Morgunblaðið - 30.09.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 30.09.1990, Síða 1
112 SIÐUR B/C 221. tbl. 78. árg. SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS • • Oryggisráögjafi Bush Bandaríkjaforseta um Persaflóadeiluna: Minnt á lagaákvæði SÞ um réttmæti hernaðaraðgerða Washington. Reuter. V-þýskur dómstóll: Kosningalög- in lýst ólögleg Karlsruhe. Reuter. SÉRSTAKUR stjórnlagadómstóll, er fjallað hefur um lög þau er gilda. eiga í alþýsku þingkosningunum 2. desem- ber, hefur úrskurð- að að þau séu ólög. Tekið er fram að ólöglegt sé að láta v-þýskt lagaákvæði um að flokkur skuli ná a.m.k. 5% fylgi til að fá þingsæti, einnig gilda austan megin. Annaö ákvæði þar sem a-þýskum og v-þýskum stjórnmála- flokkum er leyft að bjóða fram sameig- inlega lista er einnig sagt ólöglegt og er þetta talið geta komið Helmut Kohl kanslara og Kristilegum demókrötum hans til góða, þeir muni njóta enn frek- ar stærðar flokksins. Frjálst framtak í reykleysinu Sígarettuskorturinn í Moskvu hefur orðið til þess að ýta undir framtakssemi ungra athafnamanna ef marka má frétt breska dagblaðsins The Independent. Þeir eru teknir að safna saman síga- rettustubbum, setja þá síðan í krukkur undan niðursoðnum agúrkum og bjóða reykþrælum gegn hóflegu gjaldi. 500 grömm af sígarettustubbum kosta um 200 krónur íslenskar en vænta má verð- hækkana þegar hin járnhörðu mark- aðslögmál framboðs og eftirspurnar fara að segja til sín. Ungir Sadd- amar í klípu Manama. dpa. MÆÐUR að minnsta kosti tveggja ba- reinskra drengja, sem báðir eru nafnar Saddams Husseins Iraksforseta, hafa krafið dómstóla leyfis til að fá að breyta nöfnum þeirra. Rökin eru þau að drengirnir geti orðið þolendur eineltis sökum óvinsælda Iraksforseta í Barein. I forustugrein dagblaðsins virta og víðlesna Akhbn al-Khaleej var lýst full- um stuðningi við réttmætar kröfur mæðranna. Minnt er á að nafn Saddams væri nú órofa tengt hugtökunum „harð- sljórn" og „mannfyrirlitning". BRENT Scowcroft, öryggisráðgjafi Ge- orge Bush Bandaríkjaforseta, lét að því liggja í gær að Bandaríkjamenn myndu bera upp tillögu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þess efnis að fordæma bæri framferði hernámssveita Iraka í Kúvæt. Scowcroft minnti ennfremur á þá grein stofnskrár SÞ er kveður á um réttmæti hernaðaraðgerða gagnvart ríkjum er ger- ast sek um tilhæfulausar ógnanir. Þykir margt benda til þess að Busli forseti hygg- ist leita eftir samþykki Öryggisráðsins fyrir hugsanlcgum hernaðaraðgerðum Bandaríkjamanna. Scowcroft lét þessi orð falla eftir fund þeirra Jaber al-Ahmeds al-Sabah, fursta af Kúvæt, og George Bush á föstudagskvöld- ið en furstinn kvað íraka stefna að því að leggja heimaland hans í rúst. Sagði hann hernámssveitir íraka hafa gerst sekar um morð, rán og gripdeildir auk þess sem óbreytt- um borgurum væri ógnað. Bush lýsti yfir því að fundinum loknum að írökum myndi ekki takast ætlunarverk sitt en fyrr um daginn hafði stjórn Saddams Husseins íraksforseta gefið í skyn að styijöld væri í aðsigi. Herskáar yfirlýsingar Bandaríkjaforseta og ummæli Scowcrofts þóttu gefa til kynna að Bandaríkjamenn hygðust tryggja sam- þykki Öryggisráðsins fyrir hugsanlegum hernaðaraðgerðum við Persaflóa,- Fréttaskýr- endur bentu á að ályktun í þá veru myndi auka enn frekar á þann þrýsting sem írakar sæta nú á alþjóðavettvangi og minntu á við- varanir Edúards Shevardnadze, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, sem lét að því liggja á dögunum að Sovétstjómin myndi veita sam- þykki sitt fyrir hernaðaraðgerðum í nafni Sameinuðu þjóðanna kallaði Saddam forseti ekki heim innrásarsveitir sínar í Kúvæt. Mengunarský í Kazakhstan Moskvu. Reuter. SPRENGING sem varð nýlega í lyarnorkueldsneytisverksmiðju í Sovétlýðveldinu Kazakhstan, mun e.t.v. valda 120.000 manns heilsutjóni, að sögn embættis- manna. Tugþúsundir manna kröfðust þess á fimmtudag að vcrksmiöjunni yrði lokað. Yfirvöld í Kazakhstan hafa krafið Moskvustjórnina uin skaðabætur og vilja að erlendir sérfræðingar kanni málið. Við sprenginguna slapp berylliumoxíð, fær andþrengsli og hóstar jafnvel upp sem er eitrað efni, notað í kjam- blóði. Einnig getur það valdið augna- og orku- og geimferðaiðnaði, út í andrúms- hörundskvillum. Flestir ná sér á sex mán- loftið en efnið getur skaðað lungu, fólk uðum. Helmut Kohl. ÞÝSKU RÍKIN SAMEINAST EINEGGJA w THlULUM mnrrjK-j J1 TVIBURAR - ÓLIK SYSTKIN 16 b rMHni ÞAR ER ALLT ÞAKIÐ NÝJUM VÖTNUM 10 AÐ ELDAST MEÐ REISAI HÁRLOS KARLMANNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.