Morgunblaðið - 21.08.1990, Síða 39

Morgunblaðið - 21.08.1990, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 39 Hulda G. Þórðar■ dóttír - Minning Fædd 28. september 1906 Dáin 11. ágúst 1990 Nú hefur Hulda mín fengið hvfldina. Hún lést 11. ágúst sl. Mig langar að minnast elskulegr- ar frænku minnar í nokkrum orð- um. Hún hét Hulda Gyða Þórðar- dóttir og fæddist í Ólafsvík, 28. september 1906. Hulda var dóttir hjónanna Þórðar Matthíassonar formanns og smiðs, f. 12. maí 1873, d. 17. október 1923, frá Skerðings- stöðum í Eyrarsveit, Snæfellsnesi, og Bjargar Þorsteinsdóttur, f. 20. nóvember 1874, d. 14. janúar 1912, frá Aratungu í Staðarsveit, Snæ- fellsnesi. Hulda Gyða var fjórða í röð sex barna þeirra hjóna, sem öll eru nú látin og var faðir minn, Þorleifur, einn í þeim systkinahópi. Einnig átti Hulda 6 hálfsystkini, og eru tvær systur látnar úr þeim hópi. Tæplega sex ára gömul missir Hulda móður sína, og fer hún þá í fóstur, fyrst til Guðrúnar Síríusar- dóttur ljósmóður, er var henni mjög góð við erfiðan móðurmissinn. Síðar fór hún til hjónanna Guðmundar Guðjónssonar skósmiðs og konu hans Sigríðar Oliversdóttur. Um tvítugt kemur Hulda hingað suður til Reykjavíkur og vinnur fyrir sér við fiskverkun og þjónustu- störf. Árið 1931 er Hjúkrunarskóli íslands var stofnaður, er Hulda í hópi þeirra fyrstu er hefja nám við skólann og útskrifaðist frá honum árið 1933. Eftir að námi lauk starf- aði Hulda ekki mikið sem hjúkrun- arkona. Á námsárunum hafði hún kynnst væntanlegum eiginmanni sínum. Hinn 4. nóvember 1933 gift- ist hún Antoni Sigurðssyni húsa- smíðameistara, f. 17. nóvember 1900, frá Mávahlíð á Snæfellsnesi. Hann lifir eiginkonu sína, í hárri elli. Þau eignuðust 4 syni, sem eru: Haraldur búfræðingur, f. 2. júlí 1934, kvæntur.Karin Hartjenstein, er starfar að ferðamálum, Steinar tæknifræðingur, f. 10. júní 1936, Sigurður framkvæmdastjóri f. 13. apríl 1939, og Ingólfur tæknifræð- ingur. Auk þess ólst sonarsonur Huldu upp hjá þeim hjónum Hjalti Sigurðsson framkvæmdastjóri, kona hans er Jóna Kristmannsdótt- ir þroskaþjálfí. Hulda átti orðið 8 bamaböm og eitt bamabamabarn. Margar minningar streyma gegnum hugann, nú þegar elsku Hulda frænka mín er horfín. Minn- ingar um dula, hógværa konu, sem gerði ekki miklar kröfur sér til handa, en var alltaf tilbúin að rétta öðrum hjálparhönd. Minningar um fallega og fínlega konu, með sitt dökka, síða hár, er alltaf lá í þykkri, fallegri fléttu ofan á höfði hennar. Minningar um hlýja og góða konu. Aldrei heyrði ég hana hallmæla neinum. Allir voru góðir í hennar huga, aðeins mismunandi gerðar. Hulda var mikið snyrtimenni og bar heimili hennar þess glöggt merki. Hún hafði gaman af hann- yrðum og var hún búin að hekla marga blúnduna og dúkana. Nú hin síðari ár var sjón hennar farin að daprast það mikið, að hún gat ekki haft af því ánægju lengur. Hjá Huldu og Antoni var alltaf mikill gestagangur, þar sem ættingjar utan af landi áttu alltaf öruggan samastað til lengri eða skemmri tíma. Þar fundu sig allir velkomnir, enda hjónin bæði afar gestrisin. Ég bast Huldu sterkum böndum og var hún mér alla tíð meira en föðursystir. Tæplega ársgömul fór ég til hennar og Antons og var ég hjá þeim hjónum í rúmt ár, á með- an móðir mín lá í veikindum á Vífílsstöðum. Eftir það lá leið mín oft á Fornhagann. Þar átti ég ör- uggt athvarf þar sem ég naut hlýju og umönnunar alla tíð. Ég man sem barn, að oft ef Hulda mfn vissi að mín var von tók hún á móti mér með nýbökuðum flatkökum, en það var eitt.af því besta sem ég fékk. Heitar flatkökur með smjöri sem litlar lúkur áttu fullt í fangi með að hemja, svo ekki rynni niður, og ísköld mjólk. Það var gott að fá eftir langferð, í aug- um barns, í strætisvagni austan úr bæ. Eða heitar kleinur, svo ekki sé minnst á „loftkökurnar" góðu. Þannig var Hulda blessunin, hún reyndi alltaf að gleðja. Það var svo hlýtt og notalegt að koma til henn- ar á Fomhagann. Ég minnist líka sunnudagsferðanna upp í sumarbú- stað við Rauðavatn, sem þá var mikið ferðalag í mínum augum, og drukkið var síðdegiskaffi upp undir húsvegg. Já, minningarnar eru margar. Minningar um gestrisni og höfð- ingsskap, hjálpsemi og fórnfýsi og mikla ræktarsemi. En efst í huga mínum eru þó minningamar og vitneskjan um tryggð hennar og ástúð við mig, sem ég naut alla tíð. Nú eftir að ég