Morgunblaðið - 26.08.1990, Side 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990
KVIKMYNDAKLÚBBURINN
KVIKMYNDIR
Hver erþróunm á bíómarkabnum?
Mel Gibson reynir að fá innfædda ofan
af því að drepa félaga sinn (Robert Dow-
ney jr.) í „Air America“.
AMERÍSKA
FLUGFÉLAGIÐ
NÝJASTA Mel Gibson-myndiu heitir „Air Amer-
ica“ og gerist í Víetnamstríðinu en henni er leik-
stýrt a f hasarrnanninum Roger Spottiswoode
(„Shoot to Kill“). Myndin segir í svart-kómískum
ævintýrastíl frá heldur villtum flugmönnum sem
flugu fyrir CIA í stríðínu með aJlt. frá hrísgijón-
um til 100 prósent ópíums í farangrinum.
Mei og Robert Dow-
ney jr. leika tvo af
þessum ftugmönmim og
David Bowie kemur einn-
ig við sögu. Handritshöf-
undurinn John Eskow vill
að það komi skýrt fram
að „Air Ameriea" er ekki
enn ein Víetnammyndin.
„Hún er skemmtun fyrir
alla fjölskylduna með
grini og sprengingum.“
Og: „Þú þarft ekki að
vera kommúnisti . til að
hún falii þér í geð.“
Fyrir fimm árum rakst
Ieikstjórinn Richard Rush
(hin l'rábæna en litt séða
„The Stuntman") á bók-
ina „Air America“ og
hann sá hana fyrir sér í
bíó sem fyrstu gaman-
myndina um Víetnam.
Carolco keypti handrit
hans og hann átti að leik-
stýra með Sean Connery
í hlutverki eldri flug-
mannsins en Kevin
Costner skyldi leika þann
yngri. Costner var svo
lengi að ákveða sig að
Rush rnissti titilinn
„fyrsta gamanmyndin um
Víetnam" til Robin Will-
iams-myndarinnar „Good
Morning, Vietnam".
Skömmu sfðar var
Rush fenginn ofan af því
að leikstýra og Bob Rafa-
elson kom í staðinn með
nýjan handritshöfund,
Eskow, og nýja menn í
hlutverkin. Thailand várð
fyrir valinu sem tökustað-
ur en Rafaelson gafst upp
á að bíða eftir að löngu
og ströngu verkfalli
handritshöfunda lyki og
hætti við. Spottiswoode
var íenginn í staðinn,
Gibson og Downey voru
ráðnir ásamt aukaleikur-
um og heila liðið lenti í
Thailandi fyrir rúmu ári
þar sem allt gekk loks
að óskum.
GAjVIANMYIMD
MURRAYS
BANDARÍSKI grinarinn Bili
Murray hefur leikstýrt sinni
fyrstu mynd (hann gerirþað
í samvinnu við Howard
Franklin), en hún heitir „Qu-
ick Change“ og er með Geena
Davis, Randy Quaid og Jason
Robards í aukahlutverkum;
Murray fer auðvitað sjálfur
með aðalhlutverkið.
„Quick Change“ er gaman-
mynd um ósköp venjulegan
New York-búa sem einn dag-
inn klæðist trúðafötum og
rænir banka, en á leiðinni
út á flugvöll lendir hann í
vondum málum.
Murray hiýtur að hafa haft al-
veg sérstakan áhuga á mynd-
inni því á undanförnum árum
hefur hann hafnað aðalhlut-
verkum í myndum eins og
Nomunum frá Eastwick, Regn
manninum og Batman.
Murray og
Davis;
bankarán.
Farsýningar og
krabbaskrímsli
Fi
jórða sýningartímabil
Kvikmyndaklúbbs íslands
hófst með nokkuð skemmti-
legum hætti fyrir skömmu
með útisýningu í bakgarði
veitingastaðarins N1 á
Klapparstíg á myndinni
Rokksvindlið mikla eða „The
Great Rock’n’Roll Swindle“
um bresku pönkhljómsveit-
ina_„Sex Pistols".
