Morgunblaðið - 04.04.1990, Page 24

Morgunblaðið - 04.04.1990, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL 1990 Bandaríkin: Hæstiréttur frest- ar aftöku dauða- dæmds morðingja San Quentin. Reuter. Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í fyrradag að íiresta af- töku dauðadæmds morðingja, Roberts Harris, en hann átti að ljúka lífi sínu í gasklefa í San Quentin-fangelsinu í Kaliforníu klukkan tíu í gærmorgun. Hefði hann orðið og verður ef til vill Vill setja met í bameignum Ras al Khaimah, Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Reuter. OPINBER starfsmaður í fur- stadæminu Ras al Khaimah í Sameinuðu arabísku fúrsta- dæmunum stefiiir að því að setja Persaflóamet í barn- eignum, að því er dagblað í Ras al Khaimah sagði í gær. Salim Juma, en svo heitir maðurinn, á þegar 32 börn með átta konum; þar af fæddust fjögur á síðasta ári. Þtjú eru á leiðinni, en Salim Juma hefur sett sér að eignast 50 böm. Blaðið segir að Juma, sem er starfsmaður í ráðuneyti, hafi kvartað yfir því að mánaðar- launin, jafngildi um 200.000 íslenskra króna, hrökkvi ekki fyrir uppihaldi bamanna, eigin- kvennanna og fjögurra fyrrver- andi eiginkvenna. Samkvæmt múhameðstrú mega karlar eiga allt að fjórar eiginkonur í einu. fyrsti maðurinn, sem tekinn er af lífi í ríkinu í 23 ár. Hæstiréttur samþykkti með 6 atkvæðum gegn þremur að fresta aftökunni en andstæðingar dauða- refsingar segja, að verði henni full- nægt muni margar fleiri fylgja á eftir í Kaliforníu og annars staðar. Fulltrúar Kalifomíuríkis brugðust illa við ákvörðun hæstaréttar og Kíkisstjórinn, George Deukmejian, sagði á blaðamannafundi í Sacra- mento í gær, að hún væri undarleg enda ekki deilt um staðreyndir málsins. „Robert Harris myrti tvo unga drengi með köldu blóði og játar glæpinn,“ sagði Deukmejian. Lögfræðingar Harris halda því fram, að sálfræðingur hafi ekki vitnað fyrir hans hönd í réttarhöld- unum árið 1979 og sl. föstudag fengu þeir talið John Noonan, dóm- ara við bandaríska áfrýjunarrétt- inn, á að fresta aftökunni. Kali- forníuríki áfrýjaði þeim dómi til hæstaréttar en hann staðfesti frestunina eins og fyrr segir. „Enn einu sinni hafa þeir bragðið fæti fyrir réttvísina,“ sagði Deukmejian á fréttamannafundinum. Bandarísku borgararéttinda- samtökin hafa tekið Harris upp á sína arma og einn lögfræðinga hans, Dorothy Ehrlich, sagði, að undirrót glæpsins væru „margv- íslegir geðkvillar". Harris hefði verið barinn í æsku og hlotið heila- skemmdir vegna mikils drykkju- skapar móður hans meðan á með- göngu stóð. Reuter Þennan samfanga sinn, bundinn á höndum og beran að ofan, drógu uppreisnarfangarnir upp á þak Strangeways-fangelsisins og hótuðu að kasta honum fram af brúninni yrði lögreglan ekki við kröfúm þeirra. Þeir létu þó ekki verða af því og fóru með hann inn aftur. Fangauppreisnin í Manchester: Matarlausir fengar veittu enn viðnám Frakkland: Jean-Marie le Pen fagnað sem frelsara á flokksþingi Nice. Reuter. FLOKKSÞING Þjóðarfylking- arínnar í Frakklandi, flokks hægri öfgamanna, fór fram í Nice um helgina og haft var á orði að þetta væri best heppn- aða þingið í átján ára sögu flokksins. Var leiðtoganum, Jean-Marie Le Pen, fagnað sem frelsara Frakka er hann flutti ræðu sína. „Þetta flokksþing