Morgunblaðið - 23.03.1990, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990
29
Minning‘:
Sigríður E. Erlends
dóttirt Hafharfirði
Fædd 27. maí 1896
Dájn 16. marz 1990
Sigríður Eyrún Erlendsdóttir,
föðursystir mín, andaðist 16. mars
sl. á 94. aldursári. Hún fæddist 27.
maí 1896 á Arnarstöðum í Flóa,
dóttir hjónanna Gróu Bjarnadóttur
og Erlendar Jónssonar. Fjölskyldan
flutti til Hafnarfjarðar 1907 og þar
ól Sigríður allan sinn aldur. Hún
var næstelst fjögurra systkina, en
þau voru Valgerður húsmóðir,
Bjarni húsasmíðameistari og Guð-
mundur vélstjóri. Þau eru nú öll
látin.
Árið 1923 giftist Sigríður Magn-
úsi Snorrasyni, skipstjóra. Þau
eignuðust þijú börn, Snorra Kristin,
rafvirkja, kvæntan Soffíu Júlíus-
dóttur, Elínu Gróu, sem lést 22 ára
gömul, og Vigdísi hjúkrunarfor-
stjóra. Magnús lést 1938 eftir fjög-
urra ára sjúkrahússdvöl.
Veikindi Magnúsar og síðar frá-
fall hans gjörbreytti ijárhagslegri
stöðu ijölskyldunnar. Á þessum
árum þekktust ekki mæðralaun eða
barnabætur, örorku- eða makalíf-
eyrir og því varð Sigríður að fara
út að vinna til þess að sjá fjölskyld-
unni farborða. Kreppan var í al-
gleymingi og þau atvinnutækifæri,
sem konur áttu völ á, voru fá og
illa launuð, en hún lét það ekki á
sig fá. Hún fór á nokkurra vikna
matreiðslunámskeið og haslaði sér
síðan völl sem matreiðslukona. Á
sumrin vann hún á ýmsum veitinga-
stöðum og hótelum úti á landi, m.a.
í Hvítárvallaskála, Ferstiklu og
Fornahvammi, en á veturna sá hún
um veislur í heimahúsum. Hún varð
mjög eftirsótt til þessara starfa, því
maturinn sem hún bjó til var bæði
ljúffengur og glæsilega framreidd-
ur. Hún gætti þess og að tileinka
sér allar nýjungar á þessu sviði og
þar kom að hún var fengin til þess
að sjá um veislur á Bessastöðum.
Það gerði hún, um nokkurra ára
skeið en réðst síðan þangað í fast
starf sem matráðskona og gegndi
hún því í allmörg ár. Síðar starfaði
hún sem aðstoðarmatráðskona á
Sólvangi í Hafnarfirði um 12 ára
skeið.
Fjölskyldan öll naut einnig góðs
af þessum hæfileikum hennar. Hún
var sjálfkjörin til að sjá um matar-
gerðina þegar mikið stóð til og
hennar eigin heimboð vom ávallt
mikið tilhlökkunarefni.
Sigríður tók virkan þátt í ýmsu
félagsstarfi, en hún var meðal
stofnenda KFUK í Hafnarfirði og
virkur félagi um árabil, starfaði í
Kvenfélaginu Hringnum svo og í
Vorboðanum, félagi sjálfstæðis-
kvenna í Hafnarfirði. Þá söng hún
í kirkjukór Hafnarijarðarkirkju um
áratugaskeið.
WIKA
Allar stæröir og geröir
i^L
ttataypHr Jéiras®®n & ©@ M.
Vesturgötu 16 - Slfnar 14680-13210
Sigríður var glæsileg kona með
fágaða framkomu. Hún hafði næmt
fegurðarskyn sem kom fram í öllu
sem hún tók sér fyrir hendur og
einkenndi einnig fallegt heimili
hennar. Hún var sjálfstæð kona
með ákveðnar skoðanir sem hún lét
í ljós umbúðalaust, jafnvel þótt þær
létu ekki alltaf vel í eyrum.
