Morgunblaðið - 23.03.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990
)
Þessir hringdu . . .
1
VG'v-^o 1 l
Seinagangur við
snjómokstur
Vigfus hringdi:
„Ég er einn af þeim sem stunda
skíði og það hefur gefið mér og
minni fjölskyldu margar ánægju-
stundur. Sá hópur fer stækkandi
sem stundar skíðamennsku og
hefur það áreiðanlega góð áhrif á
þjóðarsálina. Það er ókostur fyrir
okkur Reykvíkinga að við þurfum
að sækja dálítið langt á skíði. Ég
dáðist að því í fyrra hvað þeir
voru duglegir að halda opnu en
þeir hafa ekki staðið sig eins vel
núna. Ég hef heyrt sagt að það
taki langan tíma að fá tæki frá
Vélamiðstöðinni til verksins og
þess vegna gangi þetta svona
seint. Ef til vill væri lausnin að
Bláfjallanefnd fjárfesti í svona
tækum sem þá væru alltaf til stað-
ar þegar til þeirra þyrfti að grípa.“
Mikill skrifstofukostnaður
Ellilífeyrisþegi hringdi:
„Það er laukrétt að kenna fé-
lagsfræðingum að koma ár sinni
sem best fyrir borð á skattborgar-
anna kostnað, því þeirra fræði
gengur út á það. Þegar ríkið legg-
ur fé samborgaranna til hjálpar
þeim verst stöddu, þá sjá þeir til
þess með allt of miklum skrif-
stofukostnaði, að þetta verður
hungurlús handa þeim verst
stöddu."
Gleraugu
Stór gleraugu í brúnni umgerð
töpuðust fyrir nokkru. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 611997 á kvöldin.
Veski
Veski tapaðist á Landspítalan-
um fyrir nokkru. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 688017. Fundarlaun.
Myndavél
Myndavél fannst 5. mars við
Álftamýri. Upplýsingar í 31176
eftir hádegi.
V^terkurog
k_/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Royal
KARLMAHNAFOT. VERfl 9.990,-
Stakar buxur, ný efni, ný snið.
Mitti frá 79 cm upp í 135 cm.
Jakkar, úipur, skfða- og æfingagallar.
Andrés I Skóiavörðustíg 22a, sími 18250.
Hugleiðing um virkjanaþörf
Til Velvakanda.
Samkvæmt reynslutölum frá ísal
þarf 16 kílówattstundir til þess að
framleiða eitt kílógram af áli. Ál-
ver, sem framleiðir 200.000 tonn
af áli á ári þarf því 3.200 gígawatt-
stundir af raforku á ári og þar eð
8.760 klukkustundir eru í árinu,
þarf aflþörfin að vera 365 mega-
wött. Þessar tölur eru miðaðar við
mælingu við inntak verksmiðjunn-
ar. Þegar virkjunarþörfin er metin
þarf að .gera ráð fyrir töpum i raf-
orkukerfinu frá virkjun að verk-
smiðju. Meðaltöp eru vepjulega
metin 8% en þar eð hér er gert ráð
fyrir löngum línum en gert ráð fyr-
.................í raforknkerfinu.
MISSKILNINGUR
Kæri Velvakandi.
í dálki þínum 15. marz sl. var
hugleiðing raforkufræðikennara um
virkjanaþörf, þar sem fram kom
ýmis misskilningur, sem hann telur
þörf á að Landsvirkjun leiðrétti.
Okkur er ánægja að reyna það. Mis-
skilningurinn er í eftirfarandi atrið-
| um:
1) Töp í flutningskerfi Lands-
virkjunar eru venjulega reiknuð 4,5%
I en ekki 8%.
2) Álver með nýjustu tækni nota
innan við 14,5 kWh af rafmagni fyr-
ir hvert kg áls, en ekki 16 eins og
ÍSAL.
3) Þegar rætt er um orkugetu
virkjana er einungis átt við forgangs-
orku, en möguleg framleiðsla af-
gangsorku ekki talin með. Hið nýja
álver mun væntanlega vilja kaupa
90 til 95% af orkuþörf sem forgangs-
orku, en afganginn sem afgangs-
orku.
4) Þegar Blönduvirkjun verður
tekin í notkun bætir hún úr afls-
skorti, sem þá verður í orkukerfinu,
en nokkur forgangsorka verður þá
enn til staðar umfram þarfir. Þess
vegna m.a. þurfa þessar nýju virkjan-
ir heldur meira afl samtals en álve-
rið notar.
