Morgunblaðið - 26.08.1990, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990
C 29
Hlíf sagði hlutfall
íslendinga í gist-
ingu á hótelinu
hafa heldur vaxið
ef eitthað væri en
gat þess jaf n-
framt að hótelið
byggi töluvert á
gistingu fyrir lax-
og silungsveiði-
menn sem kæmu
til veiða í hérað-
inu og væri það
vaxandi þáttur.
Páll Valgeirsson, vallar-
stjóri.
Frá Blönduósi
tíma og aðaláherslan væri nú á að
viðhalda góðum níu holu golfvelli.
Páll sagði að fólk sem kæmi frá
þéttbýlli stöðum og spilaði á vellin-
um hefði oft á orði hversu allt yfir-
bragð spilamennskunnar væri ró-
legra og pressan væri miklu minni.
Umhverfið er fallegt og návist him-
brimans á vötnunum með sínum
hvella hlátri lífgar verulega upp á
tilveruna.
Um Vatnahverfissvæðið í heild
sagði Páll að svæðið byði upp á
óþijótandi möguleika. Sem dæmi
nefndi Páll Valgeirsson eins og Hlíf
hótelstjóri veiðar og vatnaíþróttir.
Auk þess eru fallegar gönguleiðir
meðfram vatninu og er sumri tekur
að halla getur fólk farið í beijamó
svo eitthvað sé nefnt. Páll sagði að
Blönduósbær hefði staðið dyggilega
við bakið á golfáhugamönnum við
uppbyggingu golfvallarins með
beinum og óbeinum hætti en mest-
öll vinna við golfvöllinn hefði á
síðastliðnum fímm árum verið unn--
in í sjálfboðavinnu. Páll sagði að
þó mikið starf hefði verið unnið
væru verkefnin í Vatnahverfi
óþijótandi og með samstilltu átaki
yrði hægt að gera hverfið að sann-
kallaðri útivistarparadís.
Jón Sig
Tilkomumikið lista-
verk á réttum stað
Til Velvakanda.
ú er búið að koma upp nýju
listaverki í Reykjavík. Það þer
nafnið Sólfar. Ég vil láta í ljós
ánægju mína með verkið og val á
staðsetningu þess. Þetta er glæsi-
legt og tilkomumikið listaverk sem
nýtur sín til fulls á þeim stað sem
það er. Einhvers staðar las ég að
einhver væri að kvarta undan stað-
setningunni. Ég er allsendis ósam-
mála því menn fyllast lotningu þeg-
ar horft er á listaverkið og yfir
sundin. Engu er líkara en Sólfarið
gæti tekið á rás yfir sundin blá.
Guðjón M.
Vel vaxinn
kvenlíkami
spillir ekki
náttúrufegurð
Til Velvakanda.
Laugardaginn 18. ágúst birtir
þú bréf undir fyrirsögninni
„Þvo sér frá toppi til táar upp úr
handlaugum“. Við þetta bréf vil ég
gera tvær athugasemdir.
Hin fyrri er sú að þegar ég var
við nám í Verslunarskóla íslands
benti íslenskukennarinn okkar, Ingi
Þ. Gíslason, ágætrar minningar,
okkur á að þetta orðalag væri af-
leit íslenska. Við ættum að segja
„frá hvirfli til ilja“.
Hitt atriðið er að ég þekki ekk-
ert fallegra handverk Guðs en vel
vaxinn kvenlíkama. Mér er ómögu-
legt að sjá að það spilli á neinn
hátt náttúrufegurðinni í Skaftafelli,
eða hvar sem er, þótt ung kona
þvoi líkama sinn undir berum himni,
fyrir allra augum. Ég vildi bara að
ég hefði verið kominn þangað til
að horfa á þetta, ef stúlkurnar
hefðu sætt sig við fleiri áhorfend-
ur. Annað mál væri ef þær hefðu
á einhvern hátt hegðað sér dóna-
lega, en það kemur ekki fram í
bréfinu. Þetta virðast bara hafa
verið lífsglaðar ungar stúlkur sem
nutu þess að vera eins og Guð gerði
þær úr garði úti í náttúrufegurð
hans, laúsar við borgarskarkala og
mengun, með blóm og runna í bak-
sýn, rétt eins og Eva forðum í Ed-
en, vitandi að líkaminn sem Guð
skapaði er ekkert til að skammast
sín fyrir, heldur fagur og aðlaðandi.
Ef ég ber þessa sýn í huganum
saman við sumt af því sem okkur
er sýnt í sjónvarpi og bíó, subbuleg-
ar uppáferðir og nauðganir til dæm-
is, þá liggur ekki við að ég hneyksl-
is á nöktu stúlkunum í Skaftafelli.
Starkaður.
Iþróttaþættir
hafa uppeld-
islegt gildi
fyrir ungu
kynslóðina
Til Velvakanda.
Nokkrar óánægjuraddir hafa
heyrzt út af sýningu þátta um
hið stórkostlega íþróttamót, Friðar-
leikana, sem haldnir voru í sumar.
Slíkar raddir um sýningu íþrótta-
þátta hafa raunar oft heyrzt fyrr.
Ég vil aftur á móti þakka sýn-
ingu slíkra þátta. Mér finnst þeir
skemmtilegir, tel að þeir hafi upp-
eldisgildi fyrir ungu kynslóðina, og
síðast en ekki sízt: þá fækkar sjálf-
krafa sýningum alls konar ofbeldis-
mynda, sem eru allt of algengar í
sjónvarpi.
ES: Að einu vil ég finna varð-
andi íþróttaþættina: Málfar sumra
þeirra, sem þar annast kynningu,
er nokkuð ábótavant.
Ingibjörg Jónsdóttir
Djasstónleikar sunnudag kl. 21.30
Olivier Manouray og
Tómas R. Einarsson
Bandóneonleikarinn Olivier Manouray frá París
ogTómas R. Einarsson
leika tónlist eftir þá sjálfa.
Áhugaverðir tónleikar
Heiti potturinn
Fiscersundi
HANDMENNTASKOU ISLANDS
BOX1464 121 REYKJAVÍK SÍMÍ: 91/27644
Handmenntaskóli íslands hefur kennt yfir 1600 Islendingum bæði heima og
erlendis á síðastliðnum níu árum. Hjáokkurgeturþú lærtteikningu, litameð-
ferð, skrautskrift, innanhússarkitektúr og gerð kúluhúsa - fyrir fullorðna - og
föndur og teikningu fyrir börn í bréfaskólaformi. Þú færð send verkefni frá
okkur, sendir okkur úrlausnir þínar og þær eru sendar leiðréttar til baka. -
Biddu um kynningu skólans með því að senda nafn og heimilisfang til okkar
eða hringdu í síma 27644 núnastrax, símsvari tekurviðpöntun þinni ánóttu
sem degi. -Tfmalengd námskeiðanna stjórnar þú sjálf(ur) oggeturþví hafið
nám þitt, hvenær sem er, og verið viss um framhaldið. Hér er tækifærið, sem
þú hefur beðið eftir til þess að læra þitt áhugasvið á auðveldan og skemmti-
legan hátt. Þú getur þetta líka. - Nýtt hjá okkur: Innanhússarkitektúr.
ÉG ÓSKA EFTIR AD FA SENT KYNNINGARRIT
HMÍ MÉR AD KOSTNADARLAUSU
Sídbuxur í miklu úrvali
Stærðir 38-46, 5 litir
v/Laugaiæk, sími 33755.