Morgunblaðið - 14.07.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990
V estmannaeyjar:
Endurtalning
og kærur tvö-
falda kostnað
Spennandi nýjung fyrir ostkerana.
Beint úr frysti í heitan ofninn.
Pú getur galdrað fram veislu hvenær sem þér
dettur í hug, ef þú lumar á þessum pakka í frystinum.
Pað tekur aðeins um 20 mín. frá því hugmyndin
fæðist þar til hún verður að veruleika.
Innbakaður Dala Brie-tilbúin smáveisla fyrir fjóra
eða fjórar smáveislur fyrir einn.
*
Jóhann Hjartarson
2,5 tonn af eitri í
ræsi borgarinnar
KVÖRTUNUM um rottugang hefur farið hríðfækkandi undanfarin ár
í borginni, að sögn Guðmundar Björnssonar yfirnieindýraeyðis. Kvart-
anir í borginni allri eru orðnar rúmlega 240 það sem af er árinu.
Starfsmenn borgarinnar munu setja um 2,5 tonn af eitri í ræsi og Ijör-
ur borgarinnar á þessu suinri.
„Ástandið í borginni er almennt
mjög gott og við munum eitra
gríðarlega mikið í sumar,“ segir
Guðmundur. Hann er einn af fjórum
föstum starfsmönnum deildarinnar.
Á sumrin bætast 4-6 starfsmenn í
hópinn og hafa þann starfa að eitra
í ræsi og fjörur borgarinnar. Eitrað
er að jafnaði í tvö skipti á hveijum
stað, oftar ef eftirlit leiðir í ljós að
hratt gengur á eitrið.
„Við vitum af þeim þarna niðri
og ef slegið er slöku við að eitra
geta þær alltaf náð sér á strik. En
eitrið sem við notum hefur gefið
mjög góða raun og haldið stofninum
alveg í skefjum,“ segir Guðmundur.
Að sögn hans verða húseigendur
að gæta þess að hvergi séu rifur eða
opin ræsi við húshliðar eða inni á
lóðum. í nær öllum tilvikum þar sem
sést til ferða meindýra á víðavangi
hafa þau komist upp á yfirborðið í
húsagörðum.
við kosningar
V estmannaeyj um.
KOSTNAÐUR Vestmannaeyja-
bæjar vegna bæjarstjórnarkosn-
inganna í vor verður nær helm-
ingi meiri en gert var ráð fyrir.
Gert var ráð fyrir að kostnaður
yrði um hálf milljón en vegna
endurtalningar og kærumála
verður kostnaðurinn nær milljón.
Bæjarstjórn hefur borist reikn-
ingur kjörnefndar þeirrar er skipuð
var til að fjalla um kærumál And-
résar Sigmundssonar. Reikningur
kjörnefndarinnar hljóðar upp á 190
þúsund. Þá er gert ráð fyrir að laun
yfirkjörstjórnar í Eyjum, sem
ákveðin höfðu verið 75 þúsund,
verði mun hærri.
Lögum samkvæmt ber bæjar-
sjóður allan kostnað af bæjarstjórn-
arkosningum og verður því að taka
þennan aukakostnað á sig.
Grímur
Manila. Frá Karli Þorsteins fréttaritara Morgunblaðsins.
- í SMJÖRDEIGI MEÐ HINDBERJASULTU
JÓHANN Hjartarson á enn
inöguleika á að komast í hóp
keppenda á áskorendaeinvígjun-
um sem iieijast á næsta ári. Hann
vann norska stórmeistarann Sim-
en Agdestein í 12. umferð milli-
svæðamótsins og er í 13.-22. sæti
á mótinu með 7 vinninga þegar
einni umferð er ólokið. Ellefu
efstu skákmennirnir komast
áfram, og Jóhann þarf því mjög
hagstæð úrslit í síðustu umferð-
inni.
Margeir Pétursson gerði jafntefli
við Arencibia frá Kúbu í 12. umferð
og hefur 5 vinninga.
Vassiiíj Ivantsjúk er einn efstur
á mótinu fyrir síðustu umferð með
8 'A vinning. Hann vann landa sinn
Alexander Kalifman í 12. umferð.
Bóris Gelfand og indverski stór-
meistarinn Viswanathan Anand
komá næstir með 8 vinninga en
Anand vann Míkhaíl Gúrevítjs í
síðustu umferð. í 4.-12. sæti eru
Gúrevítsj, Leoníd Júdasín, Alexi
Dreev, Sergei Dolmatov og Jaan
Ehlvest, allir frá Sovétríkjunum,
Viktor Kortsjnoj frá Sviss, Nigel
Short frá Bretlandi, Guyla Sax frá
Ungveijalandi og Robert Húbner
frá Þýskalandi.
Síðasta umferð motsins verður
tefld í dag, laugardag.
Um 19 þúsund
miðar seldust
á Listahátíð
TÆPLEGA 19.000 aðgöngu-
miðar voru seldir á Lista-
hátíð í Reykjavík, sem lauk
um miðjan júní. Hátt í 200
listamenn frá 16 þjóðlöndum
komu til landsins í tilefni
hátíðarinnar, en íslenskir
þátttakendur skiptu hundr-
uðum.
í tilkynningunni segir að
framlög ríkisins hafi ekki orðið
ljós fyrr en í febrúar. Þessi
seinagangur hafi nær gengið
af hátíðinni dauðri. Ef vel eigi
að vera þurfi tveggja til
þriggja ára fyrirvara við undir-
búning.
Meginstefna við skipulag
hátíðarinnar var að bjóða upp
á sem mesta fjölbreytni. Þetta
tókst, að mati framkvæmda-
stjórnárinnar. Aðsókn var góð
að þeim viðburðum sem reynd-
ust hátíðinni dýrastir: Tónleik-
um Vínardrengjakórsins, Salif
Keita, Les Négresses Vertes
og Bob Dylan, auk leiksýninga
Kantors og Lilla Teatren. Upp-
gjör liggur þó ekki fyrir á þess-
arþ stundu.
í framkvæmdastjórn Lista-
hátíðar sátu Valgarður Egils-
son formaður, Kristinn Halls-
son, Sigurður Björnsson, Bera
Nordal og Árni Ibsen. Inga
Björk Sólnes var fram-
kvæmdastjóri og Egill Helga-
son kynningarstjóri.
Sigur Jóhanns H. o g
möguleikar í Manila