Morgunblaðið - 21.08.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990
11
Auðstjórn almennings
- íjárstjórn fjöldans
eftir Eyjólf
Konráð Jónsson
Mikið er nú talað um almennings-
hlutafélög og ætti mér að leyfast
að leggja inn nokkur orð um þau
því að fyrstur notáði ég víst orðið.
Þess vegna gleður mig að það er
að verða töfraorð. Þótt það finnist
hvergi í löggjöf og hafi held ég aldr-
ei verið skýrt nema lítillega í bók-
inni „Alþýða og athafnalíf“ sem út
kom 1968 en þar segir „að notkun
orðsins almenningshlutafélag sé
áróðurskennd, og ber höfundur
þessa rits þá ábyrgð á því“. En ein-
mitt þess vegna vil ég nú vekja
athygli á því að varhugavert getur
verið að leggja of mikið upp úr
þessu orði einu og sér. Fleira þarf
til að koma, sem ekki verður fjallað
um í stakri grein.
Mér sýnist raunar að sú breyting
sem er að gerast á fjármagnsmark-
aði — loksins — sé fyrirboði stór-
tíðinda í íslenskum atvinnumálum,
sú stund sé skammt undan að al-
menningur eignist í ríkum mæli
beina aðild að atvinnufyrirtækjum
líkt og lengi hefur verið í vestræn-
um löndum og víðar. Má þar nefna
Bandaríkin, Þýskaland og Japan.
En þessi félög eiga aldeilis ekki
meira erindi til voldugra þjóða og
ríkra, það er enn brýnna að smá-
þjóðir eins og við tileinkum okkur
það, við viljum ekki samþjöppun
auðs heldur dreifíngu. En við viljum
öflug félög þótt þau þurfi ekki öll
að vera stór.
Þegar raunveruleg utanaðkom-
andi kreppa skall á okkur seint á
sjöunda áratugnum reyndi fólkið
víða að þjarga sér þótt fjármunir
væru sáralitlir. Þetta gerðist t.d. á
Skagaströnd og nú eru hlutabréf í
Skagastrendingi t.d. á almennum
markaði.
Nú á tímum heimatilbúinnar
kreppu og kolvitlausrar efnahags-
stefnu, ofstjórnar og þar af leiðandi
óstjórnar, eru menn sem óðast að
byggja upp almenningshlutafélög
til að þjarga því sem þjargað verður
og gróin og traust félög bjóða út
hlutafé á opnum markaði. Þetta er
af hinu góða. Þess er þó að gæta
að þrátt fyrir merk hlutafélagalög
sem sett voru 1978 og studdust við
félagsrétt austanhafs og vestan
getur alltaf verið hætta á ferðum
og þess vegna brýn nauðsyn á eftir-
liti og ráðgjöf, þótt ekki sé nauðsyn-
legt að ríkisvaldið hafí þetta með
höndum nema auðvitað löggjafar-
starfið, þvl að samtök atvinnuvega
og lífeyrissjóða geta hér haft verð-
ugt verkefni og þegar eru bæði lög-
fræðingar og viðskiptafræðingar að
mennta sig og sérhæfa á þessu
sviði. Einnig það er af hinu góða.
Saga hlutafélaga er orðin æði-
löng. í áður nefndri bók segir:
„Raunar á þetta félagsform rætur
að rekja aftur í miðaldir, og allt frá
því að Englendingar og Hollending-
ar byggðu upp verslunarveldi sín á
17. öldinni hafa slík félög verið vel
■AXIS
Fataskápar
Tíslenskir |
ií '
j Axis Húsgögn hf,
Smiðjuvegi 9,
1sími 43500.
þekkt. Og úr eigin sögu þekkjum
við framtak Skúla fógeta og Inn-
réttinganna um miðja 18. öldina,
þar sem um var að ræða félags-
stofnun með hlutabréfum.
Ýmislegt misjafnt má segja um
hlutafélögin eins og önnur mann-
anna verk, enda leiddu fjármála-
spilling og gjaldþrot til þess þegar
árið 1720, að þessar stofnanir voru
í rauninni gerðar útlægar í hinum
enskumælandi heimi í nærfellt eina
öld.
En í upphafi 19. aldarinnar voru
hlutafélög svipuð þeim, sem enn eru
rekin, hafin til vegs og virðingar,
og um miðja 19. öld var útbreiðsla
þeirra orðin mjög mikil, ekki síst í
Bretlandi og Bandaríkjunum. Og
við lok aldarinnar voru hlutafélögin
orðin geysimikilvægt afl í atvinnu-
lífí þessara ríkja og margra ann-
arra.“
Af þessu má sjá að allrar gætni
verður að gæta við stofnun og
rekstur almenningshlutafélaga og
miklu meiri en gerist þegar lítill
hópur ákveður að leggja hluta eigna
sinna að veði til að kljást við verk-
efni á sviði athafnalífsins, og skal
Eyjólfur Konráð Jónsson
það þó síst vanmetið enda liður í
auðstjórn almennings eða fjárstjórn
fjöldans, rétt eins og almennings-
hlutafélög, einkaeign íbúðarhús-
„Nú á tímum heima-
tilbúinnar kreppu og
kolvitlausrar efna-
hagsstefnu, ofstjórn-
ar og þar af leiðandi
óstjórnar, eru menn
sem óðast að byggja
upp almenningshluta-
félög til að bjarga því
sem bjargað verður
og gróin og traust
félög bjóða út hlutafé
á opnum markaði.“
næðis eða lítilla fyrirtækja og með-
alstórra.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
ri
i i 31
r| rí \ ,\ / h h
Kji íI\I JStí
i i r1 \1
JJ _rj 911 LB
r1- j
_
Allt að 12 mánaða greiðslukjör
- án útborgunar
Leisurewise þrekhjólin fást á einstökum afborgunarkjörum.
Korthafar Visa og Euro geta nýtt sér raðgreiðslur ogfengið
Leisurewise þrekhjól á allt að 12 mánaöa afborgunartímabili.
Staðgreisluverð aðeins IS.S Afborgunarverð
- Róðrarvélar.
- Hlaupabretti.
- Leikfimirimla o.fl.
Leisurewise þrekhjólin eru létt,
sterk, meðfærileg og sértak-
lega ætluð til heimilisnota.
Reglubundin notkun þrek-
hjólsins stuðlar að auknu
blóðstreymi, styrkir hjarta og
lungu og heldur vöðvum og liðum
í þjálfun.
Og á Leisurewise þrekhjóli
þarftu aldrei að hafa áhyggjur af
veðrinu!
Leisurewise þrekhjólin
eru buin ótal kostum:
■ Tölvu sem mælir m.a. vegalengd
og kalóríubrennslu.
■ Sætið er stillanlegt, stöðugt og
mjúkt..
■ Átaksþyngdin er stillanleg.
• Ólar yfir ristar.
■ Jöfn spyrna.
■ Plastpúðar verja gólfið.
& S
VfSA
Breska verslunarfélagið
Faxafeni 10 - Húsi Framtíðar
108 Reykjavik
Pöntunarsími: 91