Morgunblaðið - 23.03.1990, Side 25

Morgunblaðið - 23.03.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990 25 Þorvaldur Garðar um húsnæðislánakerfíð: „Ekki keppikefli að sem flestir verði hjálparþurfi“ Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S-VF) lagði áherzlu á það í umræðu á Alþingi um húsnæðismál að efla beri almenna íbúðarlánakerfíð. Með því móti þurfi færri að sækja um aðstoð í félagslega kerfinu. Þá væri hægt að gera betur en nú er við þá sem eru hjálparþurfi. Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S-Vf) sagði m.a.: „Hvernig er nú umhorfs á þessum vettvangi? Það er talað um að þörfin fyrir félagslegar íbúðir séu langt umfram framboð. Umsóknir um verkamannabústaði og kaupleiguí- búðir eru víðast hvar margfalt fleiri en þær íbúðir, sem eru til úthlutun- ar. Sú staðreynd að lán vegna greiðsluerfiðleika hafa verið viðvar- andi í húsnæðislánakerfinu og að einstaklingar hafa jafnvel þurft greiðsluerfiðleikalán í tvígang er tal- in sýna að á milli félagslega kerfisins og almenna kerfisins sé bil sem þarf að brúa. Bent er á að of margir reyni við kaup á almennum markaði sem ekki ráða við þau og það fólk þyrfti að eiga aðgang að félagslegum lán- um. Ekki er þetta nú beint fögur lýsing á ástandinu í dag. Sama sagan og í almenna íbúðarlánakerfinu. Félags- lega kerfmu er ætlað að sinna meiri verkefnum en það ræður við. Það er ekki nóg með það. Talað er um að fleira fólk þyrfti að eiga aðgang að félagslegum lánum. Það á að bæta fleiri verkefnum við félagslega kerfið þó að það sé allsendis ófært um að sinna því sem því er ætlað í dag. Og hvar lýkur þá þeim verkefn- um sem ættu samkvæmt þessu að heyra til félagslega kerfinu? Það er talað um að of margir reyni að kaupa á almennum markaði, sem ekki ráða við þau kaup. Það er verið að gera því skóna að félagslega kerfið sinni þessu fólki. Og þá er því lýst yfir að eftirspurnin eftir greiðsluerfiðleik- alánunum sé svo mikil að nauðsyn- legt sé að brúa bilið milli almenna kerfisins og félagslega kerfisins eins og það er orðað. Og hvað þýðir þetta annað en að þeir sem þurfi greiðslu- erfiðleikalán fái félagslega aðstoð og falli þá undir félagslega lánakerfið. Margur þarf nú á aðstoð að halda. Og gleymum ekki því að tilgangur Flugafgreiðsla á Keflavíkurflugvelli: Rifta ber samning- um við Flugleiðir - segir Ólafiir Þ. Þórðarson EKKI er grundvöllur til þess að fleiri en einn rekstraraðili annist flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli og Flugleiðir hafa með höndum þessa þjónustu fram til 15. apríl 1992 að minnsta kosti. Þetta kom fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn í Sameinuðu þingi í gær. að þjónustugjöld Flugleiða væru mjög svo samkeppnisfær við bæði flugvelli á Norðurlöndum og sam- keppnisflugvelli á borð við Gatwick og Shannon. Einnig minnti ráðherra á það að þjónustgjöld væru háð leyfi utanríkisráðuneytisins; við ákvörðun um það væri annars vegar miðað við svokallaða gangkvæmnisreglu (jafnhá gjöld og á flugvöllum sem Flugleiðir flygju á) og hins vegar við meðaltalsreglu. Jón Baldvin benti á að samningur hefði verið gerður við Flugleiðir fyrir sína tíð og gilti sá samningur til 15. apríl 1992. Taldi ráðherra vera verulega meinbugi á að rifta þeim samningi. Jóhann Einvarðsson (F/Rns) fullyrti að ekkert hefði verið gert á Keflavíkurflugvelli af hálfu flugvall- arstjórnar eða Flugleiða til að fjölga lendingum á Keflavíkurflugvelli. Kvaðst hann þekkja tvö dæmi þess að flugvélar hafi lent á vellinum en ekki hleypt farþegum