Morgunblaðið - 08.09.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990
11
Kammerhljómsveitin Caput.
Kammerhlj óm-
sveitin Caput
________Tónlist_____________
JónÁsgeirsson
Aðrir tónleikar í hausttón-
leikaröð Caput-hópsins voru
haldnir í íslensku óperunni sl.
fimmtudagskvöld og voru flutt
verk eftir Donatoni, Jónas
Tómasson og Ligeti.
Fyrsta verkið sem flutt var
nefnist Spiri (1977), eftir Dona-
toni og er þetta „andartaks and-
varp“ se'm orðið gæti sem best
merkt, lýsandi í gerð verksins,
sérstaklegaM fyrri hlutanum, þar
sem framvinda verksins er iðulega
rofín með „andartaks" þögn. Tón-
mál verksins er á köflum ærsla-
fullt og leika óbóið (Eydís Franz-
dóttir) og fíðlan (Hlíf Sigurjóns-
dóttir) eins konar einleikssamtal,
sem þó er ekki rifíð úr samhengi
við sjálfan tónbálk verksins. Spiri
er skemmtilegt verk og var í heild
ágætlega leikið.
Sónata XX („í tónahafi“) nefn-
ist nýtt verk eftir Jónas Tómas-
son, sem er í tólf köflum og svo
sem oft áður einkennist þetta verk
Jónasar af hægferðugu og spar-
sömu tónferli. Verkið er samið
fyrir bassaflautu, klarinett, bassa-
klarinett og horn sem gefur verk-
inu í heild dulúðugan „svip“.
Margt er þarna frábærlega fal-
lega unnið en í heild eru kaflarnir
of sviplíkir svo að form verksins
verður of runukennt. Þarna mátti
þó heyra skemmtileg tilþrif án
þess að í hnúkana tæki, eftir því
sem munað verður t.d. í sjöunda
og níunda þætti. Þá brá fyrir
vögguvísustefí í einum þættinum
en hægu þættirnir orkuðu á undir-
ritaðan sem ofnir úr trega og ein-
manaleik. Má vera að flytjendur
eigi þarna nokkum hlut að máli
í blæmótun verksins en þeir voru
Kolbeinn Bjarnason, Guðni Franz-
son, Kjartan Óskarsson og Emil
Friðfínnsson.
Lokaverkið var Kammerkon-
sert eftir Ligeti en hann vakti
athygli fyrir það að takast að
gæða „Strúktúreruð“ verk sín
sterkri tilfinningu. „Strúktúrist-
ar“ höfðu verið sakaðir um að
byggja upp verk sin á kaldri rök-
hyggju og í besta falli að gæða
þau táknrænum gildum. Ligeti
tókst að gefa tónmáli sínu tilfínn-
ingalegt innihald, sem þó þurfti
ekki að tilgreina eða útskýra en
var samofíð tónmáli verksins.
Margir töldu því að Ligeti hefði
frelsað tónlistina undan kald-
hömmn aðferðanna og gefíð henni
að nýju það sem ávallt hafði verið
líftaug listsköpunar. Kammer-
konsert Ligetis er skemmtileg
tónsmíð, þar sem hann, auk þess
að byggja verk sitt á'alls konar
tæknibrellum, náði að gefa því
tilfinningalegt innihald. Flutning-
ur Caput-hópsins var einnig
merktur þessu viðhorfi og átti
stjornandinn Guðmundur Óli
Gunnarsson, þar stóran þátt að,
með kraftmikilli stjórnun. Guð-
mundur hefur hingað til lagt
áherslu á slagtæknileik en í stjórn
sinni á Kammerkonsert Ligetis
sýndi hann á sér nýja hlið og hljóð-
færaleikaramir svömðu kalli
hans.
Anna María Svavarsdóttir og Wolfgang Roling opna nk. sunnudag
á Flúðum í samvinnu við hlutafélag gistihússins Skjólborgar sjúkra-
nuddstofuna og meðferðarstöðina Heilsuparadís.
Heilsuparadís á Flúðum
WOLFGANG Roling lögg.
sjúkranuddari og Anna María
Svavarsdóttir sjúkraliði opna nk.
sunnudag í samvinnu við hlutafé-
lag gistihússins Skjólborgar á
Flúðum í Hrunamannahreppi
sjúkranuddstofuna og meðferð-
arstöðina Heilsuparadís. Heilsu-
paradis er í nyrðri enda gisti-
hússins.
Wolfgang Roling er frá vestur-
Þýskalandi og hefur starfað á
Heilsuhæli NLFÍ Hveragerði sl. 5
ár. Anna María hefur starfað þar
einnig sl. 10 ár.
I boði verður sjúkranudd, sog-
æðanudd, vatnsnudd, svæðanudd,
rafmagnsmeðferð, heilsuböð, sól-
böð, leirbakstrar, leirandlitsmaskar,
slökun o.fl.
í Skjólborg em 12 tveggja manna
herbergi, hvert um sig með heitum
potti fyrir utan. Fyrirhugað er að
bjóða fólki upp á gistingu í frið-
sælu og fögru umhverfi og njóta
heilsumeðferðar um leið. Hægt er
að komast í meðferð hvort sem gist
er í Skjólborg eða ekki.
Almenningi gefst kostur á að
skoða meðferðarstöðina opnunar-
daginn frá kl. 14—18.
Tónninn var
gefinn með
framleiðsiu Fiat
Uno fyrir sex
árum. Notagildið
var í fyrirrúmi;
stór að innan -
lítill að utan, með
eiginleika og
þægindi sem
bætt um betur
og gerðar
breytingar sem
gera Fiat Uno að
enn betri bfl.
Breyttútlit • betri
hljóðeinangrun
• endurbætt
sæti • nýjar
vélar • betri
innréttingum en
aðeins höfðu
maður á að
venjast í bflum
þessum verð-
flokki.
loftræsting • auk
ótalinna
smáatriða.
Það þarf ekki að
HLJÓÐLÁTARI, STERKARI OG
ÞÆGILEGRI EN ÁÐUR
MEÐ 8 ÁRA RYÐVARNARÁBYRGÐ
Fiat hefur rekið
smiðshöggið á
vel heppnaðan
bfl sem verið
hefur mest seldi
bfll í Evrópu í
mörg ár.
þekkst í mun
dýrari bflum. Fiat
Uno var vel leyst
hönnunardæmi,
bæði frá
sjónarmiði
notagildis og
fagurfræði.
Nú hefur verið
aka þessum nýja
Uno lengi til að
komast að því að
hér er á ferðinni
mun sterkari,
þægilegri og
hljóðlátari bfll en
áður var.
Vel búinn og
kraftmikill, með
vandaðri
ITALSKA VERSLUNARFÉLAGIÐ SKEIFUNNI 1 T S I IVI I 91 -638650