Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 5
4-
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990
B 5
sloka. Axel og Sovétmaðurinn Kovtoúm sátu á bekknum á lokasekúndunum of fögnuðu innilega eins og sjá má. Á innfelidu
íferð.
Eflir vonandi
körfuboltann
í Reykjavík
- segirSófusGuðjónsson,
stjórnarmaður í KR um sigurinn
SÓFUS Guðjónsson, fyrrum leikmaður KR, var að
vonum ánægður með titiiinn. „Við höfum beðið
eftir þessu í mörg ár. Þessi sigur er mjög mikilvæg-
ur fyrir allt starf í KR og eins fyrir körf uboltann
almennt i Reykjavík. Boltinn hafði dottið hér niður
og það var visst áhyggjuefni. Ég vona hins vegar
innilega að sigurinn efli körfuboltann í Reykjavík,
hvetji félög til frekari dáða,“ sagði stjórnarmaður-
inn.
Sófus sagði að markvisst hefði verið stefnt að titilin-
um í ár. „Lazló tók við liðinu fyrir síðasta keppn-
istímabil og þá fórum við í raun lengra en flestir bjug-
gust við. Við sáum að við gátum þetta, fengum Kovtoúm
til liðs við okkur og hugsuðum um það eitt að klára
dæmið.“
Stjórnarmaðurinn sagði að framtíðaráform hefðu setið
á hakanum undanfarna daga, en nú yrði farið að hugsa
um næsta tímabil. „Ég á ekki von á miklum breytingum.
Við erum með ungt lið, en eins eigum við efnilega stráka
í yngri flokkunum, sem fara að berja á dyrnar. Reyndar
er ekki frágengið hvað Kovtoúm gerir og KKÍ hefur
ekki tekið ákvörðun varðandi landsliðsþjálfarann. Á með-
an getum við ekkert gert í þjálfaramálum, en að öllu
óbreyttu er ljóst að við ráðum ekki við að vera bæði með
erlendan leikmann og annan sem þjálfara, sem er alfarið
hjá okkur.“
li Morgunblaðið/Einar Falur
issambandsins, afhenti KR-ingum íslandsbikarinn og var auð-
meistari með félaginu. Hann lét sér þó nægja að smella kossi
fgullpeningana: Son sinn Pál. Hér fagna þeir feðgar í búnings-
„Okkur langaði
aðeins meira“
„SIGURINN var mjög sætur.
Sætari en í fyrra? iá, vegna
þess að þessi vannst í dag“
sagði Axel Nikulásson eftir
leikinn, en hann varð einmitt
meistari með ÍBK ífyrra.
Axel er því sá eini í leikmanna-
hópi KR sem hafði fengið
að hampa hinum glæsilega Is-
lands’oikar áður. Enda sagði hann:
„Þennan á ég!“ og þreif bikarinn
þegar í klefann kom. Hann sagði
KR-inga hafa lagt gífurlega hart
að sér í vetur, „og stemmningin
hjá okkur er mjög góð. Ég held
að munurinn á liðunum hafi verið
sá að okkur langaði aðeins meira
í titilinn.“
Axel bætti við: „Að mínu mati
erum við með besta útlendinginn,
besta leikstjórnandann og besta
þjálfarann. Svo þegar við erum
með menn eins-og Bigga [Birgi
Mikaelsson], Guðna [Guðnason]
og og Matta [Matthías Einarsson]
þá getum við ekki annað en náð
góðum árangri."
„Úrslitin
réðustí
Keflavík
U
- sagði Lazslo Nemeth, þjálfari KR
SIGURINN kom Lazslo Nem-
eth, hinum ungverska þjálfara
KR, ekki á óvart. „Úrslitin réð-
ust í Keflavík. Keflvíkingar eru
sterkir á heimavelli og því gerði
sigur okkar þar gæfumuninn.
En þetta er sannfærandi sigur.
