Alþýðublaðið - 14.01.1959, Qupperneq 1
rgjöl 10 visilðlusliga
niðurfærsla f 175 itia!
40. árg. — Miðvikudagur 14. jan. 1959 — 10. +bl.
í marz
Úrslít í prófkjöri Preifafélagiim ökunn
ÁKVEÐIÐ hefur verið að*
biskupakjöi’i verði lokið 1. apr
íl n. k. Er íalið, að kosningin
muni standa í kringum 3 vikur,
svo að kjörgögn verða væntan
lega send út snemma marzmán
aðar.
KjörStjórn hefur þegar verið
skipuð og eiga í henni sæti þess
ir m,enn: Gústaf Jónasson ráðu
neytisistjóri, sr. Sveinn Víiking
ur biskupsritari og sr. Jón Þor
varðsson. Sendir kjörstjórnin
öllum prestvígðum mönnum1
kjörgögn.
Prestafélagið hafði að venju
prófkjör um biskupsefni en
ekki hefur blaðið fengið fregn
ir um úrslit þess..
Alliherjaralkvæða-
greiðsia hjá Sjó-
ntannafélagi
Hafnarfjarðar
FULLTRÚARÁÐ Sjómanna-
félags íHafnarf jarðar kom
saman sl. mánudagskvöld. Var
ákveðið að láta fara fram alls
herjaratkvæðagreiðslu báta-
sjómanna í félaginu til þess að
taka afstöðu til þess, hvort
boða ætti verkfall vegna samn-
ingana, en þeir voru felldir í
Sjómannafélagi Hafnarfjarðar.
AtkvæðagJJtiðslan fer fram
n.k. laugardag og sunnudag, ef
ekkert óvænt kemur fyrir.
Væntir fulltrúaráðið þess, að
bátasjómenn taki allir þátt í at
kvæðagreiðslunni.
Sukielainen mynd-
arminnihlufa-
ifjórn í Finnlandi
UHRO KEKKONEN forseti
Finnlands fól í dag dr, Suksel-
ainen formanni Bændaf lokks
ins að mynda minnihlutastjórn
í Finnlandi. Sukselainen brást
skjótt við og birti ráðherralista
sinn í kvöld. í stjórninni eiga
Framhald á 3. siðu.
Emil og Gylfi ræddu efnahags- cg
,,‘En í fyrra sagði hann
allt annað”.
Ingólfur Arnarson seldi
afla sinn í Grimsby
Um 160 leilir fyrir 11.600 pund
TOGARINN Ingólfur Arnar-
son, eign Bæjarútgerðar Reykja
víkur, kom til Grimsby í Bret-
landi í fyrrakvöld með um 160
lestir af ísfiski. Byrjaði hann
að landa aflanum! á miðnætti í
fyrrinótt og var áflinn, 2892 kit,
seldur í gærmorgun fyrir 11.
593 sterlingspund.
Er þetta í fyrsta sinn að ís-
lenzkur togari selur afla í Bret
landi síðan útfærsla fiskveiði
landhelginnar kom til fram
kvæmda. Síðast landaði íslenzk
ur togari í brezkri höfn í fyrra
r r* ■>
vetur. Er þetta afar góð sala,
sem jafngildir 135 þús. mörk
um. Er verðið miklu betra á
Bretlandsmar'kaðnum en í
Þýzkaiandi, þar sem aflinn hér
á heimaiTiiðum er mestmegnis
þorskur, það litla sem fiskast,
en Þjóð'verjar eru ekki sérlega
hrifnir af honum. Vilja þeir
heldur ufsa o« karfa. —- Togar
inn ís'borg selur afla sinn í V.
Þýzkalandí í dag.
FUNDUR SKIPSTJÓRA,
Skipstjórar og stýrimenn í
Framhald á 2. síðu.
SÚ LAUSN efnahagsmálanna, sem ríkisstiórnin
er að undirbúa, mun verða heilbrigð og sterk, og mun
gefa landsfólkinu mest í aðra hönd, engin verðmæti
skulu brennd á verðbólgubálinu. sagði Emil Jónsson
forsætisráðherra á geysifjölmennum fundi Alþýðu-
flokksfélags Reykjavíkur í Iðnó í gærkvöldi. Þjóðin
verður að gera upp við sig, hvort hún vill að þessi leið
verði farin, sagði forsætisráherra.
Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamálaráðherra fluttj einnig fram
sögiiræðu á fundinum og ræddi þær leiðir, sem nú blasa við í
efnahagsmálunum. Gerði hann ítarlega grein fyrir öllum þeim
tiiiögum, sem stjórnmálaflokkarnir hafa borið fram uwdan-
forna mánuði og lýsti kostum og göllum þeirra. Staðnæmdist
Gylfi helzt við bá hugmynd, að auk verulegrar niðurgreiðslu
á lífsnauðsynjum gefi launþegaj. og bændur eftir um tíu vísi-
tölustig, þannig að kaupgjaldsvísitalan verði færð alla leið nið-
ur í 175 stig. Gerði hann ráð fyrir, að afla mætti þess fjár, séín
þvrfti til slíkra aðgerða með raunhæfri áætlun á tekjum rík-
isins að óbreyttum sköttum og tollum, og allmiklum niður-
skurði á útgjöldum fjárlaga.
ALÞÝÐUFLOKKURINN ALDREI SAMSTILLTARI.
Á fundinum í Iðnó voru á fjórða hundrað manns. Setti
Eggert Þorsteinsson, formaður Alþýðuflokksins, fundinn, sem
hann kvað vei’a byrjun á kosningabaráttu flokksins í Reykja-
vík á þessu ári tvennra kosninga. Síðan voru teknir 18 nýir
féiagsmenn í Alþýðuflokksfélagið,
Emil Jónsson forsætisráðherra sagði meðal annars í ræðu
sinni, að Alþýðuflokkurinn hefði teflt djarft með myndun nú-
verandi ríkisstjóxnar, en hann kvaðst ekki í annan tíma bafa
orðið var við slíkan einhug hiá Alþýðuflokksfólki, sem í þessu
máli.
KAUPLÆKKUN FYRIR
RÁÐHERRASTÓLA.
Ernil Jónsson rakti allítar-
lega aðdraganda stjórnarmynd-
unarinnar. Kom fram hjá hon-
um, að þegar það mál var á
lokastigi, lcomu kommúnistar
óg kváðust fúsir til að ganga
inn á eftirgjöf vísitölustiga, efi
þeir aðeins fengju að sitja á-
fram í ríkisstjórn. Þetta var
einmitt sama atriði, sem þeic
Framhald á 2. síðu.
Emil sagði, að engir samn-
ingar hefðu verið gerðir milli
Alþýðuflokksins og Sjálfstæð-
isflokksins nema það, að sá
síðarnefndi lofar að afstýra
vantrausti á stjórnina, en
stjórnin loíar að beita sér fyr-
ir kjördæmabreytingu og kosn
ingum á þessu ári. Óformlegra
samstarf milli flokka getur
varla hugsast, sagði Emil.
Emil sagði um samstarf Al-
þýðuflokksins og Framsóknar-
flokksins, að Framsóknarmenn
hefðu verið farnir að ganga
fullmikið út frá því, að Alþýðu-
flokkurinn mundi ekki koma
fram sjálfstætt. Hins vegar
hefði bandalag flokkanna ver-
ið gert fyrir kosningarnar og
stjórn að þeirn loknum ef meiri
hluti fengizt, sem ekki varð.
Framsóknarmenn kvað Emil
hafa fengið stuðning sinn við
Alþýðúflokkinn í kosningun-
um borgaðan svo, að ekki þyrfti
um að kvarta.
HMHHMHHHtWWHMmUW
ÞEIR Foster Dulles utan
ríkisráðherra Bandaríkjanna
og Neil McEIroy landvarna
ráðhei’ra eru hér á m’yndinni
ásamt W. Randolph Burgess.
Myndin var tekin á NATO
fundinum í vetur í París. —
Fundurinn áltvað að sýna
festu gagnvart Sovétríkjun
um í Berlínarvandamálinu,
samtímis því sem látin var í
ljós samkomulagsvilji.
WMWMMWWWWWWMWW
Spánn fær lán ;
i Bandaríkjunum
Madrid, 13 jan, (Reuter).
BANDARÍKJAMENN og
Spánverjar undirskrifuðu í dag
lánssamning þessara þjóða. —-
Samkvæmt lionum veitá Banda
ríkjamenn Spánverjum tæplega
100 míilljón dollara til kaupa á
landbúnaðarvörum frá Banda
ríkjunum o£ mega Spánverjar
greiða það í spænskum gjald
eyri.
Spán'verjar kaupa jurtaolíu,
bómull, tóbak, bygg, kjúklinga,
og mjólkuraifurðir frá Banda
ríkjunum,.
EfnalhagSaðstoð Bandaríkj
anna við Spán nemur nú rúm
lega einum billjarð dollara. Er
þá ekiki talin með hernaðarað
stoð, sem nemur a. m. k. 40Ó
milljón dollurum og kostnaður
við 'byggingu herbækistöðva
Bandaríkjanna á Spáni nemur
350 milljón dollurum.