Morgunblaðið - 21.08.1990, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990
Dalvík:
Lýsistankarn-
ir Qarlægðir
Dalvík.
LÝSISTANKAR Síldarbræðslunnar á Dalvík hafa nú verið fjarlægð-
ir en unnið er að því að lagfæra og breyta verksmiðjuhúsinu í af-
greiðslu fyrir skipadeild Sambandsins. Hyggst Sambandið auka
skipakomur sínar til Dalvíkur og opna skipaafgreiðslu á hafnarsvæð-
inu. Ráðgert er að tankarnir fái nýtt hlutverk við fóðurverksmiðju
Ístess hf. í Krossanesi.
Nú eru liðin rúm tuttugu ár síðan
tankar þessir voru settir upp en
Síldarbræðslan var stofnuð árið
1966. Verksmiðjan var þó ekki
Sjóstang-aveiði-
mót í 27. sinn
HIÐ árlega sjóstangaveiðimót
Sjóstangaveiðifélags Akureyrar
verður haldið dagana 31.ágúst
og 1. september næstkomandi,
en skráningu þátttakenda lýkur
á fimmtudag, 23. ágúst.
Sjóstangaveiðimótið verður hald-
ið í 27. sinn og er búist við að þátt-
takendur verði um 70 víðsvegar að
af landinu. Mikið líf hefur verið í
firðinum að undanförnu þannig að
mótshaldarar reikna með góðri fisk-
veiði. Róið verður frá Dalvík kl. 7
báða morgnana og veitt til kl. 15
á föstudag og 14 á laugardag.
Mótinu lýkur með verðlaunaafhend-
ingu og veislu á Hótel KEA á laug-
ardagskvöld.
starfrækt í mörg ár því síldin hvarf
af íslandsmiðum skömmu eftir að
hún tók til starfa. Lýsistankarnir
gegndu því hlutverki sínu sem slíkir
tiltölulega skamman tíma og hafa
staðið tómir lengst af.
Kaupfélag Eyfirðinga keypti eig-
ur Síldarbræðsiunnar og starfrækti
um tíma beinamjölsverksmiðju í
húsinu sem síðar var svo gert að
fóðurstöð fyrir loðdýrafóður. Það
fyrirtæki var lýst gjaldþrota nú í
vor og ákvað því Kaupfélagið að
taka húsnæðið fyrir skipaafgreiðslu
o í því skyni hefur verið unnið breyt-
ingum á húsnæðinu og tankamir
fjarlægðir svo betri aðstaða verði
við áfgreiðsluna. Kristján Ólafsson,
fyrrverandi sjávarútvegsfulltrúi
KEA, hefur verið ráðinn til að ann-
ast skipaafgreiðsluna og sér hann
jafnframt um allar framkvæmdir.
Fyrirhugað er að malbika svæðið
austan við afgreiðsluna nú í sumar
og mun hafnarsvæðið taka svo
miklum breytingum við þessar
framkvæmdir.
- Fréttaritari
Morgunbladið/Rúnar Þór
Austurlenskt á Hlóðinni
Veitingastaðurinn Hlóðin á Hótel Norðurlandi hefur ráðið til sín kokk
sem sérhæfður er í austurlenskri matargerð. Mun þetta vera í fyrsta
skipti sem veitingastaður á Akureyri sérhæfir sig alfarið í austurlensk-
um mat. Kokkur þessi, Richard von Rijn, er sænskur en sagði við
Morgunblaðið að hann verið við nám í kínversku á Taiwan í sex ár og
þá unnið með námi á veitingastað. Hann hefði áður unnið á veitinga-
stöðum áður en hann fór til Taiwan en þar hefði hann lært austur-
lenska matargerð. Sagðist hann ætla að leggja áherslu á hina uppruna-
lega kínversku matargerð en ekki þá sem mætti oft finna t.d. á kína-
veitingastöðum á Norðuriöndum og ætti lítið sameiginlegt með
kínverskum mat. Einnig yrðu einungis notuð fyrsta flokks hráefni.
Richard hefur tekið með sér sérstakan búnað til Akureyrar sem gerir
honum m.a. kleift að steikja suma rétti á allt að þrjátíu sekúndum.
Gestir geta kynnst eldamennsku hans í fyrsta skipti á morgun á Hlóð-
inni.
Lýsistankarnir bíða þess nú að verða fluttir til Krossaness.
Krossanes:
Jóhann Pétur Andersen
ráðinn framkvæmdastjóri
JÓHANN Pétur Andersen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri
Krossanesverksmiðjunnar á Akureyri. Jóhann Pétur hefur verið fram-
kvæmdastjóri Fiskimjöls og lýsis hf. í Grindavík frá árinu 1986. Þá
hefur Hilmar Steinarsson verið ráðinn verksmiðjustjóri. Uppbygging
verksmiðjunnar gengur samkvæmt áætlun. Um mánaðamótin eru
væntanlegar til landsins vélar sem ákveðið var að festa kaup á þeg-
ar byggja átti verskmiðjuna upp miðað við 700 tonna framleiðslu-
getu og vinna forráðamenn verksmiðjunnar nú að því að losa sig við
þær vélar.