út vegna hárra þjónustugjalda. félagslega húsnæðiskerfisins á að vera sá að hjálpa þeim sem þurfa á aðstoð að halda. Því megum við ekki gleyma. Það er engin spurning. Þeim sém eru hjálparþurfi þarf að hjálpa. Það er af hinu góða. Hins vegar er það ekki af hinu góða að svo margir skuli vera hjálp- arþurfi sem raun ber vitni í dag og þeim skuli sífellt fara fjölgandi. Það er ekki keppikefli að sem flestir verði hjálparþurfi. Þess vegna' getur það ekki verið markmið í sjálfu sér að félagslega íbúðarkerfíð nái til sem flestra. Það er þess vegna heldur raunalegt þegar það er t.d. sett sem markmið að ekki minna en 30% af íbúðarbyggingum í landinu verði á félagslegum grundvelli. Þá má alltaf setja markið hærra og hærra þar til svo væri komið að megin hluti íbúð- arbygginga væri á félagslegum grundvelli, ekki óáþekkt því sem gerðist undir ríkisforsjá kommúnis- mans austan járntjaldsins sem einu sinni var. Ég vil pkki ætla neinum að vilja slíka þróun mála hér á landi. En söm er gerðin ef húsnæðisstefnan veldur því að svo margir íbúðar- byggjendur þurfa á félagslegri að- stoð að halda. Það hlýtur að leiða til þess að félagslega kerfið tekur yfir sem aðallánaformið í íbúðar- byggingum í landinu. Til þess ástands er ekki enn komið í hús- næðismálunum. En langt höfum við gengið í þessa átt á undanförnum árum og göngum hröðum skrefum frá þeirri stefnu sem áður var fylgt. Með húsnæðislöggjöfinni 1953 var lagður traustur grunnur að sjálfs- eignarstefnunni í íbúðarbyggingum. Forsenda beirrar stefnu var sú að Þorvaldur Garðar Kristjánsson Islendingar vilja yfirleitt eiga þak yfir höfuðið og búa í eigin íbúðum. I fáu hefir einkaframtakið sýnt betur mátt sinn og megin en í íbúðar- húsabyggingum og því þjóðhagslega Grettistaki sem gert hefir verið á þeim vettvangi. Þetta var hins vegar ekki hægt að gera svo almennt sem raun ber vitni nema menn gætu stað- ið undir lánum Byggingarsjóðs ríkis- ins af almennum launatekjum. Þetta er grundvöllurinn sem allt hvíldi á. Aftur á móti voru ekki allir svo settir í lífinu að þeir gætu staðið undir hinum almennu lángkjörum íbúðarlána. Þeir þurftu á aðstoð að halda. Þar kom til hið félagslega kerfi, Byggingarsjóður verkamanna. Það var keppikefli að búa svo um hnútana að sem flestir réðu við sín mál með lánakjörum almenna lána- kerfisins, lánum Byggingarsjóðs ríkisins. Eftir því sem færri þurftu að leita til Byggingarsjóðs verka- manna gat félagslega kerfið betur hjálpað þeim sem hjálpar þurftu við. Sú var tíðin að 5 til 10% húsbyggj- enda í landinu fengu lán í verka- mannabústaðakerfinu. En nú er öldin önnur. Hvað er nú til ráða út úr þeim vanda sem við er að glíma í hús- næðismálum? Það er að ráðast gegn rótum vandamálsins, orsökum vand- ans. Það þarf fyrst og fremst að leggja áherslu á að efla almenna íbúðarlánakerfið með það fyrir aug- um að meginhluti landsmanna megi njóta þess með því að geta staðið undir lánum þess af almennum launatekjum. Einungis með því móti verður vegið að rótum þess vanda sem nú er við að glíma í húsnæðis- málunum. Þá verður leyst úr læðingi sjálfsbjargarviðleitni margra sem nú méga sig ekki hræra nema með að- stoð frá félagslega kerfinu. Þá fækk- ar þeim sem eru aðstoðarþurfi. Þá er líka hægt að gera betur en nú við þá sem eru hjálparþurfi og njóta aðstoðar félagslega kerfisins. Frumvarp það sem við nú ræðum ræðst ekki til atlögu við orsakir van- dans í húsnæðismálunum. Þar er haldið áfram á sömu braut sem geng- in hefir verið undanfarin ár. Það er verið að fást við afleiðingar