Morgunblaðið - 23.03.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990
23^
Eldri deild bjöllukórsins í Garðinum ásamt sljórnandanum, Karen
Sturlaugsson.
Landsmót bjöllukóra í
Garðinum um helgina
UM HELGINA fer fram landsmót
fjögurra bjöllukóra í Garðinum.
Þetta er í annað sinn sem slíkt
mót er haldið en kóramir komu
fyrst saman á Ilellisandi í fyrra.
Fjórir kórar eru starfandi á
Islenska óperan:
Opið hús
SUNNUDAGINN 25. mars frá kl.
14—18 verður opið hús í íslensku
óperunni. Skipulögð verður leið-
sögn um húsið, gestum sýnt
hvernig ópera verður til og á
hvem hátt daglegt líf gengur fyr-
ir sig í óperuhúsi.
Klukkan 15 og 16.30 kynna ein-
söngvarar og kór íslensku óperunnar
þau verk sem nú eru á fjölum henn-
ar. Sýnd verða óperumyndbönd af
fyrri uppfærslum. Þessi kynning
verður sniðin fyrir alla fjölskylduna.
landinu. Einn er á Hellisandi, ann-
ar í Stykkishólmi, þá nýlega stofh-
aður kór Bústaðakirkju í Rvík auk
kórsins í Garðinum sem starfar í
tveimur deildum.
Dagskrá mótsins verður aðallega
fólgin í samæfingum kóranna auk
þess sem ýmislegt verður sér til
gamans gert. Farið verður í skoðun-
arferðir um nágrennið, farið í Bláa
lónið, haldin kvöldvaka og diskótek
svo eitthvað sé nefnt.
Hápunktur mótsins verða tónleik-
ar í Njarðvíkurkirkju á sunnudaginn
kl. 15. Þar munu kórarnir leika eins-
iega og sameiginlega þar sem einnig
koma fram blásarar úr Tónlistar-
skóla Keflavíkur. Að sjálfsögðu eru
áheyrendur velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Bjöllutónlist er mjög sérstök. Hand-
bjöllur þessar eru upprunalega
komnar frá Bretlandi. Þær bárust
til Bandarílqanna um aldamótin
síðustu og náðu þá miklum vinsæld-
um og útbreiðslu.
Arnór
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
I 22. mars.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 89,00 65,00 79,80 27,877 2.224.552
Þorskur(ósl.) 25,00 25,00 25,00 24,365 1.775.845
Ýsa 86,00 60,00 80,45 0,164 13.194
Ýsafósl.) 89,00 60,00 67,03 0,828 55.465
Karfi 42,00 40,00 40,30 1,455 58.640
Ufsi 31,00 31,00 31,00 0,193 5.983
Steinbítur 57,00 20,00 52,23 0,268 13.998
Steinbftur(ósL) 50,00 50,00 50,00 0,210 10.500
Langa 57,00 57,00 57,00 0,104 5.928
Lúða 360,00 360,00 360,00 0,043 15.480
Koli 29,00 29,00 29,00 0,145 4.205
Samtals 75,29 56,848 4.280.122
FAXAMARKAÐUR hf. í I Reykjavík
Þorskur 76,00 £8,00 71,55 49,000 3.506.004
Þorskur(ósl.) 71,00 30,00 60,12 54,505 3.276.845
Ýsa 112,00 68,00 100,55 17,554 1.765.127
Ýsa(ósl.) 124,00 84,00 92,49 0,641 59.284
Karfi 38,00 30,00 37,68 12,181 458.958
Ufsi 33,00 31,00 31,00 28,027 868.925
Hlýr+steinb. 39,00 35,00 36,15 6,203 224.237
Langa 52,00 43,00 47,18 2,750 129.749
Lúða 300,00 210,00 239,90 0,457 109.635
Skarkoli 38,00 33,00 35,59 1,470 52.320
Hrogn 65,00 65,00 65,00 3,387 220.155
Samtals 60,43 177,322 10.715.100
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 93,00 50,00 70,82 39,943 2.828.922
Ýsa 142,00 35,00 91,33 16,380 1.495.972
Karfi 42,00 15,00 34,84 5,342 186.090
Ufsi 34,00 26,00 28,55 3,447 98.429
Steinbítur 40,00 30,00 34,89 11,087 387.102
Langa 42,00 41,00 41,28 0,354 14.612
Lúða 350,00 200,00 286,94 0,211 60.545
Skarkoli 65,00 44,00 48,67 1,251 60.881
Sandkoli 5,00 5,00 5,00 0,450 2.250
Keila 25,0Ö 5,00 24,02 0,931 22.353
Hrogn 218,00 206,00 213,25 0,609 129.870
Samtals 65,69 81,495 5.353.452
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA
I VESTUR-ÞÝSKALAND 22. mars.
