Morgunblaðið - 14.07.1990, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JULI 1990
L>
© 1990 Umversal Pt ess Syndicale
[/allO<rm£t €/" /9."
Ast er...
c.-'í
. . . að lesa börnin í svefn.
TM Reg. U.S. P>t Ott —«ll rights reserved
° 1990 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgunkaffínu
-51 rer*
Ættum við ekki heldur að
leita aðstoðar lögreglunnar?
Þú nefnir mig á nafn í dag-
bókinni, ekki rétt?
HOGNI HREKKVISI
t»essir hringdu
Hvað er innan verksviðs
lögreglunnar?
Margrét hringdi:
„I tilefni af myndinni í Morgun-
blaðinu á bls. 5 fimmtudaginn 12.
júlí sl. þar sem fjórir lögreglu-
menn eru að fylgja önd með unga
þá langar mig til að segja frá því
þegar var keyrt yfir kött í göt-
unni þar sem ég bý. Þetta var á
hádegi sunnudagsins 17. júní,
kötturinn var kettlingafullur og
voru kettlingarnir út um allt á
götunni og innyflin dreifðust lang-
ar leiðir. Eg hringdi í lögregluna
til að biðja um aðstoð við að
hreinsa köttinn og kettlingana
upp en svarið sem ég fékk var:
til hvers heldur þú áð við séum,
áttu ekki skóflu og poka. Þeir
voru ófáanlegir til að hreinsa
þetta upp en gáfu reyndar upp
símanúmer hreinsunardeildar, en
hún starfar ekki um helgar. I
götunni býr mest eldra fólk og
var enginn sem treysti sér til að
moka þessu upp af götunni. Þar
sem þetta var hátíðisdagur voru
börn á ferli og var þetta hálf
óhugnanlegt á að líta. En þetta
bjargaðist þegar ungir strákar
komu okkur til bjargar og hrein-
suðu þetta upp. A myndinni sem
Morgunblaðið birti eru hvorki
meira né minna en fjórir lögreglu-
menn að vernda fuglinn en svo
gátu þeir ekki gert þetta viðvik."
Köttur í óskilum
Svört og hvít læða er í óskilum
í Sketjafirði. Hún er með rauða
ól sem á eru bláir steinar og
bjalla, en ekki merkt. Eigandi
getur hringt í síma 13419.
Vantar skilti með
opnunartíma
Kona hringdi:
„Mig langar til að benda á að
það vantar stórt skilti fyrir fram-
an Árbæjarsafnið þar sem á
stendur opnunartími safnsins. Þar
er skilti sem á stendur Árbæjar-
safn og er ör sem vísar veginn,
en enginn opnunartími er uppgef-
inn. Erlendis sér maður ávallt stór
skilti fyrir framan öll söfn þar sem
tilgreindur er opnunartími. Væri
ekki hægt að ráða bót á þessu?“
Kettlingar
Kettlingar fást gefíns. Kassa-
vanir. Upplýsingar í síma 10243.
Hvar fást skordýrafælur?
Piltur hringdi:
„í einhveiju blaði sá ég að
hægt væri að fá skordýrafælur
sem hægt er að stinga í sam-
band. Það er eitthvað síðan ég sá
þetta og man því ekki hvar. Getur
ekki einhver sagt mér hvar slík
tæki fást?“
Tapaði seðlaveski
Ljósbrúnt seðlaveski tapaðist á
Laugaveginum sl. miðvikudag.
Engin skilríki eru í veskinu en í
því stendur María Krista. Einnig
tapaðist rauður svissneskur vasa-
hnífur í Hafnarfirði fyrir nokkru.
Finnandi vinsamlega hringi í síma
51771.
Týndur köttur
Grár högni fremur smávaxinn
hvarf úr sumarhúsi við Apavatn
4. júlí sl. Kötturinn sem á heima
á Seltjarnarnesi er ómerktur. Sá
sem veit um köttinn er beðinn að
hringja í síma 91-612197.
Gullhálsmen fannst
Gullhálsmen fannst í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans á glímu-
mótinu sem var .haldið fyrir um
hálfum mánuði. Á hálsmeninu er
áletrunin IJS 20.7 1973. Eigandi
getur hringt í síma 77173.
Tapaði gleraugum
Svört dömusjóngleraugu með
rauðu í spönginni töpuðust á Hót-
el Islandi laugardaginn 9. júní sl.
Finnandi vinsamlega hringi í síma
652363 eða 641257.
Tapaði leikfimitösku
Ungur piltur tapaði drapplitaðri
leikfimitösku, líklega í strætóskýl-
inu við Laugardalslaugina. í tösk-
unni var sunddót, nestisbox o.fl.
