Morgunblaðið - 26.08.1990, Page 17

Morgunblaðið - 26.08.1990, Page 17
B-lið KR er eina liðið utan deilda sem leikið hefur til úrslita. Árið 1968 sigraði liðið íslandsmeist- ara KR og lið Vals en tapaði fyrir ÍBV í úrslitaleik 1:2. Fjórum árum áður hafði B-lið KR slegið út ís- landsmeistara ÍBK í bikarkeppn- inni. Ingi Björn Albertsson á mögu- leika á að ná þriðja bikarmeistar- atitli sínum í dag. Hann varð meist- ari með Val 1976 og 77 sem leik- maður og á möguleika á þriðja titl- inum í dag, nú sem þjálfari. Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, hefur sex sinnum orðið bikarmeistari, ijórum sinnum sem leikmaður og tvisvar sem þjálfari. KR-ingurinn Pétur Pétursson hefur skorað í öllum þremur bikarúrslitaleikjum sínum. Fyrst 1971 er hann gerði sigurmark ÍA gegn Val, en það var fyrsti sigur IA eftir átta misheppnaðar tilraun- ir. Pétur gerði svo bæði mörk ÍA í 2:1 sigri á Fram 1986 og eina mark KR er liðið tapaði fyrir Fram 1:3 í fyrra. Atli Eðvaldsson lék með Val gegn Sigurði Björgvinssyni og Ragnari Margeirssyni í ÍBK 1988. Nú eru þeir hinsvegar allir komnir í KR. Ragnar sker sig nokkuð úr en hann hefur leikið til úrslita gegn KR og Val, með Fram og ÍBK. Ragnar Margeirsson leikur í dag í sjötta sinn til úrslita. Hann lék rneð ÍBK 1982 er liðið tapaði fyrir ÍA 1:2 og 1985 í tapi gegn Fram 1:3. Hann var í sigurliði Fram 1987 er vann Víði 5:0 en lék aftur með ÍBK 1988 og tapaði þá fyrir Val 0:1. Hann náði svo öðrum sigri sínum í fyrra er Fram vann KR 3:1. Hann verður eini leikmaðurinn sem leikið hefur með þremur liðum í bikarúrslitum. Urslitaleikurinn í dag er sá 31. í röðinni. Alls hafa tólf lið leik- ið til úrslita og í leikjunum 30 hafa verið gerð 100 mörk. Fyrsta mark- ið gerði Gunnar Guðmannsson fyrir KR 1966 og það 100. Guðmundur Steinsson fyrir Fram. Reykjavíkurfélögin ijögur hafa sigrað í 20 af 30 úrslitaleikjum bikarkeppninnar. KR (7), Fram (7), Valur (5), og Víkingur (1). Félögin af landsbyggðinni hafa sigrað tíu sinnum ÍA (5), ÍBV (3), IBK (1) og ÍBA (1). Skagamenn gerðu margar mis- heppnaðar tilraunir áður en þeir náðu loks að sigra í bikar- keppninni 1971. Helgi Daníelsson var markvörður liðsins í fyrstu til- raununum og eftir fjóra bikarúr- slitaleiki hafði hann fengið á sig 17 mörk. Leikurinn í dag er önnur viður- eign KR og Vals í úrslitum. Liðin léku 1966 og þá sigruðu KR-ingar 1:0. Valsmenn hafa sigr- að í fimm af átta úrslitaleikjum sínum en KR-ingar í sjö af níu til- raunum. Ingi Björn Albertsson og Atli Eðvaldsson gerðu mörk Vals í 2:1 sigri gegn Fram 1977. Þeir mætast í dag, Atli sem leikmaður KR en Ingi Björn sem þjálfari Vals og aðeins annar þeirra fagnar sigri. Tveir leikmenn hafa náð bikar- meistaratitli með tveimur fé- lögum. Guðgeir Leifsson með Víkingi 1971 og Fram 1973 og markvörðurinn Guðmundur Bald- ursson með Fram 1979-80 og Val 1988. Þrír KR-ingar eiga mögu- leikja á að bætast í hópinn, Atli Eðvaldsson (Val), Pétur Pétursson (IA) og Ragnar Margeirsson (Fram). MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990 C 17 Auðveldara, • fljótíegra og hagkvæmara! IBESTAI Nýbýlavegi 18 Sími 641988 HÆTTID AD BOGRA VID bHIFIN! N ú fást vagnar méð nýrrí vindu par sem moppan er undin með éinu handtaki án pess að taka purfi hana afskaftinu. Moppan fer alveg inn í horn og auðveldlega undir húsgögn. Einnig er hún tilvalin í veggjahreingerningar. Þetta pýðir auðveldari og betri prif. í LEIT AÐ SKÓLASTEFNU Á UNGLINGASTIGI KENNARAR! 