Morgunblaðið - 26.08.1990, Side 16

Morgunblaðið - 26.08.1990, Side 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. AGUST 1990 KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KSI Barist um bikarinn Valsmaðurinn Þorgrímur Þráinsson og KR-ingurinn Ragnar Margeirsson eigast við í leik liðanna í deildinni í sumar. Leikur liðanna í dag hefur mikla þýðingu enda bikarinn í húfi. KR-ingar eiga möguleika á að ná honum í áttunda sinn, eftir 23 ára bið, en Valsmenn stefna að sjöunda sigri sínum. Til hliðar má sjá líkleg byijunarlið en vegna meiðsla gætu orðið töluverðar breytingar, einkum hjá Valsmönnum. Jóhann Lapas Hilmar Bjömsson SPURT ERI Hvernig fer bikarúrslitaleikurinn og hvers vegna? Sigurlás Þorleifsson Ég hef trú á því að KR- ingar vinni, fyrst og fremst vegna þess að þeir hafa betri leikmenn. Þeir eru sterkari á pappírnum, þó það sé auðvitað ekki öruggt veganesti. Þeir hafa Atla, Pétur og Rúnar og Raggi Margeirs virðist vera í góðri æfingu. En það er spurning hvort vörnin nær saman hjá þeim. Mér virtist þegar við spiluðum við Valsarana að þeir væru ekki með eins öflugt lið og maður hafði ímyndað sér. Bo Johansson Ég hef ekki hugmynd um það, í bikarúrsiitum getur allt gerst. Held þó að hvort lið hafa forskot á ákveðn- um sviðum en það er auð- vitað slæmt fyrir Val að Sævar skuli vera í banni. Valsmenn eru með fleiri leikmenn meidda, en hafa reyndar verið það í sumar og samt leikið vel. Ég held að leikurinn verði jafn og ekki mörg mörk skoruð. Bæði lið hugsa efiaust vel um vörnina. Erlingur Kristjánss. Ég hef nú ekki spáð mikið í leikinn en á frekar von á að KR-ingar sigri. Þeir eru með gott lið og hafa leikið vel í sumar.Ég hef ekki haft mikla trú á V alsliðinu í sumar, þrátt fyrir að því hafi gengið vel, og held að það sé brothættara. KR- ingar hafa ekki náð bikar lengi en það hlýtur að koma að því og ég held að þeir eigi ágætt tækifæri núna. Karl Þórðarson Ég spái Val sigri, en held að leikurinn verði jafn. Það er mikið af jöfnum og góð- um leikmönnum. Valsarar eru ekki eins stjörnum prýddir en þá á eftir að þjappa þeim saman. Það er áfall fyrir þá að missa Sævar en einhver annar fær þá tækifæri og oft er það svo að menn gera góða hluti í þeirri stöðu. Ég held að Valsmenn séu móralsk- lega sterkari og spá þeim sigri, 2:1. Friðrik Friðriksson Ég hef trú á að KR vinni og byggi það aðallega á því að í liðinu eru reyndari leikmenn. Það eru margir mjög góðir ungir leikmenn í Val en þeir haf a ekki sömu reynslu og KR-ing- arnir og ég held að það vegi þungt. Þá kemur það til með að veikja Valsliðið mikið að Sævar skuli ekki vera með, sérstaklega vegna þess að KR-ingarnir spila frekar einfaldan sókn- arleik; gefa mikið af háum sendingum inn í teig. Asgeir Elíasson Mér finnst eiginlega ekki hægt að spá. Ég held að þetti verði jafn leikur, gæti jafnvel farið í framleng- ingu, og vona að hann verði skemmtilegur. Valsmenn vantar náttúrlega Sævar, en maður kemur í manns stað. Liðin hafa spilað ólíkt í sumar; Valsmenn af meiri krafti en KR-ingar, en KR-ingar eru með reynda menn og framherja sem hafa skorað reglulegar en framheijar Vals.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.