Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR/INIMLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990 Aðalbíllinn bilaður — lánsbíll bilaði líka - sá þriðji keyptur Ótrúlegl ólán rallfeðganna Rúnars og Jóns vegna rallmóts um helgina Skammt er að minnast þess þegar feðgarnir Jón Ragnars- son og Rúnar Jónsson misstu af sigri í alþjóðarallinu á dög- unum vegna vélarbilunar á lokasprettinum. Síðan hefur hvert ólánið rekið annað varð- andi þátttöku þeirra í rall- keppni sem hefst í dag. Yélin fór til viðgerðar í Eng- landi strax eftir keppni, en síðan kom í ljós að hún yrði ekki tilbúin í tæka tíð, þar sem réttir varahlutir voru ekki til. Feðgarnir eru með forystu í íslandsmótinu og þótti því góð ráð dýr. Jón hafði samband við sigurvegara alþjóð- arallsins, Ólaf og Halldór Sigur- jónssyni, og óskaði eftir því að leigja af þeim þeirra keppnisbíl. Þeir voru boðnir og búnir til að- stoðar og Talbot þeirra var sóttur. „Dæmið virtist ganga upp, við yfirfórum bílinn og Rúnar fór í prufutúr. Hann var ánægður með bílinn og ætlaði svo að fara einn sprett í viðbót. Stuttu síðar dó á vélinni og allt stóð fast,“ sagði Jón Ragnarsson í samtali við Morgunblaðið. „Vélin bilaði, líklega vegna þess að dæla í sér- stöku olíukerfí bílsins virkaði ekki sem skyldi, olían hafði ekki flætt nægilega um vélina. Mér var öll- um lokið, rallið fyrir bí og allt ómögulegt. Rúnar og Jón fylgjast með viðgerðarmönnunum fimm sem unnu næturlangt við að standsetja Mazda-rallbíl, sem þeir keppa á í dag. Tveir rallbílar sem þeir höfðu ætlað að nota voru bilaðir, þannig að Jón keypti þann þriðja í hvelli. Þetta var nú í miðri viku. Ég fór heim og kom ekki niður matar- bita af spennu, ákvað að hringja í kunningja minn og við fórum að spá í hvort einhver bíll væri til. Eg frétti af Mazda-fjórhjóla- drifsbíl, sem eitthvað var búið að laga til fyrir rallakstur. Eftir nokkrar fortölur tókst mér að kaupa bílinn sólarhring fyrir mætingu og viðgerðarstrákamir unnu í bílnum samfleytt alla síðustu nótt. Það vantaði veltibúr og öll öryggistæki, þurfti að stilla vélina, setja hlífðarpönnu og fleira. Nóttina eftir kaupin dreymdi mig rallakstur alla nótt- ina og vaknaði dauðþreyttur morguninn eftir. Á tímabili var ég kominn að því að hætta við þátttöku, en fannst svo ekki hægt að gefast upp fyrr en í fulla hnef- ana. Þannig að við leggjum af stað, þrátt fyrir allt. Við erum búnir að vera eins og jó-jó milli rallbíla, en það er einmitt í tísku núna .. .“ sagði Jón. HK-viðgerðarþjónustan sér um rallbfla Jóns og Rúnars og Halldór Jóhannesson er orðinn ýmsu van- ur vegna þess. „Ég held svei mér þá að kallinn sé orðinn elliær, að standa í svona hamagangi. Hann gafst upp í klukkutíma og svo fór allt á fulla ferð. Þetta er einstök harka og skilar þeim vonandi ár- angri í keppninni. Við reynum að sjá til þess. Það er til svo lítið af varahlut- um að það liggur við að lækna- taska dugi sem viðgerðardót..." sagði Halldór í gamansömum dúr. G.R. Bandalag íslenskra skáta efnir til landsátaks undir heitinu: „Látum ljós okkar skína.“ Skátar senda börn- um endurskinsmerki BANDALAG íslenskra skáta hefur ákveðið að leggja umferðar- öryggismálum lið. Nú þegar rökkvar á haustdögum og börn fara í skólann og ýmis önnur starfsemi ætluð börnum hefst vilja skátar að allt sé gert sem hægt er til að tryggja öryggi þeirra í umferðinni. Efnt er til landsátaks undir heit- inu: „Látum ljós okkar skína.