Morgunblaðið - 26.08.1990, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990
C 7
við ákváðum að setjast um kyrrt
var ég stundum spurður hvort það
væru ekki viðbrigði að flytja í
sveit. Búa við einangrun á vetrum,
myrkur og kulda. En hvað ætli mér
hafi brugðið við. Ég hafði verið á
togurum árum saman og komið þar
sem kuldalegra var og kynnst ösku-
veðrum sem aldrei eru hér. Jú,
Skúli þótti góður bóndi á sínum
tíma. Það var stuð á honum, karlin-
um, og framsýnn hefur hann verið.
Hann lét virkja gilið hérna fyrir
ofan og munaði um það, ekkert rík-
israfmagn var væntanlegt í bráð-
ina. Við hjónin og tengdaforeldrar
mínir bjuggum félagsbúi í fyrstu
og ég keypti strax kindur. Svo lent-
um við í hænsnabylgjunni um tíu
ára skeið eða þangað til vitleysan
var að komast í algleyming. Það
var engu líkara en þjóðarheill ylti
á að neytendur gætu étið egg und-
ir framleiðsluverði. Eftir að svo var
komið varð niðurstaða okkar sú að
þegar hænurnar væru hættar að
skila okkur tekjum þá væri ekki
um neitt annað að ræða en skera
þær. Við vorum tímanlega í því og
sluppum en sumir fóru alveg á
hausinn af því þeir voru að þrjósk-
ast við að hanga í þessu.“
au Einar og Sigríður hafa eign-
ast átta börn og fjögur þeirra
hafa lært búfræði. Hann segir
að fjölskyldan hafi alltaf unnið sam-
an að búskapnum og segir að það
kosti ekki mikið að ala börn upp í
sveit svo fremi að það sé hægt að
fá þeim störf sem skipta einhverju
við búskapinn.
Svo segist hann ætla að búa til
kaffi handa okkur og ber með dýr-
indis kleinur. Ég spyr hvort hann
sé kannski myndarlegur í húsverk-
um fyrir utan að vera góður bóndi.
„Nei, ég held nú ekki! Ég fékk al-
veg hroðalegt uppeldi, veistu. Ég
gat ekki svo mikið sem burstað
skóna mína. Fóstra mín gerði allt
og það þótti sjálfsagt. Hún hefði
ekki kært sig um að ég væri að
fíkta í skápunum hennar. Mér var
rétt allt upp í hendurnar. Maður
kom af sjónum og hallaði sér og
fóstra sá um að föt væru í lagi.
„Þaðerekki
mikiðafreknú
til dags að
verða sextugur
með þessa heil-
brigðisþjón-
ustu.“
„Éghefði
ábyggilega lent
íatvinnu-
mennsku ef ég
hefði sinnt fót-
boltanum leng-
ur. Þvígæti ég
besttrúað.“
Hún var á sínum stað og það
heyrði ekki til að karlmenn væru
að eiga við heimilisstörf og átti
ekkert skylt við fordóma. Við vönd-.
umst þessu svona og því var ég
vitanlega stórlega vanhæfur þegar
að því kom að sýsla á heimili seinna
meir. Konan mín hefur alltaf séð
um þetta en ég gæti sjálfsagt lært
svona eitthvað. Þessi gagnrýni á
karlmennina fer út í öfgar stundum.
Hveijar ólu upp þessar voðalegu
karlrembur? Nema konur! Það þýðir
ekki bara að bölva köllunum í sand
og ösku. Ég er ekki feiminn að við-
urkenna að það var þægilegt að fá
svona uppeldi og það hefur orðið
svo hjá okkur að konan hefur séð
um innistörfin. En það fór nú aldr-
ei svo að ekki síaðist eitthvað inn.
Ég hita kaffi nú orðið og fínnst það
ekki mikið afrek. Og þegar konan
fer suður þá tek ég alltaf vel til
daginn áður en hún kemur heim.
Svo hefur borið við að hún hefur
frestað heimkomu og þá sámar mér
nú. Jú, þá þarf ég annaðhvort að
taka aftur til eða læðast um og
ganga svo vel um að hvergi sjáist
blettur né hrukka!"
Einar segist ekki hafa gefíð sig
mikið að félagsmálum í Laxárdal
en hann sat þó í hreppsnefnd í nokk-
ur ár. Hann gerir ekki mikið með
það. „Stundum les maður í minning-
ar- eða afmælisgreinum að þessi
eða hinn hafi setið í hreppsnefnd,
ráðum eða stjómum svo árum skipt-
ir. Þetta þykir afskaplega merki-
legt. En það segir bara ekkert um
hvort þessir sömu menn gerðu eitt-
hert gagn, hvort þeir fengu ein-
hveiju áorkað. Ég get ekki neitað
því, mér fínnst stundum hallæris-
legt þegar menn em að stæra sig
af þessu. Mér fínnst ekkert sérstakt
við það heldur þó menn vinni þau
verk vel sem þeir taka að sér.
Stundum hugsa ég að það sé grát-
legt hvað illa maður hefur farið
með tímann. Það er alltaf verið að
þjóna þessum skælda hagfæti og
menn meta ekki neitt til verðmæta
nema hægt sé að pota því inn í
tölur."
Sem fyrr er sauðfjárbúskapur í
öndvegi á Lambeyrum og þeir
Daði, elsti sonur þeirra Sigríðar
og Einars, reka búið saman og
hafa 767 ærgilda fullvirðisrétt. Svo
hafa þeir keypt sér tíu Galloway-
kvígur frá Gunnarsholti því það
þarf ekki að hafa fullvirðisrétt af
nautgripunum. Þeir hugsa sér að
sjá hvernig þetta kemur út en það
tekur sinn tíma.
