Morgunblaðið - 23.03.1990, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990
Minning:
Skúli Þorleifsson
glímukappi
Skúli Þorleifsson lést í sjúkrahúsi
á Benidorm 10. mars sl. Skúli fædd-
ist á Þverlæk í Holtahreppi, Rang-
árvallasýslu, 2. júlí 1913, sonur
Friðgerðar Friðfinnsdóttur frá
Hvítárholti í Holtahreppi og Þorleifs
Ólafssonar bónda á Þverlæk.
Skúli Þorleifsson glímukappi fór
ungur að æfa glímu og tók miklu
ástfóstri við íslensku glímuna. Hann
fór ungur að árum á Iþróttaskólann
í Haukadal til Sigurðar Greipssonar
og hlaut þar góða æfingu í
glímunni.
Skúli var glæsimenni að vallar-
sýn og hraustmenni mikið. Hann
var í hærra meðallagi og samsvar-
aði sér vel, sterkur og liðugur í
hreyfingum og traustvekjandi.
Skúli Þorleifsson var skemmti-
legur og drengilegur glímumaður,
sem ánægjulegt var að glima við.
Hann mat glímuna mikils og skildi
að hún væri jafnvægisíþrótt og að
því leyti frábrugðin öðrum fanga-
brögðum, að ekki ætti að falla ofan
á viðfangsmann sinn þá bylta væri
gerð. Hann vildi ekki að nítt væri
eða bolast í glímunni. Skúli var
kunnáttumaður í glímu, hvort held-
ur var til sóknar eða varna. Hann
fékkst nokkuð við glímukennslu á
vegum Glímusambandsins.
Skúli tók þátt í mörgum kapp-
glímumótum og var þátttakandi í
glímusýningum bæði innanlands og
erlendis. Félagsskapur hans þótti
hressilegur og skemmtilegur.
Skúli Þorleifsson varð Skjaldar-
hafi Skarphéðins 1934 og Skjaldar-
hafi Ármanns varð hann 1937.
Hann sigraði í Íslandsglímunni
1937 og varð þar með glímukappi
íslands. í Íslandsglímunni 1939
hlaut Skúli fegurðarglímuverðlaun
og var annar að vinningum. Helstu
úrslitaglímubrögð Skúla í kapp-
glímum voru klofbragð, sniðglíma
á lofti og leggjarbragð.
Á fjórða áratugnum varð Skúli
starfsmaður Kaupfélags Ámesinga
á Selfossi og síðar bústjóri í Þor-
lákshöfn um 18 ára skeið hjá sama
fyrirtæki.
Skúli kvæntist Önnu Benónýs-
dóttur ættaðri úr Laxárdal í Hrúta-
firði. Þau eignuðust eina dóttur,
Sigríði, f. 2. mars 1938, gift Agli
Guðmari Vigfússyni frá Seli í Ása-
hreppi og eiga þau 3 börn. Skúli
og Ánna slitu samvistum. Síðari
kona Skúla var Pálína Kreis af
þýskum ættum. Hún lést fyrir 11
árum.
Eftir að Skúli lét af störfum í
Þorlákshöfn og fluttist til
Reykjavíkur réðst hann verkstjóri
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
blómaverkstæði
INNA'
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis
sími19090
Minningarsjoöur
Skjols
Sími 688500
hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur, en
gerðist nokkrum árum síðar útgerð-
armaður og fiskverkandi og rak þá
starfsemi fram á áttræðisaldur.
Síðustu tvö árin bjó Skúli í sam-
býli með Sigurborgu Ólafsdóttur og
stóð heimili þeirra síðustu mánuðina
á Grandavegi 47.
Blessuð sé minning hans. Eg
sendi Sigurborgu og Sigríði dóttur
hans og fjölskyldu hennar samúðar-
kveðjur.
Kjartan Bergmann Guðjónsson
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA GUÐMUIMDSDÓTTIR,
lést í Landspítalanum 22. mars.
Guðmundur Hjörtur Ákason,
Vaigerður Ákadóttir,
Jörundur Ákason,
Jón Börkur Ákason,
Margrét Ákadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
KIRSTEN ÁSE MAGNÚSSON,
Geitlandi 8,
Reykjavík,
andaðist fimmtudaginn 22. mars í Borgarspítalanum.
Jarðarförin tilkynnt síðar.
