Morgunblaðið - 08.09.1990, Síða 4

Morgunblaðið - 08.09.1990, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 VEÐUR Morgunblaðið/Sverrir Quireboys í efsta sæti Breska rokkhljómsveitin Quireboys, sem kemur fram með Whitesnake á tvennum tónleikum í Reiðhöllinni, hélt blaðamannafund í gær. Hljóm- sveitin er talin ein efnilegasta þungarokksveit Bretlands í dag og á topplagið á íslenska vinsældalistanum. Hljómsveitarmenn létu vel af viðtökum íslendinga, sögðust klárir í slaginn og lýstu sérstakri ánægju sinni með toppsætið á vinsældalistanum. Uppselt er á tónleikana í Reiðhöllinni í gærkvöldi og segja aðstandendur að allt bendi til þess að einnig muni seljast allir miðar á tónleikana í kvöld. Samtökin Miðhéruð Norðurlanda: Jon Emarsson með þann stora. Elliðaár: 15,5 punda hængiir er sá stærsti úr ánum í sumar JÓN Einarsson kaupmaður I Sunnukjöri veiddi í gær stærsta lax sem veiðst hefur í Elliðaám í sumar, 15,5 punda hæng, sem tók maðk í Fossinum. „Þetta er fallegur fiskur, nýgenginn og grálúsugur," sagði Jón í samtali við Morgunblaðið. Hann veiddi fjóra laxa í gær og var sá næststærsti 8 pund en auk þess vissi hann til að þrír aðrir físk- ar hefðu veiðst um daginn. Nálægt 1.400 laxar eru komnir á land úr Elliðaám í sumar en síðasta tæki- færi til að veiða þar í sumar stærri fisk en þann sem Jón Einarsson land- aði þar í gær gefst á morgun sunnu- dag. Fulltrúar kanna möguleg samstarfsverkeftii á Islandi úr röðum helstu frammámanna stjómvalda þar. Nefndarmenn munu hitta fulltrúa ráðuneytanna á mánu- dag, einnig talsmenn Sambands íslenskra sveitarfélaga, Norræna fé- lagsins, Bandalags íslenskra lista- manna, Ferðamálaráðs, sendiráða landanna þriggja í Reykjavík og fleiri til að ræða möguleg samstarfsverk- efni. Á dagskránni er auk þess kvöld- verður með Júlíusi Sólnes, er annast Norðurlandasamstarf fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, móttaka hjá norska sendiherranum, Per Aasen, Stofnun Árna Magnússonar verður heimsótt og ferðast víða um Suður- land. Sendinefndin heldur af landi brott á þriðjudag. SENDINEFND frá samtökunum Miðhéruð Norðurlanda kemur til lands- ins í dag og mun ræða við fulltrúa stjórnvalda og ýmissa samtaka. Markmiðið með heimsókninni er að kanna möguleika á samstarfsverk- efnum með íslendingum, að sögn Knuts Ödegárds sem er fulltrúi sam- takanna á Islandi. Miðhéruð Norðurlanda eru samtök héraðanna um miðbik Finnlands, Svíþjóðar og Noregs. Þau voru stofn- uð 1978 og kostar ráðherranefnd Norðurlandaráðs og yfirvöld þeirra héraða, er um ræðir, starfsemina. Þau eru Mið-Finnland, Vasa, Váster- norrland, Jamtland, Suður-Þrænda- lög og Norður-Þrændalög — svæði sem alls er um 160.000 ferkílómetrar að stærð og byggt hálfri annarri milljón manna. Verkefni samtakanna eru einkum á vettvangi ferðaþjónustu, samskipta af ýmsu tagi, menntunar, atvinnulífs og opinberrar þjónustu. Þau hafa einkum lagt sig fram um að auka og bæta almenn samskipti milli íbúa landanna þriggja, einnig lagt hönd á plóginn við að auka gagnkvæm kynni í menningarmálum. Átak sem nú er ofarlega á baugi er svonefndur „Menningarvaki" (kulturisme) þar sem leitast er við að þætta saman menningu og ferðaþjónustu, héruð- unum til hagsbóta. í sendinefndinni eru 17 manns og er fremstur í flokki Kalevi Kivistö, landshöfðingi í Mið-Finnlandi og jafnframt formaður miðhéraðanna. Fulltrúar annarra héraða eru einnig VEÐURHORFUR I DAG, 8. SEPTEMBER