Morgunblaðið - 23.03.1990, Síða 16

Morgunblaðið - 23.03.1990, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990 Morgunblaðið/Júlíus Grænlenski frystitogarinn Polar Princess í HafnarQarðarhöfn á fímmtudag. Grænlenskur togari landar hér fryslum þorskflökum GRÆNLENSKI frystitogarinn Polar Princess landaði um 190 tonnum af frystum þorskflökum í Hafnarfirði í gær, fimmtudag. „Eftir því, sem ég best veit, er Polar Princess fyrsti grænlenski togarinn, sem landar frystum þorski hérlendis og ég reikna fastlega með að skipið landi hér áfram,“ sagði Reynir Guðmundsson hjá flutningadeild Nesskips hf. í samtali við Morgunblaðið en Nesskip er með umboð fyrir skipið hér. Flugumferðaratvik- ið suður af Grindavík: Beðið er upplýs- inga frá Isarael STEFNT er að því að rannsókn íslenskra flugmálayfirvalda á atviki því er varð um 37 mílur suður af Grindavík, er ísraelskri breiðþotu var flogið í veg fyrir breska, ljúki um næstu mánað- armót. Að sögn Skúla Jóns Sig- urðarsonar deildarstjóra loft- ferðaeftirlits vantar aðeins upp- lýsingar frá ísraelskum flug- málayfírvöldum til að unnt sé að ljúka rannsóknarskýrslu til flugmálastjóra. Rannsókn íslenskra flugmálayfírvalda beinist meðal annars að þætti flugumferðarstjómar og hvort villa ísralesku þotunnar hefði þar átt að koma í ljós á ratsjám. Engar upplýsingar fengust í gær um efhisþætti rannsóknar- inar. Ljóst mun þykja að flugstjóri ísraelsku þotunnar beri höfuð- ábyrgð á atvikinu en hann hafði borið um 80 mílur af leið sinni og var að rétta af stefnuna án sam- ráðs við íslenska flugstjómarsvæð- ið þegar hann flaug vél sinni í veg fyrir þá bresku, sem lagt hafði af stað frá Heathrow flugveli 19 mínútumm á eftir ísraelsku vél- inni. Vélunum var flogið í 33 þús- und feta hæð en ísraleska vélin hefði átt að vera 60 sjómílum sunn- an við þá bresku hefði ísraelski flugstjórinn fylgt réttri stefnu. „Þetta er fyrsta Iöndun Polar Princess eftir miklar breytingar á skipinu í Danmörku en það fór í þessa veiðiferð héðan 5. febrúar síðastliðinn,“ sagðí Reynir Guð- mundsson. Reynir sagði að fyrir- tækið Polar Scallop gerði Polar Princess út og skipið mætti veiða þorsk bæði fyrir austan og vestan Grænland. Astæðan fyrir því að skipið landaði hér væri sú að afurð- ir skipsins væru seldar í Bretlandi og Danmörku og styttra væri að flytja þær þangað frá íslandi en Grænlandi, auk þess sem héðan væru örari ferðir flutningaskipa en frá Grænlandi. Hann sagði að Eim- skip flytti fiskinn til Evrópu. Reynir sagði að í áhöfn Polar Princess væru 44 manns og flestir þeirra væru Grænlendingar. Flugatvikið við íslandsstrendur 13. febrúar: Ekki ákveðið hvort kvartað verður við flugmálayfirvöld „HIÐ eina sem ég get sagt nú er að flugstjórinn tilkynnti að legið hefði við árekstri við ísraelska breiðþotu við íslandsstrendur 13. febrúar," sagði Derek Ross, blaðafulltrúi breska flugfélagsins British Airways, í samtali við Morgunblaðið í gær. Um borð í bresku þo- tunni voru 207 farþegar og 16 manna áhöfn, eða alls 223 menn. Ekki hefur tekist að fá upp gefið hve margir voru í ísraelsku þotunni. Morgunblaðið reyndi í gær að fá samtal við flugmenn bresku breið- þotunnar en Derek Ross sagði það stefnu British Airways að gefa ekki upp nöfn starfsmanna félagsins eða símanúmer, jafnvel þó um væri að ræða menn sem ef til vill hefðu bjargað lífi mörg hundruð manna. Aðspurður hvort hann gæti haft milligöngu milli blaðsins og flug- mannanna sagði hann að meðan flugatvikið væri í rannsókn yrði heldur ekki um það að ræða. „Mér skilst að fiugmenn okkar hafi bjarg- að lífi mörg hundruð manna með snarræði sínu, en meðan rannsókn þessa atviks er ólokið viljum við ekki tjá okkur frekar um það á þessu stigi,“ sagði Ross. Að sögn Ross átti atvikið sér stað '13. febrúar en ekki þann 15., eins og fram kom í blaðinu í gær. Þota British Airways, flug BA-297, hefði verið á leið til Chicago en þota E1 A1 til New York. Báðar hófu ferðalagið á