Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 14

Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ RANIMSOKNIR MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 — RANNSÓKNASTOFNUN FISKIÐNAÐARINS MARKMKMÐ MEIRI NÝTING SJÁVARAFLA OG AUKIN VERÐMÆTI HVERNIG kemur frystihús framtíð- arinnar til með að skráplúru og öfugkjöftu. líta út og er unnt Ti íij^* ii ^ o að storbæta Eru skeldynn gullnama? geymsiuþoi isks- ins? Er vaxandi mengun í sjónum kringum ísland að verða verulegt áhyggju- efni? Eru íslensk skeldýr gullnáma, sem bíður þess eins að vera nýtt, og er kannski til markaður fyrir „ruslið“, fiskinn, sem aldrei hefur verið talinn mannamatur hér á landi og kastað í sjóinn umsvifalaust? Það er á Rannsókna- stofnun fískiðnaðarins, sem menn spyija sig þessara spurn- inga og ótal, ótal margra annarra, og niðurstöðurnar geta skipt sköpum um það hvort afkoma sjávarútvegsins og þar með þjóðarinnar muni fremur ráðast af tonnaQöldanum en því verðmæti, sem raunverulega felst í íslensku sjávarfangi. Rannsóknastofnunin er ásamt Hafrannsóknastofnuninni til húsa á Skúlagötu 4 og skiptist hún í fimm deildir, sem almenn efna- fræðideild, snefil- eftir efnadeild, vinnslu- og Sigurðsson vöruþróunardeild, ör- verudeild og tækni- deild. Auk þess eru starfrækt útibú á ísafirði, Akur- eyri, Neskaupstað og Vestmanna- eyjum. Forstjóri RF er Grímur Valdimarsson. Staðgengill hans er Sigurjón Arason efnaverkfræðing- ur og var rætt við hann um starf- semi stofnunarinnar. Ef nagreiningar og mengunarrannsóknir „Það væri langt mál að telja upp öll þau verkefni, sem hér er unnið að eða bíða afgreiðslu, en svo stikl- að sé á stóru má nefna, að í al- mennu efnafræðideildinni er unnið að efnagreiningu og mælingu á aðsendum sýnum og þar eru einnig í gangi tvö stór verkefni, annars veg^r hvernig unnt er auka geymsluþol laxins og hins vegar rannsóknir á laxa- eða fiskeldis- fóðri. Markmiðið er að framleiða hér á landi heimsins besta fiskafóð- ur en eins og nú er flytjum við inn allt seiðafóðrið. Gæði þess skipta hins vegar öllu máli fyrir vöxt og heilbrigði fisksins og hafa jafnvel áhrif á endurheimtur í hafbeitinni. Þá er einnig verið að þróa lýsisaf- urðir., reyna að finna aðferðir til að nýta lýsið á fleiri vegu en hing- að til, og því tengjast svo aftur rannsóknir á þránun lýsis, í afurð- inni sjálfri og í lýsi í físki og físki- mjöli. Nú er komið í veg fyrir eða hægt á þránuninni með því að herða lýsið en gallinn er sá, að við það tapast mikið af hollustunni. Markmið þessara rannsókna er meðal annars, að unnt verði að nota óhert lýsi í matvælafram- leiðslu. I snefilefnadeildinni er líka feng- ist við alls konar efnagreiningu og aðallega þá, sem krefst flókins og nákvæms tækjabúnaðar. Þar er nú verið að taka í notkun mjög full- komið tæki til að mæla lífræna mengun í sjó og físki og er það stórt verkefni í samvinnu við inn- lenda og erlenda aðila. Er ekki ólík- legt, að það geti haft mikil áhrif á þróunina í fiskiðnaði enda horfum við upp á vaxandi mengun í um- hverfinu og meiri en við höfum áttað okkur á,“ segir Sigutjón og RANNSOKNASTARF í FJÁRKRÖGGUM 2,90% Framlög til rannsókna og þróunarstarfsemi á Noröurlöndum 1989 Hlutfall af vergri þjóöarframleiöslu 1,90% 1,80% Á árinu 1987 fóru 12,1% af rann- sóknafénu til landbúnaöarins.. . .. en 5,18 % til