Morgunblaðið - 08.09.1990, Page 7

Morgunblaðið - 08.09.1990, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 VILTU LÁTA TAKA FRÁ FYRIR ÞIG ... með því að kaupa þér aðgangskort, sem gildir að sex sýningum leikársins? Þá færðu 20% afslátt af miðaverði, þú hefur þitt fasta sæti og síðast en ekki síst, þú efnir loforð við sjálfan þig um að fara í leikhúsið. Sjaldan eða aldrei hefur verkefnaval Leikfélags Reykjavíkur verið jafn fjölbreytt og nú. Fyrirtiuguð verkefni leikársins em: Nýtt leikrit, Ég er Meistarinn, eftir ungan íslenskan höfund; Hrafnhildi Hagalín Guðmunds- dóttur (litla sviðið), sprellfjörugur söngleikur eftir þá Ólaf Hauk Símonarson og Gunnar Þórðarson, leikrit sem nefnist „1932“ eftir Guðmund Ólafsson leikara og rithöfund, öndvegisverk snillingsins Tennessy Williams; Köttur á heitu biikkþaki og verðlaunaleikritið „Ég er hættur! Farinn!, eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur. Sérstök athygli er vakin á því að hið vinsæla leikrit um Sigrúnu Ástrósu verður tekið upp frá fyrra leikári. En fyrsta sýning vetrarins verður á hinum óborganlega gamanleik; Fló á skinni eftir Feydeau. BORGARLEIKHÚSIÐ við Listabraut er án efa glæsilegasta musteri leiklistarinnar á íslandi. Þangað er auðvelt að komast, alltaf næg bílastæði, rúmgóð fatageymsla, sannkölluð lúxussæti með góðri yfirsýn - og ekki má gleyma kaffibamum í forsalnum þar sem heimabökuðu sælgætiskökumar hennar Ástríðar bíða sýningargesta í hlé. Sala aðgangskorta stendur yfir í Borgarleikhúsinu frá 3. september, og miðasala er opin daglega frá kl. 14 til 20. Aðgangskort á fmmsýningar kostar kr. 14.000, en kr. 7.500 á aðrar sýningar. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 6.500 Sala aðgöngumiða á einstakar sýningar hefst 12. september og við minnum á hópafsláttinn, skólaafsláttinn og afslátt til elli- og örorkul ífey risþega Fáðu þér aðgangskort - það hjálpar til við efndirnar og hver sýning verður ódýrari. UPPSKRIFT AÐ ÁNÆGJULEGU KVÖLDI: Aðgangskort - en það gefur þér góðan fyrirvara: • til þess að útvega góða bamfóstm • hóa saman vinum (sem eiga áskriftarkorí á sömu sýningar) • fara út að borða, á Hard Rock eða Kringlukrána fyrir leiksýningu. (Afsláttur fyrir gesti Borgarleikhússins, gegn framvísun aðgöngumiða). • fullkomna kvöldið og skiptast á skoðunum um leiksýninguna á öðmm hvomm ofangreindra veitingstaða að sýningu lokinni. OjO BORGARLEIKHUSIÐ - EIN BJARTASTA HLIÐIN Á SKAMMDEGINU. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Borgarleikhúsið við Listabraut, sími 680680. AUK k660-1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.