Morgunblaðið - 23.03.1990, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 23.03.1990, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990 ■ SÝNING á verkum átta íslenskra arkitekta sem starfandi eru erlendis verður í sýningarsal Myndlistarskólans á Akureyri um helgina. Sýningin verður opnuð í kvöld, föstudagskvöld kl. 20.30. Á sýningunni eru teikningar og ljós- myndir, auk málmskúlptúra eftir Jóhann Eyfells, en þar er um að ræða eins konar þrívíð form sem eru ein af undirstöðum allrar bygg- ingalistar. Á sýningunni eru verk eftir Guðmund Jónsson, Kolbrúnu Ragnarsdóttur í Noregi, Gunn- laug Baldursson, Jórunni Ragn- arsdóttur og Sigurlaugu Sæ- mundsdóttur í V-Þýskalandi, Bjarka Zophaníasson í Sviss, Högnu Sigurðardóttur í Frakkl- andi og Jóhann Eyfells í Banda- rikjunum. Sýningin er opin í kvöld frá 20.30 til 23.00 og á laugardag og sunnudag frá kl. 14.00 til 20.00. ■ KIRKJUKÓR Lögmannshlíð- arsóknar heldur tónleika í Glerár- kirkju kl. 17 á sunnudag. Á efnis- skránni verða verk eftir Áskel Jónsson, Bach, Fauré og Schub- ert. Kórfélagar eru 34 og söng- stjóri er Jóhann Baldvinsson. Ágóði af tónleikunum rennur til byggingar Glerárkirkju. Stærsta verkið sem flutt verður er messa í G-dúr eftir Schubert, en þar taka þátt einsöngvararnir Liza Lillic- rap, Óskar Pétursson og Eiður Ágúst Gunnarsson, sem starfað hefur sem óperusöngvari um árabil í Þýskalandi. Þá verður flutt verk fyrir kór og einsöngvara eftir Áskel Jónsson, sem frumflutt var við vígslu Glerárkirkju fyrir 3 árum, en Áskell var stjórnandi kórsins í áratugi. Hljóðfæraleikarar á tón- leikunum verða úr tónlistarskólan- um og Björn Steinar Sólbergsson organisti Akureyrarkirkju mun að- stoða ásamt fleirum. Ágóði rennur til byggingar kirkjunnar, en mikill hugur er fyrir því að kirkjuskipið verði tilbúið vorið 1991 þegar 100 ár eru liðin frá fæðingu Björgvins Guðmundssonar tónskálds. Kór Lögmannshlíðarkirkju vill með tónleikunum stuðla að því að þessu takmarki verið náð og er þess vænst að tónelskir Akureyringar sem og aðrir komi og hlýði á afrakstur vetrarstarfs kórsins í Glerárkirkju. Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson í sovéskri sveiflu Marina Anisina og Iliia Averbukh, heimsmeistarar unglinga í listdansi á skautum 1989, tóku nokkur æfingaspor á skautasvæði Skautafélags Akureyrar í gær, en þau munu sjna listir sínar á opnunarhátíð vetraríþróttahátíðar ISÍ á Akureyri annað kvöid. Setningarhátíðin hefst kl. 20, er vélsleðamenn safn- ast saman í úthverfum bæjarins með sérstaka vetrar- íþóttafána, hestamenn fara í hópreið með kyndla frá Sanavelli og sovéska skautaparið verður flutt frá Leirunesti á þar til gerðum vagni. Skíðagöngufólk safnast saman við Galtalæk og alpagreinafólk við Nausta, en skautafólkið við Laxdalshús. Athöfnin fer fram við skautasvellið. Sovésku listdansararnir á skautum sýna kl. 21. og fánaberar koma inn á svell- ið kl. 21.15. Bæjarstjórinn á Akureyri og forseti ÍSI flytja ávörp og að lokum verður tónlistaratriði. Piskmiðlun Norðurlands: Morgunblaðið/Rúnar Antonsson