YFIRLIT í GÆR: Út af Vestfjörðum er 993 mb hefdur minrikandi- lasgð, sem fer austur, en víð Hvarf á Grænlandi er að myndast lægð, sem mun breyfast í norðausturátt. SPÁ: Sunnan- og suðvestan átt á landinu, kaldi eða stinningskatdt sunnanlands, en ögn hægari norðan til. Rigining um sunnanvert landið og einnig á stöku stað norðanlands. Vaxandi vindur sunnan- lands annað kvöld. Hiti víða 7-11 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Sunnan- og suðaustan átt, vtða hvöss, Rigning um landið vestanvert og þegar líður á daginn austan- lands. Hiti 8 til 15 stig. HORFUR Á MÁNUDAG:Stíf suðvestan- og vestanátt og kólnandi. Skúrir vestantands en iéttir til austanlands. TAKN: Heiðskírt Léttskyjað Hálfskýjað Skyjað Alskyjað y, Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * # * * * * Snjókoma * * * •JO° Hitastig: 10 gráður á Celsíus SJ Skúrir * V El = Þoka — Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður kl. 12:00 í gær að ísl. hlti veður Akureyri 13 léttskýjað 8 skúr 15 Helsínki 14 Kaupmannatiöfn 16 Narssarssuaq 6 Nuuk 4 Óstó 15 Stokkhólmur 11 Þörshöfn 13 skýjaft skýjaft suld skýjað rígning Amstwdam Sarcetona Berlln Chicago Franklurt Hamborg LasPalmas London LosAngetes LúKemborg Madrid Mallorca Montreal New York Orlando Paris Róm Vfn Washingtön Winnipeg 26 18 16 22 ®ÍS 14 16 iiil Ém 18 20 10 29 32 19 24 23 ®ÉÍ 15 heiðskfrt úrkoma vantar skýjað skýjað skýjað skýjað skýjað heiðskírt skúr heiðskírt vantar suld místur skýjað skýjað rigning vantar heiðskirt Þjóðræknifélagið og RÚV: Sjónvarpsfréttir fyr- ir Islendinga erlendis Islendingafélögum erlendis mun á næstunni gefast kostur á að fá sendar myndsnældur með íslenskum fréttaþáttum, sem Ríkisútvarpið- sjónvarp mun vinna sérstaklega í þessum tilgangi. Það er Þjóðræknisfé- lag Islendinga sem hefur haft frumkvæði að málinu, og mun félagið aðstoða við gerð þáttanna, og annast dreifingu á þeim. Verður þetta gert tvisvar í mánuði til að byrja með, fyrst um miðjan september. is, sérstaklega bamaefni, en einnig ýmsu fræðsluéfni, afþreyingarefni og íþróttum." Þjóðræknifélagið er nú að afla upplýsinga um Islendinga sem búa erlendis, en talið er að þeir séu allt að 50 þúsund talsins. Félagið hefur nú þegar skráð hjá sér 71 íslendinga- félag sem starfrækt eru víða um heim. Að sögn Jóns Ásgeirssonar for- manns Þjóðræknisfélagsins er ætlun- in að fjölga fréttasendingunum þegar fram líða stundir. „Það er ætlunin að við sendum út snældur sem verða svo í eigu félaganna. Þau munu svo annast dreifingu til sinna meðlima," sagði JÓn. „Við höfum einnig gert samning við sjónvarpið um að dreifa ýmsu öðru efni til íslendinga erlend- Húsavík: Slátrun að hefjast hjá Kaupfélagi Þingeyinga SLATRUN sauðfjár hjá Kaupfé- lagi Þingeyinga á Húsavík hefst þriðjudaginn 11. þ.m. og stendur yfir í mánuð. Alls verður slátrað um 40.000 fjár og er það nókkru færra en í fyrra vegna þess að þá var fé úr Oxafjarð- ar og Presthólahreppum slátrað á Húsavík, en fé þaðan, verður í haust slátrað á Kópaskeri, en þar var eng- in slátrun í fyrra. Nú hafa bændur í hreppum norður þingeyjarsýslu að undanskildum Kelduneshreppi myndað samtök og fest kaup á sláturhúsinu á Kópa- skeri og hefst þar slátrun aftur. Göngur hefjast nú um helgina, en um vænleika fjár er ekki farið að spá. Sumarið hefur þó verið hag- stætt svo búast má við vænu fé. - Fréttaritari -

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.