Fimm sigrar og ekkert tap í
úrslitakeppninni segir allt um
yfirburðina. Og Kovtoúm var
ekki einu sinni með í fyrstu
tveimur leikjunum!"
emeth bætti enn einum meist-
aratitlinum í safnið. Lið undir
hans stjórn varð margfaldur meist-
ari í Ungverjalandi, sömu sögu er
■■HH að segja frá Kúvæt
Steinþór og nú hefur sagan
Guðbjartsson endurtekið sig á ís-
skrifar landi. Hann var
samt ekki ánægður.
„Við töpuðum þremur leikjum í
vetur og urðum ekki bikarmeistar-
ar. Menn eiga alltaf að stefna að
sigri og hugsa um það eitt að bæta
sig. Þetta er ánægjuleg stund, sú
ánægjulegasta í 11 ár hjá KR, en
alvaran tekur aftur við næsta dag.
Við erum betri en í fyrra og vinnan
í vetur hefur komið okkur á þetta
stig. En það má gera betur. Samt
vona ég að Einar Bollason, sem
mælti með mér í starfið, þurfi ekki
að skammast sín.“
Lazslo sagði að KR-ingar mættu
ekki gleyma sér í sigurvímu. „Til-
fellið er að Keflvíkingar eru með
besta sóknarliðið og eru yfirleitt
með um 100 stig í leik. Þetta urðum
við að stöðva og það tókst. Hinu
má ekki gleyma að Keflvíkingar
léku mun erfiðari leiki í undanúrslit-
um, leiki, sem kostuðu mikinn
kraft. Því komu þeir þreyttari en
við í úrslitin — og ég þakka fyrir
að Anna María lék ekki með þeim!
Annars undirbjuggum við okkur
vel fyrir keppnistímabilið og lögðum
áherslu á að bæta varnarleikinn.
Því lagði ég áherslu á að fá Kovto-
úm, þegar ég vissi að hann var á
iausu. Ég sá hann taka Sabonis,
besta miðheija Sovétmanna, úr
umferð í úrslitunum í Sovétríkjun-
um í fyrra og það tekur enginn
Sabonis úr umferð nema virkilega
góður varnarmaður.
Við bytjuðum snemma og álagið
var mikið. Útlitið var strax gott,
en við áttum erfitt uppdráttar, þeg-
ar Guðni meiddist í vetur og þá
töpuðum við leikjum. Samt er
breiddin mikil og menn skiptust á
að eiga stjörnuleiki.“
Aðspurður hvort hann yrði áfram
landsliðsþjálfari og þjálfari KR,
sagði hann að Körfuknattleikssam-
bandið hefði ekki beðið sig um að
vera áfram, en samningur hans við
KKÍ rennur út 1. júlí. „Ég vil hins
vegar vera áfram. Við erum byrjað-
ir á ákveðnum hlutum, en þeim
þarf að fylgja eftir og ég er tilbúinn
til þess.“
„Uppskárum
laun erfiðisins11
„ÉG ER auðvitað hæstánægð-
ur með sigurinn. Við áttum
hann skilið — vorum ákveðn-
ari í öllum leikjunum þremur,“
sagði Páll Kolbeinsson, leik-
stjórnandi KR-inga eftir að
íslandsmeistaratitilinn var í
höfn.
Páll fór hamförum í úrslita-
keppninni, lék við hvern sinn
fingur og stýrði liðinu til sigurs á
íslandsmótinu í fyrsta skipti I ell-
efu ár. „Það var kominn tími til
að titillinn færi í Vesturbæinn.
Við höfum æft mikið og uppskár-
um laun erfiðisins, Byrjuðum í
júlí og ég hef æft 5-6 sinnum í
viku síðan, körfubolta og lyfting-
ar. Við vorum í betri líkamlegri
æfingu en þeir og viljinn var
meiri. Þegar þetta tvennt smellur
saman hlýtur árangurinn að verða
góður.“
Páll sagði KR-ingum hafa tek-
ist að keyra upp hraðann í leikjun-
um gegn Keflvíkingunum, og
stjórnað honum — og síðan náð
að leika góða vöm. „Það hentar
okkur mjög vel að leika svona
hratt. Lazlo hefur verið með góð-
ar æfingar, sem hafa undirbúið
okkur vel fyrir svona leiki — að
keyra hratt fram völlinn og falla
síðan strax í vömina, eins og við
höfum gert.“