Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.08.1990, Blaðsíða 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ MYIMDASOGUR SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) W* Erfiðleikar gætu komið upp í ástamálunum í dag. Tilfinninga- öldurnar geta risið hátt. Reyndu að gera langtímaáætianir. Þú gætir orðið að vinna aukavinnu. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú þarft að sinna fjölskyldu- vandamáli núna. Mögulegt er að þú lendir i orðasennu við náinn vandamann en einnig að sam- skipti ykkar taki framförum. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þótt treysta megi því að þú stand- ir þig vel í starfi er mögulegt að öfund annars manns vegna vel- gengni þinnar valdi vandkvæð- um. Reyndu að særa ekki tilfinn- ingar vinnufélaga þinna. Krabbi (21. júní - 22. júlí) >“$8 Þú færð gjöf eða tilboð en bögg- ull gæti fylgt skammrifí. Ástin er í öndvegi í dag en hjón gætu einnig þurft að vinna saman og sýná ábyrgðartilfinningu í mikil- vægu máli. Ljón (23. júli - 22. ágúst) » Þér finnst kannski að ættingi sé útsmoginn í dag. Þú stendur í einhveijum skynsamlegum fram- kvæmdum á heimilinu. Kvöldið verður þér til ánægju. Meyja (23. agúst - 22. septembcr) Ástamálin ganga vel núna en reyndu að gleyma ekki öllu öðru. Sumir ljúka við verk á sviði sköp- unargáfunnar í dag. Einhver snurða gæti hlaupið á þráðinn í viðkvæmum samskiptum við ann- að fólk. Vog (23. sept. - 22. október) Láttu nægja að kaupa nauðsynjar þegar þú ferð í verslanir núna. Skildu eftir hluti í búðinni þótt þér finnist að þú getir vart lifað án þeirra. Hentugra að sinna fjöl- skyldunni en félagslífínu sem stendur. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú þarft að fara varlega og koma kurteislega fram í sambandi við ákveðnar framavonir í dag. Þú ert vel á þig kominn andlega núna og einbeitingarhæfíleikinn hefur tekið miklunr framförum. * Bogmaður (22. nóv. -21. desember) $0 Þú hittir kannski einhvern sem er fordómafullur. Flíkaðu ekki um of áætlunum í fjármálum; þá gengur allt upp. Steingeit (22. des. - 19. janúar) ^1} Þú gætir orðið að gera upp við þig hvort um ást eða vináttu sé að ræða í ákveðnu sambandi. Sumt gengur vel í félagslífinu en einhver daðrar e.t.v. við þig upp úr þurru. Ruglaðu ekki fólk í ríminu. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) * Reyndu að forðast harðar deilur i vinnunni í dag. Láttu fara iítið fyrir þér. Þú lýkur við ákveðið verkefni með myndarbrag. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þér þætti vænt um að fólk gengi hreint til verks núna. Einhver sem þú þekkir er greinilega ósált- ur við þig en forðast að ræða málið. Mundu að sinna skyldu- verkum í félagslífinu. AFMÆLISBARNIÐ hefur leið- togahæfileika og er venjulega með gott fjármálavit. Það vill *■ helst vinna í stórfyrirtæki en starfar stundum að opinberum málum. Starfssviðið getur orðið hvort sem er, vfsindi eða listir. Greindin er góð og afmælisbamið er enginn skýjaglópur, hefur báða fætur á jörðunni. Stjörnuspána á að lesa sem > dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. DÝRAGLENS