Morgunblaðið - 26.08.1990, Side 31

Morgunblaðið - 26.08.1990, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990 C 31 Regnhlífar settu svip sinn á heimsókn framkvæmda- stjórans til íslands. Hér er hann á Þingvöllum en hann varö fyrstur f ramkvæmda- stjóra SÞ til að ganga á Lög- berg. U Thant ásamt forseta ís- lands, Ásgeiri Ásgeirssyni, á Bessastöðum. Það fer vel á með þeim U Thant, Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og Emil Jónssyni utanríkisráðherra á viðræðufundi þeirra í Stjórn- arráðinu. SÍMTALID... ER VJÐ HJALTAHUGASONAÐSTOÐARREKTOR KHÍ Mildl aÖsókn „Kennaraháskólinn, Góðan dag- inn.“ — Morgunblaðið, góðan daginn. Páll Lúðvík Einarsson blaðamaður hérna. Gæti ég fengið að tala við Jónas Pálsson rektor? „Hann er nú í fríi en Hjalti Huga- son leysir hann af.“ — Gæti ég fengið samband við hann? „Halló.“ — Góðan daginn. Páll Lúðvík Einarsson heiti ég og er blaðamað- ur á Morgunblaðinu. Núna fer að styttast í að skólarnir hefjist. Hve- nær byijið þið í Kennaraháskólan- um? „Við byijum mánudaginn 3. september." — Hvað er námið langt og hvað eru niargir nýnemar innritaðir í ár? „í dag er kennaranámið þriggja ára nám en lög frá 1988 kveða á um að námið lengist f fjögur ár, innan sex ára frá gildistöku lag- anna. Og við stefnum að því að þetta_ komist í framkvæmd haustið ’91. Á fyrsta ári eru núna innritað- ir rúmlega 130 nemendur því við verðum að gera ráð fyrir nokkru brottfalli. Á seinni árunum eru yfír- leitt 90-110 í árgangi." — 130 nýnemar er verulegur fjöldi. Fá allir umsækjendur inn- göngu? „Nei, við höfum orðið að beita fjöldatakmörkunum. Og það meira að segja mjög grimmt tvö síðustu árin. Við höfum getað tekið um helming þeirra sem sækja um skólavist. En þar áður gátum við takið svo til alla.“ — Gegnir þessi ásókn ekki furðu, umræða um kennarastarfíð og kenn- aralaunin hefur einmitt verið á neikvæðari nót- unum sfðustu árin? „Já, alveg rétt. Við höfum velt þessu fyrir okkur og í fyrra tókum við viðtöl við alla um- sækjendur og spurðum þá meðal annars ,um ástæður þess að þeir sæktu um. Það stendur tvennt upp úr. Annars vegar það að umsækj- endur vissu að kennaranámið kæmi til með að lengjast í nánustu framtíð, hins vegar það að gætt hefur ákveðins samdráttar og óör- yggis á almennum vinnumarkaði og margir sáu kennarastarfið sem góðan valkost, starf sem gæfi nokkuð góða atvinnumöguleika víða um land. E.t.v. nýtur kennara- menntunin líka þess að síðustu árin virðast húmanískar greinar vera vinsælli en áður.“ — Aðsóknin að skólanum er mikil en við fáum árvissar fréttir af kennaraskorti, einkum á lands- byggðinni. Menntið þið ekki nógu marga kennara? „Það fara allmargir í önnur störf annað hvort beint úr skólanum eða eftir smátíma í kennslu. Það bend- ir til þess að kennaramenntunin njóti ákveðins trausts og líka til þess að launa- og starfskjör kenn- ara séu ekki nógu góð. En lausleg- ar karinanir fyrir nokkrum árum sýna þó að allflestir sem útskrifast hafa frá Kennaraháskólanum stað- næmast við kennslu. Kennara- skorturinn í ákveðnum fræðsluum- dæmum er auðvitað áhyggjuefni. Við fyrstu sýn gæti manni virst að einfaldasta ráðið væri að mennta fleirí kennara en reynslan er að það eitt nægir ekki. Þótt kennaranemendur utan af landi ætli sér heim aftur, þá breytist margt á þrem, fjórum árum, fjöl- skylduhagir og íleira. Við höfum verið að velta fyrir okkur möguleikum á kennaranámi sem færi að hluta til fram utan Reykjavíkur með Ijar- kennslusniði, menn tækju sér lengri tíma í námið og gætu jafnframt unnið í sinni heima- byggð. Mjög margir sem hug hafa á að leggja fyr- ir sig kennslu hafá ekki aðstöðu til að flytjast til náms hingað suður.“ — Jæja, ég þakka'fyr- ir spjallið, vertu blessað- ur. „Það var nú ekkert, blessaður.