Morgunblaðið - 14.07.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.07.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990 23 Minning: Margrét Bjargsteins- dóttirfrá Geitavík Fædd 29. september 1926 Dáin 5. júlí 1990 Við sjáum niður í Njarðvík og förum að silast niður fjallið. Nota- legur eftirvæntingarstraumur fer um okkur, við erum að komast heim. Við ökum Njarðvíkurskrið- urnar og inn Borgarfjörð, þvílík afslöppun, þarna er Skriðuból, eig- um við að stansa, nei, við skulum heilsa upp á Margréti og frænda fyrst. „Komið þið sæl og velkomin heim.“ Breitt bros, þéttingsfast handtak og kossar. Þetta var topp- urinn, þá vorum við að endingu komin heim. Þótt við værum bara í sumarfríi þá fannst okkur við koma heim á Borgarfjörð. Við eig- um víst ekki eftir að heyra þessa kveðju fyrst Margrét er farin í ferð- ina sem við förum öll einhverntíma, nema ef til vill hljómar hún öðru hvoru í hugum okkar er minning- arnar sækja á. Ég minnist samtals okkar er Margrét lá á sjúkrahúsi hér í Reykjavík, við ræddurn um lífið, dauðann og hvað svo. í tilefni af því þá rifjuðum við upp part úr kvæði Þórbergs Þórðarsonar sem kom aftur upp í hugann er ég fregn- aði andlát Margrétar: Ef þú ferð á undan mér yfm' sælli veröld, taktu þá á á móti mér með þín sálar keröld. Sigurlaug Jökulsdóttir vinkona mín hefur kvatt þennan heim, að- eins 48 ára gömul. Sigurlaug var um árabil búin að beijast við þann ógnvænlega sjúk- dóm, krabbamein, sem fellir svo margan manninn langt um aldur fram. í mínum augum var Sigga, eins og hún var kölluð meðal vina, mjög vel gerð kona. Hún var gædd þeim hæfileika, að vera alltaf að gefa frá sér, án þess að ætlast til nokkurs á móti. Hún var vinur í raun, en ég fann alltaf best hvað hún Sigga var sannur vinur, þegar lífið lék við mig og fjölskyldu mína. Þá gladdist enginn meira en Sigga, samhliða því að vera sjálf að beij- ast við hart mótlæti. Slíkir eru sterkir og góðir persónuleikar, sem gott er að taka sér til fyrirmyndar. Sigga var hárgreiðslumeistari að mennt, en starfaði ekki við það á seinni árum. En á sínum tíma þótti hún mjög fær í sínu fagi. Allt, sem Sigga tók sér fyrir hendur, var gert með dugnaði og einstakri samvizkusemi.Eg ætla ekki að telja upp alla kosti Siggu Minningar- og afinælis- greinar Það eru eindregin tilmæli ritstjóra Morgunblaðsins til þeirra, sem rita minningar- og afmælisgreinar í blaðið, að reynt verði að forðast endur- tekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri greinar eru skrifaðar um sama ein- stakling. Vilji höfundur vitna í áður birt ljóð eða sálma verða ekki tekin meira en tvö erindi. Frumort ljóð eða kveðja í bundnu máli eru ekki birtar. Almennt verður ekki birtur lengri texti en sem svarar einni blaðsíðu eða fimm dálkum í blaðinu ásamt mynd um hvern einstakling. Ef ég fer á undan þér yfir í sælu straffið mun ég taka á móti þér. Manga gefur kaffið. Þetta varð að samkomulagi. Við reyndar hlógum að þessu þá, en mér er ekki hlátur í huga nú. Reyndar er gott til þess að vita að hún taki á móti mér þegar minn tími kemur og þá fæ ég ef til vill gömlu kveðjuna aftur. Alltaf virtist Margrét geta bjarg- að hlutunum við. Ef við þurftum á einhverskonar hjálp að halda, út- skýringar, eitthvað vantaði eða eitt- hvað var að. „Við skulum tala við Margréti," var viðkvæðið og ekki man ég eftir því að hafa komið að tómum kofunum hjá henni. Vanda- mál voru til þess að leysa þau og Margrét virtist oftast vita hvernig. Ég minnist þess þegar sonur minn, þá u.