Morgunblaðið - 14.07.1990, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 14.07.1990, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990 13 föstudaginn 12. júní 1925 kl. 12 á miðnætti! Þetta var á þeim tímum, er kenn- ingar Sigmundar Preud, voru vegn- ar og metnar hvar sem tveir og fleiri komu saman, og engan skyldi því undra, þótt mikið beri á ást- þrungnu myndefni í verkum súr- realistanna, sem fyrst og fremst voru að kanna raunveruleikann allt um kring, — svo og innri hvatir og duldir mannssálarinnar og endur- géra í mynd og máli. Og eins og orðabókin skilgreinir, þá er súrrealisti hjástíll, nútíma- stefna í listum og bókmenntum sem ber vott um áhrif frá Freud; sækir fyrirmyndir í hið dulvitaða sálarlíf, t.d. drauma, og tjáir það með sér- kennilegum formum sem ekki eru í rökréttu samhengi. En þetta segir ekki allt, því að það er svo margt fleira sem kemur til og þá helst tímarnir sem fæddu stefnuna af sér, lífið sjálft. Súrrealistarnir voru og fjöllista- menn að því leyti, að þeir unnu flest- ir í mörgum listgreinum eða rann- sökuðu möguleika forma og lita frá öllum sjónarhornum líkt og André Masson, sem virkar á köflum frekar ósamstæður, sem stafar þó einung- is af hinni ríku þörf hans til upp- stokkunar myndrænna gilda. Svið listar hans var mjög víðfeðmt svo sem fram kemur greinilega á sýningunni í Listasafn- inu, en þar eru ekki síður mjög mjúkar og fíngerðar myndheildir sem grófar og harðar, auk þess að kenna má áhrifa frá impressjónist- unum í stöku mynd. Hvað sem öðru líður þá er það einstætt tækifæri sem Listasafn íslands býður uppá fram á sunnu- dag að kynnast einum fremsta súr- realista aldarinnar og eru þessi ósamstæðu brot sett saman til að minna á það. ■ REYKJA VÍKURDEILD RKÍ heldur námskeið í skyndihjálp fyrir almenning. Það hefst miðvikudag- inn 18. júlí klukkan 20 og stendur í fimm kvöld. Kvöldin sem kennt verður eru 18., 24., 25., 30. júlí og 1. ágúst. Námskeiðið verðut' haldið íFákafeni 11, annarri hæð. Öllum 15 ára og eldri er heimil þátttaka. Nánari upplýsingar og skráning þátttakenda er á skrifstofutíma í síma 688188. ■ TÍMARITIÐ 2000 kom út í gær, föstudag. Tímaritið 2000 er 132 blaðsíður og er prentað í stærð- inni 49x29 sm. Aðstandendur tíma- ritsins eru Ari Gísli Bragason, Lars Emil Árnason, Sigurjón Ragnar og Þorsteinn Siglaugs- son. Dreifing tímaritsins hefst á mánudag. hreinsuð, þannig að einstakir litflet- ir njóta sín betur en ella, eins og | t.d. íverkinu „Við Selsvör" (nr. 16). Það er erfitt að benda á einstök verk á sýningunni öðrum fremur sem meistarastykki Snorra Arin- bjarnar. Til þess er úrvalið í heild of gott. Hins vegar verður ljóst, að ýmsir meðal yngri málara hafa í raun verið að glíma við svipaða hluti undanfarin ár og Snorri á sínum tíma. Hér er einkum átt við hina hörðu og djörfu litafleti, sem er að finna í mörgum mynda hans frá síðasta áratugnum. I þessu sam- bandi má benda á litina í verkum eins og „Viðeyjarsund" (nr. 29), „í sjávarplássi“ (nr. 25) og jafnvel „Gula gluggann“ (nr. 23). Þessi áhrifamikla litanotkun kom fyrst fram í verkinu „Upp þrepin“ (nr. 14) frá 1943, sem einnig hefur ver- ið nefnt „Stigamenn", þó hefðbund- in merking þess orðs sé ef til vill óheppileg. Þó að sýningin standi lengi enn (til 26: ágúst), er ástæða til að hvetja áhugafólk um myndlist til að líta sem fyrst inn í Norræna húsið — því þetta er sýning sem er alveg óhætt að sjá oftar en einu sinni. -i ------------------------- Flautuleikur _________Tónlist_____________ JónÁsgeirsson Áshildur Haraldsdóttir, flautu- leikari, og Love Derwinger, píanó- leikari, héldu tónleika í Hafnarborg, sl. miðvikudag. Á efnisskránni voru verk eftir Faure, Roussel, Dutilleux, Doppler, Skrjabín, Sancan og Poul- enc. Áshildur er góður flautuleikari, bæði hvað varðar tækni og túlkun. Leikur hennar í Fantasie eftir Faure og „Cantelenunni" úr sónötu eftir Poulenc var mjög fallega mótaður. Aðalverkin á tónleikunum, Sónatína eftir Sancan, Sónata eftir Poulenc og „Flautuleikararnir“ eftir Rouss- el, voru glæsilega flutt. í verki eftir pólsk-ungverska tón- skáldið Albert Franz Doppler, sem er samið fyrir tvær flautur, lék Kristín Guðmundsdóttir með Ás- hildi. Kristín stundar framhaldsnám í Frakklandi og var ánægjulegt að heyra þær stöllur leika saman, svo ólíkur sem leikstíll þeirra er. Píanóleikarinn Love Derwinger lék „Eldljóð" eftir Skijabín, sem var þokkalega flutt en þrátt fyrir vel útfærðan undirleik, vantaði nokkuð á mótun blæbrigða og á stundum var leikur hans of sterkur. Áshildur hefur mikið að gefa í leik sínum og hún hefur svo sannar- lega gott vald á franskri flaututón- list. Ekki þarf mikinn spámann til að sjá að Áshildur er efni í góðan listamann og nú er það samspil hennar við tímann, stafnbúa henn- ar, búinn til iangrar ferðar, sem skiptir mestu máli. Aðeins einu sinni er blásið til ferðar og aldrei aftur snúið. Vel má heyra að Áshild- Áshildur Haraldsdóttir ur hefur svarað kalli stafnbúans en fram undan er löng og ströng ferð. í Kaupmannahöfn • FÆST I BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖOINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.