LJÓSKA 100K WHAT I FOUNC? OVER I HAVE A600PIPEA..l‘LL ' UJHAT /i THINK I NEEP TO ' IN THE REC R00M, BR0WNIE CHARLE5...A FOOTBALL! “ — ■ M HOLP THE BALL.ANP VOU C0ME RUNNIN6 UPANPKICKIT... POVOU \MAKE A PH0NE CALL a> 3 1 J) 0) T ClmM M'JS J jfh ^ 3 8 u. s 5 | © / / J A r.wv\ \-Jg& ■ ' JliÖ ^—- Sjáðu hvað ég fann í tóinstunda- herberginu, Bjarni Kalla. Fótbolta! Mér datt snjallræði í hug ... ég held boltanum og þú keinur hlaup- andi og sparkar honum .. . Hvað fínnst þér? Ég held ég þurfi að hringja. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Úrslitaleikur Bandaríkjanna og Pakistans 1981. Spil 13. Á meðan Solodar og Arnöld nösuðu ekki einu sinni af slemmu, geystust Munir og Fazli í 7 tígla. Astæðan? í kerfi þeirra fyrrnefndu eru tveir-yfir-einum geimkrafa, en hinir spila Ac- olstíþnn, þar sem leyfilegt er að segja nýjan lit á öðru þrepi án þess að eiga nóg í geim: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♦ Á85 V DG10732 ♦ KD53 Vestur Austur ♦ KDG43 ♦ 762 ♦ 8 ♦ K64 ♦ 82 ♦ G9 + G10973 ♦ ÁK852 Suður ♦ 109 VÁ95 ♦ Á10764 *D64 Opinn salur: Vestur Norður Austur Suður Meckst. Munir Rodwell Fazli — 1 hjarta Pass 2 tíglar Pass 4 lauf Pass 4 hjörtu Pass 5 lauf Pass 6 lauf Pass Pass 7 tíglar Pass Pass • Lokaður salur: Vestur Norður Austur Suður Masood Solodar Zia Arnold — 1 hjarta Pass 1 grand Pass 2 tíglar Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Eftir tvo tígla héldu Munir engin bönd. Hann sýndi stutt lauf með stökkinu í fjögur og svo eyðu (eða ás blankan) með fimm laufum yfir fjórum hjört- um, sem hann mátti passa. Fazli átti þá nóg í sex og gaf Munir færi á alslemmu með sex lauf- um. Munir þóttist vita að mak- ker ætti rauðu ásana og ekki fyrirstöðu i spaða. Með spaða út ylti því slemma á svíningu fyrir hjartakóng. Og þá var eins gott að vera í sjö eins og sex! Rökrétt hugsað og 16 svolítið lukkulegir IMPar til Pakistan. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Fyrra opna mótið í Gausdal um daginn hét „Peer Gynt intern- ational“, í höfuðið á Pétri Gaut, hinni frægu sögupersónu Ibsens. Hann er talinn hafa átt sér fyrir- mynd í Guðbrandsdalnum norska, en Gausdalur er einmitt afdalur út úr honum. Þessi staða kom upp á mótinu í viðureign sænska al- þjóðameistarans Jonny Hector (2.465), sem hafði hvítt og átti leik, og Grikkjans I. Kourkonakis (2.355). Svartur drap s'íðast peð á a4 með biskup sem stóð á d7, en það hefði hann betur látið ógert: 18. Bxf5! - gxf5 19. Rxf5 - Kh8 20. b3! - Be8 (Eina leiðin til að halda í manninn.) 21. Bcl! - Hg8 22. Bb2 - BÍ8 (Tapar strax, en svartur átti ekki viðun- andi vörn við hótuninni Dh5-h6) 23. Hxe8 - Dxe8 24. Bxf6+ - Bg7 25. Rxg7 - Hxg7 26. d7 - Ha7 27. Dg4 og svartur gafst upp. Þetta var býsna laglega gert hjá Hector, sem hefur reyndar átt fleiri fléttur í þessum þætti en flestir aðrir. Nýlega bætti þessi hvassi skákmaður einni fjöður í hatt sinn er ' hann varð fyrsti Svíinn til að leggja Ulf Andersson að velli síðan 1969. Andersson hefur reyndar ekki gefið löndum sínum mörg færi á sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.