þ.b. 4ra ára, spurði hver ætti garðinn hjá húsinu .hennar frænku. Ég í fávisku minni spurði: „Hvaða frænku, vinur?“ Drengur- inn leit stórhneykslaður á móður sína og sagði snúðugt: „Nú, frænk- an mín.“ Þetta lýsir best hver hún var í augum barnanna minna. Þær eru margar minningarnar sem leyta á hugann núna. Það er yndislegt að eiga þær til þess að ylja sér við í framtíðinni. Ég vil með þessum orðum þakka Margréti fyrir, allar ánægjustund- irnar heima á Borgarfirði, fyrir allt hér, slíkt hefði ekki verið henni að skapi, en við sem þekktum hana bezt, vitum hvaða mann hún hafði að geyma. Sigga átti einn bróður, Helga Jökulsson, og býr hann með fjöl- skyldu sína á Húsavík. Siggu lifir 10 ára drengur hennar, Jökull Úlf- arsson. Ég held að hann muni allt- af eiga dýrmætar minningar um góða móður, meiri umhyggju mun vart vera hægt að sýna nokkru barni. Móðir lifir dóttur sína, Guðrún Sigfúsdóttir, sem staðið hefur sem sterkur stólpi við hlið Jökuls litla og dóttur sinnar í þessu mikla veik- indastríði. Guðrún_ hefur barist hetjulegri baráttu. Ég þakka Siggu fyrir allar góðu stundirnar. Oft var glatt á hjalla hjá okkur, og hennar góði húmor mun seint mér úr minni líða, og þrátt fyir hart sjúk- dómsstríð gat hún látið mann fara brosandi frá rúminu hennar. Jesús sagði, ég er upprisan og lífið, hver sem trúir á mig mun lifa, þótt hann deyji. Og svo sannarlega átti Sigga þessa trú. það sem hún var börnunum mínum og síðast en ekki síst fyrir samtölin og skilninginn sem hún sýndi mér. Það stendur í spámanninum að við grátum það sem var gleði okkar. Nú eru þær gengnar konurnar þijár sem drógu mig stei'kast til sín heima á Borgarfirði; Stína (,,amma“) í Vinamynni, Anna (lang- amma) á Bjargi og núna Margrét. Ég kveð þær allar með söknuði. Jarðarför Margrétar er í dag, laugardagínn 14. júlí, í heimabyggð hennar á Borgarfirði eystra. Elsku frændi (Daníel), Ásgrímur og Björn, þið kveðjið í dag elsku- lega eiginkonu og systur, ykkar er sorgin stærst, megi Guð og góðar vættir styrkja ykkur í sorg ykkar. Guðrún Margrét Þorbergsdóttir Elsku Jökull minn, Guðrún og Helgi. Ég og fjölskylda mín biðjum þess, að framtíðin eigi eftir að bera góða daga í skauti sér fyrir ykkur öll. Með okkar innilegustu samúðar- kveðju. Eg hef augu mín til fjailanna hvaðan kemur mér hjálp hjálp mín kemur frá Drottni skapara himins og jarðar. Ólöf Ásgeirsdóttir Þormar + Eiginkona mín, HELLA NETTKE JÓNSSON, lést í Borgarspítalanum að morgni hins 13. júlí. Bjarni Jónsson. _______________________________/___________ t Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR frá Neskaupstað, l Suðurgötu15, Keflavfk, lést í sjúkrahúsi Keflavíkur 1 2. júlí. Friðrik L. Karlsson, börn, tengdabörn og barnabörn. Sigurlaug Jökuls- dóttir - Kveðjuorð Unnur Jónsdóttir, Seyðisfírði - Minning Fædd 30. nóvember 1913 Dáin 4. júlí 1990 Unnur Jónsdóttir var fædd á Seyðisfirði, dóttir hjónanna Jóns Sveinssonar ú'tgerðarmanns og konu hans, Torfhildar Sigurðardótt- ur. Systkini Unnareru þijú, Bryndís og Sveinn