Heathrow-flug- vellinum í London. í samtali við Morgunblaðið sagði Derek Ross að ekki lægi fyrir ákvörðun af hálfu British Airways hvort flugfélagið mundi gera at- hugasemdir við flugmálayfirvöld í ljósi þess, að á hálfu fjórða ári hefði tvisvar legið við árekstri breiðþotna félagsins innan íslenska flugstjórn- arsvæðisins; fyrst yfír Austurlandi 2. júní 1986 og nú 13. febníar sl. suður af Reykjanesi. í fyrra tilvik- inu voru 589 menn í breiðþotum British Airways og SAS er voru hársbreidd frá því að skella saman yfir Austurlandi. ísraelski flug- stjórinn sviptur flugstjóratign FLUGSTJÓRI breiðþotu ísra- elska flugfélagsins E1 A1 sem var nærri lent í árekstri við breska breiðþotu suður af Grindavík 13. febrúar sl. hefur verið lækkaður í tign vegna atviksins, samkvæmt fréttum Reuters-fréttastofunnar. Eftir fiugið var áhöfn ísraelsku þotunnar send heim til Israels sem farþegar. Að sögn Nachmans Kliemans, talsmanns E1 Al, leiddi innri rann- sókn félagsins á atvikinu í ljós að sökin lægi hjá flugmönnum E1 Al. í framhaldi af því var flugstjóri þotunnar sviptur flugstjóratign og gerður að aðstoðarflugmanni. Að- stoðarflugmaður hans og aðrir í áhöfn flugvélarinnar voru sendir í endurþjálfun. Mistökin hefðu verið ísraelsku flugmannanna, en ekki þeirra bresku, sem séð hefðu hvert stefndi og sveigt af leið til þess að afstýra árekstri. Nacham Klieman, talsmaður E1 Al, sagði að eftir atvikið við ísland hefði verið hafist handa um að koma fyrir nýjum tækjabúnaði í þotum félagsins er gefa ljós- og hljóðmerki ef flugmenn fljúga af leið. Helga Guðmundsdóttir fv. ráðherrafrú látin HELGA Guðmundsdóttir, fv. ráðherrafirú, lést á Lands- spítalanum í gærmorgun. Hún hafði átt við veikindi að stríða undanfarið ár. Helga Guðmundsdóttir, fæddist á Þönglabakka í Þor- geirsfirði 16. apríl 1910, dóttir hjónanna Guðmundar Jörunds- sonar, skipstjóra og síðar út- gerðarmanns, og Sigríðar Sig- urðardóttur, húsmóður. Helga kvæntist 7. október 1935 Áka Hermanni Jakobs- syni, lögmanni og atvinnumála- ráðherra í Nýsköpunarstjórn- inni 1944-1947. Hann lést árið 1975. Þau Helga og Áki áttu sex börn saman og eru fimm þeirra á lífi, þau Guðmundur Hjörtur Ákason, verkstjóri, Valgerður Ákadóttir, tónlistarkennari, Jörundur Ákason, kennari, Jón Börkur Ákason, sjómaður og Helga Guðmundsdóttir. Margrét Ákadóttir, Ieikari. Eitt barna þeirra hjóna, Jón Ár- mann Ákason, lést 1948, átta ára að aldri. Ölafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins: Gleðst yfir sam- einingu til yinstrí Boðist var til að leggja niður Birt- ingu gengi ABR til samstarfs við Nýjan vettvang FORYSTUMENN í stjórnmálafélaginu Birtingu buðust til að beita sér fyrir því að félagið yrði lagt niður mætti það verða til þess að Alþýðubandalagsfélag Reykjavíkur stæði óskipt að framboði Nýs vettvangs við borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Össur Skarp- héðinsson í gær. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðu- bandalagsins, vill ekki tjá sig um framboðsmál flokksins í Reykjavík, en sagðist gleðjast yfir því að aldarfjórðungs gam- alt baráttumál sitt, sameining líta dagsins ljós. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var í gærkvöldi gengið frá lista þess fólks sem mun taka þátt í forvali Al- þýðubandalagsins í Reykjavík. Eins og kunnugt er mun hafa gengið mjög erfiðlega að manna þennan lista, en heimildir Morg- unblaðsins herma að Siguijón Pétursson og Guðrún Ágústs- dóttir núverandi borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins verði á list- anum, og eins hefur Hildur Jónsdóttir verið orðuð við hann. Ólafur Ragnar sagðist ekki vilja hafa afskipti af framboðs- málum Alþýðubandalagsmanna í Reykjavík. Hann neitaði þó ekki að hafa tekið þátt í undir- búningi kosninganna á Seltjarn- arnesi. „Það geri ég sem óbreyttur flokksmaður. I tengsl- um við bæjarstjórnarkosningar á Seltjarnarnesi er ég hluti gras- rótarinnar,“ sagði Ólafur Ragn- ar, en sem kunnugt er hafa minnihlutaflokkar á Seltjarnar- nesi sameinast gegn meirihluta Sjálfstæðisflokks. Svavar Gestsson mennta- málaráðherra og fyrrum for- maður Alþýðubandalagsins sagði Krístínu Á. Ólafsdóttur verða að gera upp hug sinn hvað þátttöku í stjórnmálastarfi fyrir kosningarnar varðaði. „Hún getur í raun ekki stundað kosningabaráttu á tveimur stöð- um í einu,“ sagði Svavar. Að- spurður um sína afstöðu í máli þessu sagði hann: „Ég er þing-. maður Alþýðubandalagsins í Reykjavík, og það er ekki spurn- ing um það í mínum huga að ég stend með mínum flokki.