Morgunblaðið - 23.03.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990
39
KÖRFUKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNI KARLA
Sigurgangan heldur áfram
Njarðvíkingar urðu bikarmeistarar fjórða árið í röð, nú eftir sigur á erkifjendunum úr Keflavík
„ÞETTA er bikarinn okkar,“
sagði Árni Lárusson þjálfari
Njarðvíkinga eftir sigur á
Keflvíkingum, 90:84, í úrslita-
leik bikarkeppninnar í gær-
kvöldi. Þetta var fjórði sigur
Njarðvíkinga í röð og líklega
má segja að reynslan úr þess-
um leikjum hafi komið sér vel,
því liðið hélt ró sinni á spenn-
andi lokamínútum og lék af
skynsemi.
Keflíkingar byrjuðu vel en smám
saman náðu Njarðvíkingar
yfirhöndinni. Þeir voru mun
ákveðnari undir körfunni og fengu
oft 3-4 fjögur skot
Logi Bergmann í sókn. Keflvíkingar,
Eiösson sem léku án Magn-
skrifar úsar Guðfinnssonar,
voru hinsvegar sein-
ir í fráköstin og náðu ekki að losa
um Guðjón Skúlason í sókninni en
hann hefur verið besti maður liðsins
í vetur.
Munurinn varð þó aldrei meiri
en tíu stig og undir lokin voru
Keflíkingar oft nálægt því að jafna.
Taugarnar virtust þó vera í ólagi
hjá Keflvíkingum, því þegar þeir
fengu færi á að jafna voru þeim
allar bjargir bannaðar. Njarðvíking-
ar héldu forskotinu og þegar tvær
mínútur voru til leiksloka gerðu
þeir fimm stig í röð. Þarmeð var
sigurinn í höfn og Keflvíkingar ját-
uðu sig sigraða.
Patrick Releford átti mjög góðan
leik fyrir Njarðvíkinga, hitti vel og
tók mörg fráköst. Teitur Örlygsson
lék einnig vel og af mikilli baráttu
allan leikinn. Njarðvíkingar eiga þó
iíklega Friðriki Ragnarssyni mest
að þakka. Hann var mjög sterkur
í vörninni og hélt Guðjóni Skúlasyni
niðri. í sókninni nýtti hann skotin
vel þegar mest á reið og sama má
segja um Kristin Einarsson.
Falur Harðarson var bestur í liði
Keflvíkinga, hitti mjög vel og var
sterkur í vörninni. Sigurður Ingi-
mundarson byrjaði vel en dalaði er
leið á leikinn og Sandy Anderson
var sterkur í vörninni, en nýtti illa
skotin sín. Þá átti Nökkvi Már Jóns-
son ágætan leik.
Aðeins byrjunin
Þessi leikur var aðeins sá fyrsti
og vonandi fylgja þrír jafn góðir
leikir í kjölfarið í úrslitakeppninni.
Liðin mætast að nýju á mánudag-
inn, í Keflavík, og má örugglega
gera ráð fyrir spennandi leik.
Morgunblaðið/Einar Falur
Friðrik Ragnarsson átti mjög góðan leik í gær og hér gerir hann mikilvæg stig fyrir Njarðvíkinga undir lok leiks-
ins. Keflvíkingurinn Albert Óskarsson kemur engum vörnum við.
Morgunblaðið/Einar Falur
Teitur Örlygsson og ísak Tómas-
son fagna sigri en þeir hafa verið í
sigurliði Njarðvíkinga undanfarin
fjögur ár.
■ ANATÓLÍJ Kovtoúm, hinn
sovéSki fram-
heiji KR, missir
af tveimur næstu
leikjum liðsins,
gegn Grindvík-
ingum í úrslita-
keppninni. Hann
var dæmdur í
tveggja leikja
bann í af_ aga-
nefnd KKÍ gær Kovtoúm.
fyrir gróft brot í leik KR og
Njarðvíkur í síðustu viku.
■ PATRICK Releford úr
Njarðvík og Falur Harðarson úr
Keflavík voru kjörnir bestu menn
úrslitaleiksins af sérstakri dóm-
nefnd.
■ ÓLAFUR Pétursson, leikmað-
ur ÍBK, er einnig markvörður ungl-
ingalandsliðsins í knattspyrnu. Það
ætti ekki að koma á óvart því
Keflvíkingar hafa átti marga góða
knattspyrnumarkverði í körfubolta-
liði sínu. Þorsteinn Bjarnason,
Bjarni Sigurðsson og Ólafur
Gottskálksson hafa allir leikið með
ÍBK og verið valdir í íslenska lands-
liðið í knattspyrnu.