bæði búsett í Reykjavík og Sigurður búsettur á Seyðisfirði. Á aðfangadag 1940 giftist Unnur eftirlifandi manni sínum, Ingimundi Hjálmarssyni bókhaldara og um skeið sýsluskrifara á Seyðisfirði. Keyptu þau fljótlega liúsið Austur- veg 9 á Seyðisfirði og bjuggu þar æ síðan. Þau hjónin eignuðust tvær dætur, Kolbrúnu og Guðrúnu, og eru þær báðar búsettar á Seyðis- firði. Unnur var einn vetur við nám í kvennaskóla í Reykjavík og var þessi vetur það eina sem hún bjó utan Seyðisfjarðar. Heimili þeirra Unnar og Ingi- mundar var með ágætum og sam- búð þeirra sérstaklega góð, þó þau væru í ýmsu ólík. Ingimundur var og et' léttui' húmoristi en Unnur mikil alvörukona. Bæði voru þau ákaflega gestrisin og var fátítt að koma svo til þeirra að ekki væru einhvetjir gestir fyrir. Ingimundur, vinur minn, sá vel um að afla fanga fyrir heimilið og hafði Unnur því út' nógu að moða og voru þær bæði ásátt um að láta gesti sína fá sem bestai' móttökur. Minnisstæð urðu mér og fleirum spilakvöldin heinta hjá Ingimundi. Hann hafði geysi- gaman af að spila lomber. — Var vanalega á veturna spilað á laugat'- dagskvöldum og fram á nótt, og var þá oft glatl á hjalla. Ekki taldi Unnur eftir sér að vaka með veit- ingar á kvöldin, þó sjálf snerti hún aldrei spil. Unnur Jónsdóttir blandaði sér lítið í félagslíf. Hennar líf var fyrst og fremst að vera góð eiginkona, húsmóðir og móðir. Hún lifði fyrir mann sinn, börn og barnabörn og að gera heimili sitt sem fegurstan griðastað fyrir þau. Hún vildi öllum vel og get'ði þar engan mannamun. Laurentius Kálfsson biskup á Hólum orti lofkvæði fagurt um Hallberu abbadís í Reynistaða- klaustri og las fyrir erkibiskup í Niðarósi. Þegar hann lauk lestrin-, um spurði erkibiskup: „Er hún góð kona, er þú lofat' hana svo mjög?“ „Það halda menn satt á íslandi," sagði Hólabiskup. Ég held að segja megi um Unni Jónsdóttur hið sama, að allir þeir sem hana þekktu hafi haldið það satt að hún væri „góð kona“. Og hvaða vitnisburð er hægt að fá betri. Ég og fjölskylda mín sendum Ingimundi eftirlifandi rnanni henn- ar, dætrum þeirra og barnabörnum, svo og systkinum Unnar og öðrunt vandamönnum innilegar samúðar- kveðjur og biðjum þeimj blessunar Guðs. Knútur Þprsteinsson + Móðir okkar, ELÍSABET BJARNVEIG GUÐBJÖRNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum, í dag, laugar- daginn 14. júlí kl. 14.00. Guðmundur H. Þórarinsson, Ásta G. Þórarinsdóttir, Óskar Þórarinsson, Þóranna Þórarinsdóttir og fjölskyidur. Elskulegurfaðirokkar, tengdafaðirog afi, GUNNAR HAFSTEINN ÞÓRÐARSON, HQy -,w . Hafnarfirði, j Æk verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar- iBwiI kirkju miðvikudaginn 18. júlí kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag íslands. 'j gj Jón Viðar Gunnarsson, Sigríður Elin Hauksdóttir, Linda Björk Gunnarsdóttir, Edvard Guðmundsson, Margrét Anna Johannessen, Stig Johannessen, Svandís Erla Gunnarsdóttir, Erik Gjöveraa, Dagbjört Sigríður Gunnarsdóttir, Hafsteinn Ingi Gunnarsson og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BJARNHEIÐARS. DANÍELSDÓTTUR frá Auðsholti, Grindavík, Hamrahlíð 17, Reykjavík, Einar Indriðason, Daníel Einarsson, Sigríður Jóhannsdóttir, Birna Bjarnadóttir, Daníel Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.