“ Á fundi borgarmálaráðs Al- þýðubandalagsins á miðvikudag lagði Siguijón Pétursson, efsti maður G-listans í seinustu kosn- ingum, fram tillögu um að Kristínu Á. Ólafsdóttur, núver- andi borgarfulltrúa Alþýðu- bandalagsins sem hyggst taka þátt í prófkjöri Nýs vettvangs, yrði meinuð seta á fundum ráðs- ins það sem eftir lifír kjörtíma- bils. Gegn tillögu Siguijóns lagði Össur Skarphéðinsson fram frávísunartillögu, sem var samþykkt, með 6 atkvæðum gegn 5. Samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins voru það þau Hörður Oddfríðarson, Guð- rún Ómarsdóttir, Ama Jóns- dóttir, Gunnar H. Gunnarsson og Magnús Skúlason auk Ös- surar, sem greiddu frávísunart- illögunni atkvæði. Á móti voru Siguijón Péturssonj Erlingur Viggósson, Guðrún Ágústsdótt- ir, Ingibjörg Jónsdóttir og Gunnar Hákonarson. Hildi- gunnur Haraldsdóttir sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Að lokinni þessari atkvæðagreiðslu gekk Erlingur Viggóson af fundi. vinstri aflanna, væri víða að Hann sagði í samtali við Morg- unblaðið að ástæða þess hafi verið sú, að hann hafi talið fund- inn ómerkann eftir að tillaga Siguijóns var felld, og þurft að ná strætisvagni. Þegar Erlingur var farinn lagði Hörður Oddfríðarson fram traustyfirlýsingu á Kristínu Ól- afsdóttur, sem hlaut samþykki að lokinni atkvæðagreiðslu, með 6 atkvæðum gegn 5. Hildigunn- ur Haraldsdóttir greiddi sam- kvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins atkvæði gegn stuðn- ingstillögunni, en annars voru fylkingar óbreyttar. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðs- ins hefði þessi tillaga ekki verið lögð fram ef Erlingur hefði ekki gengið áf fundi. í framhaldi af þessari sam- þykkt ráðsins sendi' stjórn ABR frá sér gagnrýni á fundarstjóm Siguijóns Péturssonar, og benda á að tveir fulltrúar Æsku- lýðsfylkingar Alþýðubandalags- ins sem tóku þátt í atkvæða- greiðslunni hafi ekki haft rétt til þess. Samkvæmt upplýsing- um blaðsins er þarna átt við þau Hörð Oddfríðarson og Guðrúnu Ómarsdóttur. Össur Skarphéðinsson sagð- ist í samtali við Morgunblaðið ætla að styðja Nýjan vettvang í komandi kosningum, og myndi ekki sitja fleiri fundi borgar- málaráðs á þessu kjörtímabili. „Þetta þýðir hins vegar ekki að ég sé hættur í Alþýðubandalag- inu, langt því frá. Ég hef ásamt nokkram þungavigtarmönnum í Birtingu, eins og þeim Merði Árnasyni, Guðna Jóhannessyni, Gísla Gunnarssyni og 'Arthúr Morthens boðið nánast allt sem mögulegt er til að splæsa Al- þýðubandalagsmönnum í Reykjavík saman, sem tilboð okkar um að beita okkur fyrir því að félagið yrði lagt niður sýnir gleggst. Tilgangurinn með þessum viðræðum var að fá sameinað ABR til samstarfs við Nýjan vettvang, en jiað hefur ekki borið árangur. Ég tel þró- unina síðustu vikur vera mjög í andstöðu við vilja flokks- manna, og mér blöskrar fram- koma stjórnar ABR, minni- hlutahóps sem starfar gegn vilja þorra flokksmanna,“ sagði Öss- ur. Kristin Á. Ólafsdóttir sagðist vera ánægð með það traust sem borgarmálaráð hefði sýnt sér með samþykkt sinni. „Hvað þá tortryggni sem komið hefur fram á þessa atkvæðagreiðslu varðar vil ég benda á að Sigur- jón frændi minn Pétursson er afskaplega kunnugur fundar- sköpum og fundarreglum, og má mikið vera ef formgalli á atkvæðagreiðslu hefur farið fram hjá honum,“ sagði hún.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.