Morgunblaðið - 31.07.1990, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 1990
HANDBOLTI / FRIÐARLEIKARNIR
Sovétmenn
sigruðu efftir
framlengingu
SOVÉTMENIM unnu gullverð-
launin íhandknattleikskepni
Friðarleikanna, sem lauk f Se-
attle aðfararnótt laugardags.
Þeir sigruðu Júgóslava í úrslita-
leik, 29:27, eftirframlengingu.
Staðan í hálfleik var 14:11 fyrir
Sovétríkin og 25:25 eftir venjuleg-
an leiktíma. Sovétmenn voru svo
sterkari í framlengingunni. Valeri
VIKINGARNIR Margrét Sva-
varsdóttir og Atli Þorbjörnsson
sigruðu ftvenndarleik á ís-
landsmeistaramótinu ftennis,
en hluti þess fór fram um helg-
ina. Sjö pör kepptu ítvenndar-
leiknum.
Atli og Margrét léku við Einar
Sigurgeirsson og Elísabet Jó-
hannsdóttur í úrslitum og unnu
6-1 og 6-2.
Auk þess var keppt í unglinga-
flokkum og hafa keppendur aldrei
verið fleiri eða 45. I flokki 10 ára
og yngri vann Halldór Björnsson,
Fjölni, Arnar Sigurðsson, ÍK, 6-1
og 6-1 í úrslitum. Gunnar Einars-
son, sem býr í Bandaríkjunum,
vannn Albert Arason frá Ólafsfirði
6-2 og 6-1 í úrslitum í flokki 11-13
ára, en Albert var eini keppandinn
utan höfuðborgarsvæðisins og er
það í fyrsta sinn, sem þátttakandi
kemur af landsbyggðinni. ívar
Gunnarsson, ÍK, og Teitur Mars;
hall, Fjölni, urðu í 3.-4. sæti. í
tvíliðaleik unnu ívar Gunnarsson
og Sigurður Ágúst Andrésson,
ÍK, Hjört Hansson og Teit Mars-
hall, Fjölni, 3-6, 6-3, 6-3. í flokki
14-16 ára vann Stefán Pálsson,
Víkingi, Fjölni Pálsson, Víkingi,
6-2, 6-4. Gunnar Einarsson og
Eiríkur Önundarson höfnuðu í
3.-4. sæti.
í flokki 11-13 ára stúlkna vann
Hrafnhildur Hannesdóttir, Fj'ölni, ■
Evu Hlín Diðriksdóttur, ÍK, 6-0,
6-1. Bryndís Björnsdóttir og
Gopin var markahæstur Sovét-
manna með 10 mörk, Andrei Tju-
mentzev gerði 6. Besti handbolta-
maður heims, Alexandr Tutsjkín,
meiddist í fyrrakvöld og var lítið
með í úrslitaleiknum. Hann gerði
þó fjögur mörk, þar af tvö í fram-
lengingunni. Igor Butilija gerði
átta mörk fyrir Júgóslavíu.
Spánveijar urðu í þriðja sæti;
sigruðu Bandaríkjamenn 24:19.
Kristín Gunnarsdóttir urðu í 3.-4.
sæti. í flokki 14-16 ára sigraði
Hrafnhildur Hannesdóttir, Fjölni,
þriðja árið í röð, vann Önnu Pálu
Stefánsdóttur, Víkingi í úrslitum
6-1, 6-1. Þórunn Bolladóttir og
Halla Björg Þórhallsdóttir urðu í
3.-4. sæti.
Forkeppni í karla-og kvenna-
flokki fór einnig fram. Óðinn
Ægisson, Bjarni Markússon, Karl
Sigurðsson og Eiríkur Öndunarson
tryggðu sér þátttökurétt í úrslit-
um og Anna Einarsdóttir og Heið-
björt Gylfadóttir í kvennaflokki.
Þróttur með nýja velli
Þróttarar hafa komið upp þrem-
ur glæsilegum tennisvöllum á fé-
lagssvæðinu við Sæviðarsund og
hyggjast þeir vígja vellina formlega
18. ágúst næstkomandi. Vellirnir
eru úr sandbornu gervigrasi og að
sögn Gunnars Páls Þórissonar,
gjaldkera tennisdeildar Þróttar, er
unnt að leika á völlunum í rign-
ingu vegna þess að vatnið hripar
niður í sandinn.
í tveimur vallanna eru hitalagn-
ir sem gera iðkendum kleift að leika
tennis allt árið í kring. Leikið hef-
ur verið á völlunum um þriggja
vikna skeið og um síðustu helgi
fór þar fram íslandsmótið í
tvenndarleik. íslandsmótið í
tvíliðaleik fer fram á nýju völlun-
um 8.-12. ágúst nk.