en ekki orsakir. Um frumvarpið segir að það feli í sér endurbætur á fyrirkomulagi lánveitinga til félagslegra íbúða. Eg geymi mér að ræða þær endurbæt- ur. En ég vildi nú við fyrstu umræðu málsins leggja áherslu á meginatriði sem varðar þróun og ástand hús- næðismálanna í dag. Ég vildi lýsa þeirri skoðun minni að við séum á villigötum í þessum málum. Við stefnum alltaf í meiri og meiri vanda. Ef ekki er að gert vöðum við beint af augum út í foraðið. Þess vegna er það mál málanna í dag að hverfa af þeirri braut sem við erum að fara í þessu efni. Við þurfum að horfast í augu við raun- veruleikann og leggja áherslu á þá stefnu og framkvæmd í húsnæðis- málum sem eflir almenna íbúðar- lánakerfið og best tryggir að sem flestir geti eignast íbúð og búið í eigin húsnæði. Þá getum við jafn- framt svo best sýnt hug okkar í verki til þeirra sem eru hjálparþurfí og félagslega íbúðarlánakerfið á að koma til bjargar. Tekin var til meðferðar svohljóð- andi fyrirspurn frá Olafi Þ. Þórðar- syni (F/Vf) til utanríkisráðherra: 1. Mun ráðherrann beita sér fyrir endurskoðun á gjaldskrá um lending- ar- og þjónustugjöld á Keflavíkur- flugvelli og samræmingu þeirra við gjaldskrár samkeppnisflugvalla? 2. Er þess að vænta að afgreiðsla á Keflavíkurflugvelli verði færð í hend- ur hlutlausra aðila sem stuðli að auknum umsvifum á vellinum? Ólafur fylgdi eftir fyrirspurn sinni með því að gagnrýna harkalega þjón- ustu Flugleiða á Keflavíkurflugvelli; samningum hafi verið rift við Flug- fax og þjónustugjöld væru það há að flugfélög hafi fært sig annað. Einnig taldi Ólafur það gagnrýni- svert að Flugleiðir hefðu einokunar- aðstöðu á svæðinu; fyrir önnur flug- félög væri þetta svipað og Alþýðu- flokkurinn hefði einungis starfsað- stöðu í Valhöll, húsi Sjálfstæðis- flokksins. Taldi Ólafur tímabært að rifta samningum við Flugleiðir. í svari Jóns Baldvins Hannibals- sonar utanríkisráðherra kom fram Frumvarp um margfeldiskosningar í hlutafélögum; Eðlilegt að tryggja rétt- indi og áhrif minnihluta - segir Eyjólfur Konráð Jónsson FRUMVARP Eyjólfs Konráðs Jónssonar (S/Rvk) um margfeldiskosning- ar í hlutafélögum fer nú hraðferð í gegnum þingið. Það hefur þegar verið samþykkt í efri deild og var á miðvikudag til annarrar umræðu í neðri deild í gær. Eiginlega framsöguræðu með frumvarpinu hélt Eyjólfur við þriðju uinræðu í efri deild. Eyjólfur rakti stuttlega í ræðu sinni sögu og þróun hlutafélaga. Félagsform sem útlægt hefði verið gert úr hinum vestræna heimi fram til 1720 en hefði síðar orðið megin- uppistaðan í atvinnulífi Norður- Ameríku og Evrópuríkja. Innrétting- ar Skúla fógeta hefði verið fyrsta hlutafélagið, en Eimskipafélag ís- lands fyrsta almenningshlutafélagið. Eyjólfur rakti að meðal fræði- manna og fleiri sem um hlutafélög Stuttar þingfréttir ■ JEPPAFERÐIR Á HÁ- LENDINU. Það kom fram í svari samgönguráðherra við fyrirspurn Danfríðar Skarphéðinsdóttur (SK/Vl) að hann hyggðist beita öllum tiltækum ráðum til að stöðva skipulagðar hópferðir á vegum erlendra aðila í ferðaþjón- ustu á jeppum um hálendið. Um væri að ræða ólögmætt athæfi. Ef reynt yrði að kom á slíkum ferðum yrði það stöðvað. Sagði ráðherra það koma til greina, ef reynt yrði að skrá jeppana hér- lendis að skrá þá sem atvinnu- tæki, þannig að krefja mætti meiraprófs; erlend meiripróf giltu ekki sjálfkrafa hér á landi. Eini vandinn yrði ef viðkomandi fyrir- tæki hefði íslenskan „lepp“ til komast hjá aðgerðum. ■ VOPNABURÐUR í LEIFS- STÖÐ. Það kom fram í svari ut- anríkisráðherra við fyrirspum Guðna