Undanúrslit íslandsmótsins í brids Undanúrslit Íslandsmótsins í brids hófust í Alþýðuhúsinu á Akureyri í gær. Alls taka 175 spilarar í 32 sveitum þátt í mótinu, en þetta er stærsta bridsmót sem haldið hefur verið utan Reykjavíkur. Flestar sveitanna koma frá Reykjavík eða 14, 4 sveitir eru frá Austfjörðum, 3 frá Reykjanesi og Norðurlandi eystra og vestra, 2 eru frá Reykja- nesi og Vestfjörðum og 1 frá Vesturlandi. Keppt er í fjórum riðlum og komast efstu sveitir hvers riðils áfram á íslandsmótið ásamt tveim- ur stigahæstu sveitunum þar á eftir, en tvær sveitir hafa þegar tryggt sér þátttökurétt á mótinu. í gær voru spilaðar tvær umferðir og hefst sú þriðja í dag kl. 13, fjórða umferð verður spiluð annað kvöld og verður byijað að spila kl. 19.30. Þá verða spilaðar tvær umferðir á laugardag og ein á sunnudag. Jakob Kristinsson frá Bridsfélagi Akur- eyrar sagði að aðstaða til að fylgjast með mótinu væri góð og væri áhorfendur velkomið að fylgjást með. Fyrirhug'aður fisk- markaður á Dalvík Skákþing Norðurlands á Sauðárkróki: Kostnaði haldið í lágmarki STJÓRN Fiskmiðlunar Norðurlands á Dalvík ætlar að sækja um leyfi til sjávarútvegsráðuneytis um að koma upp fiskmarkaði á Dalvík. Samningur hefúr verið gerður við fiskverkunina Harald hf. um móttöku og afhendingu aflans, en fiskurinn verður boðin upp í húsakynnum fyrirtækisins. Vonast er til að smábátar á svæð- inu og togarar nýti sér markaðinn og einnig er ætlunin að fá rækjuskip til að landa á markaðnum. Kostnaði vegna fiskmarkaðar- ins er haldið í lágmarki á meðan viðbrögð við honum eru skoðuð. Fáist jákvætt svar frá ráðuneyti hefjast uppboðin í apríl. Hilmar Daníelsson fram- kvæmdastjóri Fiskmiðlunar Norð- urlands sagði að stjóm félagsins hefði ákveðið að gera þessa til- raun, en vissulega renndu menn nokkuð blint í sjóinn varðandi það hráefni sem til ráðstöfunar er á svæðinu. Fiskurinn verður tekinn S-inn á gólf og boðinn þar upp, en samhliða verður unnt að bjóða í fisk sem enn er um borð í fiskiskip- um. „Sá háttur verður hafður á, að þeir sem ekki eru á uppboðinu geta tengst markaðnum í síma og fylgst með því hvað er verið að selja, eða hvar skip munu landa. Við vonumst til að smábátar og togarar nýti sér aðstöðuna og selji á innlendum markaði og að í kjöl- farið minnki ásókn í gámaútflutn- " 'ing,“ sagði Hilmar. Þá sagði hann einnig að vonast væri til að rækju- skip myndu landa á markaðnum, en hann væri vel staðsettur með tilliti til rækjuverksmiðja á Norð- urlandi, allt frá Hvammstanga til Kópaskers. „Við vonum að rækju- skipin muni sjá sér hag í að landa ferskri rækju á markaðinn, því það eru ekki miklar flarlægðir á milli staða hér,“ sagði Hilmar. Stofnkostnaði vegna markaðar- ins er haldið í lágmarki, en Hilmar sagði að menn ætluðu að sjá hver viðbrögðin yrðu áður en farið yrði út í fjárfrekar framkvæmdir. Fisk- miðlun Norðurlands sendi umsókn vegna leyfis fyrir starfrækslu fisk- markaðarins til ráðuneytisins í gær og vonaðist Hilmar eftir já- kvæðu svari fljótlega þar sem ekk- ert ætti að vera því til fyrirstöðu að