“ Líi atvinnumcnna í knattspyrnu er eins og m öíundsíullra leikara Það er erfitt að koniast heim Xamlal vl9 Albert Guðmundsson FRÉTTALJÓS ÚR FORTlD Ekki mikil knatt- spyma Albert Guð- mundsson 1954 Einn dáðasti íþróttamaður Islands, Albert Guðmundsson, vildi ekki ráðleggja ungum mönnum að feta í sín fótspor. Þessi varnaðarorð hans voru ekki ástæðulaus. Sérstaklega með hliðsjón af þeim upplýsing- um sem koma fram í samtali hans við Atla Steinsson, blaða- mann Morgunblaðsins, 31. júlí árið 1954. egar leikmennirnir koma inn í hálfleik, er súrefnisgrímum skellt fyrir vit þeirra, svo úthald þeirra verði betra í síðari hálfleik. Læknirinn kemur með pillur, sem enginn leikmaður veit hvað er í. Þetta verða leikmennirnir að gleypa og sumar pillurnar verka þannig, að menn gleyma stund og stað þegar út á völlinn kem- ur ... Meiðist góður atvinnumað- ur eru honum gefnar sprautur, svo að hann geti leikið með, og eftir leikinn mótsprautur, til að hreinsa deyfílyfið úr líkama hans. Þannig er meðhöndlun atvinnu- mannsins líkari meðferð á dýrum en mönnum." Eins og alkunnugt er hefur lyfjanotkun íþróttamanna verið mikið til umræðu undanfarin ár. Morgunblaðið leitaði álits Gríms Sæmundsens íþróttalæknis. Hann sagði þessar aðfarir ekki tíðkast nú á dögum. Súrefnisgjöf hefði t.a.m. engan tilgang og eftirlit með sprautum og pillugjöfum í leik væri strangara en fyrir 36 árum. En aftur á móti væri ekki fyrir það að synja að lyf væru enn misnotuð. Agalegt agaleysi — Þú ráðieggur þá ekki öðrum að feta í fótspor þín? „Það geri ég ekki. Líf atvinnu- mannsins er eins og líf öfunds- fullra leikara. Hver otar sínum tota, til þess að halda atvinnu sinni og falla ekki í áliti.“ Blaðamaður spurði Albert álits á íslenskri knattspyrnu: „Ég sá um daginn æfingaleik Vals og Fram. Og ég verð að segja að mér fannst það ekki mikil knatt- spyrna. Æfingin sem knatt- spymumennimir búa yfir virðist ekki mikil og þá kunnáttan og getan eftir því. Strangur agi er nauðsynlegur í knattspyrnu- liði... Þó að ég hefði komið heim nú, hefði ég ekki snúið mér að knattspyrnunni, því að á knatt- spyrnunni úti og hér er svo mik- ill munur, að maður sem að utan kemur, nennir ekki að eyða tíma sínum í agaleysi knattspyrnunnar hér.“ En það voru fleiri ljón á vegin- um til íslands: „Það er erfítt að koma heim. T.d. em litlar líkur til þess að ég fái að koma með bíl minn með mér, nema að standa í alls konar þrasi um leyfi og ef til vill að greiða stórar fjárupp- hæðir.“ HafnarQörður — Þess má geta að Albert lét íslenskt reglugerðarþras ekki aftra sér frá því að ná settu marki; sneri heim til ættjarðarinn- ar í febrúar 1955 og tók til við rekstur heildverslunar. Hann stóðst ekki heldur mátið — eða öllu heldur boltann. M.a. má þess geta að Hafnfirðingum sveið sárt að vera „litlir menn“ í knatt- spymulist og leituðu tilsagnar Alberts Guðmundssonar. Albert var þeirra vinur og að sögn Jónas- ar Jónssonar frá Hriflu varð: „Sumarið 1956 árstíð Hafnfirð- inga og kennara þeirra Alberts Guðmundssonar". Þeir komust upp í fyrstu deild. Bergþór Jónsson, forráðamað- ur í FH, æfði undir stjórn Al- berts. Hann sagði stuðning Al- berts — og einnig sonar hans Inga Björns — við hafnfirskt íþrótta- starf hafa verið ómetanlegan. Bergþór varð að viðurkenna að því miður hefði ekki tekist sem skyldi að fylga tilsögn Alberts nægjanlega eftir; gengi Hafnfirð- inga í meistaraflokki hafi undan- farna ártugi verið rysjótt. — En nú væri bjartari tíð í vændum. Félags- og íþróttaaðstaðan væri með því besta sem gerist á landinu og ekki sé nokkur ástæða til að ætla annað en að íslandsmeistar- bikarinn falli þeim í skaut f ná- inni framtíð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.