Finnandi hringi í síma 12651.
Tapaði gleraugum
Blá Mondí lesgleraugu töpuðust
í lok maí. Finnandi vinsamlega
hringi í Jóhönnu í síma 83106.
Víkveiji skrífar
,0.k.G6 Ee A FÖSTV...OG Hx/AOMB&pAO?.'"
Víkveiji hefur gaman af að
skoða tölur og í síðustu viku
gluggaði hann í upplýsingar frá
Þjóðhagsstofnun um einkaneyslu.
Fleira er forvitnilegt varðandi þær
stærðir. Það getur t.d. ekki_ heyrt
til framfara að neysla okkar íslend-
inga eykst stöðugt á meðan fjár-
munamyndun minnkar. Þetta á
bæði við um einkaneyslu og sam-
neyslu. Þannig hefur einkaneysla
aukist úr 57,1% árið 1980 í 63,3%
árið 1987 þegar hún nær hámarki.
Á sama tíma dróst fjárfesting sam-
an; úr 25,3% í 19,7% hvort tveggja
af landsframleiðslu.
Það er fróðlegt að sjá hvaða
upphæðir er um að ræða þeg-
ar einkaneyslan er annars vegar.
Samkvæmt tölum Þjóðhagsstofn-
unar er einkaneyslan árið 1988
158.200 milljónir króna. Það sam-
svarar því að hver íslendingur í
landinu, börn og fullorðnir, eyði um
53.500 krónum á mánuði og eru
þá opinber gjöld ekki talin með.
Fjögurra manna fjölskylda ætti þá
að hafa 214 þúsund krónur til
neyslu á mánuði að meðaltali. Það
er nokkuð há tala að mati Víkveija
og bendir til þess að sumir hafi vel
yfir meðailagi, því örugglega veit
Víkverji um marga sem hafa minni
peninga á milli handanna en hér
um ræðir. Það má vera að Víkveija
sjáist yfir eitthvað í þessum útreikn-
ingi, en þá væri gaman ef einhver
hagfróður maður gæti ieiðrétt það.
x x
Hlutfall matar af einkaneyslu
hefur aldrei verið eins lágt
og núna, hvað svo sem okkur finnst,
og er það um 20% af heildarneysl-
unni. Hin fjögurra manna viðmiðun-
arfjölskylda Víkverja eyðir sam-
kvæmt því 42.800 krónum á mán-
uði í mat og drykk.
Nú er sá árstími þegar fólk sem
býr svo vel að eiga garð ver
miklum hluta tómstunda sinna þar
við ræktunarstörf. Áhugi á garð-
rækt hefur aukist jafnt og þétt eft-
ir því sem fólk sér hve miklum
árangri er hægt að ná hér á iandi.
Sífellt fleiri trjá- og blómategundir
ryðja sér til rúms, sem áður voru
ekki taldar eiga lífsmöguleika svona
langt norður á hjara veraldar. Þetta
eykur ræktunarfólki bjartsýni og
framkvæmdagleði. Garðurinn er af
þessum ástæðum samverustaður
fjölskyldunnai' í auknum mæli.
Sjónvarpið hefur nú í sumar sýnt
þætti sem Hafsteinn Hafliðason
hefur umsjón með og heita Grænir
fingur. Þættir þessir eru mjög
gagnlegir og skemmtilega gerðir
og veita þeim stuðning sem eru að
stíga sín fyrstu spor í garðrækt-
inni. Víkveiji var fyrir skömmu á
ferð í gróðrarstöð í þeim erinda-
gjörðum að kaupa plöntur í garð-
inn, en rak sig á það fljótt að slík
ferð þarfnast frekari undirbúnings.
Skipulagning garðsins krefst tíma
og vandvirkni. Það verður ekki fal-
legur garður þar sem hinum og
þessum plöntum og tijám er holað
niður hér og þar þar sem pláss sýn-
ist vera. Einfaldur og vel skipulagð-
ur garður er yfirieitt fallegri en
ofhlaðinn og ruglingslegur.
Víkverja var ráðlagt að byija á því
að ganga um í Grasgarði Reykjavík-
ur í Laugardal til að sjá tré og bióm
í fullum þroska. Þannig væri best
að velja plöntur í garðinn og fara
síðan og kaupa þær á gróðrarstöð.
Þá væru frekar líkindi til þess að
stærðarhlutföll yrðu seinna meir í
lagi. Varðandi skipulag getur
reynst nauðsynlegt að leita til fag-
fólks, en það getur líka verið
skemmtilegt að glíma sjálfur við
verkefnið. Fjöldinn allur af bókum,
íslenskum og útlendum, er til um
skipulag garða þar sem hægt er
að fá hugmyndir.