Morgunblaðið - 23.03.1990, Qupperneq 31
MORGÚNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990
31
fclk í
fréttum
3 RETTfl MALTID
A KR. 610
Kjarab ótaveisla
í Veitingahöllirmi
Vió í Veitingcihöllinni höldum áfram aó starfa í anda kjarasamninganna
Morgunblaðið/Agúst
Blakararnir ungu, fremri röð frá vinstri: Sigrún Haraldsdóttir, Ásta Lilja Björnsdóttir, Anna
Jónsdóttir, Sigga Þrúða Þórarinsdóttir, Þorbjörg Jónsdóttir, Sesselía Jónsdóttir og Kristín
Ágústsdóttir. Aftari röð f.v. Karl Róbertsson, Harpa Grímsdóttir, Emil Gunnarsson og ívar Kristinsson.
Móeiður Júníusdóttir syngur sig
í annað sætið með tilþrifum.
SÖNGKEPPNI
Hart barist um
efsta sætið
Söngkeppni framhaldsskólanna
fór fram fyrir skömmu á Hótel
íslandi og var skemmtileg og hörku-
spennandi eins og vænta mátti.
Sigurvegari var Lárus Ingi Magnús-
son sem keppti fyrir hönd Fjöl-
brautaskóla Suðurlands. Hann söng
lagið „Eltu mig uppi“ eftir Guð-
mund Jónsson við texta Stefáns
Hilmarssonar.
Kristrún Heimisdóttir, formaður
Félags framhaldsskólanema, segir
í mótsskrá, að hugmyndin sé ekki
aldeilis ný af nálinni, en hins vegar
hafi henni ekki verið hrundið i
framkvæmd fyrr en nú. „Félag
okkar hefur ákveðið að ágóði af
þessari keppni muni renna til Rauð-
akrosshússins, neyðarathvarfs fyrir
börn og unglinga þar sem unnið er
aðdáunarvert starf en af miklum
vanefnum," segir Kristrún.
Keppnin var annars fjörug og
skemmtileg og nær öruggt að ýms-
ir þeirra söngvara sem bera mun á
næstu árin stigu þarna mikilvæg
spor. Áður er getið um Lárus í
fyrsta sætinu, en í öðru sæti var
Móeiður Júníusdóttir úr MR sem
söng „Bláu augun þín“ eftir Gunnar
Þórðarson og Ólaf Gauk. í þriðja
sæti varð Páll Óskar Hjálmtýsson,
tvítugur úr MH, en hann söng
finnskt þjóðlag, „Til eru fræ“ við
texta Davíðs Stefánssonar.
BLAK
Nær helmingur landsliðs-
manna frá Neskaupstað!
Nýlega voru ellefu unglingar úr
Þrótti á Neskaupstað valdir í
pilta- og stúlknalandslið Islands í
blaki sem halda mun í keppnisferða-
lag til Þýskalands um miðjan næsta
mánuð. Verða þar tveir landsleikir,
gegn Lúxemborg og Færeyjum,
auk þess sem leikið verður gegn
þýskum héraðsliðum. Norðfirðing-
arnir eru hart nær helmingur lands-
liðanna tveggja, því þau skipa 24
krakkar. Unga fólkið stendur sjálft
straum af keppnisferðalaginu og
er á döfinni að hefja fjáröflun á
næstu dögum og ekki mun veita
af, því úthald af þessu tagi kostar
drjúgan skilding.
— Ágúst.
Morgunblaðið/Benedikt Guðmundsson
Lárus Ingi Magnússon fagnar
sigri.
Um þessar mundir skemmtir í Casablanca við Skúlagötu dansari frá
Ibiza, Esther Zamira Romero, kornung blökkukona. í auglýsingum
Casablanca stendur að Esther dansi á skrítnum stöðum í húsinu, nánar
tiltekið dansar'hún uppi á bassahátölurum diskóteksins.
Esther sagði í stuttu samtali, að hún væri ekki raunverulegur atvinnu-
dansari, hún væri sjálfmenntuð og hefði dansað hér og þar á skemmtistöð-
um og klúbbum, en stundað aðra vinnu_ á milli. Kvaðst hún hafa orðið
mjög spennt er henni bauðst að koma til íslands og dansa fyrir öldurhúsa-
gesti, en Uingað til lands liefði hún aldrei fyrr komið og að sögn vissi hún
lítið um land og þjóó a.mað en nokkurr veginn legu eyjarinnar. „Það hefur
komið mér einna mest á óvart hversu hlýir íslendingar eru miðað við
hversu kalt er í veðri,“ sagði Esther.
DANSARI
Hlýja ís-
lendinga
kom á óvart!
Esther Zamira Romero.
Dags. 23.03.1990 NR. 124
VÁKORT
Númer eftirlýstra korta
4548 9000 0030 3638
4507 4300 0007 4376
4507 4500 0008 4274
4507 4500 0010 3074
4548 9000 0023 4376
4548 9000 0028 0984
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort
úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa á vágest.
VISA ISLAND
og leggjum okkar lóð á vogarskálarnar meó því að bjóða giæsilegan
helgarmatseðil á stórlækkuóu verði í hádegi og á kvöldin.
Okkar vinsæla fískgratín ...kr. 690 Lambafjllet m/koníakspiparsósu kr. 1.190
Djúpsteikt ýsa Orly m/tartarsósu ...kr. 610 Reyktur lax m/eqgjahræru k.r 550
Steikt rauðsprettúflök m/rjómahvítlaukssósu .. ,:..kr. 790 Salatdiskur Veitirigahallarinnar kr. 550
Pönnusteiktur steinbítur m/gtænpiparsósu Gratineraðar gellur nr/eplum og rækjum kt. 690 Kaldar skinkurúllur m/kartöflusalati.... Hamborgarar eóa sarniokur fyrir börnin kr. 550 kr. 200
i smetanesósu Snitchel m/ paprikuhvítlaukssósu kr. 790 kr 1.090 Rjóinalöguó súpa og eftirréttur fylgir með öllum réttum.
Kaffihlaðborðið á sunnudögum er girnilegra og fjölbreyttara en
nokkru sinni fyrr með hnallþórum ogbrauðtertum.
Kaffihlaðborð sem seint gleymist.
Veitingahallarveisla fyrir alla
fjölskylduna er Ijúf og
ódýr tilbreyting.
K-
Húsi vcrslunai iiinar - símar: 33272-30400