Morgunblaðið - 30.09.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA/VEÐUR SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990
9
GRATÞUEIGI
eftirsr. HJALMAR
JÓNSSON________________________
Guðspjall:
Lúk. 7:11-17.
í dag sláumst við í för með
fólki, sem á um sárt að binda.
Þar eru aðstæður mjög sorglegar,
en ekki óalgengar. Verið er að
bera til grafar ungan mann, eink-
ason móður sinnar, og hún var
ekkja. Leiðin út að gröfinni var
því ömurleg. Samferðafólkið hef-
ur vafalaust undrast það, að hún
gæti gengið þessi þungu spor.
Margir hafa vottað henni samúð
sína. Allir sem fylgja til grafarinn-
ar eru með þátttöku sinni að
votta samúð og samstöðu með
henni. Allir vilja auðvelda henni
dimma daga. Það var gert með
sérstöku hátterni, föstu sniði, sem
e.t.v. kæmu okkur undarlega fyr-
ir sjónir. Inntakið er þó hið sama
og hjá okkur og útförin var fjöl-
menn. Sorgin tilheyrir ekki fortíð-
inni. Hún er fylginautur mann-
anna og „sorgin gleymir engum“,.
eins og skáldið sagði með réttu.
Þar sem líkfylgdin færist í átt-
ina að gröfinni utan borgarhliða
Nain kemur Jesús Kristur. Hann
kemur úr gagnstæðri átt. Lífið
er á ferð þar sem hann gengur
til borgarinnar. Með honum er líka
mikill manníjöldi. 'Hann gengur
til konunnar, sem búin er að
missa son sinn og segir: Gráttu
ekki. Maður gæti haldið að þar
talaði maður sem hefði ekki mik-
inn skilning á sorg og óhamingju.
Það væri hægt að ímynda sér að
sá sem hefði þetta eitt að segja
við harmi slegið fólk ætti erfitt
með að setja sig inn í aðstæður
syrgjenda. Okkur finnst einmitt
að grátur sé nauðsynleg útrás
fyrir sorgina. Hann greiði fyrir
hugguninni, létti brjóstþyngslin, í
stað þess að sorgin sé byrgð inni
og valdi kannski varanlegum
skaða. Við ráðleggjum jafnvel
syrgjendum að gráta og finnum
að það sefar sorgina á eftir.
Kristur var að koma með fagn-
aðarerindið til mannanna. Líka til
þeirra sem eiga í sorg og neyð.
Einkum og sérstaklega var hann
að koma til þeirra. Hann kom og
hann kemur með huggun, sem
enginn annar getur veitt.
I lífinu blandast saman hlátur
og grátur. Glaðværðin er oft ráð-
andi, þar sem dagamir koma
brosandi. Síðan þarf lítið til að
ský dragi fyrir hamingjusól. Það
getur gerst hvenær sem er og hjá
hverjum sem er. í dag er sólskins-
dagur, á morgun lýsir nafnið tára-
dalur jarðlífinu best.
Kristin trú ryður sér braut
gegnum myrkur dauðans og
dimmu dalsins. Gráttu ekki, segir
Drottinn við alla, sem lifa eða
hafa Iifað sorgina. Hann hefur
komið og snert okkur, vígt okkur
lífinu. Hann hefur vikið dauðan-
um frá, fyrirfram, um alla fram-
tíð. Við erum þátttakendur í lífinu
í Guðs ríki, ekki aðeins ævifélag-
ar, heldur meðlimir þess um alla
eilífð. Hann hefur lagt oss eilífð-
ina í brjóst, eins og þar stendur.
Kristur gekk að líkbörunum,
snart þær og hinn látna. Það var
það undarlegasta við framkomu
hans þann daginn. Sá sem snerti
við deyjandi eða dánum manni
varð óhreinn sjálfur, eins og dauð-
inn var óhreinn. En Jesús var að
koma með lífið sjálft. Hann var
að ganga inn í jarðneskan dauða
með lífíð. Hann reisti manninn
upp frá dauðanum, gaf honum
lífíð og móðurinni soninn. Hann
sneri líkfylgdinni við, lífið hafði
mætt dauðanum og unnið sigur.
Það var því glaður, fagnandi og
sigri þrósandi hópur, sem fór inn
í borgina aftur, ásamt Jesú Kristi.
VEÐURHORFUR I DAG, 23. SEPTEMBER
YFIRLIT kl. 10:10 í GÆR: Skammt austur af Langanesi er 996
mb lægð sem þokast austur og grynnist og önnur álíka er um 400
km vestur af Reykjanesi einnig á leið austur.