Hæstaverð Lægstaverð Meðalverð Magn Heildar-
(kr.) (kr.) (kr.) (lestir) verð (kr.)
Þorskur 115,05 93,48 104,26
Ýsa 201,52 129,43 168,97
Karfi 137,34 90,60 113,97
Ufsi 79,81 64,71 72,26
GÁMASÖLUR 1 BRETLANDI 22. mars.
Hæstaverð Lægstaverð Meðalverö Magn Heildar-
(kr.) (kr.) (kr.) (lestir) verð (kr.)
Þorskur 133,70 99,09 116,39
Ýsa 184,03 138,42 161,22
Karfi 72,36 70,78 71,57
Ufsi 81,79 70,78 76,28
Á vængjum söngsins í Glaumbergi
Byggt á söngferli Yilhjálms heitins Vilhjálmssonar
VEITINGAHÚSIÐ Glaumberg
í Keflavík hefúr hafið sýningar
á skemmtidagskránni „A
vængjum söngsins" en hún er
byggð á söngferli Vilhjálms
heitins Vilhjálmssonar. Fram
koma söngvararnir Ellý Vil-
hjálms, Rut Reginalds, Þorvald-
ur Halldórsson og Björgvin
Halldórsson. Kynnir er Her-
mann Gunnarsson. Hljómsveit
Magnúsar Kjartíinssonar leikur
undir og einnig á dansleik eftir
skemmtidagskrána. Sýningar
eru öll laugardagskvöld út
aprílmánuð.
Veitingahúsið Glaumberg og
Flug Hótel bjóða sameiginlega
Frá skemmtidagskránni „Á vængjum söngsins“ í Glaumbergi.
upp á „pakka“, skemmtidagskrá og fleiri, er boðið upp á fríar rútu-
og gistingu á hóflegu verði. Einn- ferðir frá höfuðborgarsvæðinu,
ig fyrir stærri hópa, 30 manns fram og tilbaka. (Fréttatilkyiming)
Kirkjukvöld í
Sauðárkrókskirkju
Sauðárkróki.
I TENGSLUM við Sæluviku Skagfirðinga, sem haldin hefiir verið á
hverjum vetri um árabil, og hluti af þeim dagamun sem menn gera
sér þá, eru haldin kirkjukvöld í Sauðárkrókskirkju.
Kristbergur við eitt verka sinna.
■ KRISTBERGUR Pétursson
opnar sýningu í kvöld, fostudags-
kvöld, í gallerí Einn-Einn, Skóla-
vörðustíg 4a. Þetta er fjórða einka-
sýning hans hérlendis. Hann lauk
námi frá Myndlista- og Handíða-
skóla íslands 1985 og Ríkisaka-
demíunni í Amsterdam 1988.
Þessi sýning samanstendur af mál-
verkum og teikningum unnum á
árunum 1988—1989. Opnunartími
gallerísins er kl. 14—18 alla daga.
Sýningunni lýkur 8. apríl.
Vegna óviðráðanlegra orsaka var
Sæluvikunni seinkað í ár frá upphaf-
lega áætluðum tíma, en erfiðleikum
var bundið að láta kirkjukvöldin
fylgja þeirri breytingu, og eru þau
því eins og til stóð, laugardag 24.
og mánudag 26. mars.
