Morgunblaðið - 23.03.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.03.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990 11 „...útlendingar flytja okkur fréttimar“ Athugasemdir við ræðu iðnaðarráðherra eftir Halldór Blöndal Hinn 15. mars flutti iðnaðarráð- herra ræðu á ársþingi Félags íslenskra iðnrekenda. Hún bar yfir- skriftina „Bjartara framundan". Það vakti sérstaka athygli mína, að iðnaðarráðherra taldi landa sína ekki meta ríkisstjórnina að verðleik- um, — þeir hefðu ekki áttað sig á þeim „góða árangri sem hefur náðst í efnahagsmálum að undanf- örnu fyrr en útlendingar flytja okkur fréttirnar“. Iðnaðarráðherra hefur orð á, að hann hafi ástæðu til að ætla, að OECD muni ljúka lofsorði á hagstjórnina hér á landi enda sé hún kennslubókardæmi um árangur, sem ná megi með mark- vissri hagstjórn. í fyrsta kafla ræðu sinnar ijallar iðnaðarráðherra um ástand og horfur í efnahagsmálum og víkur fyrst að atvinnuástandinu með þessum orðum: „í gær bárust t.d. þær fréttir að atvinnuleysi í febrú- armánuði hefði verið mun minna en Þjóðhagsstofnun hafði spáð.“ Þetta kann að hljóma vel í eyrum útlendings en ekki íslendings. Það eru áratugir síðan Islendingar litu á atvinnuleysi sem sjálfsagðan hlut, hvað þá vísbendingu um „markvissa hagstjórn“. I febrúar 1988 var atvinnuleysi 0,7% og náði til tæplega 800 einstaklinga. í fe- brúar 1989 var atvinnuleysi komið upp 'i 2% og náði til 2.000 einstakl- inga. Nú keyrði um þverbak. Skráð atvinnuleysi í febrúar var 2,4% af mannafla og náði til 3.000 einstakl- inga. Þar með eru ekki öll kurl komin til grafar, þar sem ýmsar stéttir háskólamanna njóta ekki atvinnuleysisbóta né einstaklingar, sem staðið hafa fyrir rekstri. Ekkert lát er á gjaldþrotahrin- unni, en minni fyrirtæki og einstakl- ingar eru meira áberandi en áður. Fyrstu tvo mánuði ársins voru um 40 millj. kr. greiddar úr ríkissjóði í vinnulaun gjaldþrota fyrirtækja. Það vekur athygli, að töluverður fjöldi fólks hefur flutt utan af landi til Reykjavíkur í atvinnuleit, en síðan orðið að hverfa úr landi og skipta raunar þúsundum, sem svo er ástatt um. Flestir hafa farið til Svíþjóðar. Umsóknum um atvinnu- tækifæri erlendis linnir ekki. A Austurlandi voru 7,4% kvenna at- vinnulausar í febrúarmánuði og rétt innan við 5% mannafla í Norður- landi vestra. Iðnaðarráðherra talar um verð- lagsþróunina, sem sé komin niður fyrir 10% og tekur fram, að ríkis- stjórnin eigi „alls ekki allan heiður- inn. Samtök launafólks og vinnu- veitenda eiga mikið lof skilið“, — en það var efnahagsstefna ríkis- stjórnarinnar sem — „skapaði raun- Fyrirlestur um hugmynda- fræði Thatcher KENNETH Minogue, prófessor í stjórnmálafræðum við London School of Economics and Politic- al Science, heldur fyrirlestur í boði félagsvísindadeildar Háskól- ans í dag, fóstudaginn 23. mars, kl. 14 í Odda. Fyrirlesturinn Qall- ar um hugmyndafræði Margrét- ar Thatcher og róttækni samtím- ans („Mrs. Thatcher and Con- temporary Radicalism") og verð- ur fluttur á ensku. Minogue er þekktur fræðimaður og hefur einkum fengist við stjórn- málahugmyndir og sögu þeirra. Hann hefur meðal annars ritað bækur um fijálslyndi, þjóðernis- hyggju og hugmyndafræði. Fyrirlesturinn er öllum opinn. (Fréltatilkynning) forsendurnar" fyrir kjarasamning- unum, segir iðnaðarráðherra. Aðrir meta það svo, að aðilar vinnumark- aðarins hafi lagt hornstein að stöð- ugu verðlagi, ekki síst af þessum ástæðum. Laun hér á landi eru nú sambæri- leg við það, sem þau voru fyrir 10 