Morgunblaðið - 04.04.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.04.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1990 15 ■ VINNUVEITENDASAM- BAND íslands gengst fyrir rit- gerðasamkeppni meðal framhalds- skólanema í mennta-, fjölbrauta- og verkmenntaskólum og öldunga- deildum þeirra í ljósi þeirra miklu breytinga sem nú eiga sér stað í Evrópu. Yfirskrift ritgerðarefnisins er: Islenskt atvinnulíf í nýrri Evr- ópu. Markmiðið er að örva ungt fólk til þess að gefa gaum að þeim breytingum, sem nú eiga sér stað og velta fyrir sér hvernig áhrif þær muni hafa á afkomu og lífskjör á Islandi í framtíðinni. Efnislega skal ritgerðin fjalla um eftirfarandi þijá undirflokka, sem þátttakendur geta valið að skrifa um:_A) Menntun og vinnumarkað, B) Áhrif á íslenskt atvinnulíf, C) Nýjar atvinnugreinar. í ritgerðinni skal leitast við að gera grein fyrir hvaða breytingar eru að eiga sér stað í Evrópu og ræða síðan hugsanleg áhrif þeirra. Ritgerðin má ekki vera lengri en 10 véiritað- ar A4-síður, en skilafrestur er til 23. apríl næstkomandi. Dómnefnd skipuð af framkvæmdastjórn VSÍ mun velja þrjár bestu ritgerðirnar. Verðlaunin eru farmiði til einhvers áfangastaða Flugleiða í Evrópu og 30 þúsund krónur að auki. Verð- launin verða afhent á aðalfundi Vinnuveitendasambandsins, sem haldinn verðu í maímánuði. ■ FRAMBOÐSLISTI Fram- sóknarflokksins í Keflavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var að undangengnu prófkjöri ákveðinn á fundi í fulltrúaráði Framsóknarfélaganna þann 14. mars s.l. Listinn verður þannig skip- aður: 1. Drífa Sigfúsdóttir bæjar- fulltrúi, 2. Þorsteinn Árnason skipstjóri, 3. Skúli Skúlason full- trúi Kaupfélags Suðurnesja, 4. Hjördís Árnadóttir félagsmála- stjóri, 5. Friðrik Georgsson full- trúi, 6. Karl Hermannsson aðstoð- aryfirlögregluþjónn, 7. Guðbjörg Ingimundardóttir kennari, 8. Gísli H. Jóhannsson verslunarmaður, 9. Birgir Guðnason málarameistari 10. Eysteinn Jónsson nemi, 11. Magnús Haraldsson skrifstofu- stjóri, 12. Helga Guðjónsdóttir bankastarfsmaður, 13. Vilmundur Árnason verkstjóri, 14. Gunnar Jóhannsson tollvörður, 15. Berg- þóra Káradóttir húsmóðir, 16. Jakob Sigurðsson húsasmíða- meistari, 17. Sigurbjörg Gísla- dóttir skrifstofumaður og 18. Hilmar Pétursson, fyrrverandi bæjarfulltrúi. Á fundinum var sam- þykkt ályktun þar sem lýst var yfir miklum áhyggjum varðandi þróun í atvinnumálum í Keflavík og á Suðurnesjum. BB ■ FULLTRÚARÁÐ Alþýðu- ilokksins í Ha&iarfírði hefur sam- þykkt eftirfarandi framboðslista flokksins við bæjarstjórnarkosning- arnar 26. maí 1990. Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri, Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti bæjar- stjórnar, Ingvar Viktorsson, bæj- arfulltrúi, Valgerður Guðmunds- dóttir, bæjarfulltrúi, Tryggvi Harðarson, bæjarfulltrúi, Arni Hjörleifsson, rafvirki, Anna Kristín Jóhannesdóttir, kennari, Ómar Smári Ármannsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn, Eyjólfur Sæ- mundsson, verkfræðingur, Guðjón Sveinsson, verslunarmaður, Bryn- hildur Skarphéðinsdóttir, banka- starfsmaður, Erlingur Kristens- son, skrifstofumaður, Margrét Pálmarsdóttir, rekstrarfulltrúi, Gísli Geirsson, fisktæknir, Klara S. Sifurðardóttir, starfsmaður verkakvennafélagsins Framtíðar- innar, Þorlákur Oddsson, starfs- maður ísal, Kristín List Malm- berg, nemi, Ingvar Guðmunds- son, fasteignasali, Oddgerður Oddgeirsdóttir, íþróttakennari, Guðrún Emilsdóttir, hjúkrunar- fræðingur, Guðríður Elíasdóttir, formaður verkakvennafélagsins Framtíðarinnar, og Þórður Þórð- arson, fyrrverandi framfærslufull- trúi. Vikulegt dagflug tillbiza með Veröld á frábæru verði Þessi heillandi eyja er einstök í sinni röð. Hér sameinast á einum stað fjölbreytilegasta mannlíf Miðjarðarhafsins og heillandi strandlíf. Einstakur valkostur í sumarleyfinu. Tur Palas Jet Bossa Góður gististaður á Bossa ströndinni á góðu verði. Fyrir 4ra manna fjölskyldu, 26. júní, í 2 vikur kostar aðeins kr. 179.600,- Einn vinsælasti gististaðurinn á ströndinni með frábærri aðstöðu. Fyrir 5 saman í íbúð þann 3. júlí kostar nú aðeins kr. 53.000,- Mikilvæg undirstaða -felst í þessu litla hylki Ef líkama þinn vantar réttu bætiefnin er hætt við að ýmislegt fari úrskeiðis. Hvernig gengur að vakna á morgnana? Hvað með námsgetuna, þrekið, skapið, hárið, húðina og neglurnar? Þú getur tryggt líkamanum rétta undirstöðu með Magnamín bætiefnahylkjunum. Taktu góða Magnamínlotu - með morgunmatnum og vertu tilbúin í vorverkin. Magnamín með morgunmatnum - treystir undirstöðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.