Ertu efnaður maður?
„Nei, mig hefur skort kjark til
að verða ríkur. Svo er líka spuming-
in hver er ríkur og hver ekki og
hvaða mælikvarða menn leggja á
það. Maður hefur fyrir sig. Eg hef
ekki orðið ríkur af búskapnum en
sá bóndi sem getur hagrætt og
unnið við þokkaleg skilyrði getur
haft í sig og á. Ég hef aldrei verið
mjög peningalega sinnaður en mað-
ur getur búið sér og sínum gott líf
þó ekki sé safnað í digra sjóði. Ég
hef aldrei búið í verðbólguþjóðfélag-
inu því ég setti allt í reksturinn og
fjárfesti ekki fyrr en hann var á
kláru. Það var okkur ávinningur.
Mín heimatilbúna verðtrygging."
Við tölum um menntun og breytt
viðhorf og fyrr en varir er Einar
kominn á flug. „Fyrir mann sem
er uppalinn í Verkó og var síðan á
sjónum fínnst mér oft blasa við að
„Mér hefurallt-
af verið heldur
vel við Stalín
kallinn ojg Sov-
étríkin. Eg er
alinn upp í
Dannig um-
iverfi að mér
finnst ég skulda
þeim að bregð-
ast þeim ekki.“
„Ég hef aldrei
búið íverð-
bólguþjóðfé-
laginu þvíég
setti allt í rekst-
urinn.“
fólk sem gengur menntaveginn nú
þekkir ekki grunn síns þjóðfélags.
Raunverulegur heimsborgari og
menntamaður er sá einn sem er
jafn innan um allar stéttir hvort
heldur er meðal hefðarmanna svo-
kallaðra eða venjulega fólksins. Ég
vil ekki sjá þessa tillærðu kurteisi
sem sumir kalla „að vera alþýðleg-
ur“. Þá hefur menntunin farið fyrir
lítið.“
Ég hef heyrt að þú sért aðdáandi
Stalíns heitins.
„Æ, já, mér hefur alltaf verið
heldur vel við hann og Sovetríkin.
Ég ólst upp í þannig umhverfí að
það voru allir á kafí í verklýðsbar-
áttu. Af hugsjón. Mér finnst ég
skulda þessum köllum að yfírgefa
ekki þeirra hugsjónir."
Einhver gaukaði því að mér þú
hefðir þótt liðtækur í fótbolta.
Hann lyftist af kæti. „Já, ég spyr
ekki að. Eftir að bókin um Ja-
kann kom út sl. ár hafa menn
verið að tala af léttúð um minn
knattspyrnuferil. Af hveiju ? Það
er mynd af mér í þeirri bók með
einhveiju liði og mönnum hefur lík-
lega ekki fundist ég íþróttamann-
lega vaxinn nú orðið. En ég æfði
af kappi fram að 16 ára aldri, þá
var allt farið að dreifast hjá
manni. Ég hefði ábyggilega lent í
atvinnumennsku ef ég hefði sinnt
fótboltanum lengur. Því gæti ég
best trúað. Mér finnst alltaf afskap-
lega gaman að fótboltanum, margt
fallegt sást í heimsmeistarakeppn-
inni en ég hefði viljað að Kame-
rúnar kæmust enn Iengra.“
Það eru góðir hestar á Lambeyrum
enda börn þeirra Einars og Sigríðar
gefín fyrir hesta mennsku. Sjálfur
segist hann aldrei hafa farið ótil-
neyddur á hestbak. „Helst til að
lemjast á í Ieitum. Ég var líka kom-
inn á fertugsaldur þegar ég settist
fyrst á þessa grasknúnu rassnudd-
ara eins og Steinólfur í Fagradal
kallaði þá. Hann kunni að koma
orðum að því, Steinólfur, sem hann
vildi sagt hafa. Jæja, hvernig væri
að endurnýja kleinubirgðirnar og
fá sér annan uppáhelling.“ Og það
gerðum við.
WHÍ
Sérnámskeió
Rock ’n ’Roll, Boogie og Tjútt. íslandsmeistararnir Jói og María kenna. Byrjendur og framhald.
Pör og einstaklingar
Samkvæmisdansar, gömlu dansarnir, Rock og tjútt. Byrjendur og framhald.
Aih!
Gestakennarar skólans fyrirjól eru Geoffrey og Diana Hearn og heimsmeistararnir í
suóur-amerískum dönsum, Corky og Shirley Ballas.
Innritun isímum: 31360 og 656522 frá kl. 13-19 daglega.
Kennslustaóir: Ath! Nýtt kennsluhúsnæði íSkeifunni 1 1B, 2. hæó, Skeifunni 17, 3. hæó,
KR-heimilinu v/Frostaskjól, Tónabæ og Geróubergi í Breiðholti.
Caróabær: Garðalundur (laugardagskennsla).
Kennsla hefst 10. sept.
Kennslutíminn fyrirjóleru 14 vikur og jólaball.
F.Í.D. D.Í.
Raðgreiðslur.
NÝTT - NÍTT
„Soca-Dance“
fyrir börn, unglinga og
hjón. Sértímar + kennt
með öðrum dönsum.
NYTT - NYTT
Vouge - hip hop -
funk diskó jazz og
freestyle.
Meiriháttar
nýirdansar.
10-12 ára,
13-15 ára
16ára og eldri.
BJMSSKÓLI iUMR HIRALDS