árum, sem er vitaskuld óviðunandi borið saman við launaþróun í öðrum löndum, ég tala nú ekki um, ef lífskjör stæðu í stað til aidamóta. Til viðbótar kemur meira óöryggi á vinnumarkaði en þorri þjóðarinnar hefur áður þekkt. Samræmd stefna í atvinnumálum fyrirfinnst engin en hver höndin uppi á móti annarri í ríkisstjórninni. Þó hefur ekki verið staðið gegn samningum um álver, skárra væri það, en varaflugvallar- málinu er drepið á dreif. Við þessar aðstæður halda menn og fyrirtæki að sér höndum, sem skiljanlegt er. Við svo ömurleg skilyrði eru að sjálfsögðu ekki forsendur fyrir því, að launþegahreyfingin geti vænst þess að ná kjarabótum. Hún hlýtur þvert á móti að taka höndum sam- an við atvinnurekendur um að veij- ast frekari skerðingu lífskjara en orðin er, — vegna ríkisstjórnarinn- ar. Ekki getur iðnaðarráðherra vænst þess, að orð hans séu tekin alvarlega, þegar hann ræðir um atvinnumál, nema hann hafi skoðun á sjávarútvegi og stjórn fiskveiða. Er hann t.d. sammála sjávarútvegs- ráðherra í þeim efnum? Eða getur verið að ráðherrar Alþýðuflokksins séu að fiska í gruggugu vatni, þegar kemur að markaðsmálum sjávarútvegsins? Hvað á iðnaðar- ráðherra við með þessum orðum í ræðu sinni: „í öðru lagi hafa íslensk stjórnvöld kappkostað að halda öll- um leiðum opnum í tvíhliða viðræð- um við ráðamenn Evrópubanda- lagsins um mikilvæg, gagnkvæm hagsmunamál?“ Er hann að segja, að við sjálfstæðismenn höfðum rétt fyrir okkur en Jón Baldvin rangt í vantraustsumræðunum, þegar við kröfðumst þess, að tvíhliða viðræð- ur yrðu teknar upp við Evrópuband- alagið um útvíkkun á bókun 6 vegna óheyrilegra tolla á saltfiski til Portúgals og Spánar, sem námu rúmum milljarði á sl. ári? Eða er hann að segja, að fiskinnflytjendum í Evrópubandalaginu falli það vel í geð, þegar fréttir berast um það, að stjórnvöld séu að reyna bijóta niður sölusamtök okkar eins og SÍF og SH. Það eru þeirra hagsmunir en ekki okkar. Það er verið að reyna að koma á fiskmiðlun hér á landi og hefur ekki farið fram hjá neinum, að ráð- herrar Alþýðuflokksins hafa verið hjáróma í því máli og alls ekki já- kvæðir. Þó getur þetta mál skipt sköpum fyrir sjávarþorpin hringinn í kringum landið. Nú í vikunni hringdi í mig útgerðarmaður að norðan, sagði að ég mætti leiða það í tal við þá, sem væru í fílabeins- turnum þarna fyrir sunnan, að það væri ekki lengur hægt að una við þá mismunun, sem hlytist af mis- munandi fiskverði. Nú í febrúar hefur hann verið að fá tæplega 46 krónur fyrir lifandi blóðgaðan þorsk. Hann hefur landað 112 tonn- um. Borið saman við fiskverð í Ólafsvík hefur hann og skipshöfn hans tapað 1,2-1,4 millj, kr. á ár- inu. A sama tíma er ríkissjóður að styrkja togaraútgerðir með hundr- uðum milljóna króna og búa þannig til falskt fiskverð. Hvernig skyldi iðnaðarráðherra svara þessum at- hugasemdum bátaútgerðarmanns- ins fyrir norðan? Á hann von á sér- stöku hrósi að utan fyrir frammi- stöðuna? Svo er að heyra. í ræðu sinni segir iðnaðarráð- herra: „Það var öllum ljóst haustið 1988 að lagfæra þurfti rekstrarskil- yrði útflutnings- og samkeppnis- greina.“ — Ekki er þetta rétt. Þvert á móti stóð Jón Sigurðsson Halldór Blöndal „Laun hér á landi eru nú sambærileg við það, sem þau voru fyrir 10 árum, sem er vitaskuld óviðunandi borið saman við launaþróun í öðrum löndum, ég tala nú ekki um, ef lífskjör stæðu í stað til aldamóta.