Ágústssonar (F/Sl) að átta manns gegndu störfum vop- naðra löggæslumanna á Keflavík- urflugvelli, en það væri gert í samræmi við alþjóðlega samninga og kröfur. Kostnaðurinn vegna hinnar vopnuðu gæslu á Keflavík- urflugvelli var samtals 108 millj- ónir á árunum 1986-89. ■ 2.300 LÁNS UMSÓKNIR HJÁ HÚSNÆÐISSTOFNUN. Um mánaðamótin janúar/febrúar 1990 voru um 2.300 umsóknir fyrirliggjandi hjá Húsnæðisstofn- un ríkisins um lán frá Byggingar- sjóði ríkisins, þar sem lánsréttur hafði ekki verið ákveðinn. Þetta kom fram í skriflegu svari félags- málaráðherra við fyrirspurn Hreggviðs Jónssonar (FH/Rns). ■ FIKNIEFNANEYSLA UNGLINGA. Ingi Björn Alberts- son (FH/Vl) hefur beint þeirri fyrispurn til dómsmálaráðherra hvernig íslensk stjórnvöld hyggist bregðast við sívaxandi neyslu unglinga á fíkniefnum. „Eru þær fréttir réttar að rekin sé um- fangsmikil dreifingarstarfsemi á fíkniefnum í framhaldsskólum og félagsmiðstöðvum unglinga og til hvaða ráða hyggjast lögregluyfir- völd grípa?“ ■ DRÁ TTAR VEXTIR Á DRÁ TTARVEXTI. Ásgeir Hannes Eiríksson (B/Rvk) hefur lagt fram frumvarp þess efnis að bann verði lagt við því að leggja áfallna dráttarvexti við höfuðstól skuldar og reikna nýja dráttar- vexti af samanlagðri fjárhæð höf- uðstóls og vaxta eða reikna aðra vaxtavexti af skuld. rituðu skiptust menn gjarnan í tvö horn; annars vegar íhaldssamir sem styrkja vildu þau með sterkri mið- stýringu og hins vegar fijálslyndir sem bentu á að félögin væru eign allra hluthafanna og vernda bæri rétt þeirra er eigi minni hlut en þeir sem stærstir eru og að meginskylda stjórnenda hlutafélaga sé að gæta hags allra hluthafa. „Þess vegna hafa komið fram, ekki bara kenning- ar, heldur líka löggjöf víða, um að réttindi minnihlutans skuli tryggð og er það helst gert með því að minni- hlutinn hafí áhrifavald á aðalfundum félaganna og geti komi sínum fulltrú- um þar að.“ Eyjólfur benti á að á íslandi hefði verið fest í lög frá 1978 að margfeldiskosning geti gengið framar venjulegri hlutfallskosningu. Eyjólfur gat þess að margfeldiskosn- ing væri ekki mikið tíðkuð í íslensk- um hlutfélögum og vitnaði í bækling sem út kom um þetta árið 1968. ),,Þegar kosið er margfeldiskosningu er kosið á milli einstaklinga. Slíkri ikosningu er þannig háttað að gildi hvers hlutar (atkvæðis) í félaginu er margfaldaður með tölu þeirra manna sem kjósa skal og fer atkvæðagildi hvers hlutar þannig eftir því hve marga stjórnarmenn á að kjósa. Síðan er heimilt að veija öllu at- kvæðamagninu, hvort heldur á jafn- marga menn eða færri en kjósa skal. Ef kjósa á fimm stjórnendur hefur hver hlutur fímmfalt atkvæðamagn. Hluthafinn getur varið öllu atkvæða- magninu á einn mann eða skipt því á þann hátt sem hann óskar. Á þenn- an hátt getur hluthafi eða hluthafar Eyjólfur Konráð Jónsson sem eiga meira en 16 2A% atkvæða- magnsins fengið einn mann kosinn í fimm manna stjórn, hvemig svo sem atkvæði annarra hluthafa falla, að- eins ef þessi minnihluti ver öllu at- kvæðamagni sínu á þennan eina mann. Ef hins vegar eru aðeins þrír stjórnarmenn geta rúm 75% hluthafa ráðið þeim öllum ef þeir dreifa at- kvæðamagninu sínu aðeins á þessa þijá menn.“ Sagði Eyjólfur þetta skýra þessa kosningareglu og það sem frum- varpið gerði ráð fyrir væri að Vio af hluthöfum, þar sem væru 200 eða fleiri hluthafar, gæti krafist slíkrar kosningar en ekki 'A eins og nú þyrfti. „Ég held að allir hljóti að sjá að þetta er eðlileg breyting á lögun- um og skal ekki um það fjölyrða,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.