Morgunblaðið - 26.08.1990, Síða 21

Morgunblaðið - 26.08.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNÚDAGUR 26. ÁGÚST 1990 C 21 Bubbi tekur upp BUBBI Morthens lauk nýverið við upptökur á næstu breiðskifu sinni sem gefin verður út af Steinari hf. fyr- ir jól og var platan unnin á mettíma. Bubbi vann plötuna með þeim Hilmari Erni Hilmarssyni og Christian Falk, sem hann vann einnig með Nóttina löngu og hljóð- maður var sem fyrr Ken Thomas. Upptökur hófust 30. júlí og 16. ágúst var plat- an tilbúin. Bubbi lýsti ánægju sinni með samstarf- ið, en sagði þetta hafa verið stranga töm. Hann tók sér þó ekki mikla hvíld, því 19. var hann farinn af stað í 33 daga tónleikaferð um landið. Ljósmynd/Björg SveinsdóUir Christian Falk, Hilmar Orn Hilmarsson, Bubbi Morth- ens og Ken Thomas kátir að loknum upptökum. Bless „Þetta er ekkert gums. GUMS ROKKSVEITIN Bless er næsta sveit íslensk sem gefur út plötu ytra, því 14. september nk. verður gefín út um heim allan platan Gums. Bless skipa þeir Gunnar Hjálmarsson gítarleik- ari og söngvari, Birgir Baldursson trommuleikari, Ari Eldon bassaleikari og nýverið gekk í sveitina Pét- ur Þórðarson gítarleikari. Gunnar sagði í spjalli að Pétur hefði styrkt sveitina mjög á sviði, en hann kæmi lítt við sögu á plötunni, enda hún langt komin þegar hann bættist við. Þór Eldon sá um upptökustjórn og tók þátt í útsetningum og sagði Gunnar að þeir hefðu unnið með honum að nokkru síðustu plötu sveitarinnar, Melting, og hefði líkað það vel að samstarfið varð meira. Bless er þekkt fyrir harkalega rokktónlist, en yfirbragð Gums er öllu mýkra, nánast popp. Gunn- ar var þó ekki á því að nóg væri af poppinu „hún hefði mátt vera öllu poppaðri“. Nafnið sagði Gunnar komið frá Ara Eldon sem var að borða pizzu á Akur- eyri og þótti heldur mikið gums á pizzunni. „Þetta er þó ekkert gums,“ sagði Gunnar. að hafa mikil áhrif á yngri tónlistarmenn, þar á meðal Youssou N’Dour, en fyrstu upptökur sveitar hans, Super diamono de Dakar, minna um margt á Baobab-sveitina. 1982, sama á og Youssou stofnaði sína fyrstu sveit, fór Baobab-sveitin í hljóðver og tók upp nokkur lög sem setja átti á breiðskífu. Eitt lag af þeirri skífu, Utru Horas, barst til BBC nokkrum árum síðar og var margsinnis spil- að þar. Það vakti feikna at- hygli á sveitinni, sem enginn á Vesturlöndum virtist þekkja til. Útsendarar plötu- fyrirtækja í Bretlandi fóru af stað að leita sveitina uppi og fyrir stuttu kom svo út platan Pirates Choice, sem á er Utru Horas og önnur lög frá upptökunum 1982. Á plötunni má heyra að þar eru engir viðvaningar á ferð og hver perlan rekur aðra. Baobab-sveitin er enn til, en skipuð nokkuð öðrum tónlistarmönnum. Eftir lifa upptökurnar frá hijóðverinu í Dakar 1982, sem gera Ba- obab-sveitina að einni fremstu afrísku poppsveit seinni tíma. Morgunblaðið/Sverrir ■ HLJÓMS VEITINJúpít- ers er án efa ein óvenjuleg- asta sveit sem starfandi er hér á landi um þessar mund- ir, eins og allir þeir sem heyrt hafa sveitina flytja Smoke on the VFaiermeð saxófón- um, trombónum, trompetum og hammondorgeli til viðbót- ar við hefðbundir rokkhljóð- færi. Sveitin vekur þó at- hygli víðar en á íslandi, því fyrir stuttu bárust fyrir- spurnir um sveitina frá Jap- aii, þar sem menn virtust ólmir í að gera við hana útg- áfusamning. Morgunblaðið/Einar Falur ÞEGAR skoðuð er saga popptónlistar í Senegal rekst menn hvarvetna á Etoile-sveitina sem nánast allir tónlistarmenn seneg- alskir hafa hafið feril sinn í. Frá sveitinni hafa klofn- að ótal hljómsveitir og nægir þar að nefna Super