5) Auk þeirra virkjana sem raf-
orkufræðikennari telur upp höfum
við reiknað með því að Nesjavalla-
virkjun komi með 30 MW og 180
GWh/ár og fleiri framkvæmdir eru
mögulegar strax í kjölfar hins nýja
álvers, sem of snemmt er að tíunda
hér eða ákveða nú strax.
Ég vona að raforkufræðikennari
komi dæmi sínu saman með þessum
upplýsingum og hafi hann þökk fyrir
að vekja athygli okkar á þessum
atriðum.
Elías B. Elíasson,
forstöðum. Tækniþróunar-
deildar Landsvirkjunar
HEILRÆÐI
Verksljórar
- verkamenn
Notkun
hjálma við
hvers konar
störf hefur
komið í veg
fyrir alvarle-
gustu höfuðá-
verka. Því er
notkun þeirra
sjálfsögð.
Mikill verð-
mismunur
Til Velvakanda.
Fyrir nokkru var ég staddur í
Englandi og þurfti að kaupa tlug-
miða heim til Islands. Mér til mikill-
ar undrunar uppgötvaði ég að miði
aðra leiðina kostaði 240 £, meðan
miði báðar leiðir kostaði 198 £. Auð-
vitað valdi ég seinni kostinn þó að
ég ætlaði einungis aðra leiðina. Ég
varð meira undrandi þegar ég ætlaði
í sama skipti að kaupa miða báðar
leiðir fyrir konu mína sem þurfti að
fara til Englands stuttu seinna. Miða-
verðir var skyndilega ekki lengur 198
£, heldur hafði hækkað í 270 £,
vegna þess að ferðin hófst á íslandi.
Hvers vegna þarf fólk sem býr í
þessu landi að greiða svo miklu
hærra verð en útlendingar? Það væri
áhugavert að heyra hvað Flugleiðir
hafa um þetta að segja. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem verðlagsstefna
Flugleiða kemur mér á óvart. Á
síðasta ári átti ég að borga u.þ.b.
24.000 kr. fyrir far frá Lúxemborg
til Keflavíkur, meðan hægt var a'ð
fá „stand-by“ miða til New York
fyrir 8.000 kr. með sömu vél. Hvers
vegna er enginn „stand-by“ valkost-
ur til Keflavíkur?
Halvard K. Iversen
HVÍTUR ASPAS
Eigum til afgreiðslu strax fullan góm (1200
kassa) af hvitum, afhýddum aspas. Hver
kassi inniheldur 6 dósir, hver ca 2 kg.
Framleiósluland er Perú. Verð í Banda-
ríkjadölum er 32.95 pr kassi FAS (frítt
aó skipshlió) í New York. Sýnishorn send
ef óskaó er.
Vinsomlegost hafið samband vió J.F. Braun
& Sons, Inc., 265 Post Avenue, Westbury,
New York 11590, sími 901-516-997-
2200, fox 901-516-997-2478, telex
+6852147.
Frönsku kjólarnir
komnir
Versiunin CSUÍÍS)
Laugavegi 5 620042
REYKVÍKINGAR!
<
Ásgeir Hannes Eiriksson,
þingmaður Borgaraflokksins
og fulltrúi Reykvíkinga í fjórveit-
inganefnd Alþingis, verður á Café
Hressó í Austurstræti í dag, föstu-
daginn 23. mars, kl. 1 2.00-14.00
Komið og spjallió við þingmann
Reykvíkinga.
NYKOMNIR
TE6. 1104.
Litur: Svart leður.
Stærðir: 40-47.
Verð kr. 5.460,-
W5 Vidtalstimi borgarfulltrúa i ’S Sjálfstæðisflokksins íReykjavík ^
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, SKjjL Si á laugardögum íveturfrá kl. 10-12. ] Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum m A og ábendingum. f |||^SL„ Allir borgarbúar velkomnir. i Laugardaginn 24. mars verða til viðtals Magnús L. Sveinsson, fors og formaður Innkaupastofnunar Reykjavíkur, og Ingólfur Steinar S heilbrigðisráðs og Sjúkrasamlags Reykjavíkur. eti borgarstjórnar veinsson, í stjórn
y Sf'Sf y y y y- y y y y y y