markar tíma- mót í sögu Þjóðarfylkingarinnar og Frakklands," hrópaði Le Pen við mikil fagnaðarlæti nokkurra þúsunda stuðningsmanna. Flokks- leiðtoginn þótti flytja ræðuna af miklum sann- færingarkrafti og minna um margt á banda- ríska sjón- varpsprédikara, þar sem hann gekk um á sviði fundarhallarinnar og geisli ljós- kastarans fylgdi honum eftir. Fundarmenn stóðu hvað eftir ann- að á fætur og hylltu leiðtoga sinn með lófataki og fagnaðarhrópum. Hann sagði að straumur inn- flytjenda til landsins eftir heim- styrjöldina síðari væri undirrót flestra þeirra vandamála, sem Frakkar ættu við að etja. Hann kenndi átta milljónum útlendinga, sem sest hefðu að í landinu á meðan stjórnir sósíalista og íhalds- manna hefðu sofið á verðinum, um sífjölgandi glæpi, atvinnuleysi og húsnæðisskort í landinu. Sam- kvæmt opinberam tölum eru þó aðeins um fjórar milljónir innfiytj- enda í Frakklandi en íbúar landsins eru 57 milljónir. Sovétríkin: Manchester. Reuter. BARIST var enn í Strangeways-fangelsinu í Man- chester á Englandi í gær, þriðja daginn í röð, og hafa fangaverð- ir nú um tvo þriðju byggingar- innar á valdi sínu. Var látið til skarar skríða gegn föngunum þegar 20 þeirra gáfúst upp en þeir, sem enn veita viðnám, hafast við á efstu hæðunum og uppi á þaki. Eftir átökin í gær drógu fan- garnir einn samfanga sinn, bund- inn á höndum og beran ofan að mitti, upp á þakið og hótuðu að kasta honum fram af léti lögregl- an ekki undan síga. Hafði einn þeirra brugðið hnífi að háisi manninum en síðan fóra þeir með hann inn í húsið aftur. Ekki hafa fundist nein lík í þeim hlutum hússins, sem nú era á valdi fanga- varðanna, en margir leggja samt trúnað á frásagnir um, að ein- hverjir kynferðisglæpamenn, sem aðrir fangar fyririíta jafnan, hafi verið myrtir. A mánudag náðu fangaverðir matarbirgðum fangelsisins á sitt vald og því er talið, að uppreisnar- fangarnir, sem eftir eru, um 85 talsins, muni gefast upp fljótlega. PEN heiðr- ar kínversk- an rithöfund Ofsóknum gegn listamönnum í Kína linnir ekki Peking. Reuter. KÍNVERSKUR rithöfúndur, sem er í útlegð í Svíþjóð, verður heiðraður í Bandaríkjunum í dag fyrir baráttu sína fyrir rit- frelsi. Frá Kína berast hins veg- ar fregnir af því að rithöfundar séu þar enn teknir höndum og ekkert lát sé á ofsóknum gegn þeim. Bandaríkjadeild alþjóðlegu rit- höfundasamtakanna PEN skýrði frá því að hún hygðist verðlauna kínverska bókmenntatímaritið Á líðandi stund, sem stjórnvöld í Kína bönnuðu árið 1980. Einn af stofnendum ritsins, Bei Dao, flúði landið í fyrra eftir að hafa staðið fyrir undirskriftasöfnun til að krefjast þess að pólitískir fangar yrðu leystir úr haldi. Hann hélt útgáfu ritsins áfram í Svíþjóð. Rithöfundar í Kína fögnuðu .þessum tíðindum en sögðu að þau gætu orðið til þess að kínversk stjórnvöld hertu enn frekar of- sóknirnar gegn kínverskum rithöf- undum og listamönnum, sem vildu lýðræði og frelsi í landinu. Eiginkona Beis Daos, Shan Fei, sem er þekkt listakona, er enn í Peking og líklegt er talið að verð- launin verði til þess umsókn henn- ar um vegabréf til að geta farið til Svíþjóðar verði hafnað. Að minnsta kosti fjögur skáld hafa verið handtekin í Kína undan- farnar vikur. Óháð útgáfustarf- semi hefur verið bönnuð en nokkur