Jóhann Pétur Andersen er fæddur
í Vestmannaeyjum og hann er við-
skiptafræðingur að mennt. Hann
bjó á Akureyri á árunum 1978-86
og starfaði þá m.a. sem fjármála-
stjóri hjá Slippstöðinni, hjá K. Jóns-
syni starfaði hann einnig um tveggja
ára skeið og einnig var hann fjár-
málastjóri hjá Krossanesi um tíma
áður en hann flutti til Grindavíkur
þar sem hann hefur starfað síðustu
ár sem framkvæmdastjóri Fiski-
mjöls og lýsis hf. „Það leggst vel í
mig að flytja aftur til Akureyrar,"
sagði Jóhann Pétur í samtali við
Morgunblaðið, en hann kemur til
starfa hjá verksmiðjunni með haust-
inu. „Ég vona að samstarfið verði
gott um uppbyggingu fyrirtækisins
og að loðnuveiðarnar bregðist ekki
því það er nauðsynlegt fyrir fyrir-
tækið að hafa nóg af hráefni."
Uppbygging verksmiðjunnar
gengur samkvæmt áætlun, en stefnt
er að því að framleiðsla geti hafist
í nóvember ríæstkomandi að sögn
Hólmsteins Hólmsteinssonar stjórn-
arformanns Krossaness. Samið hef-
ur verið við Vör hf. um viðgerð á
þaki verksmiðjunnar og einnig hefur
verið samið við verktaka varðandi
raflagnir. Páll Sigurðsson vélaverk-
fræðingur sem umsjón hafði með
uppbyggingu verksmiðjunnar mun
nú annast þá þætti er snúa að vélum
og tækjum hennar og Pétur Torfa-
son verkfræðingur hjá Verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsen á Akur-
eyri hefur umsjón með byggingar-
hlutanum. „Við ákváðum að hafa
þetta svona til að flýta fyrir, þannig
að verksmiðjan geti tekið til starfa
í nóvember eins og stefnt er að.
Búið var að panta vélar frá Nor-
egi í loðnuverksmiðju sem anna átti
700 tonna framleiðslu á sólarhring.
Samningur um vélakaupin hljóðar
upp á um 85 milljónir króna, en auk
þess hafði verið samið um kaup á
vélum frá fleiri stöðum. Norsku vél-
arnar eru væntanlegar til landsins
um mánaðamótin næstu og sagði
Hólmsteinn að í kjölfar þess að
ákveðið var fyrr í sumar að byggja
upp smærri verksmiðju væri nú ver-
ið að vinna að því að selja umrædd-
ar vélar. Hólmsteinn sagði að enn
væri óljóst með hvaða hætti tækist
að losna við vélarnar, en til greina
komi að selja hluta þeirra innan-
lands og einnig væri verið að skoða
hvort mögulegt sé að fá samningn-
um rift með einhveijum hætti. Þær
vélar sem fyrir voru í verksmiðjunni
þegar hún brann að morgni gaml-
ársdags verða notaðar að hluta og
er nú verið að gera þær upp.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Allstórir gæsahópar hafa komið sér fyrir á nýræktinni við Leiru-
tjörnina, þar sem þessi mynd var tekin í gærmorgun, á fyrsta degi
gæsaveiðitimabilsins. Rétt eins og fuglarnir finni til öryggis í bæjarl-
andinu og viti að þar verði þeir ekki fyrir byssukúlum veiðimanna.
Gæsaveiðitímabilið hafið:
Útlit fyrir að mikið
verði um gæsir í haust
„ÉG GÆTI trúað að einhverjir hefðu vaknað snemma í rnorgun,"
sagði Einar Long, áhugamaður um veiðiskap, í gærmorgun en gæsa-
veiðitímabilið hófst í gær. Einar telur að mikið sé af gæs nú og
ásigkomulag þeirra sé gott.
„Ég held að það verði mikið
af gæs í haust, það urðu lítil af-
föll í stofninum í vor, m.a. vegna
þess að vatnavextir voru hóflegir
og mér sýnist því allt benda til
að nóg verði af gæs þetta haust-
ið,“ sagði Einar.
Einar vildi beina því til gæsa-
veiðimanna að nota ekki riffla við
veiðarnar, þeir væru allt of öflug-
ir til að óhætt væri að nota þá í
námunda við þéttbýli. Margskon-
ar hættur sköpuðust við notkun
þeirra og þeir því afar óæskilegir.
Undanfarin haust hefur nokkuð
verið kvartað undan gæsaveiði-
mönnum í Eyjafirði, m.a. undan
miklum hávaða að kvöldlagi. Ein-
ar sagði að ekki þyrfti nema einn
gikk í hverri veiðistöð, en hvatti
veiðimenn til að biðja landeigend-
ur um leyfi áður en hafist væri
handa við veiðamar. „Það er al-
gjört frumskilyrði að biðja um
leyfi og að starfa í góðu samráði
við bændur, það getur skipt sköp-
um varðandi þennan veiðiskap."
Einar kv'aðst álíta að gæsin
væri vel á sig komin og ekki sagð-
ist hann hafa séð ófleyga unga á
síðustu dögum.