegu gjöf,
og lét þess getið að nafnið vina-
skógar væri táknrænt þar sem fátt
túlkaði betur góða vináttu en eitt-
hvað sem vex og dafnar.
Við sama tækifæri afhenti for-
seti Huldu Valtýsdóttur, formanni
Skógræktarfélags íslands, gjöf
Breta.
VEÐUR
I DAG kl. 12.00:
X ^ Heimild: Veðurstofa íslands
'*■ 'e (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 23. MARZ
YFIRLIT f GÆR: Skammt út af Norðausturlandi er 977 mb. smá-
lægð og frá henni lægöardrag vestur yfir norðurströndina. Yfir
Grænlandi er 1.012 mb. hæð en um 700 km suður af Hvarfi er
vaxandi 980 mb. lægð á hreyfingu norðaustur.
SPA: Vaxandi austan- og síðar norðaustanátt um land allt, víða
allhvasst eða allhvasst þegar líður á morguninn. Éljagangur norðan-
lands, en snjókoma eða slydda um landiö sunnanvert.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Norðan- og norðvestanátt. Éljagangur
norðanlands, en úrkomulítið og víða bjart veður syðra. Frost á bil-
inu 3 til 6 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Sunnanátt um mestallt land. Slydda um
sunnan- og vestanvert landið, en úrkomulaust að mestu á Norðaust-
urlandi. Hiti um eða rétt yfir frostmarki.
x Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir. vind-
stefnu og fjaðrirnar
vlndstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
f r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
•\Q° Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CO Mistur
-4- Skafrenningur
[T Þrumuveður
vn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 2 skýjað Reykjavík +3 úrkoma f grennd
Bergen 6 léttskýjað
Helsinkl 7 skýjað
Kaupmannah. 11 skýjað
Narssarssuaq +16 skýjað
Nuuk +16 snjókoma
Osló 12 léttskýjað
Stokkhólmur 10 skýjað
Þórshöfn 2 haglél
Algarve 20 skýjað
Amsterdam 11 skýjað
Barcelona 20 mistur
Berlín vantar
Chicago 9 skúr
Feneyjar 18 þokumóða
Frankfurt 17 skýjað
Qlasgow 8 skýjað
Hamborg vantar
Las Palmas 29 skýjað
London 13 léttskýjað
Los Angeles 11 þokumóða
Lúxemborg 13 mistur
Madrfd 20 léttskýjað
Malaga 23 léttskýjað
Mallorca 21 helðskírt
Montreal 0 alskýjað
New York 7 léttskýjað
Orlando 12 léttskýjað
Paris 17 alskýjað
Róm 18 þokumóða
Vln 22 heiðskfrt
Washington S léttskýjað
Winnipeg +11 snjókoma
Eldsneytisafgreiðsla íyrir varnarliðið;
Kemur ekki til greina
að afhenda eignir Olíu-
félagsins til annarra
- segir Vilhjálmur Jónsson forsljóri
VILHJÁLMUR Jónsson, forstjóri Olíufélagsins hf., segir að ekki komi
til greina að afhenda eignir fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli öðrum
aðilum til afiiota, eins og utanríkisráðuneytið hefúr farið fram á,
enda þurfi Olíufélagið á þessum eignum að halda til að standa við
sérstaka samninga um eldsneytisafgreiðslu til flugvéla sem hingað
koma frá öðrum NATO-löndum en Bandaríkjunum. „Við teljum það
vera hreina valdniðslu að banna okkur að bjóða í afgreiðsluna á elds-
neyti fyrir varnarliðið, ef við göngum ekki að kröfú utanríkisráðuneyt-
isins,“ sagði hann.
Samningur Olíufélagsins hf. og
varnarliðsins um afgreiðslu eldsneyt-
is á Keflavíkurflugvelli rennur út 31.
mars næstkomandi, en hann var
gerður 1986 og hefur verið endumýj-
aður árlega síðan.
Hörður H. Bjarnason, skrifstofu-
stjóri varnarmálaskrifstofu utanrík-
isráðuneytisins, sagði aðspurður að
það væri alfarið á valdi utanríkisráð-
herra að útiloka Olíufélagjð hf. frá
því að gera tilboð í afgreiðsluna ef
honum sýndist svo. „Árið 1986 var
það ákvörðun þáverandi utanríkis-
ráðherra að þetta skyldi eingöngu
boðið út til Olíufélagsins og þá var
það eina félagið sem fékk að bjóða
í þetta.“
Vilhjálmur Jónsson sagði að það
væri alrangt að Olíufélagið hf. hefði
haft einkarétt á afgreiðslu á olíu og
bensíni fyrir varnarliðið á Keflavíkur-
flugvelli. Þjónusta við olíuafgreiðslu
vamarliðsins hefði ávallt verið boðin
út þegar samningar hefðu verið laus-
ir eins og nú væri, og hefði það
meðal annars leitt til þess að Olíu-
verslun Íslands hf. hefði haft hluta
af þessum viðskiptum árin 1962-
1967, og 1966 hefði bandarískt fyrir-
tæki verið með lægst tilboð í flugaf-
greiðslu fyrir varnarliðið. Það fyrir-
tæki hefði haft þá afgreiðslu með
höndum í eitt ár, en talið sig hafa
tapað háum upphæðum á þeim við-
skiptum og því ekki gert tilboð í þau
síðan.