“ Það er ætlunin að senda öllum börn- um á aldrinum fimm til átta ára endurskinsmerki í pósti. Með fylgir bæklingur, sem ætlaður er foreldr- um, þar sem greint er frá því hversu mikilvæg öryggistæki endurskins- merki eru. Skátahreyfingin vonar, að með þessu móti aukist umræða og umfjöllun um endurskinsmerki og gildi þeirra og það sem mikil- vægast er, að sem allra flestir noti þau þegar skyggja tekur. (Fréttatilkynning) Miklar breytingar hjá rás 1 eftir helgi: Rás 1 verður útvarp fyrir þá sem hafa meira næði til að hlusta - segir Ævar Kjartansson dagskrárgerðarmaður Breytingar á yfirstjórn tollamála: Signrg-eirA. Jónsson settur ríkistollstjóri í TENGSLUM við endurskoðun á tollalögum hefur fjármálaráðherra falið Sigurgeiri A. Jónssyni að gegna embætti ríkistollstjóra frá og með 1. október. Hann er settur til áramóta, en stefnt er að því að áðurnefndum breytingum verði þá lokið. Nú stendur yfir endurskoðun á tollalögum í framhaldi af umbótum í tollkerfinu á undanförnum áram og er tilgangur hennar meðal ann- ars að móta tillögur um breytingar á yfirstjórn tollamála og um frekari einföldun við tollafgreiðslu. Fjár- málaráðherra stefnir að því að leggja fram frumvarp um þetta á haustþingi. Björn Hermannsson gegnir áfram embætti tollstjóra í Reykjavík. Ríkistollstjóraembættið var stofnað fyrir þremur árum með nýjum tollalögum. Var þá ákveðið til bráðabirgða að nota heimild í lögunum og fela tollstjór- anum í Reykjavík að gegna jafn- framt starfi ríkistollstjóra á meðan reynsla fengist af nýrri skipan. Bók um setn- ingafræði ís- lensks nú- MIKLAR breytingar verða á dag- skrá rásar 1 hjá Ríkisútvarpinu eftir helgi. Hefur fræðslu- og skemmtideild verið skipt upp í ritstjórnir sem hveijar fyrir sig bera ábyrgð á einum hluta dags- ins. „Helsta ástæða þessara breytingar er sú að með þessu SAMBAND dýraverndunarfélaga hefur skrifað Iögreglustjóranum í Reykjavík, Böðvari Bragasyni, bréf, þar sem bent er á að ekki sé eðlilegt að hafa hvolpa í happa- drættisvinninga. Guðrún Guðjo- hnsen formaður Hundaræktarfé- lags Islands sagði í samtali við Morgunblaðið, að bréfið hefði komið til vegna happadrættis skátanna.„Mér finnstþað vægast sagt mjög óábyrgt hjá skátahreyfingunni að vera með fimm Sankti-Bernhards- hvolpa sem vinninga i happdrætti móti teljum við að fáist betri yfir- sýn við vinnuna við dagskrár- gerðina," segir Ævar Kjartans- son, dagskrárgerðarmaður. var segir að þarna sé frekar um að ræða breytingu á framsetningu en á dagskrárefni. en mesti kjáninn í þessu er sá, sem lætur hvolpana frá sér með þess- um hætti,“ segir Guðrún. ið munum strax eftir helgina tala við skátana og benda þeim á að þetta séu mistök hjá þeim,“ segir Guðrún Guðjohnsen. „Það er spuming hvort þetta brýtur ekki í bága við reglur um hundahald, því fólk þarf að sækja um leyfi til að hafa hund. Við rekum áróður fyrir ábyrgum sölum á hundum, það er að segja að fólk velji eigendur og gangi úr skugga um að víðtakandinn hafi möguleika og getu til að vera með hvolp. Við erum því á móti happa og giappa-aðferðum við dreifíngu á lifandi verum, til dæmis hundum og hestum," segir Guðrún. Þannig mætti nefna að þulur yrði enn þá starfandi en kæmi til með að vinna í