Efni kirkjukvöldanna verður fjöl-
breytt að vanda. Þar fer Kirkjukór
Sauðárkróks fyrir með fjölbreytta
söngskrá og er söngstjóri Ingveldur
Hjaltested, en einnig syngur Barna-
kór Sauðárkróks nokkur lög. Ragn-
hiidur Óskarsdóttir, Ingveldur Hjalt-
ested og Jóhann Már Jóhannsson
syngja einsöng við undirleik Rögn-
valdar Valbergssonar, sem einnig
er organisti kirkjunnar.
Ræðumenn á kirkjukvöldunum
verða tveir. Fyrra kvöldið talar Gest-
ur Þorsteinsson, útibússtjóri Búnað-
arbankans, en síðara kvöldið sr.
Þórir Stephensen fyrrverandi sókn-
arprestur á Sauðárkróki.
Um helgina verður haldin að
Löngumýri Leikmannastefna Þjóð-
kirkjunnar. Héraðsnefnd sýslunnar
býður fulltrúum stefnunnar til kvöld-
verðar á laugardagskvöldið, en síðan ^
verða fulltrúamir gestir á kirkju-
kvöldinu.
- BB
tJr kvikmynd Regnbogans, „Bræðralagið".
Regiibog’inn sýnir mynd-
ina „Bræðralagið“
REGNBOGINN hefúr hafið sýn-
ingar á kvikmyndinni „Bræðra-
Iagið“. í aðalhlutverkum eru Billy
Wirth og Kevin Dillon. Leikstjóri
er Franc Roddam.
Um efni myndarinnar segir m.a.
Þjóðlagatón-
list á ölhúsum
ÍRSKI tónlist-
armaðurinn
Michael Kiely
er staddur hér
á landi og mun
leika fyrir
gesti á veit-
ingastaðnum
Fógetanum, HMk
Gikknum og H|Hl A *■'
Vitanum í
Reykjavík og Michael Kiely.
Uppanum á Akureyri.
Kiely leikur þjóðlagatónlist af
írskum uppruna og verður með tón-
leikahald hér á landi til 21. apríl.
Þetta er í þriðja sinn sem Kiely
kemur tjl tónleikahalds til íslands
en hann hefur farið víða um heim
með gítarinn í farteskinu. í byrjun
apríl er væntanleg hljómplata með
Kiely þar sem Magnús Þór Sig-
mundsson er honum til aðstoðar.
í kynningu: í Binger, Montana, hafa
índíánar búið síðan sögur hófust.
Fyrir 100 árum kom riddaralið frá
Bandaríkjunum og stráfelldi þorps-
búa. 13. ágúst á að minnast þessara
atburða og reyna að lokka ferða-
menn til bæjarins með því að svið-
setja bardaga riddaraliðs og indíána.
Margir ungir menn bjóðast til að
taka þátt í bardaganum og þar á
meðal félagarnir Sonny og Skitty.
Helgi Þorgils
sýnir í gall-
eríi Sævars
HELGI Þorgils opnar í dag, föstu-
daginn 23. mars, myndlistarsýn-
ingu í galleríi Sævars Karls,
Bankastræti 9. Á sýningunni eru
málverk, vatnslitamyndir og
skúlptúr.
Helgi Þorgils fæddist í Búðardal
1953 og stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskólann frá
1971—1976 og síðan við Jan Van
Eyck Academie í Maastricht, Hol-
landi 1977—1979. Helgi hefur verið
kennari við Myndlista- og handí-
ðaskóla íslands frá 1980 og var
gestakennari við Stadts Academie
í Ósló 1985. Hann hefur haldið að
minnsta kosti 30 einkasýningar
víðsvegar um heiminn og tekið þátt
í fjölda samsýninga.
Sýningin stendur yfir frá 23.
mars til 20. apríl og er opin á versl-
unartíma, mánudaga til föstudaga
frá kl. 9-18.
Lokað
vepna jarðarfarar LILJU GUÐRÚNAR GUÐJÓNS-
DOTTUR, kaupmanns, verður lokað í dag frá kl.
13-18.
Dimmalimm,
Bankastræti 4.
Lokað
í dag frá kl. 13.00-17.00 vegna jarðarfarar ÁSDÍSAR
KOLBEINSDOTTUR. Blómaval, Sigtúni, Blómaval, Kringlunni, Brum hf., Funahöfða.