Útisýningin er nýmeti sem
klúbburinn ætlar að leggja
áherslu á í vetur en það eru
svokallaðar farsýningar á 16
mm myndum. Verða þá
myndir sýndar á stöðum sem
þykja eiga við innihaldið í
það og það skiptið. Að auki
verða fastar bíósýningar í
Regnboganum eins og verið
hefur og hófust þær í gær á
mynd Leos Carax, „Mauvais
Sang“ eða Spillt blóð en hún
verður sýnd aftur á morgun,
mánudag.
í september verður önnur
farsýning en nú með erótísku
yfirbragði því sýndar verða
nokkrar erótískar stutt-
mjmdir að utan sem splæst
er saman í eina 84 mín.
mynd. Önnur farsýning gæti
orðið á „When the Wind
Blows“ en það er óráðið enn
hvort hún og aðrar 16 mm
komi, að sögn Guðmundar
Karls Björnssonar í undir-
búningsnefnd klúbbsins.
í október verða sýndar
myndir eftir danska leikstjó-
rann Carl Theodor Dreyer
en þær eru Jóhanna af Örk,
Vampíran, Orðið og Dagur
reiðinnar.
Guðmundur Karl sagði að
unnið væri að því að fá
myndir eftir Finnana Aki og
Mika Kaurismaki á klúbb-
sýningar en ef af verður yrðu
þær sýndar öðruhvoru megin
við áramótin. Einnig er í ráði
að fá myndirnar „Drowning
by Numbers" eftir Peter Gre-
enaway, „Jesus of Montreal"
eftir Denys Arcand og
„Swimming to Cambodia"
eftir Spalding Grey.
Þá nefndi Guðmundur að
ætlunin væri að fá til sýninga
nokkrar frumstæðar banda-
rískar B-vísindahrollvekjur
frá fimmta og sjötta ára-
tugnum eins og Krabba-
skrímslið og þess háttar.
Dreyer;
íjórar myndir í Klúbbnum._
IBIO
Það hefur lítið farið
fyrir myndum fyrir
vandláta í bíóunum að
undanföniu, eins og
minnst var á hér í síðasta
dálki, en biðin eftir þeim
verður styttri en þá var
talað um, því Háskólabíó
mun sýna nokkrar gimi-
legar með haustinu.
Fyrsta er að nefna nýj-
ustu mynd Peters Gre-
enaways, „The Cook, the
Thief, the Wife and Her
Lover,” sem lenti í úti-
stöðum við bandaríska
kvikmyndaeftirlitið. Þá
kemur nýjasta mynd Pet-
ros Almodóvars, „At-
ami!“, einnig nýjasta Wo-
ody Allen-myndin, „Cri-
mes and Misdemeanour,”
og mynd undramannsins
Kenneths Branaghs,
„Henry V", að ógleymdri
„Wild at Heart" eftir
David Lynch.
Þá keinur líka sænski
þrillerinn „Kronvittnet” í
Háskóiabíó, en Friðbert
Pálsson bíóstjóri sagði i
samtali að myndum frá
Norðurlöndunum ætti
eftir að fjölga þar í fram-
tíðinni.
AÖsóknin eykst
og myndum fækkar
KVIKMYNDAHÚSAGESTUM í Reykjavík fór fækk-
andi frá árinu 1985 til 1988 en þeim fjölgaði aftur á
síðasta ári. Ástæðu fækkunarinnar á árunum á undan
má eflaust tengja aukinni myndbandavæðingu heimil-
anna og tilkomu nýrrar sjónvarpsstöðvar.