stofnaði fjöl- skyldu, bjuggum við okkar fyrstu ár í kjallaranum. að Fomhaga 26. Uppi á lofti átti eldri sonur minn, Þorleifur Örn, líka alltaf öruggt athvarf hjá Huldu ömmu eins og hann kallaði hana, og Antoni. Sá tími var dýrmætt skeið í hans lífi. Alltaf fékk hann þar nægan tíma í annars erilsömu nútímalífi. Þetta á einnig við um yngri son minn, Snorra Björn, eftir að hann fædd- ist. Báðir drengirnir mínir og við öll eigum eftir að sakna Huldu ömmu. Hulda átti við vanheilsu að stríða síðustu ár. Hún var búin að gang- ast undir aðgerð, en hún var sterk og komst heil úr því. Fyrir ári varð hún fyrir því óláni að brotna á fæti, og átti hún ekki afturkvæmt á heimili sitt eftir það. Þó gat hún dvalið þar yfir síðustu jól og páska, og var það henni mikils virði. Hún naut góðrar umönnunar á öldrun- ardeild Borgarspítalans, nú síðast á Heilsuverndarstöðinni við Bar- ónsstíg. Hulda mín óttaðist ekki dauðann. Hún var oft búin að tala um hann. Hún hlakkaði til að hitta móður sína og föður, systkini og aðra ást- vini, en það var hún sannfærð um að yrði þegar hún sjálf hyrfi yfir móðuna miklu. Hún kvaddi á einu því sólríkasta sumri er ég man eftir. Þegar allt stendur í blóma og grósku, í annars hörðum heimi. Það eru eflaust blóm og mildi þar sem hún er nú. Hvíli elsku frænka mín í friði. Blessuð sé minning hennar. Olga Þorleifsdóttir t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, miðvikudag- inn 22. ágúst kl. 14.00. Sigurgeir Jóhannsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Ásdís Jóhannsdóttir, Vignir Jónasson, Fríða Dóra Jóhannsdóttir, Gunnlaugur Axelsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og tengdadóttir, JÓHANNA JÓHANNESDÓTTIR, Álakvísl 67, verður jarðsungin frá Langholtskirkju miðvikudaginn 22. águst kl. 15. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu. minn- ast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélag íslands.4 Vilhjálmur Reynir Sigurðsson, Sigurður Jón Vilhjálmsson, Auður Vilhjálmsdóttir, Áslaug Magnúsdóttir, Guðmundur Skúli Kristjánsson Jóhannes Jóhannesson, Petrína Steindórsdóttir, Sigurður Runólfsson, Fjóla Ágústsdóttir. t Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, GEIRFRÍÐAR JÓELSDÓTTUR, Breiðumýri, Reykjadal. Björg Arnþórsdóttir, Sigtryggur Jósepsson, Hörður Arnþórsson, Gréta Guðmundsdóttir, Örn Arnþórsson, Svanborg Dahlmann. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför, PÁLS ÞORSTEINSSONAR, á Hnappavöllum. Guðrún og Sigurður, Ásdís, Gunnþóra og fjölskyldur. t Þökkum hlýhug og samúð við andlát og útför, GESTS KRISTJÁNSSONAR bónda frá Múla. Sérstakarþakkirtil lækna og hjúkrunarfólks sjúkrahúss Húsavíkur. Guð blessi ykkur. Heiðveig Sörensdóttir og vandamenn. t Við þökkum hjartanlega þann mikla hlýhug sem við urðum aðnjót- andi við fráfall og útför okkar kæra, ÓSKARSJ. ÞORLÁKSSONAR, Aragötu 15. Sérstakar þakkir til prestanna sem báru hann úr kirkju, sóknar- nefndar Dómkirkjunnar fyrir myndarlega minningargjöf í Líknar- sjóðinn, kvennanna í kirkjunefndinni fýrir blómaskreytingar á altar- ið, Marteins Hunger Friðrikssonar organista og síðast en ekki síst til séra Hjalta Guðmundssonar. Guð blessi ykkur öll. Elísabet Árnadóttir, börn, barnabörn og barnabarnabarn. ■■4 t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS BEKK ÁGÚSTSSONAR, Skipasundi 80, Reykjavík. Sérstakar þakkir tii allra' þeirra, sem veittu aðstoð í veikindun hans. Rósa Jónsdóttir, Sigursveinn Sigurðsson, Jónina Jonsdóttir, Guðjón Rögnvaldsson, Hólmfríður Jonsdóttir, Einar Karl Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. / t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er með samúð og vináttu studdu okkur við andlát og útför ÓLAFS ÖNUNDSSONAR, Kársnesbraut 75, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítalans. Bergþóra Magnúsdóttir, Sigurður Ólafsson, Þuríður Jónsdóttir, Anna R. Sigurðardóttir, Helga H. Sigurðardóttir, Ýrr Sigurðardóttir, Sif Sigurðardóttir og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför VIKTORS ÞÓRÐARSONAR. Guð blessi ykkur öll. Karl Þórðarson og Svava Guðmundsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar VILBORGAR SÆMUNDSDÓTTUR, Lágafelli, Austur Landeyjum. Guð blessi ykkur öll. Hólmfríður Finnbogadóttir, Magnús Finnbogason, Guðrún Árnadóttir og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.