Morgunblaðið - 21.08.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 21.08.1990, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 Sigurður Johanns- son — Kveðjuorð Fæddur 11. júní 1902 Dáinn 11. ágúst 1990 Sigurður var sonur hjónanna Jó- hanns Guðmundssonar útvegs- bónda að Litlu Háeyri á Eyrarbakka og Guðrúnar Runólfsdóttur frá Arn- kötlustöðum í Holtum. Sigurður kvæntist Sigrúnu Bene- diktsdóttur 16. júní 1926 og varð þeim fimm barna auðið. Leiðir okkar Sigurðar lágu fyrst saman er ég giftist syni hans, Bene- dikt, og bjuggum við fyrstu búskap- arár okkar á efri hæð í húsi þeirra hjóna Sigurðar og Sigrúnar að Langholtsvegi 61. Sigurður var mikill veiðimaður og veiddi í mörg- um ám víðsvegar um landið, oft með foreldrum mínum sálugu og var þá oft glatt á hjalla og margar veiðisögur sagðar um baráttuna við laxinn. Sigurði var líka margt til liSta lagt, hann málaði mörg mál- verk sem nú prýða heimili hans og ættingja. Hin síðustu ár fór heilsu Sigurð- ar að hraka, en við hjónm vorum svo lánsöm að eignast sumarbústað við Skorradalsvatn ásamt systkin- um mínum og á hveiju sumri komu þau hjónin til okkar og alltaf tók hann veiðistöngina með sér þótt heilsu hans væri þannig háttað að hann gat ekki rennt í vatnið, bara að hafa hana með var hans ánægja. Það var oft gestkvæmt hjá okkur í litla húsinu við Skorradalsvatnið og ánægjan skein úr augum þeirra þegar gesti bar að garði. Gestrisni var þeim hjónum í blóði borin. Þann 4. ágúst síðastliðinn lést elskulegur sonur okkar hjóna, Jón Gestur, hárgreiðslumeistari, eftir harða og erfiða baráttu, aðeins 37 ára að aldri. Hann var þeim hjónum afar kær og oft sagði Jón við mig ef hann hafði ekki séð þau um tíma; nú þurfa afi og amma örugglega að koma og fá klippingu og hár- greiðslu, og þá var strax sent eftir þeim. Sú fegurð öll, sem fyrir sjónir bar á fórnum vegi, birtist vinum tveim, t SIGURÐUR HREINSSON, Blönduhlíð 23, lést í Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 18. ágúst. Aðstandendur. t Hjartkær móðir okkar, SOFFÍA SIGURHJARTARDÓTTIR, Laugateig 8, Reykjavík, andaðist á heimili sínu sunnudaginn 19. ágúst. Börnin. t Móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma RAKEL GUÐMUNDSDÓTTIR, Grettisgötu 66, áðurtil heimilis Skúlagötu 70, lést í Landakotsspítala, 19. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Axelsdóttir. t Móðir mín JAKOBÍNA ÁSMUNDSDÓTTIR Suðurgötu 13, Reykjavík, andaðist 17. ágúst. Þeir sem vildu minnast hennar eru beðnir um að láta barnaspítala Hringsins njóta þess. Unnur Guttormsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, ÁRNI ÁRNASON, Lyngholti 5, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 19. ágúst. Guðrún Jakobsdóttir, Baldur Arnason, Þór Árnason, Óðinn Árnason, Sigriður Árnadóttir, Jenný Lind Árnadóttir, Ólöf Árnadóttir, Anna Guðrún Árnadóttir, Hulda LilýÁrnadóttir, barnabörn, barnabarnabörn Hulda Þorvaldsdóttir, Ásta Sigurðardóttir, Gunnþóra Árnadóttir Ingvi Flosason, Þorleifur Jónsson, Hörður Þórhallsson, Guðmundur Antonsson, Oddur Árnason, og barnabarnabarnabarn. Þorsteinn Gunn- arsson - Minning sem ennþá muna yndislegan heim - sem einu sinni var. Og endurfundum fagna sálir tvær, sem fijálsar teygja angan þína, jörð og seltuna við silfurbláan prð. Við stoðvum tímans vald og vængjablak - eitt andartak, eitt andartak. (D.St.) Elsku Sigrún mín, systkinin og aðrir ættingjar, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Auður Eiríksdóttir Fæddur 21. ágúst 1914 Dáinn 16. júlí 1990 Hann afi minn, Þorsteinn Gunn- arsson, er dáinn, eftir langa og erf- iða baráttu við illkynja sjúkdóm og mig langar að minnast hans með þéssari kveðju. Það sem stendur upp úr þegar ég lít til baka yfir minningar mínar um hann afa er músíkin. Ég var örfárra ra þegar hann fór að kenna okkur frænkunum að syngja radd- að, og var óþreytandi, enda var þetta hans líf og yndi. Við vorum ekki eins þolinmóðar við þetta svo það var ekki fyrr en ég var orðin fullorðin að ég fór að sækja hann og ömmu heim til að syngja ótal lög og raddsetningar lærði ég hjá honum bæði eftir hann sjálfan og aðra, lög úr öllum áttum. Hann samdi mörg falleg ljóð um ævina en eitt fallegasta ljóðið er grafið á legstein bræðra minna. Var það samið móður minni til hughreyst- ingar. Ég hafði sérstaklega gaman t Astkær faðir okkar, GUÐJÓN JÓNSSON, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, lést í Landspítalanum mánudaginn 20. ágúst. Rúnar Guðjónsson, Ingi Guðjónsson, Erna Hanna Guðjónsdóttir, Margrét Guðjónsdóttir. af því að hann vissi númerið á hveij- um sálmi í sálmabókinni. Hann hafði stjórnað kórum, svo þessi lærdómur hans kom sér vel. Þegar hann var að kenna mér rödd eða leiðrétta mig gat hann auðveldiega flakkað, í miðju lagi á milli bassa og sóprans, með viðkomu í millirödd til að koma ömmu inn í lagið eða rifja upp fyrir henni, því hún var vanari sópraninum. Það var svo yndislegt að eiga kost á þessum stundum með honum frá erli dags- ins þar sem allt annað gleymdist á meðan. Ég minnist hans sem glað- værs, yndislegs manns með þakk- læti og söknuð í huga. Sigríður Magnea Björgvinsdóttir t Móðir mín, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR, er lést 11. ágúst á Elliheimilinu Grund, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 22. ágúst kl. 15.00. Inga Tjio, Joe-Hin Tjio Yu-Hin. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, LEIFUR ÁSGEIRSSON prófessor, lést í Borgarspítalanum 19. ágúst. Hrefna Kolbeinsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Ásgeir Leifsson, Helga Ólafsdóttir, Einar Indriðason, Hrefna Indriðadóttir, Leifur Hrafn Ásgeirsson, Ylfa Sigríður Ásgeirsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdafaðir og afi, JÓHANN FRIÐRIK KÁRASON, Valihólma 14, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 22. ágúst kl. 13.30. Amalía Þórhallsdóttir, Ester Jóhannsdóttir, Fjóla Jóelsdóttir, Agnes Jóhannsdóttir, Ágúst Guðjónsson', Bryndís Fjóla Jóhannsdóttir, Auður Sveinbjörg Jóhannsd. og barnabörn. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960 Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI48. SlMI 76677 MXMMæsmtsx&.æmmæmiivæ &&

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.