Gunnar Páll sagði að um 40
manns væru á félagsskrá tennis-
deildarinnar og stöðugt fjölgaði
nýjum iðkendum.
■ LUBOMIR Svajlek, aðalmark-
vörður Tékka, kom að máli við Jón
Hjaltalín Magnússon, formann
HSÍ, í síðustu viku, og lýsti yfir
áhuga sínum á að koma til ís-
lands og leika þar með félagsliði
eftir næsta keppnistímabil.
■ PETER Baumruk, Tékkinn
sem leikur með Haukum í vetur,
var ekki með Iandsliði Tékkósló-
vakíu á Friðarleikunum eins og
búist var við.
■ ÁHORFENDUM fjölgaði dag-
lega á handboltakeppninni. Fáir
komu fyrstu dagana en á fimmtu-
dag var höllin nánast fullsetin og
á síðustu leikjunum, var uppselt!
Höllin tekur 4.212 manns í sæti.
■ SOVÉSKU landsliðsmennimir
í handbolta seldu búninga sína
fyrir utan þorpið, þar sem íþrótta-
mennirnir gista, eftir leikinn á mið-
vikudaginn. Þar stóðu þeir allir
með búningana sem þeir voru ný-
búnir að keppa í, rennandi blauta
af svita, en heimamenn voru ólmir
í að kaupa. „Seattle-búar kaupa
allt sem er sovéskt núna,“ sagði
heimamaður við Morgunblaðið.
■ DÓTTIR stærsta hluthafa Bo-
eing flugvélaverksmiðjanna hér í
Seattle, Be Be Boeing Radac-
hramer var yfirstjórnandi skipu-
lagsmála á handboltakeppninni og
eiginmaður hennar starfaði einnig
að skipulagningu keppninnar.
■ EINN þeirra sem unnu að
skipulagningu keppninnar með
þeim hjónum sagði tíu manna hóp,
þar á meðal þau, harðákveðinn í
því að koma til Islands og fylgjast
með heimsmeistarakeppninni 1995.
Þau séu, í fyrsta lagi, mjög spennt
að sjá landið og einnig hafi þau
mjög gaman af íþróttinni.
■ GOLF er vinsæl íþrótt í Se-
attle eins og víða annars staðar.
Kaup á félagsskírteinum er góð
fjárfesting. Allir golfklúbbar eru
fullskipaðir, eftirspurnin mikil og
verð á félagsskírteinum hefur far-
ið mjög hækkandi undanfarin ár.
Einn þeirra sem starfa við hand-
boltakeppnina hér, kylfingur, tjáði
blaðamanni að nýlega hefði fé-
lagsskírteini verið selt fyrir 150
þúsund dollara — það jafngildir
níu milljónum ísl. króna!! Menn
eru því tilbúnir að borga vel fyrir
að komast að.
■ ÞRÁTTIyrir að Svetlana Bog-
inskæa dytti af tvíránni í fim-
leikakeppninni, sigraði sovéska
sveitin með 118.759 stig. Banda-
ríska sveitin varð í öðru sæti, með
118.484 stig. Rúmenar, sem venju-
lega eru framarlega í fimleika-
keppnum, hættu á síðustu stundu
við að vera með í liðakeppninni.
TENNIS / ISLANDSMOT
Margrét og Atli
sigruðuí
tvenndarleik
Þrír nýir gervigrasvellir við Sæviðarsund
Verðlaunahafar helgarinnar á Islandsmótinu í tennis.
Morgunblaðið/KGA
ÁLEKNS
Fyrstu skref Þorbei-gs og Einars lofa góðu
Vömin og markvarslan mjög góð en sóknina á eftir að bæta
ísland hafði burði til að leika um verðlaunasæti
orbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari, og Einar
Þorvarðarson, aðstoðarþjálfari,
hafa stjórnað landsliði Islands
f tvo mánuði. Eftir að hafa
fylgst með liðinu á Friðarleik-
unum í Seattle er
ljóst að þeir stefna
í rétta átt.