■ ANNA María Sveinsdóttir,
ÍBK, var útnefnd best í liði kvenna-
meistaranna, en Guðbjörg Norð-
Qörð hjá Haukum. í verðlaun
fengu þær matarboð fyrir tvo á
Flughótelinu í Keflavík.
Morgunblaðið/Einar Falur
Björg Hafsteinsdóttir hampar bikarnum eftir sigurinn á Haukum. Að baki
hennar standa Guðfinnur Sigurvinsson, bæjarstjóri í Keflavík, og Kolbeinn
Pálsson, formaður KKÍ.
„Farnir að þekkja þettau
- sagði ísakTómasson, fyrirliði Njarðvíkinga
„Við höfum leikið fimm úrslita-
leiki í röð og erum farnir að þekkja
þetta og það kom sér vel. Auk þess
vorum við öruggari í lokin og segja
má að við höfum haft taugarnar
og reynsluna okkar megin,“ sagði
ísak Tómasson, fyrirliði Njarðvík-
inga, eftir leikinn. „Þetta var góður
og spennandi leikur, rétt eins og
fólk vildi, og það sést á stigunum
hve sterk liðin eru,“ sagði Isak.
„Hálfur sigur unninn“
„Við erum að sjálfsögðu mjög
ánægðir með sigurinn enda mikill
léttir að vera komnir með titil. En
þetta er aðeins hálfur sigur því við
ætlum okkur líka að ná í þann
stóra,“ sagði Árni Lárusson, þjálf-
ari Njarðvíkinga. „Það munaði
miklu hvernig við náðum að stöðva
Guðjón. Það sem réði þó líklega
úrslitum var að við höfum meiri
breidd og varamennirnir stóðu sig
mjög vel.“
„Vantaði kraft í wörninni"
„Við gerðum of mörg mistök í
sókninni -og vantaði kraft í vörn-
inni. Við höfum oft verið undir nær
allan leikinn en unnið það upp í
lokin en nú vantaði okkur þennan
kraft,“ sagði Sigurður Ingimundar-
son, fyrirliði Keflvíkinga. „Það
munaði miklu hve illa okkur gekk
að losa um Guðjón en aðrir leik-
menn, einkum Falur, stóðu sigvel.
Það er stutt til mánudags og við
erum farnir að hugsa um fyrsta
leikinn í úrslitakeppninni. Það er
að duga eða drepast og við ætlum
okkur sigur,“ sagði Sigurður.
„Allt gekk upp í lokin“
„Það var pressa á Keflvíkingun-
um í lokin og þeir urðu að flýta
sér. Þegar þeir gerðu mistök feng-
um við ódýr stig og í raun gekk
allt upp hjá okkur í lokin,“ sagði
Teitur Örlygsson. „Við emm alls
ekki hættir og vitum að við eigum
góða möguleika á þeim stóra.“
„Héldum ekki út“
„Við vorum á hælunum á þeim
allan leikinn og áttum góða mögu-
leika allan tímann en héldum ekki
út í lokin,“ sagði Falur Harðarson.
„Við fáum þó annað tækifæri í úrsli-
takeppninni og þá kemur ekkert
annað en sigur til greina,“ sagði
Falur.
UMFN - ÍBK
Laugardalshöll, bikarkeppni karla í körfuknattleik, úrslitaleikur, fimmtudaginn 22. mars.
Gangur leiksins: 2:0, 8:5, 9:13, 11:18, 16:21, 18:25, 26:27, 28:31, 41:31, 42:38, 46:42,
52:44, 54:48, 60:53, 62:60, 72:68, 77:72, 81:79, 86:81, 90:84.
UMFN: Patriek Releford 26, Teitur Örlygsson 15, Jóhannes Kristbjömsson 11, Kristinn
Einarsson 10, Friðrik Ragnarsson 9, ísak Tómasson 9, Helgi Rafnsson 8, Ástþór Ingason
2. Friðrik Rúnarsson, Rúnar Jónsson.
ÍBK: Falur Jóhann Harðarson 24, Sandy Anderson 16, Sigurður Ingimundarson 13,
Guðjón Skúlason 12, Nökkvi Jónsson 11, Einar Einarsson 4, Albert Óskarsson 2, Ingólf-
ur Haraldsson 2. Ólafur Pétursson, Hjörtur Harðarson.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Kristinn Albertsson. Þeir dæmdu mjög vel.
Áhorfendur: Um 1.300.
90 : 84