Morgunblaðið - 26.08.1990, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 26.08.1990, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990 C 3 Sigríður Einars- dóttir — Minning Fædd 3. október 1921 Dáin 6. ágúst 1990 Sigríður var borin til hinstu hvíldar 14. ágúst. Hun fæddist á Húsum í Ásahreppi í Rangárvalla- sýslu á því heimili sem foreldrar hennar hófu sinn búskap á. Foreldrar hennar voru þau Einar Gíslason bóndi og Guðbjörg Snorra- dóttir. Hún var næstyngst 5 systk- ina. Steinn Einarsson elsti bróðir hennar lézt fyrir u.þ.b. tveimur árum. Hin systkini hennar eru lif- andi lífs í þessu lífí. Þau eru Mar- grét, Óskar og Ágústa og ber ég þeim beztu samúðarkveðjur og einnig að þau haldi vel um minn- ingu systur sinnar. Sigríður Einarsdóttir giftist Ein- ari Ágústssyni stórkaupmanni í Reykjavík árið 1941. Hann var ættaður fra' Sauðholti í Ásahreppi í Rangárvallasýslu og ekki mjög svo langt frá Húsum. Eftir að kynni þeirra hófust, fluttu þau til Reykjavíkur og bjuggu á Nönnugötu 1, þar sem elsta barn- ið þeirra sá dagsins ljós: María Ágústa, sem er fædd 1942. Síðan litlu seinna skaut ég upp kollinum hjá hinni fámennu fjöl- skyldu 1944 á fæðingardeild Lands- pítalans. Nokkrum árum seinna keyptu þau Skólavörðustíg 24. Þar man ég eftir mér fyrst og gleymi aldrei árunum þar, en það sem mér er minnisstæðast, er þegar faðir minn tók mig með aðeins 5 ára upp á spítala og lifti mér að sérstökum glugga og sagði, að ég væri búin að eignast systur. Þetta gerðist 1950 og þó ég hafí bara verið á sjötta aldursári. bá man ée' samt (SauknecTit ÞÝSK GÆÐATÆK) Á GÓÐU VERÐI ■■ j 0SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VIÐ MIKLAGARÐ & KAUPFÉLÖGIN að ég var himinglaður að sjá mína dökkhærðu systur gegnum glerið og þá vorum við systkinin orðin þijú. Hún hlaut nafnið Guðbjörg sem er alveg indælis nafn, enda ber hún það með réttu. Sigga eins og allir kölluðu hana, nema auðvitað við börnin, var fædd til að sjá um manninn sinn, Einar Ágústsson, bömin sín og heimilið. Allt var í röð og reglu, og meira en það, því hún hafði allt þannig að ekki sást ryk neins staðar, eins og það er fljótt að koma, sem sagt allstaðar strokið hjá Siggu, fágað og fínt og meira að segja glansandi á þeim þrem heimilum sem þau áttu. Áður en við fluttum frá Skóla- vörðustíg 24, þá bættist eitt barn í hópinn 1959 og við börnin orðin 4 á Skólavörðustíg 24. Hann var skírður Ágúst og kom flestum á óvart, því það var reiknað með því að við systkinin yrðum ekki fleiri en þrjú. Eg lifnaði allur við að eignast loksins bróður. Ég var auðvitað ánægður og himiniifandi, eins og gefur að skilja, þar eð ég átti tvær systur og engan bróðir. Sigríður eignaðist 11 barnabörn og 2 barna- bamabörn. Frá Skólavörðustíg 24 fluttum við í Safamýri 65. Það var árið 1963 og þar held ég að hún hafi eignast sitt örlaga- og bezta heim- ili, enginn vafi og algjör staðreynd. Hjónaband Sigríðar og Einars geislaði af hamingju, allt frá byijun og til endaloka, alveg eins og skínandi eilífðar stjarna, og stjarna þeirra mun skína um ókomna framtíð til allra sem þekktu þau. Móðir mín átti við ýmis veikindi að stríða og lagaði það ekki málin, að faðir minn, Einar Ágústsson, dó mjög svo skyndilega á aðfangadag jóla 1983 úr kransæðastíflu, sem ekki var hægt að bjarga á einn eða annan hátt. Að lokum segi ég það, sem sonur hennar, að dauðastríð, þarf hún ekki að endurtaka í þessu lífi, sem betur fer, sem hún háði mánuðum saman. Enginn maður hér á jörð kemur lifandi úr sínu lífi, en sál hvers og eins alla tíð mun lifa, og ég hef töluvert meira en orðið fyrir því. Ég bið hið æðra afl, að sjá um að hún fái ekki fleiri þjáningar. Hásæti hennar verður autt um öll ókomin ár. Ég kveð kæra móður mína, megi alheimskraftur styrkja ástvini, sem munu alltaf minnast hennar og blessa minningu hennar. Einar Sverrir Einarsson verð með Veröld til Costa del Sol íhaust - Aðeins 34 sæti á þessum kjörum - Veröld býður þér einstök kjör á frábærum gististað þann 6. september í 2 eða 3 vikur. Sunset Beach íbúðarhótelið er heill heimur útaf fyrir sig með tveimur sundlaugum, veitingastöðum, líkamsrækt og glæsilegum íbúðum, öllum með loftkælingu. Costa del Sol Þann 6. septemberr á Sunset Beach í íbúð með einu svefnherbergi. Kr. 41.000,-* Kr. 50.050,-* * Hjón með 2 börn, 2-5 ára. ** 4 í íbúð. Benidorm Þann 6. september á Los Gemelos íbúðar- hótelinu í íbúð með 1 svefnherbergi. Kr. 41.050.-* Kr. 59.600,-* .** * Hjón með 2 börn, 2-5 ára. ** 2ííbúð. HK e AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVÍK. SÍMI: (91) 622011 & 622200.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.