Morgunblaðið - 24.07.1990, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR ÞREÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD
Vals-
menn
tryggðu
stöðu
sínaá
toppn
um
VALSMENN tryggðu stöðu
sínaátoppi 1. deildar með 0:1
sigri á KA á Akureyrarvelli á
sunnudaginn. Leikurinn var i
heild frekar tilþrifalítill, en sig-
ur Vals var samt öruggur. „Við
erum að sjálfsögðu ánægðir
með stigin þrjú,“ sagði
Þorgrímur Þráinsson, fyrirliði
Vals, við Morgunblaðið. „Við
unnum þennan leik með því að
spila af skynsemi og þetta set-
ur vissa pressu á KR-inga. Hins
vegar vona ég að KA fari að
rífa sig upp úr þessu, því það
býr mun meira í liðinu en stað-
an segirtil um.“
Valsmenn sóttu undan töluverðri
golu í fyrri hálfleík, án þess
að skapa sér færi. Jón Grétar Jóns-
son var hins vegar tvisvar nálægt
því að stinga sér inn
Anton fyrir vörn Vals í
Benjamínsson skyndisóknum KA-
skrifar manna. Á 41. mín.
dró til tjðinda. Þá
kom há sending inn í vítateig KA-
manna. Snævar Hreinsson stökk
upp og skallaði yfir Hauk Bragason
í markinu, en í stöngina. Þaðan
hrökk boltinn út í Steingrím Birgis-
son og af honum í netið.
Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks
fengu Valsmenn tvö gullin tækifæri
til að bæta við mörkum, en færin
fóru forgörðum.
í seinni hálfleik sóttu KA-menn
aðeins í sig veðrið án þess þó að
ógna Valsmarkinu verulega. Allur
sóknarleikur liðsins virtist frekar
ómarkviss og skapaðist meiri hætta
við KA-markið í skyndisóknum
Valsmanna. Gestirnir léku af skyn-
semi, héldu boltanum vel og héldu
fengnum hlut.
KA-menn náðu ekki að fylgja
eftir góðum sigri gegn FH-ingum
og verða að taka sig á í næsta leik,
ef ekki á illa að fara. Valsliðið lék
heldur ekkert sérlega vel, en upp-
skar þrjú stig, sem telja.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hörður Magnússon, FH, hefur betur í baráttu við júgóslavneska Víkinginn Janni Zilnic. Hörður gerði mark FH í
leiknum.
Fyrsta jafntefli FH
FH gerði fyrsta jafntefli sitt á
þessu sumri þegar þeir fengu
Víkinga íheimsókn f Kapla-
krikann. Hvort lið skoraði eitt
mark og verður það að teljast
sanngjörn úrslit.
Það var fátt merkilegt sem gerð-
ist í fyrri hálfleik og er hann
einn. sá daufasti sem sést þefur í
sumar. Veðrið bauð reyndar ekki
upp á skemmtilegan
leik, hávaða rok og
rigning, og stóð
vindurinn þvert á
völlinn.
Hvort lið fékk eitt marktækifæri
Skúti Unnar
Sveinsson
skrifar
í fyrri hálfleik. Fyrst skutu heima-
menn framhjá í þokkalegu færi og
síðan áttu Víkingar skot í stöng
eftir laglega sókn.
Síðari hálfleikur var heldur skárri
en sá fyrri. Víkingar urðu fyrri til
að skora og var Trausti Ómarsson
þar að verki. Hann tók aukaspyrnu
talsvert fyrir utan teig, sendi ban-
anaskot í átt að stönginni fjær.
Halldór markvörður virtist öruggur
um að varnarmennirnir næðu að
spyrna frá markinu, en boltinrí rúll-
aði framhjá mörgum Hafnfirðing-
um og í markið. Klaufalegt hjá
FH-ingum.
Stundarfjórðungi fyrir leikslok
jöfnuðu heimamenn og var það ekki
síður klaufalegt mark. Leifur Garð-
arsson gaf stungusendignu ætlaða
Herði Magnússyni. Svo virtist sem
Júgóslavinn Janni Zilnic hefði
knöttinn en hann hitti hann ekki
og markahrókurinn Hörður not-
færði sér það, lék á Guðmund mark-
vörð og skoraði örugglega.
Það voru ekki margir sem léku
vel í þessum leik. Þó var það mesta
furða hvað leikmönnum gekk vel
að hemja knöttinn í rokinu. Hjá FH
átti Andri Marteinsson ágæta
spretti og Janni Zilnic var traustur
í vörn Víknga þrátt fyrir mistökin
sem kostuðu mark.