Sigríður var heilsuhraust alla ævi
en síðustu árin voru sjón og heyrn
farin að gefa sig og tók hún sér
það nærri. Hún naut þá sem endra-
nær frábærrar umhyggju Vigdísar,
dóttur sinnar, en þær mæðgur
bjuggu alla tíð saman. Síðustu
mánuðina dvaldi hún á Sólvangi en
gat þó verið heima um helgar.
Þegar ég lít til baka og riíja upp
minningar um Siggu frænku, verð-
ur mér hugsað til sambands þeirra
systra, en það var óvenju náið og
kærleiksríkt og bar aldrei skugga
á það. Vart leið sá dagur að þær
hittust ekki eða ræddust við og þar
sem ég ólst upp á heimili Valgerðar
mótaðist samband okkar Siggu
frænku mjög af þessu.
Langri ævi góðrar konu er lokið
og er hún kvödd með þakklæti.
Kristín Guðmundsdóttir
Mig langar með fáum orðum að
minnast ömmu minnar, Sigríðar
Erlendsdóttur, sem verður jarð-
sungin í dag frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði.
Hún fæddist austur í Flóa 27.
maí 1896, en fluttist ungtil Hafnar-
fjarðar og átti þar heima til ævi-
loka. Hún giftist afa mínum, Magn-
úsi Snorrasyni, þann 22. september
1923. Börn þeirra: Snorri, f. 2.
apríl 1924, Elín Gróa, f. 27. septem-
ber 1925, d. 4. október 1947, og
Vigdís, f. 19. febrúar 1931.
Amma fékk snemma á sig brot-
sjó, í júlí 1927 er hún fæddi and-
vana stúlku. í júní 1938 er húft-—
orðin ung ekkja með þijú börn,
7-14 ára, og svo níu árum síðar
missir hún eldri dóttur sína rétt lið-
lega tvítuga.
En amma sigldi alltaf áfram. Og
til að sigla úfinn sjó þarf þrek, þor
og trú og þannig var hún amraa.
„Sigga mín, voða er fínt í
línskápnum!“ Hún amma hafði
klöngrast upp á loft 88 ára gömul
og gert úttekt í fataskápnum, ég
var heldur betur heppin að vor-
hreingerningu lauk deginum áður.
Amma var hluti af mínum skóla,
ég var lánsöm að vera um borð.
Hún miðlaði til mfn mörgu og ekki
síst trú sem var henni svo kær, og
á höndum og fótum var mér aldrei
kalt í pijónlesi frá ömmu.
Eg kveð hana ömmu mína með
sálmi, sem hún kenndi mér þegar
ég fór fyrst að heiman til viku dval-
ar í Kaldárseli.
Eg fel í forsjá þína,
Guð faðir sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
511 bömin þin svo blundi rótt.
Sigríður Snorradóttir
,, Nougathringur“
Notaðu AKRA
með öðru úrvals hráefni og
baksturinn heppnast vel!
,, Nougathringur"
Hrærið saman 130 g Akrasmjörlíki, 130 g sykri og
tveimur eggjum. 150 g hveiti ásamt 1 tsk. lyftidufti
og 1 msk. rjóma er blandað saman við.
Bakið í 40 mín. við 175-200°C.
Kökunni er skipt í þrjá hluta og smjörkrem sett á
milli og utan á.
Smjörkrem
Hrærið saman 150 g Akrasmjörlíki, 200 g
flórsykri, einu eggi og 2 tsk. vanilludropum.
Nougat
Bræðið 100 g sykri og bætið 50 g möndlum í, látið
kólna á smurðri plötu, myljið og setjið á kökuna.
Verði ykkur að góðu!
Líkarvel!
SEsy
SMJÖRLÍKISGERÐ
Akureyri