Sóknarleikur
hefur verið aðal
íslenska liðsins
undanfarin ár; oft
; stórkostlegur, / en
eins og Þorbergur
hefur lýst yfír í
Morgunblaðinu var
það fyrsta sem hann
ákvað eftir að hafa
tekið við liðinu, að
breyta varnarleikn-
um. Undir stjórn
Bogdans Kowalczyk
'lék liðið aldrei flata
vörn, en Þorbergur
segist telja það
nauðsynlegt að geta
leikið hana, auk 5-1
og 3-2-1 varnaraf-
brigða, sem íslend;
ingar þekkja vel. í
tvo mánuði hafa
íslensku strákarnir
lagt áherslu á að
æfa flötu vörnina og
það starf héfur skil-
að sér bærilega.
Stærstan hluta nær
- allra leikjanna í Se-
; attle var varnarleik-
ur liðsins góður.
Kristján Arason
segir, í óbirtu
Morgunblaðsviðtali,
að varnarleikur og markvarsla
séu númer eitt í handknattleik.
Allir muna hvernig Svíar léku
á HM í Tékkóslóvakíu; frá-
bæra vörn, markvörðurinn Ols-
son var engum líkur — og liðið
fór heim með gullverðlaunin.
Þegar vörnin og markvarslan
eru í lagi geta menn í alvöru
leitt hugann að því að beita
hraðaupphlaupum með einhveij-
um árangri og það er gríðar-
lega mikilvægt að þau takist
vel. Gefi nokkur mörk í hveijum
leik. Slíkt hafa Svíar og Sovét-
menn hvorir tveggja oft sýnt.
Fyrir Friðarleikana áttu
menn ekki von á því að
íslenska liðið næði langt — að
baki var mót í Hafnarfirði, þar
sem liðið var eins og „vanstilltur
gítar“, eins og þjálfarinn orðaði
það, en strákamir sýndu að það
er langt frá Seattle til Hafnar-
fjarðar. Þeir áttu reyndar nokk-
uð erfitt uppdráttar í byijun,
leikurinn við Júgóslavíu var
heldur lélegur; hvorugt lið náði
sér á strik, enda áttu bæði
erfið ferðalög að baki tveimur
sólarhringum áður. íslenski
hópurinn kom ekki til Seattle
fyrr en 17 klukkustundum eftir
að lagt var í’ann frá Keflavík,
eftir „útsýnisflug" til Suð-
urríkjanna á leiðinni til Seattle,
vegna þess að upphaflega flugið
frá Baltimore og vestur yfir
hafði verið fellt niður. Júgó-
slavarnir mættu til leiks með
algjörlega nýtt lið en léku engu
að síður til úrslita á mótinu.
Leikur íslands og Júgóslavíu
gat farið hvernig sem var —
jafnvel má segja að okkar menn
hafi verið klaufar að vinna ekki,
en þegar horft er um öxl virtist
hvorugt lið líklegt til að keppa
um verðlaun. Bæði bættu sig
hins vegar með hveijum leik,
Lykilmaður
Krislján Arason — lykilmaður í íslenska liðinu und-
anfarin ár — veröur með á ný er frá líður. Góð
vörn verður þar með enn betri, en hans var sárt
saknað (sókninni í Seattle.
og ef íslendingar hefðu náð
að sigra í þeim fyrsta hefðu
þeir leikið um verðlaunsæti. Að
minnsta kosti um brons.
Spánska liðið var mjög gott, en
strákarnir hefðu einnig átt að
sigra þá. Hefði það tekist, í
stað þess að tapa með einu
marki, hefði ísland leikið um
gullið. Þrátt fyrir að ísland
næði „bara“ fimmta sæti lék
liðið vel. Litlu munaði að það
kæmist í hóp þeirra fjögurra
efri.
Þorbergur og Einar hafa
mikla reynslu að baki innan
vallar; eiga margan stórleikinn
að baki og vita hvað gera þarf
til að halda landsliði íslands
meðal þeirra bestu. Þeir eru
komnir áleiðis; það sem áhersla
hefur verið lögð á síðan þeir
tóku við liðinu er að komast í
gott lag en sóknarleikurinn hins
vegar ekki. Það vita þeir og
sennilega er næsta mál á dag-
skrá að bæta hann. Hann verö-
ur ekki nógu góður fyrr en
Kristján Arason kemur aftur
inn í liðið — það skiptir auðvit-
að miklu máli að hafa öiwhenta
skyttu á hægri vængnum. Þá
geta leikkerfin gengið nógu vel
upp.
Á tveimur mánuðum hefur
það sýnt sig að ráðning Þor-
bergs og Einars var rétt. Þeir
vinna vel saman og hafa greini-
lega góð áhrif á strákana, sem
hafa augljóslega mjög gaman
af því sem þeir eru að gera.
Tvemenningarnir eiga eftir að
byggja upp sterkt lið á ný.
Skapti
Hallgrímsson