“ og Alþýðuflokkurinn á móti því að raungengi krónunnar yrði lækkað haustið 1988, sem olli harðari árekstri milli Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins en mig rekur minni til, — og síðan hlupu kratarn- ir rakleiðis í fangið á maddömu Framsókn. Mér er ekki ljóst, hvað iðnaðarráðherra á við, þegar hann talar um „að leiðrétta raungengið í einum rikk“, sem ég kannast ekki við að hafi verið til umræðu milli stjórnarflokkanna í ágúst og sept- ember 1988. Það er hins vegar rétt hjá iðnaðarráðherra, að lífskjörin hafa versnað mjög verulega, eftir að ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar var mynduð. Iðnaðarráðherra talar um, að afkoma iðnfyrirtækja hafi yfirleitt batnað nema í ullariðnaði. Fyrir nokkrum misserum unnu um 400 manns í þeirri atvinnugrein á Akur- eyri. Nú eru þeir um 250 og þó í óvissu um, að þeir haldi atvinnunni. Nema í skipasmíðaiðnaðinum og tengdum greinum. Það er ástandið hörmulegt. Ekki fást eðlileg stofn- lán til raðsmíðinnar á Akureyri, þótt kaupsamningur hafi legið fyrir svo mánuðum skiptir og einstakir ráðherrar hafi gefið loforð og fyrir- heit. Tap Slippstöðvarinnar af þess- um sökum er verulegt, — mér kæmi ekki á óvart, þótt það næmi tugum milljóna og verður að skrifast á ríkisstjórnina. Nema í lagmetisiðnaði, segir iðnaðarráðherra, og býður fram opinbera aðstoð. Þessi „nema“ yrðu mörg, ef öll yrðu talin. Að síðustu er óhjákvæmilegt að vekja athygli á þessum ummælum iðnaðarráðherra: „Ég vil í framhjá- hlaupi geta þess að í fjármálaráðu- neytinu er þegar hafinn undirbún- ingur að því að efna það loforð sem gefið var við undirritun kjara- samninganna 1. maí í fyrra að endurskoða skattlagningu fyrir- tækja í ljósi framvindunnar í Evr- ópu. Efndirnar munu byija að skila sér með fjárlagafrumvarpinu í haust og enn frekar með fjárlaga- frumvarpinu haustið 1991.“ Þegar Jón Baldvin var fjármála- ráðherra áttum við sjálfstæðismenn gott samstarf við hann um nýskipan skattkerfisins í því skyni að bæta samkeppnisstöðu íslenskra fyrir- tækja. Fyrir jólin 1988 var rauðu striki slegið yfir þessar umbætur og álögur á fyrirtækin auknar með afturvirkri skattheimtu. Iðnaðar- ráðherra hefur síðan gefið fyrirheit á Alþingi í svipuðum tón og hann gaf nú á ársþingi iðnrekenda, en Olafur Ragnar jafnskjótt tekið af skarið og sagt, að þessi mál heyri undir sig en ekki iðnaðarráðherra. Hann hafi skattheimtuna í sinni hendi. Iðnaðarráðherra segir, að útlend- ir menn kunni að meta stefnu sína og ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar í efnahagsmálum og er sár við landa sína vegna skiln- ingsleysis þeirra. Þessu verður hann þó að kyngja. Einfaldlega vegna þess, að íslendingar telja sig eiga betra skilið en þeir verða nú að sætta sig við. Og við það situr. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra. Norsku Stll ullarnærfötin Þeim verður ekki kalt ailan daginn. Dæmi um verð: * fóðruð með mjuku Dacron efni. Grandagarði 2, Rvík., sími 28855 21 DVÆNGJUItr HO IM G Sl byggt á sðngferli Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar Gerum tilboð fyrir hópa. Rútur, gisting, skemmtidagskrá. Allar upplýslngarí GLAUMBERGI, Keflavík, Sími 92-14040. LAHDSBY66ÐARFÓLK! Munið helgarpakka Sýning sem vert er að sjá. Frábær skemmtidagskrá með okkar bestu söngvurum Sýningar á laugardags- kvöldum mnta BERG Rut Reginolds Mars SKEMMTISTAÐUR Keflavik 1 2 3 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 Þorvaldur Halldórsson Aprfl 1 2 3 4 5 6 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 2\ l 22 23 24 26 26 27 28 / 29 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.