nánari samvinnu við dag- skrárgerðarmenn. Meira yrði um beinar útsendingar en hingað til. Fyrsta ritstjórnin verður „morg- unútvarp" á milli klukkan 7 og 9. Nýjir umsjónarmenn þess eru Soffía Karlsdóttir og Þorgeir Ólafsson. Klukkan 9 tekur svo við „árdegis- útvarp“ og verður nokkuð samfellt til klukkan 12. í árdegisútvarpinu verða til dæmis ýmsir þjónustuliðir, neytendamál og annað þess háttar en éinnig verður Jónas Jónasson með nýjan þátt sem ber nafnið „Af hverju hringirðu ekki“. Þá munu þau Ólafur Þórðarson og Sigrún Björnsdóttir taka á móti gestum „í Laufskála“ á milli klukkan níu og tíu. Ritstjóri árdegisútvarps er Bergljót Baldursdóttir. Hádegisútvarp mun sjá um tímann milli klukkan 12 og 13. Þar verður að finna pistla um viðskipta- og markaðsmál, aflabrögð og annað þess háttar. Klukkan 13.30-16 verður „mið- degisútvarp". Þar verður að sögn Ævars efni á dagskrá fyrir fólk sem hefur góðan tíma til að hlusta. Meðal þess sem á boðstólum verður má nefna miðdegissöguna, leikrit, bókmenntaþætti og svipmyndir af lista- og fræðimönnum. Ævar Kjartansson verður ritstjóri þessa hólfs. Dýraverndunarfélög skrifa lögreg’lustj óra: A Oeðlilegt að hafa hvolpa í happadrættisvinninga Klukkan 16-18 verður „síðdegis- útvarp“. Þar verður spjallað við fólk á förnum vegi og mun efnið koma frá öllum landshlutastöðvun- um. Einnig verður í síðdegisútvarpi á milli klukkan 17 og 18 fræðslu- þáttur sem ber nafnið „Vita skaltu“ í umsjón Ara Trausta Guðmunds- sonar og Illuga Jökulssonar. Ragnheiður Gyða Jónsdóttir mun stýra síðdegisútvarpinu. Klukkan 18 alla virka daga verð- ur þátturinn „Hér og nú“ á dagskrá og tíminn á milli 20 og 22 sagði Ævar að yrði kallaður „tónlistarút- varp“. Skipulag helgardagskrá rásar 1 verður með mjög svipuðum hætti og verið hefur. Aðspurður um hvort þessum breytingum fylgdi mikill kostnaður sagði Ævar: „Það var haft til við- miðunar þegar breytingarnar voru samþykktar að þær hefðu ekki í för með sér neinn teljandi kostnað. Ég held að það standist en með þessu næst t.d. betri nýting á tækjabún- aði stofnunarinnar." Hann sagði erfitt að átta sig á hvaða áhrif þetta hefði á mannahald. Áður hefði ver- ið mikið af lausráðnú fólki en því myndi nú fækka og föstum röddum fjölga. „Kostnaðaraukinn er hverf- andi og ég held að nýja dagskráin sé í raun alls ekkert dýrari." tímamáls gef- in út í Banda- ríkjunum BÓK um setningafræði íslensks nútímamáls kom nýlega út í Bandaríkjunum hjá hinu virta alþjóðlega forlagi Academic Press. Um er að ræða 24. bindi í ritröðinni Syntax and Se- mantics, og er í bókinni safn greina eftir íslenska og erlenda málfræðinga, ásamt skrám yfir rit um samtímalega og sögulega setningafræði íslensks máls. A Ibókinni eru sextán greinar um setningafræði íslensks nútíma máls eftir átta höfunda. Þar af eru þrír íslenskir höfundar, þeir Hös- kuldur Þráinsson, Eiríkur Rögn- valdsson og Halldór Ármann Sig- urðsson. Að sögn Höskuldar á útgáfa bók- arinnar sér aðdraganda nokkur ár aftur í tímann. Vinna við hana hófst fyrir alvöru eftir að norrænt nám- skeið um setningafræði var haldið hér á landi árið 1985, en meðal kennara á því námskeiði var Joan Mailing, sem ritstýrði útgáfu bókar- innar ásamt Annie Zaenen. Flestar greinarnar í bókinni hafa ekki birst áður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.