Oddur Magnússon,
Ingrid Oddsdóttir, Magnús Helgason,
Erna Freyja Oddsdóttir, Einar Ólafsson,
Magnús Oddsson, Sigurlína Hreiðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Utför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
Kirkjuvegi 14,
Selfossi,
fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 24. mars kl.
13.30.
Eygló Kristófersdóttir, Björn Sigurðsson,
Ester Halldórsdóttir, Steinar Karlsson,
Hrefna Halldórsdóttir, Ágúst Morthens
og barnabörn-.
+
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR SIGURBJÖRNSDÓTTUR
frá Hjörsey,
Böðvarsgötu 1,
Borgarnesi,
fer fram frá Akrakirkju laugardaginn 24. mars kl. 16.00.
Jóhanna Ó. Jónsdóttir,
Ólafur Jónsson, Jóhanna Bruvik,
Ingigerður Jónsdóttir, Grétar Ingimundarson,
Guðrún S. Jónsdóttir, Stefán Þorvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LILJA GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR
kaupmaður,
Krfunesi 5,
Garðabæ,
verður jarðsungin föstudaginn 23. mars kl. 13.30 frá Bústaða-
kirkju.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Jón Sigurðsson, Svanlaug Bjarnadóttir,
Eydís Guðrún Sigurðardóttir, Páll Rúnar Ingólfsson,
Lilja Rós Sigurðardóttir, Óli Guðjón Ólafsson,
Þórir Sigurðsson
og barnabörn. --
+
Ástkær dóttir okkar og systir,
ÁSDÍS KOLBEINSDÓTTIR,
sem lést 16. þessa mánaðar, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
í dag, föstudaginn 23. mars, kl. 15.00.
Bryndís Jóhannesdóttir, Kolbeinn Finnsson,
Eyþór Kolbeinsson,
Finnur Kolbeinsson,
Jóhannes Kolbeinsson.
+
Hjartkær faðir okkar og fóstri, tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR GÍSLI JÚLÍUSSON,
• Sjólyst,
Stokkseyri,
verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 24. mars
kl. 14.00.
Edda Karen Haraldsdóttir, Baldur Gunnarsson,
. Ragnheiður Haraldsdóttir, Björn Eggert Haraldsson,
Hjördfs Ingvarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
HAUKUR ÞORLEIFSSON,
fyrrverandi aðalbókari,
Rauðalæk 26,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 27. mars, kl.
13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarsjóð
Landakotsspítala og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Ásta Björnsdóttir,
Gunnar Már Hauksson,
Þorleifur Hauksson,
Halla Hauksdóttir,
Nanna Þórunn Hauksdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, v
HANNESÁRNASON
frá Brekkum, Holtum,
Þingskálum 12, Hellu,
verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju í Holtum laugardaginn 24.
mars kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Skógræktarfélag Rang-
æinga. Minningarspjöld fást hjá Guðríði Bjarnadóttur, sími
98-75817.
Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 12.00.
Halldóra Ólafsdóttir,
Jóhanna Hannesdóttir, Jón I. Guðmundsson,
Erna Hannesdóttir, Hjörtur Eg.ilsson,
Árni Hannesson, Guðbjörg (sleifsdóttir,
Sigrfður Hannesdóttir, Þorsteinn Ragnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför bróður okkar,
EGGERTS TÓMASSONAR,
bónda,
Miðhóli.
Sérstakar þakkir til sveitunga hans og vina.
Sigurður T ómasson, Jónasfna T ómasdóttir,
Hallfríður Tómasdóttir, Þórný T ómasdóttir,
Ólöf Tómasdóttir, Margrét Tómasdóttir.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sendu minningargjafir
og blóm og sýndu okkur hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
HREFNU JÚLÍUSDÓTTUR,
Bjarkarbraut1,
Dalvík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á sjúkrahúsi Akureyrar fyrir ein-
staka alúð og umhyggju. Guð blessi ykkur öll.
Jónas Hallgrímsson,
Nanna Jónasdóttir, Jónatan Sveinsson,
Halla S. Jónasdóttir, Anton Angantýsson,
Júlíus Jóríasson, Mjöll Hólm
og barnabörn.
Lokað
í dag föstudaginn 23. mars frá kl. 13.00 vegna
jarðarfarar ÁSDÍSAR KOLBEINSDÓTTUR.
íslandsbanki hf.,
Dalbraut3.