Morgunblaðið - 21.08.1990, Side 13

Morgunblaðið - 21.08.1990, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. AGUST 1990 13 Foreldrar: Leyfíð börnun- um að læra dans eftir Unni Arngrímsdóttur Nú er sumarið senn á enda, vet- ur gengur í garð og býður okkur velkomin til starfa eftir gott sum- ar. Allir hafa skyldur við nám eða störf jafnt börn sem fullorðnir, en allir eiga sinn frítíma og ráða hvern- ig honum er varið. Hvernig væri nú þegar veturinn er framundan að skipuleggja vel frítíma barn- anna. Allskonar námskeið fara af stað strax á haustin, þar á meðal dansnámskeið og danskennsla út um allt land. 0g hvað er svo dans? Dansinn er samheiti fyrir margar greinar, t.d. klassískan ballett, jazzballett, jazzdansa, þjóðdansa, barnadansa, sígilda samkvæmisdansa, gamla dansa, skautadansa og svo mætti áfram telja. Hann er holl hreyfing þar sem einstaklingurinn hreyfir sig og tjáir eftir ákveðinni tónlist sér til yndis og ánægju. Dansinn gerir okkur frjálsari í framkomu, hann veitir okkur öryggi í samskiptum við annað fólk og hann hjálpar okk- ur til að hlusta á tónlist, því ekki verður dansað án hennar. Börn geta hafið dansnám 3-4 ára gömul. Þá læra þau að hluta á tón- list og tjá sig eftir hljóðfallinu á mismunandi hátt í leik og dansi. Þau læra einnig að lúta forystu faglærðs danskennara, en rétt er að geta þess að danskennaranám er 4 ár bæði bóklegt og verklegt. í barnadönsunum geta þau svo byij- að 4 ára gömul, þá dansa þau sam- an tvö og tvö og læra að umgang- ast jafnaldra sína af báðum kynjum. Þau læra ekki bara að dansa og skemmta sér á eðlilegan hátt heldur einnig að taka tillit hvert til annars og um leið bera virðingu fyrir kenn- FENNINN SETUR LAGT VORUVERÐ ÁODDINN DELSEY SKJALATÖSKUR ATHAFNAMANNSINS. Hallarmúla 2, slmi 83211 Austurstræti 10, slmi 27211 Kringlunni, slmi 689211 .KAVNinAKAÓT^ 69IC3 ara sínum og félögum í starfi og leik. Að því búa þau ævilangt. Þegar þessum undirbúningsskóla er lokið eru þau orðin 5-6 ára og geta farið að læra samkvæmisdansa — áfram haldast í hendur agi, virð- ing og tónheyrn meðan verið er að læra hina sígildu samkvæmisdansa sem koma öllum að gagni í lífinu. Þarna fá bornin tilfinnngu fyrir feg- urð þeirri sem kemur fram á léttan og skemmtilegan hátt um leið og danskennarinn leiðbeinir þeim um framkomu og siðvenjur, sem gera alla öruggari í umgengni við aðra og endist einstaklingnum alla tíð. DANSINN ER TUNGUMÁL ALLRA. Hann er ódýrt tómstunda- gaman og sameinar fólk á margan hátt. I dansinum er snerting sem allir þurfa á að halda. í dansinum er gleði sem léttir lund. Mér hefur orðið tíðrætt um börn- in í dansnámi vegna þess að hyggja Unnur Arngrímsdóttir þarf að því að þau fari ung af stað í dansnám, ef kostur er. Það geta allir lært að dansa, börn, ungling- ar, fullorðnir, já ekki síður þeir sem eldri eru. Þetta gæti verið stórkost- legt tómstundagaman fyrir alla fjö- skylduna. Dansráð íslands skipuleggur danskeppnir sem eru orðnar fjöl- sóttar og geta allir sem þess óska „Dansinn gerir okkur frjálsari í framkomu, hann veitir okkur ör- yggi í samskiptum viö annað fólk og hann hjálpar okkur til að hlusta á tónlist, því ekki verður dansað án henn- ar.“ æft dansinn sem keppnisdans og haldið út á 10 dansa keppnisbraut. í nágrannalöndum okkar á Norð- urlöndunum og í Bretlandi svo ein- hver lönd séu nefnd þykir það sjálf- sagt í uppeldi hvers barns og ungl- ings að það fái að sækja danstíma einu sinni í viku. Það er margsann- að að dansinn hefur uppeldislegt gildi fyrir einstaklinginn og hér á landi er fólk farið að gefa gaum þessum þætti i uppeldinu, en betur má ef duga skal. Þess vegna skora ég á alla að skipuleggja tómstundirnar vel í vet- ur og gleyma því ekki að dansinn á að vera fastur liður í tilverunni. Komdu með í dansinn. Höfundur er danskennari. c> 3UMARLEIKUR KODAK EXPRESS KODAK gpWhiB | ■PPl Æ| yOA ALEIK Spennandi sumarleikur KODAK LITAKRÍLANIMA er hafinn. Næst þegar þú átt erindi á einhvern afgreiðslustaða KODAK EXPRESS getur þú fengið afhent þátttökublað SUMARLEIKSINS. Það er eftir miklu að slægjast þegar dregið verður. 1. júlí, 10. ágúst og 3. september verður dregið um 500 KODAK LITAKRÍLI í hvert skipti og að lokum verður dregið um 1. og 2. verðlaun þann 10. september, úr öllum réttum, áður innsendum lausnum. verðlaun eru HELGARFERÐ TIL LONDOIM fyrir tvo með ferðaskrifstof- unni SÖGU að verðmæti kr. 80.000. 2. verðlaun eru vönduð CHINON HANDIZOOM myndavél að verðmæti kr. 18.900. 3. -1500. verðlaun eru dúnmjúk KODAK UTAKRfU. Líttu inn á einhvern afgreiðslustaða KODAK EXPRESS og taktu þátt í leiknum. •Verslanir Hans Petersen. Bankastræti, Glæsibæ, Austurveri, Kringlunni og Lynghálsi •Ljósmyndaþjónustan Laugavegi 178 • Kaupstaður, Mjódd • Veda, Hamraborg, Kópavogi *Filmur og Framköllun, Strandgötu, Hafnarfirði • Ljósmyndahúsið, Dalshrauni 13, Hafnarfirði • Hljómval, Keflavík •Bókaverslun Andrésar Níelssonar, Akranesi • Bókaverslun Jónasar Tómassonar, (safirði • Pedrómyndir, Hafnarstræti og Hofsbót, Akureyri • Nýja Filmuhúsið, Hafnarstræti, Akureyri • Bókabúð Brynjars, Sauðárkróki • Vöruhús KÁ, Selfossi. ■iDiipðiav uitut»nnTiBri 00r maa irí| AUK/SlA K91-222

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.