Morgunblaðið - 23.03.1990, Page 38

Morgunblaðið - 23.03.1990, Page 38
I ~S8 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990 KNATTSPYRNA / ENGLAND ff Guðni var maður leiksins“ - sagðí Terry Venables eftir sigur Spurs gegn Liverpool „GUÐNI var maður leiksins. Barnes hefur verið óstöðvandi að undanförnu, en hitti fyrir ofjarl sinn,“ sagði Terry Venables eftir 1:0 sigur T ottenham gegn Liverpool ífyrrakvöld og var þetta haft eftir honum í enskum dagblöðum í gær. uðni fékk lofsamlega dóma í enskum fjölmiðlum og var sérstaklega til þess tekið hvernig hann útilokaði John Bames frá leiknum. „Það var sérstaklega ánægjulegt að heyra ummæli Vena- bles,“ sagði Guðni við Morgunblaðið. „Venables hefur haldið mér utan við liðið síðan í byijun janúar og þess vegna hefur mér ekkert verið sérlega hlýtt til hans. En þetta gerir það vonandi að verkum að ég fái að spila á næstunni." Guðni lék síðast 6. janúar, var varamaður í næsta leik, en hefur ekki verið í hópnum síðan fyrr en gegn Liverpool. „Ég var orðinn pirraður. Mér fannst að ég ætti ekki skilið að vera utan við liðið svona lengi, en reyndi að vera jákvæð- ur, beit á jaxlinn og beið eftir tækifærinu. Það var gaman að koma inn og ná að standa sig og nú er ég staðráðinn í að halda mínu,“ sagði Guðni. Tottenham leikur næst annan laugardag, en á mánudag heldur Guðni til Lúxemborgar, þar sem hann leikur með íslenska landsliðinu gegn heimamönnum á miðvikudag. Guðni tók landsleik fram yfir deildarleik í ágúst s.l. og var settur ' Tít úr liði Spurs fyrir vikið, én hann á ekki von á að sagan endurtaki sig að þessu sinni. „Ef ég kem heill til baka geri ég ráð fyrir að halda stöðunni gegn Sheffieid Wednesday." Guðni Bergsson HANDBOLTI / 1. DEILD Karla 13. umferð enn frestað Leikjunum fimm, sem vera áttu í 1. deild karla í handknattleik n.k. miðvikudagskvöld, hefur verið frestað til 25. apríl vegna land- 2^ sleikjanna við Noreg á sunnudag og mánudag. Umræddir leikir voru upphaflega á dagskrá 24. janúar, en var þá frestað til 28. mars vegna undirbúnings landsliðsins fyrir HM { Tékkóslóvakíu. Þá gleymdist hins vegar að búið var að semja um landsleiki við Noreg og því verður 13. umferð síðasta umferð íslandsmótsins að þessu sinni. Hk fær ÍR í heimsókn, Stjarnan og Grótta leika í Garðabæ, FH og ÍBV í Hafnar- firði, Víkingur og KA í Höllinni og Valur og KR í Valshúsinu. RUÐNINGUR Islandsmót í ruðningi Akveðið hefur verið að fyrsta íslandsmótið í ruðningi (e. rugby) fari fram í sumar og hafa sex lið hug á að taka þátt. Á aðalfundi Knattspymufélags- ins Víkings, sem haldinn var í gærkvöldi var samþykkt að ruðningslið /keppti á mótinu í nafni félagsins, en næsta ár verður síðan ákveðið, að feng- inni reynslu, hvort sérstök ruðn- ingsdeild verði stofnuð. HATIÐ ISI Tommamótið liður í hátíðinni g úið er að ganga frá því að hið 1 vinsæla Tommamót yngri knattspyrnumanna, sem fer fram árlega í Vestmannaeyjum, verði lið- ur í Íþróttahátíð ÍSI 1990. Yfir- skrift hátíðarinnar er Æskan og íþróttir. Því þótti eðlilegt að Tommamótið yrði liður í Sumarátí- ðinni. URSLIT 1:1 Knattspyrna REYKJAVÍKURMÓTIÐ KR-Fylkir............... Rúnar Kristinsson - Þórhallur Dan EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA Átta liða úrslit, síðari leikur. Grasshopper (Sviss) - Sampdoria (Ítalíu).l:2 Thomas Wyss (67.) - Antonio Cerezo (43.), Attilio Lombardo (81.) Áhorfendur: 30.000. Sampdoria vann 4:1 samanlagt. HANDBOLTI Teka tapaði dýrmætu stigi KRISTJÁN Arason og félagar hans hjá Teka Sandander náðu ekki að að knýja fram sigur í Valencia. Þeirgerðu jafntefli, 26:26, við heimamenn og skor- aði T eka jöf nunarmarkið úr vítakasti rétt fyrir