fiskiðnaðarins ISLAND 0,79% Fiskiðnaður ekki hálfdrættingur á við landbúnað f nýlegu hefti af Púlsinum, tímariti Iðntæknistofnunar, kemur fram, að á árinu 1987 voru opinber framlög til rannsókna og vöruþróunar hér á Iandi 2.800 milljónir kr. ef miðað er við verðlag nú. Erum við íslendingar eftirbátar annarra Norður- landaþjóða hvað þetta varðar en það, sem vekur mesla athygli, er, að Al- þingi íslendinga lítur svo á, miðað við framlög til einstakra atvinnugreina, að iandbúnaðurinn sé meira en helmingi mikil- vægari fyrir þjóðarbúið en fískiðnaðurinn, nýting, úrvinnsla og markaðssetning sjávaraflans. Sigurjón Arason efnaverkfræðingur á Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins segir, að stofnunin sé í íjársvelti og tekur raunar þannig til orða, að svipuliöggin séu látin ríða á henni. „Það er líka meira en lítið undarlegt, svo vitnað sé í þessar tölur í Púlsinum,“ segir Sigurjón, „að framlög tíl rannsókna í þágu þessa grundvallaratvinnuvegar þjóðarinnar skuli ekki vera nema 5,18% af heildarupphæðinni á sama tíma og landbúnaður- inn fær 12,1%. Malið er einfaldlega það, að ef við ætlum að komast eitthvað áleiðis verður ekki undan því vikist að leggja meira fé í rannsóknastarfsemina. Það er um sjálfa framtíðina að tefla og við eigum mikla möguleika á að stórauka nýtingu sjávaraflans og bæta gæðin og Iækka jafnframt kostnaðinn við veiðar og vinnslu." Sigurjón segir, að ríkisframlagið sé aðeins ákveðinn hluti af rekstrarútgjöldum Rannsóknastofnunarinnar ogþví verði hún að fá meira og mcira af tekjunum af verkefnum, sem iðnfyrir- tækin borgi að mestu leyti. Segir hann, að sú starfsemi sé auðvit- að ágæt og nauðsynleg með en að sá bögguil fylgi skammrifí, að stofnunin verður að skuldbinda sig til að halda rannsóknarnið- urstöðunum leyndum fyrir öðruni en verkkaupa í ákveðinn tíma. Nefnir hann sem dæmi, að fyrir aðeins tveimur árum hafi ríkisframlagið numið 70% af rekstrarútgjöldum en síðan hafi þetta snúist við og séu nú 60% teknanna af verkefnum fyrir einstök fyrirtæki. Svo aftur sé vikið að upplýsingunum í Púlsinum þá kemur þar fram, að framlag íslands til rannsókna og þróunar á síðasta ári var 0,79% ef miðað er við verga þjóðarframleiðslu. 1 Danmörku var hlutfallið 1,4%, Noregi 1,8%, Finnlandi 1,9% og Svíþjóð 2,9%. Nefndi Sigurjón það einnig, að Norðmenn hefðu líklega um tíu sinnum ineira fjárinagn til rannsókna í fiskiðnaði en við. Hærra verð fæst nú fyrir í TILRAUIMASTOFUIVIIMI - Júlíus Guðmundsson efna- fræðingur við rannsóknastörf í efnafræðideild. Siguijón Ara- son, deildarverkfræðingur á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, á myndinni til vinstri. bætir því við, að í snefilefnadeild- inni sé einnig verið að kanna meng- un í saltfiski, koparmengun og gulu, sem kemur úr saltinu. Lenging geymsluþols með lífrænum aðferðum í örverudeildinni er meðal annars unnið með sýni, sem Rannsókna- stofnunin fær send frá fiskverkend- um og söluaðilum, og gerlagróður í þeim kannaður. Þá fara þar fram rannsóknir á geymsluþoli fisks, t.d. í koltvísýringi, og á lengingu geymsluþols með lífrænum aðferð- um. Eru það mjög forvitnilegar til- raunir og í því fólgnar, að gerlar eru látnir mynda verndarhjúp um fiskinn til að hann varðveitist leng- ur óskemmdur. Ensímarannsóknir og nýtt tilraunaeldhús í vinnslu- og vöruþróunardeild