KNATTSPYRNA / LANDSLEIKUR U-18
„Ágæt æfing“
- sagði Hörður Helgason, þjálfari,
eftir leikina við Grænlendinga
Isienska „millibilsliðið" — strákar
sem eru of gamlir til að vera í
18 ára landsliðinu, en ekki komnir
í U-21 liðið — lék tvo leiki við jafn-
aldra sína frá Grænlandi á Val-
bjarnarvelli um helgina. ísland vann
fyrri leikinn 4:0 (0:0), en þann
seinni 9:1 (8:0).
„það er mikill munur á þessum
Iiðum,“ sagði Hörður Helgason,
þjálfari íslenska liðsins. „Hins vegar
spiluðu strákarnir vel, flest mörkin
komu eftir gott samspil, en mót-
staðan var lítil. Samt var þetta
ágæt æfing og nú er bara að finna
fleiri verkefni."
Hilmar Erlendsson, FH (2), Guð-
mundur Gíslason, Fram (2), Pétur
Markússon^ Fram, Bjarki Gunn-
laugsson, ÍA, Ásgeir Baldursson,
UBK, Stefán þórðarson, ÍA, og
Nökkvi Sveinsson, Fram, skoruðu
fyrir ísland í seinni leiknum, en
Tomas Janusen fyrir Grænland.
Morgunblaðið/Einar Falur
Bjarki Gunnlaugsson að brýst í gegn og skömmu síðar lá boltinn í netinu.
Fram
komið
ítopp-
bar-
áttuna
áný
Staða ÍAversnarenn
MEÐ sigri sínum á Skaga-
mönnum blanda Framarar sér
að nýju ítoppbaráttuna, en að
sama skapi versnaði staða
Skagamanna enn íbotnbarát-
tunni og er staða þeirra nú
orðin alvarleg á botninum. Að-
stæðurtil knattspyrnuiðkunar
á Akranesi á sunnudag voru
afleitar, rok og rigning lengst
af. Akurnesingar léku á móti
rokinu í fyrri hálfieik og léku
þá betur, en Framarar voru
með vindinn í fangið eftir hlé
og höfðu þá undirtökin.
Skagamenn byþuðu leikinn bet-
ur og börðust vel án þess þó
að skapa sér veruleg tækifæri. En
Framarar fengu samt fyrsta mark-
mHI tækifærið, á 20.
Sigþór mín., þegar Guð-
Eiriksson mundur Steinssson
skrifar skaut framhjá við
nærstöng eftir góða
fyrirgjöf Baldurs Bjarnasonar. Á
38. mínútu einlék Haraldur Ingólfs-
son laglega inn í vítateig Framara
og rétt áður en Stefán Viðarsson
náði til knattarins tókst Kristni R.
Jónssyni að bjarga við marklínuna
á síðustu stundu. Síðasta færi hálf-
leiksins fengu Framarar. Þremur
mínútum fyrir leikhlé átti Baldur
fallegt skot, sem fór rétt framhjá
fjærstöng.
Skagamenn hugsuðu gott til
glóðarinnar í seinni hálfleik með
vindinn í bakið eftir að hafa leikið
vel í fyrri hálfleik, en vonirnar
slokknuðu fljótt. Þegar aðeins fjór-
ar mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik fékk Guðmundur Steinsson
góða sendingu inn fyir vörn Skag-
amnnna og er hann hugðist leika á
markvörðinn brá Gísli Sigurðsson á
það ráð að felia hann og réttilega
dæmd vítaspyrna. Ur henni skoraði
Pétur Ormslev af öryggi. Á 55.
rnínútu gulltryggðu Framarar síðan
sigurinn með glæsimarki Péturs
Arnþórssonar. Eftir mikinn barning
í vítateig Skagamanna missti
heimamaður klaufalega af boltan-
um, sem barst út fyrir vítateig. Þar
kom Pétur á fullri ferð og hamraði
í netið, algjörlega óverjandi.
Skagamenn komust næst því að
skora þremur mínútum síðar, þegar
Karl Þórðarson átti lúmskt skot,
sem datt ofan á þverslá Framara
og aftur fyrir. Eftir þetta hugsuðu
Framarar um að halda fengnum
hlut og vörðust. Skagamenn sóttu
meira, en Framarar náðu inn á
milli hættulegum skyndisóknum.
Síðustu marktækifæri leiksins
komu á 78. mínútu. Þá átti Jón
Sveinsson skot af vítapunkti fram-
hjá fjærstöng eftir mikinn einleik
Steinar Guðgeirssonar. Mínútu
síðar átti Alexander Högnason gott
skot utan teigs, en Birkir var vel á
verði.
■ Úrslit/B6
■ Staðan/B6