leikslok. Leikmenn Teka fengu óskabytj- un og komust yfir, 0:4, eftir þijár mín. og voru yfir þar til að Valencia náði að jafna og komast yfir, 26:25. Leik- menn Teka voru tveimur fleiri á loka- mínúttunni og náðu að tryggja sér jafn- tefli. Þeir töpuðu dýrmætu stigi í meistarabaráttunni. Atli Hilmarsson skrilar 1rá Spáni IKVOLD Vetrarhátíð Akureyri Vetraríþróttahátíð ÍSI verður sett í kvöld. Dagskráin er þá: kl. 20.00 Vélsleðamenn ! úthverfum, með VH-fána. Hestamenn í hópreið með kyndla frá Sanavelli og sleða með sovéska skautaparið frá Leirunesti. Skíðagöngufólk safnast saman við Galtalæk (Háteig), alpagreinafólk við Nausta og skautafólk við Lax- dalshús. kl. 21.00 Sovéska skautaparið Marína Anísína og Illja Averbukh, heimsmeistarar unglinga 1989, sýna listir sýnar á skautasvellinu. kl. 21.15 Fánaberar koma inn á svellið og raða sér upp. kl. 21.20 Ávarp: Sigfús Jónsson, bæjar- stjóri Akureyrar og Sveinn Björnsson, forseti ÍSI. kl. 21.30 Tónlistaratriði. HÆTTA Það er hætta á ferðum þegar menn eru byijaðir að ræða um að flölga liðum í 1. deildar- keppninni í handknattleik úr tíu í tólf. Það myndi skaða íslenskan handknattleik. Munurinn á lið- um í 1. og 2. deild er geysilegur nú. 2. deildarkeppnin er ekki spennandi með því fyrirkomulagi sem hefur verið. Þ.e.a.s. að b-lið fé- laga fái að leika í deildinni, en b-liðin eru skipuð samblandi af gamalkunnum handknattleiksmönnum og leik- mönnum sem eru ekki nægilega sterkir til að ieika í a-liðum fé- laganna. Með því að fjölga liðum í 1. deild verður enn gengið á gæði handknattleiksins í 2. deild og áhorfendur hætta að koma á leiki liðanna. Þá yrði eins gott að leika leikina í 2.' deild í æfíngatímum félaga og síðan yrði HSÍ tiikynnt í lok keppn- istímabils hvaða lið hafi unnið sér sæti í 1. deild. Til að auka styrk 2. deildar- keppninnar og auka beiddina i íslenskum handknattleik væri réttast að fækka liðum í 1. deild niður í átta. Þessi breyting myndi gera 1. deildarkeppnina skemmtilegri og styrkja keppn- ina í 2. deild. Með því að hafa átta lið í deild yrði auðveldara að fjölga leikjum og leika fjórar umferðir. Til gamans gætum við litið á hvernig deildirnar tvær væru skipaðar, eftir að búið væri fækka liðum niður í átta. Tvö neðstu liðin í 1. deild, eins og staðan er í dag, eru setti í 2. deild og þá eru b-lið tekin úr 2. deild og einnig tvö neðstu lið- in eins og staðan er í dag. Deild- irnar væru þá þannig: ■ l. DEILD: FH, Valur, Stjarn- an, KR, ÍBV, ÍR, KA og Grótta. M2. DEILD: Víkingur, HK, Fram, Selfoss, Breiðablik, Þaðverðurað styrkja deildarkeppn- ina í handknattleik Haukar, Þór og Keflavík. Þegar að er gáð sést að 2. deildarkeppnin yrði miklu sterk- ari þannig skipuð heldur en deildin er nú. Jafnframt yrði deildin áhugaverðari og fleiri áhorfendur kæmu eflaust á leiki í deildinni. Einnig yrði 1. deild- arkeppnin fjörugri með átta lið- um, sem léku fjórfalda umferð. Sex bæjarfélög ættu iið í 1. deild með þessu fyrirkomulagi: Hafnaríjörður (1), Reykjavík (3), Garðabær (1), Ákureyri (1), Seltjarnames (1) og Vest- mannaeyjar (1), en sex bæjarfé- lög ættu lið í 2. deild: Kópavog- ur (2), Reykjavík (2), Selfoss (1), Hafnarfjörður (1), Akureyri (1) og Keflavík (1). Það þarf að hugsa málin mjög vel áður en breytingar verða gerðar á deildarfyrirkomulagi. Menn verða að hugsa vel um hvernig hægt er að styrkja íslenskan handknattleik. Gera deildarkeppnina áhugaverðari. Það er hætta á ferðum ef menn hugsa aðeins um að styrkja 1. deild. Um leið er verið að veikja aðrar deiidir og um leið íslensk- an handknattleik. Sigmundur Ó. Steinarsson KNATTSPYRNA ísland leikur gegn Spáni í Gijon Spánveijar eru búnir