Þess ber einnig að geta að færri myndir eru frumsýnd-
ar með hverju árinu. Þannig voru frumsýndar 229
myndir árið 1985 en aðeins 157 í fyrra. Athyglisvert
er að aðsóknin skuli aukast í fyrra þrátt fyrir að þá
voru fæstar myndir frumsýndar. Það bendir til að
fleiri myndir en áður fái mikla aðsókn og eru sýndar
lengur.
amkvæmt upplýsingum
frá Hagstofu íslands
MNýjasta mynd Philips
Kaufmans (Óbærilegur
léttleiki tilverunnar) er
Henry og June með Fred
Ward og Uma Thurman
í aðalhlutverkunum. Mynd-
in gerist I París á þriðja
áratugnum og segir frá
ástarævintýri rithöfund-
anna Ana'ís Nin og Henry
Millers og leit þeirra að
hinni „fullkomnu ást“.
Reyndar voru þau bæði
í hjónabandi þegar leitin
hófst — en hvað er það
á milli vina?
■ Bertrand Tavernier,
sem gerði hina frábæru og
fallegu „’Round Midn-
ight“, hefur gert mynd
senT heitir á ensku „Life
and Nothing But“ og er
drama um tvær konur í lok
fyrri heimsstyijaldarinnar
og hvemig þær upplifa
dauða eiginmanna sinna og
eyðilegginguna allt í kring.
Philippe Noiret fer með
stórt hlutverk í myndinni.
en hann var síðast sýning-
arstjórinn í Paradísarbíó-
inu.
■/ september verður
frumsýnd vestra nýjasta
bíómynd Adrian Lyne,
Stigi Jakobs eða „Jacob’s
Ladder. Það er sálfræði-
þriller um mann sem tekur
að lifa í eigin ofskynjunum.
Með aðalhlutverkið fer
Tim Robbins.
komu alls 1.176.000 gestir
á þær 157 bíómyndir sem
sýndar voru í Reykjavík árið
1989 en
eins og við
var að bú-
ast voru
flestar
myndanna
banda-
rískar eða
alls 135.
Þetta er
heldur meiri aðsókn en árið
1988 þegar 1.094.000 gest-
ir sóttu Reykjavíkursýning-
arnar en það er minnsta
aðsóknin undanfarin fimm
ár. Mest var hún 1985 en
þá töldust gestirnir vera
1.418.000. Fyrir áratug,
þegar kvikmyndahúsin voru
12 í stað sex núna, var að-
sóknin mun meiri. 1979 og
1980 voru gestir að meðal-
tali 1.727.000 hvort árið.
Þetta þýðir um 40 prósent
fækkun gesta frá byijun ,til
loka áratugarins.
í Hagtíðindum frá því í
október á síðasta ári er
reiknað út að hver landsbúi
hafi farið 5,8 sinnum í kvik-
myndahus árið 1988 en árið
1980 var samsvarandi hlut-
fall talið vera 11,2. Til sam-
anburðar má nefna að árið
1987 töldust Danir fara 2,2
sinnum í bíó hver maður,
Norðmenn þrisvar og Svíar
tvisvar.
Þegar myndunum 157 frá
síðasta ári er skipt niður
eftir þjóðerni kemur í ljós
það sem allir vita að megin-
hlutinn er bandarískur eða
135 myndir en inní þessar
tölur eru ekki teknar með
kvikmyndahátíð Listahát-
íðar og kvikmyndavikur
heldur aðeins almennar sýn-
ingar. Átta myndir komu
frá Bretlandi, sex frá
Frakklandi, tvær frá Dan-
mörku og ein frá Þýska-
landi, Spáni, Júgóslavíu og
Ástralíu.
Fjöldi sæta í bíóum höf-
uðborgarinnar var árið
1985 5.843 en 4.655 í fyrra.
Inní þeirri tölu eru ekki þrír
nýir salir Háskólabíós sem
voru opnaðir á þessu ári
með samtals 713 sæti svo
framboðið er núna 5.368
sæti. Enn er eftir að opna
um 90 til 100 sæta sal í
Háskólabíói.
eftir Arnald
indriðason