markaðurinn mætti starfa. Starfsemi markaðarins hefst að líkindum í næsta mánuði. Frá skákþingi Norðurlands á Sauðárkróki. Morgunblaðið/Bjöm Bjomsson Rúnar sigraði í opnum flokki Sauðárkróki. SKÁKÞING Norðurlands var haldið á Sauðárkróki í endaðan Fasteignatorgið _ Glerárgötu 28, 2. hæð, sími 96-21967. Sokotjorí Bjóm Krístjansson, heimasimi: 21776 ■■ Opiö virka daga kl. 9—19 og iaugardaga 14—16 Hólsgerdi: Gott einbhús með innb. bílsk. Skipti á raðhúsi m/bílsk. koma til greina. V. 11 m. Bakkahlíð: 5 herb. einbh. á einni og hálfri hæð 205 fm m/innb. bílsk. V. 9,7 m. Einholt: 4ra herb. endaraðh. á einni hæð 117 fm í góðu standi. V. 6,7 m. Furulundur: 120 fm raðh. Góð eign. Heiðarlundur: Raðhús 150 fm 5 herb. ásamt bílsk. og geymslum í kj. Góð eign á góðum stað. V. 7,9 m. Keilusíða: 4ra herb. endaíb. ífjölb- húsi á 3. hæð. Lerkilundur: Einbhús á einni hæð ásamt bílsk. Góð eign. Smárahlíð: Góð 2ja herb. íb. á 2. hæö í fjölbh. 61 fm. Góð eign. Núpasíða: Gott 4ra herb. raöhús. Möðrusíða: 5 herb. einb. m/bílsk. Góö eign. Reykjasíða: gott 5 herb. einb. m/bílsk. Skipti á eign á Stór-Rvík mögul. Stapasíða: Raðh. á tveimur hæð- um 168 fm m/bílsk. Góð eign. V. 8 m. Steinahlíð: Rúml. fokh. raðh. á tveimur hæðum m/bílsk. Nýtt húsnmlán. Fjölnisgata: 67 fm iðnhúsn. Laust st^ax. 130 fm iönhúsn. Laust strax. Við Eyjafjörð: Einb. 5 herb. 125 fm. 10 mín. frá Akureyri. LÖgm. Ásmundur S. Jóhannsson, sölumaður Björn Kristjánsson. febrúar. Til leiks voru mættir 40 þátttakeudur víðsvegar af Norðurlandi. Teflt var í opnum flokki, kvenna, unglinga og barnaflokki. Keppnin fór fram á tveim stöðum, í opna flokkn- um, sem var fjölmennastur var teflt í Safnaðarheimilinu, en keppni í kvenna, unglinga og barnaflokki fór fram í Sæborg. Skákstjóri var Albert Sigurðs- son. Urslit urðu þessi: Opinn flokkur: 1. Rúnar Sigurpálsson, Akureyri 6 v. 2. Páll Leo Jónsson, Skagastr. 5 v. 3. Sigurður Daníelsson, Blönduósi 5 v. Kvennaflokkur: 1. Þorbjörg Þórsdóttir, Akureyri 3 ‘Av. 2. Erla Jakobsdóttir, Blönduósi 1 v. Unglingaflokkur: 1. Örvar Arngrímsson, Akureyri 6 'Av. 2. Þórleifur Karlsson, Akuréyri 6 v. 3. Sigurður Ólafsson, Blönduósi 5 v. Bamaflokkur: 1. Björn Margeirsson, Skagafirði 4 v. 2. Páll Þórsson, Skagafirði 4 v. 3. Hafþór Einarsson, Akureyri 3 ‘Av. Síðasta keppnisdaginn fór fram hraðskákmót í opnum flokki og í unglingaflokki. Hraðskákmeistari Norðurlands í opnum flokki varð Rúnar Sigur- pálsson, og hraðskákmeistari í unglingaflokki varð Þórleifur Karls- son. í tengslum við Skákþingið var haldinn stjórnarfundur Skáksam- bands Norðurlands þar sem tekin var ákvörðun um næsta mótsstað, en hann verður á Akureyri næsta vetur. Styrktaraðilar Skákþings Norð- urlands voru: Búnaðarbanki ís- lands, Sauðárkrókskaupstaður og Kaupfélag Skagfirðinga og gaf Búnaðarbankinn peningaverðlaun sem sigurvegarar hlutu auk verð- launagripa. - BB Til sölu húsgagnaverslun ígóðu húsnæði ímiðbæ Akureyrar. Möguleikará langtímaleigu- samningi. Upplýsingarísíma 96-24430 eftir kl. 18.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.