29. ÁGÚST 30. ÁGÚST Dagskrá í RéHarholtsskóla í Reykjavik dagana 29., 30. og 31. ágést kl. 13-17 Hvers konar kennsluhættir henta best á unglingastigi? Hvernig viljið þið hafa námsskipulagið? Hvað er mikilvægast að kenna nemendum? Hvers konar samskipti við nemendur teljið þið æskilegust? Umræðuefni: Skólastarf á unglingastigi - skipan i bekki. Röðun í bekki eftir getu/þörfum. Er röðun æskileg - ill nauðsyn - eða ber að forðast hana? Hvaða grundvallarsjónarmið ættum við að hafa að leiðarljósi við skipan í bekki? Framsöguerindi flytja: Haraldur Finnsson, Réttarholtsskóla, Agla Snorradóttir, Snælandsskóla, Jóhanna Axelsdóttir, Víðistaðaskóla, Guðrún Geirsdóttir, Grundarskóla, Ragnar Gíslason, Garðaskóla, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Laugalækjarskóla. Umræðuefni: Námsgreinin - nemandinn. - Rætt verður um kunnáttu, vinnubrögð, kröfur og tengsl nemenda og kennara. Hvaða grundvallarkunnátta er nauðsynleg nemendum okkar? Skiptir mestu að nemendur læri ákveðin vinnubrögð? Framsöguerindi flytja: Hannes Sveinbjörnsson, Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands, Guðný Ýr Jónsdóttir, Árbæjarskóla, Auður Hauksdóttir, Flensborgarskóla, Ágúst Pétursson, Fellaskóla, Jón Guðmundsson, Hallormsstaðaskóla og Gunnar Ásgeirsson, Réttarholtsskóla. Umræðuefni: Skólastarf á unglingastigi. Nemandinn - kennarinn - skipulagið. Réttur unglingsins til náms/ kennslu. Ábyrgð skóla - ábyrgð heimilis. Uppeldishlutverk skólans - félagsleg samskipti í bekk. Hver er stefna menntamálaráðuneytisins? Framsöguerindi flytja: Gerður G. Óskarsdóttir, menntamálaráðuneytinu, Unnur Halldórsdóttir, SAMFOK, Sólveig Ásgrímsdóttir, Barna- og unglingageðdeild Land- spítalans, Helga Sigurjónsdóttir, Menntaskólanum í Kópavogi og Reynir Daníel Gunnarsson, Ölduselsskóla. Umsjón dagskrárinnar: Arthúr Morthens frá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, Guðrún Ebba Ólafsdóttir frá Kennarasambandi íslands, Haraldur Finnsson frá mennta- málaráðuneytinu, Ragnhildur Bjarnadóttir frá Kennaraháskóla Islands og Sigríður Einarsdóttir frá Kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar. Alla dagana verða fflutf slutl framsöguerindi, umræður verða í hópum og pallborðsumræður í lokin. Ekki þarf að tilkynna þótttöku. 31.ÁGÚST Allt frá stuttum orðsendingum til Ijósmynda Sendir A4 síðu á aðeins 17 sekúndum Panafax UF-130 10 númera skammvalsminni Verö kr. 84.105 Stgr. kr. 79.900 Panafax UF-140 70 númera skammvalsminni Sjálfvirkt endurval Verö kr. 94.631 — Stgr. 89.900 Panasonic Tímanna tákn! iTÆKNIVAL SKEIFUNNI 17 • 108 R. • S. 681665/687175

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.