að ákveða leikstað fyrir leik sinn gegn íslanding- um í Evrópukeppni landsliða. Leikurinn fer fram á heimavelli 1. deildarliðsins Sporting Gijon í Gijon í október í ár. Gijon er hafnarborg á Norður-Spáni. Völlurinn heitir E1 Molinón og tekur hann 40 þús. áhorfendur. Þjóðirnar leika í 1. riðli FráAtla ásamt Tékkum, Albönum og Frökkum. Hilmarssyni Síðustu tveir landsleikir Spánveija og íslandinga á Spáni áSpáni hafa farið fram í Malaga og Sevilla á Suður-Spáni. Kristján skoraði fjögur mörk í leiknum, en Villaldea sex, Cabanas fimm og Melo og Ruiz fjögur hvor. Alemany skoraði 9 mörk fyrir Va- lencia, en Stinga sjö og Voinea þijú. Barcelona er efst með 33 stig, en síðan koma Granollers og Teka, sem mætast 31. mars, með 30 stig. Barcelona þurfti ekki að hafa mikið fyrir sigri, 26:17, á Aiicante á mið- vikudagskvöldið. Félagið hvíldi Vujovic fyrir seinni leikinn gegn sænska liðinu Redbergslid í Evrópu- keppninni, sem verður um helgina í Barcelona. KORFUKNATTLEIKUR / BIKARURSLIT KVENNA + „Við erum bestar If sagði Björg Hafsteinsdóttir, fyrirliði bikarmeistara kvenna „VIÐ bjuggumst ekki við að vinna með svo miklum mun — áttum von á að Haukastúlkurn- ar væru betri. Við komum mjög vel undirbúnar, ætluðum okkur að vinna og sýndum að við er- um bestar," sagði Björg Haf- steinsdóttir, fyrirliði ÍBK, eftir 62:29 sigur i bikarúrslitunum í Laugardalshöll ígærkvöldi. Leikurinn fór rólega af stað og það var greinilegt að leikmenn beggja liða voru taugaóstyrkir. Til marks um það kom fyrsta karfan ekki fyrr en á fjórðu mínútu. Keflavíkur- stelpur tóku síðan leikinn í sínar hend- ur og greinilegt var að Haukastúlkur höfðu ekki nægi- legt sjálfstraust. Allar í liði Keflavíkur hittu vel á meðan ekkert gekk hjá Haukum. Á 14. mín. var Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar eins og aðeins lifnaði yfir Hauka- stúlkum. Hraðinn jókst og þær skoruðu þijár körfur á skömmum tíma. En allt kom fyrir ekki. Leik- reyndar, góðar og einfaidlega betri Keflavíkurstelpur gáfu ekkert eftir og þær leiddu 31:10 í hálfleik. Haukastúlkur komu ákveðnar til leiks í seinni hálfleik. Þær börðust vel og náðu að minnka muninn í 33:18, en þegar líða tók á hálfleik- inn komu yfirburðir Keflavíkur- stúlkna í ljós á ný. Spurningin var aðeins hve stór sigurinn yrði. Keflavíkurliðið spilaði mjög góð- an leik, stúlkurnar hittu vel, náðu vel saman og gremilegt að meistar- ar voru á ferð. „Ég vil sérstaklega þakka áhorfendum góðan stuðn- ing,“ sagði Björg Hafsteinsdóttir, sem átti mjög góðan leik. Hún stjórnaði liði sínu af skynsemi, átti góðar sendingar og skoraði mikil- væg stig. Anna María Sveinsdóttir stóð að vanda fyrir sínu og einnig átti Fjóla Þorkelsdóttir góða spretti í seinni hálfleik. Annars var þetta fyrst og fremst sigur liðsheildarinn- ar. „Það gekk ekkert upp hjá okkur. Boltinn fór ekki ofan í körfuna. Við flýttum okkur of mikið, vorum taugaóstyrkar og því fór sem fór. En ég óska ÍBK til hamingju með sigurinn," sagði Sólveig Pálsdóttir, fyrirliði Hauka. Lið hennar lék langt undir getu, en Guðbjörg Norðfjörð var best. Hún barðist vel og gafst aldrei upp. Stig ÍBK: Anna María Sveinsdóttir 19, Björg Hafsteinsdóttir 14, Fjóla Þorkelsdóttir 8, Margrét Sturlaugsdóttir 11, Svandís Gylfadóttir 4, Hilma Hólm 2, Elínborg Herbertsdóttir 2, Ástrún Viðars- dóttir 2. Stig Hauka: Guðbjörg Norðfjörð 12, Sólveig Páls- dóttir 6, Hafdís Hafberg 5, Sigrún Skarphéðins- dóttir 4, Anna Guðmundsdóttir 2. Áhorfendur voru um 200 í fyrri háflleik en þeim fór Qölgandi og voru um 600 í lokin. Dómarar voru Bergur Steingrímsson og Víglundur Sverris- son.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.