Vilhjálmur sagði að fyrir löngu
hefði verið ákveðið að útboð færi
fram á þessu ári, en sérstök skrif-
stofa Bandaríkjastjómar í Wash-
ington sæi um útboðin, og síðastliðið
sumar hefðu komið fulltrúar þaðan
til að kynna sér aðstæður og und-
irbúa útboðið. Það væri því mikill
misskilningur að núverandi utanrík-
isráðherra hefði fundið upp á því að
hafa útboð á þessum viðskiptum, þar
sem útboðin væru í samræmi við
áratuga hefð, og það hefði aldrei
áður átt sér stað að íslenskir ráða-
menn hefðu komið inn í þessa samn-
inga á þennan hátt.
Að sögn Vilhjálms er aðstaða Olíu-
félagsins hf. á Keflavíkurflugvelli
fyrst og fremst fólgin í aðstöðu fyrir
þá menn sem vinna við eldsneytisaf-
greiðsluna, auk viðgerðarverkstæðis
fyrir þá bíla sem varnarliðið leggur
til.
„Eg var kallaður niður á varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins og þar var lesið yfir mér að við
værum búnir að koma okkur upp svo
góðri aðstöðu og starfsliði á
Keflavíkurflugvelli að það gætu
raunverulega engir boðið á jafnréttis-
grundvelli við okkur. Þess vegna
færi utanríkisráðuneytið fram á það
að við skuldbindum okkur fyrirfram
til þess að leigja aðstöðu okkar fyrir
300 þúsund dollara, eða rúmlega 18
milljónir króna, á ári þeim aðila sem
kynni að fá þetta. Jafnframt var mér
tilkynnt að ef við gengjum ekki að
þessu þá fengjum við ekki að bjóða
í þessa afgreiðslu. Það kemur ekki
til greina af okkar hálfu að láta þessa
aðstöðu af hendi, og verðum við af
þeim sökum útilokaðir frá því að
bjóða í þetta verkefni, þá teljum við
að þar sé um hreina valdníðslu að
ræða.“
Varnarliðið hefur frá ársbytjun
1976 flutt inn allt það eldsneyti sem
það notar og haft samning við Olíufé-
lagið hf. um móttöku, geymslu og
afgreiðslu eldsneytis á flugvellinum.
Vilhjálmur sagði að það hefði verið
ætlunin hjá Bandaríkjastjórn að
bjóða þetta allt út núna, en þar sem
ákveðið hafi verið að Keflavíkurbær
sæi um móttöku eldsneytisins í
Helguvík, vakt á geymunum þar og
dælingu upp á Keflavíkurflugvöll,
yrðu þeir þættir ekki boðnir út. Það
sem eftir stæði væri því dagleg af-
greiðsla á herþotur varnarliðsins,
rekstur á einni bensínstöð, óveruleg-
ir flutningar á gasolíu og eftirlit með
eldsneytisgeymum á Kefiavíkurflug-
velli.
Óli Kr. Sigurðsson eigandi Olú-
verslunar íslands sagði að afgreiðsl-
an- á Keflavíkurflugvelli hefði ekki
verið boðin út árum saman. „Ég hef
aldrei orðið var við þetta hér og veit
ekkert upp á hvað þessi útboðsgögn
hljóða, þar sem við höfum aldrei
fengið neinar upplýsingar um þetta.
Þetta hefur allavega verið á könnu
Olíufélagsins hf. síðan löngu fyrir
minn tíma hér.“
Óli sagði að eðlilegt væri að aðrir
en Olíufélagið hf. fengju kost á að
taka þátt í útboðinu, en sagðist ekki
vilja tjá sig frekar um þetta mál fyrr
en hann hefði séð útboðsgögnin.
Félag framhaldsskólanema:
Virðisaukaskattur á námsbækur
verði felldur niður 1. september
FULLTRÚAR Félags iramhaldsskólanema gengu á fiind Ólafs Ragnars
Grímssonar fjármalaráðherra og Svavars Gestssonar menntamálaráð-
herra í gær, fimmtudag, og afhentu þeim undirskrifialista þess efnis
að virðisaukaskattur á námsbækur verði felldur niður 1. september
næstkomandi en ekki 15. nóvember
þykkti í vetur.
Á blaðamannafundi, sem Félag
framhaldsskólanema hélt í gær, kom
fram að framhaldsskólanemendur
fagna þeirri ákvörðun að virðisauka-
skattur á námsbækur verði felldur
niður. Hins vegar telur félagið að
nemendur framhaldsskólanna muni
ekki kaupa námsbækur fyrr en 10
vikum eftir að skólarnir byrja í haust
ef virðisaukaskatturinn verður felld-
ur niður 15. nóvember. Því muni
skólastarfið riðlast í haust. Mennta-
málaráðherra og fjármálaráðherra
virðist hins vegar ekki hafa áhyggjur
af því og ljóst sé að niðurfellingu
virðisaukaskatts á námsbækur verði
ekki flýtt að frumkvæði þessara ráð-
herra.
tæstkomandi, eins og Alþingi sam-
Á blaðamannafundinum kom einn-
ig fram að nemendur framhaldsskól-
anna eru um 14 þúsund talsins og
algengt er að þeir þurfi að kaupa
námsbækur fyrir 15 þúsund krónur
á ári. Þeir kaupa því námsbækur
fyrir um 200 milljónir króna á ári,
þar af er virðisaukaskattur 24,5%,
eða um 50 milljónir.
„Ég held að það sé almenn skoðun
framhaldsskólanema að bókaútgef-
endur byggi aðra starfsemi sína á
því háa verði, sem er á námsbókum
og við ætlum að fylgjast með verð-
lagningu þeirra,“ sagði Kristrún
Heimisdóttir formaður Félags fram-
haldsskólanema.