er unnið að mörgum verkefnum og ekki síst ensímarannsóknum, sem snúast til dæmis um að nota ensím við roðflettingu, afhreistrun og himnuhreinsun. „Þá erum við með nýtt tilraunaeldhús og höfum mjög góða aðstöðu við skynmat eða bragðprófun. Stundum er skynmat eina aðferðin við að gæðaprófa matvæli og jafnvel áreiðanlegra en efnagreiningar. Við erum með bragðprófunarbása og höfum 20-30 manns hér innanhúss, sem eru sérþjálfaðir í að meta bragð, lykt, lit og áferð, og þessar rann- sóknir eru mjög mikilvægar fyrir alla vöruþróun og geymsluþolstil- raunir. Verkefnin eru aðallega fyr- ir fiskiðnaðinn en síðar meir hugs- anlega fyrir iðnaðinn almennt. Svo má ekki gleyma miklu verkefni, sem er nýjar verkunaraðferðir á síld. Þar eigum við íslendingar margt ólært og gætum til dæmis tekið frændur okkar Dani til fyrir- myndar í því efni.“ Nýtingarstuðull fyrir hvern frystitogara í tæknideildinni starfa aðallega verkfræðingar og af stórum verk- efnum þar nefnir Siguijón framtíð- arfrystihúsið, sem unnið sé að í samvinnu við Dani og inniend hags- munasamtök, og annað fyrir afla- nýtingarnefnd. Það snýst um nýt- ingarmælingar á frystitogurunum, flakanýtingu og þess háttar, en stefnt er að því að koma á nýtingar- stuðli fyrir hvert skip í stað eins stuðuls fyrir allan flotann eins og nú er. „Við stefnum að því að koma á sérstöku flakanýtingarkerfi á fryst- itogurunum og í kjölfar þess er lík- legt, að nýtingin aukist um 3% frá því, sem nú er. Það þýðir, að úr 1.000 tonna fiskkvóta fáist 30 tonn af flökum aukalega eða sex milljón- ir kr. í auknu aflaverðmæti. Þetta verkefni gefur því dálitla hugmynd um hvað aukin nýting og aukin gæði í fiskvinnslunni geta fært okkur.“ Siguijón segir, að stöðugt sé unnið að því að gera nýtingu fisk- stofnanna fjölbreyttari og nefnir meðal annars aukna nýtingu hrogna og lifrar og alls konar skel- físks, sem mikið er af við landið. Á RF hafa til dæmis farið fram rannsóknir á ígulkeijum og hrogn- um úr þeim, á tijónukrabba, rækju- hrognum og kúfiski. Aflakaupabanki Aflakaupabankinn er eitt af ný- mælunum hjá RF en hann hefur nú starfað í fimm mánuði. Á þeim tíma hafa 11 skip lagt inn um 50 tonn af fiski, sem ekki hefur verið nýttur að neinu marki hingað til, og er þar um að ræða tegundir eins og tindabikkju, gulllax, skráp- flúru og annan flatfisk og nokkrar fleiri tegundir. Eru líkur á, að tek- ist hafi að finna markað fyrir laus- fryst tindabikkjubörð í Frakklandi og standa vonir til, að skilaverð fyrir þau verði um 110-120 kr. Þá er einnig verið að kanna hvort Frakkar kunni að meta uppþídda tindabikkju. Tilraunir með gulllax- flök og -marning lofa líka góðu enda þykir marningurinn einn sá besti vegna góðra bindieiginleika og mikil eftirspurn er jafnan eftir hvers konar flatfiski. Það hefur því gengið vel að koma út tegundum eins og skrápílúru og öfugkjöftu og sagði Siguijón, að þess vegna væri unnt að greiða fyrir þær hærra verð en til þessa. „Þessi upptalning er auðvitað aðeins lítið brot af því, sem unnið er að á Rannsóknastofnun fiskiðn- aðarins," segir Siguijón Arason, „en markmiðið með þeim öllum er aukið verðmæti og fjölbreyttari nýting sjávaraflans. Við erum með öðrum orðum að leggja okkar af mörkunum til að tryggja framfarir og betri lífskjör í landinu."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.