ljóðatímarit eru þó enn gefin út leynilega. Á sunnudag var ár liðið frá upphafi mótmæla kínverskra lýð- ræðissinna, sem kveðin voru niður með grimmdarlegum hætti 4. júní. ERLENT Æðsta ráðið fjallar um frum- varp varðandi sambandsslit Moskvu. Reuter. ÆÐSTA ráðið, löggjafarþing Sovétríkjanna, Qallar nú um ný lög um mögulega úrsögn úr ríkjasambandinu. Onnur þingdeildin, Þjóðaráðið, samþykkti Iagafrumvarpið í gær með miklum meiri- hluta, 163 atkvæðum gegn 13. Samkvæmt frumvarpinu þurfa 2/3 kjósenda í viðkomandi lýðveldi að samþykkja aðskilnaðinn í þjóðaratkvæðagreiðslu. Frumvarpið gerir ráð fyrir að síðan hefjist samingaviðræður milli Sovétsljórnarinnar og lýðveldis- ins. Fulltrúaþingið þarf samkvæmt frumvarpinu að samþykkja aðskilnaðinn formlega innan fimm ára frá atkvæðagreiðslunni. Sovésk yfirvöld hafa stöðvað mestalla umferð á landamærum Póllands og Litháens. Eina landa- mærastöðin heitir Ogrodniki-Laz- dijai, 300 km norðaustur af Var- sjá. Að sögn pólsks landamæra- varðar þar tóku sovéskir starfs- bræður hans fyrir nær alla umferð í gærmorgun. Um þrjú þúsund pólskir ferðamenn hafa farið um landamærin daglega að undanf- örnu. Sovéskir borgarar og pólskir fengu þó að fara til síns heima. Einnig var sovéskum kaupsýsiu- mönnum og vöruflutningabílstjór- um leyft að fara yfir landamærin. Nýkjörið þing Eistlands sam- þykkti ályktun í gær þar sem þess er krafist að Sovétstjórnin láti nú þegar af stjórnmálalegum og hern- aðarlegum þrýstingi á Litháa og viðurkenni formlega sjálfstæðis- yfirlýsingu þeirra frá 11. mars síðastliðnum. Eistar og Rússar deildu hart um ályktunina áður en gengið var til atkvæða. Hún var loks samþykkt með 64 atkvæðum gegn 32. Þetta er í fyrsta skipti sem eitthvert Sovétlýðveldanna veitir Litháum formlegan stuðning með þessum hætti. Sendinefnd frá Litháen kom til Moskvu í gær til að ræða við stjórp- völd um sjálfstæði landsins. Arkadíj Maslenníkov, blaðafulltrúi Míkhaíls Gorbatsjovs, forseta Sov- étríkjanna, sagði á fréttamanna- fundi í gær að Gorbatsjovs væri tii með að hitta sendinefndina ef hún liti á Litháen sem hluta Sov- étríkjanna. Ráðamenn í Litháen segja að landið sé ekki hluti Sov- étríkjanna. Sendinefndin frá Lithá- en vill einnig ræða yfirlýsingar yfirmanna sovéska hersins um að vorherkvaðningu Litháa verði hrint í framkvæmd eins og lög geri ráð fyrir. Segja fulltrúar Litháa það miklum erfiðleikum bundið vegna þess að þjóðin sé ekki reiðubúin að gegna herþjónustu í Rauða hernum. Enn er allt óvíst um útgáfu allra helstu dagblaða í Litháen. Sovéski herinn hefur tekið á sitt vald blað- hús í höfuðborginni Vilnius þar sem öll helstu blöðin eru prentuð. Á mánudag tilkynntu sovésk yfir- völd að einungis yrði leyfð útgáfa eins dagblaðanna, Sovjetskaja Litva, sem undanfarið hefur verið prentað í Minsk, höfuðborg Hvíta- Rússlands, vegna þess að prentar- ar hafa ekki viljað koma nærri útgáfu þess blaðs, sem mjög dreg- ur taum Sovétstjórnarinnar. Prent- arar brugðust við fyrirmælunum með því að segjast annað hvort prenta öil blöðin eða ekkert jafnvel þótt hermenn stæðu yfir þeim. í fyrrakvöld náðist samkomulag um að blöðin kæmu út í gær þriðju- dag. Óvíst var í gær hvað yrði um útgáfu blaðanna í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.