Diamono de Dakar, sem Youssou N’Dour leiddi. Einna frægust þeirra sveita í Vestur Afríku og sú sem hvað leyndardóms- fyllst hefur verið er Ba- obab-sveitin. Baobab-sveitin, Orchestra Baobab, stofnuð 1970, var í 'fararbroddi þeirra sveita sem tóku að leika afríska tónlist frekar en suður-ameríska á áttunda áratugnum. Hljómsveitin ákvað snemma að helga sig woloof-tónlist og skapaði sér sérstakan hljóm sem sveitar- menn mynduðu í sameiningu, þar fremstir í flokki hinn snjalli gítarleikari Barthel- emy Attisso og framúrskar- andi saxófónleikari, Issa Cis- sako. Sveitin varð snemma ein vinsælasta hljómsveit Vestur-Afríku og átti eftir DÆGURTÓNLIST Bandalaga- bandmynd MYNDBÖND sem leiknar auglýsingar hafa verið snar þáttur í markaðsetn- ingu tónlistar síðustu ár hér á landi ekki síður en ytra. Flest deyja þessi myndbönd eftir stutta ævi líkt og aðrar auglýsingar, en nú hefur Steinar gefið út myndbönd sem gerð voru við nokkur lög af safnplötunni Bandalögum. Lögin eni með Bubba Morthens, Sálinni hans Jóns míns, Todmobile, Loð- inni rottu, Karli Örvarssyni, Greifunum og Nýdönsk. Kjartan Guðbergsson hjá Steinum sagði að útgáfa þessa myndbands væri eins- konar markaðskönnun og fullur hugur væri fyrir því að endurtaka ámóta útgáfu, ef salan gengi vel. Að auki væri svo mikið lagt í mörg þessara myndbanda að hart væri að láta þau gleymast. Senegalskir frumherjar Er reggí búib ab vera? RasTafari ákallaður A MEÐAN Bob Marley lifði var reggí ein vinsæl- asta tónlistarstefna i heimi. Ekki var nóg með að sífellt komu fram nýir tónlistarmenn frá heimal- andi reggís, Jamaica, held- ur reyndu fjölmargar sveit- HBaaaaHHaaBn ir á Vest- urlöndum fyrir sér með reggílög, með mis- jöfnum árangri. Langf- lestir litir flytjendur reggís voru ra- stafaritrúar, þ.e. þeir trúðu á Ras Tafari, keisara Eþí- ópíu, sem tók sér nafnið Haile Selassie', og ýmsa spámenn hans, þar á meðal Bob Marley. Þegar Marley féll frá 1981 fjaraði undan reggíinu og um tíma virtist það með öllu horfíð, í það minnsta í vestrænum plötubúðum. Reggíið lifði þó og lifir enn. Nýverið eftir Átna Matthiasson tóku ýmis fyrirtæki upp á að gefa út gamlar reggí- skifur á geisla- diskum og t.a.m. hefur Tuff Gong- fyrirtæki Bobs Marleys þegar gefið út allar hans skífur á diskum og Mango/lsland hefur einnig sent frá sér fjölmarga diska. Fyrir stuttu opnaði svo Virgin geymslur sínar og gaf út fyrstu diskana í mikilli reggí- syrpu. Margar bestu reggísveitir sög- unnar hafa verið á mála hjá Virgin og nægir að nefna Culture, Mighty Diam- onds, The Gla- diators og Abyssinians og svo söngvarana og „to- asterana" (en toasting er það kallað þegar diskótek- arinn syngur eða talar yfir tónlistina sem hann er að spiia eftir aðra) Gregory Isaacs, Big Youth, U. Roy og Keith Hudson. Sýnis- horn af því sem í vændum er að finna á diskinum The Front Line, sem er að uppi- stöðu sama skífa og kom út fyrir rúmum áratug. Rastafarimenn eru áber- andi á plötunni, eins og vera ber og má nefna Mes- Culture Ras Tafari, Ljónið af Júdeu, ákallaður. sage from the King með Prince Far I, Behold með Culture, The Great Psalms og Natty Rebel með U. Roy og Civilization með Keith Hudson, aukinheldur sem allar skífurnar sem hingað til hafa komið út í röðinni eru skreyttar með hinutn-** heilögu litum rastafari- manna, rauðu, grænu og gulu. Ekki hefur svo mjög miðað í átt að falli „ba- býlonkerfis” Vesturlanda sem ráðist er all harkalega á í flestum laganna, en tónlistin er tímalaus þó boðskapur- inn eldist misvel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.