HORFUR á SUNNUDAG: Vaxandi suðaustanátt austanlands en
austan eða norðaustan vestanlands, víða stinningskaldi eða allhvass
þegar kemur fram á daginn. Rigning sunnanlands nálægt hádegi
og þykknar smám saman upp norðanlands. Hlýnandi veður.
HORFUR Á MÁNUDAG: Austlæg átt, víðast fremur hæg. Skúrir
eða slydduél víða um land, síst á Norðurlandi. Líklega nokkuð hvöss
norðaustan átt og slydda út af Vestfjörðum. Hiti 2—6 stig.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Strekkningsnorðaustan- og norðanátt
og kólnandi veður. É1 um norðanvert landið, skúrir suðaustanlands
en þurrt og bjart suðvestanlands.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 6:00 í gær að ísl. tíma
Staður hiti veöur Staður hiti veður
Akureyri 3 léttskýjað Glasgow 13 rign. á s. klst.
Reykjavík 3 skýjað Hamborg 12 þokumóða
Bergen 9 súld á s. klst. London 12 rign. á s. klst.
Helsinki 5 þoka á s. klst. Los Angeles vantar
Kaupmannah. 13 þokumóða Luxemborg 7 léttskýjað
Narssarssuaq 0 léttskýjað Madrid 18 skýjað
Nuuk 0 heiðskírt Malaga 20 léttskýjað
Osló 8 skýjað Mallorca 19 léttskýjað
Stokkhólmur 9 skýjað Montreal vantar
Þórshöfn 7 léttskýjað NewYork vantar
Algarve 21 skýjað Orlando vantar
Amsterdam 9 þokumóða Paris 6 skýjað
Barcelona 20 þokumóða Róm 12 heiðskírt
Hel&skírt
o
a LéttlkýjaS
-a
HátfakýjaS
Ský(»8
AlskýjaS
/ / /
t I ' r Rlgnlng
r t r
* / •
' * ' * Slydda
/ * /
V Skúrir
V Slydduél
Í
Nor&an, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil flöður
er tvö vindstig.
Vlndstefni
* * * * Snjókoma Él
* * *
’ , ’ Súld OO Mistur
10 Hítaatig:
10 gráður á Celsíus
= Þoka
= Þokumóða
Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apótekanna í
Reykjavík, dagana 28. september til 4. október, að báð-
um dögum meðtöldum er í Ingólfs Apóteki. Auk þess
er Lyfjaberg opið til kl. 22 alla daga vaktvikunnar nema
sunnudaga.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes og Kópavog
í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg frá kl. 17
til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og
helgidaga. Nánari uppl. í s. 21230.
Læknavakt Þorfinnsgötu 14: Skyndimóttaka rúmhelga
daga 10-16, s. 620064.
Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans s. 696600).
Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami sími. Uppl.
um lyfjabúðir og læknaþjón. í símsvara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara
fram í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl.
16.30-17.30 Fólk hafi með sér ónæmisskírteini.
Alnæmi: Uppl.sími um alnæmi: Símaviðtalstími framveg-
is á miðvikud. kl. 18-19, s. 622280. Læknir eða hjúkrunar-
fræðingur munu svara. Uppl. í ráögjafasíma Samtaka
’78; mánud. og fimmtud. kl. 21-23: 28539. Símsvarar
eru þess á milli tengdir þessum símnúmerum.
Alnæmisvandinn: Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra,
s. 22400.
Krabbamein. Uppl. og ráðgjöf. Krabbameinsfél. Virka
daga 9-11 s. 21122, Félagsmálafulltr. miðviku- og
fimmtud. 11-12 s. 621414.
Ónæmistæring: Upplýsingar veittar varðandi ónæmis-
tæringu (alnæmi) í s. 622280. Milliliðalaust samband við
lækni. Fyrirspyrjendur þurfa ekki að gefa upp nafn. Við-
talstímar miðvikudag kl. 18-19. Þess á milli er símsvari
tengdur við númerið. Upplýsinga- og ráðgjafasími Sam-
taka ’78 mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 21-23. S.
91-28539 — símsvari á öðrum tímum.
Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabba-
mein, hafa viðtalstíma á þriðjudögum kl. 13-17 í húsi
Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, s.621414.
Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718.
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöð, s. 612070: Virka daga
8-17 og 20-21. Laugardaga 10-11.
Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12.
Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12.
Garðabær: Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apó-
tekið: Virka daga kl. 9-18.30. Laugardaga kl. 11-14.
Hafnarfjaröarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardög-
um kl. 10-14. Apótek Norðurbæjar: Opið mánudaga —
fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum
10 til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14.
Uppl. vaktþjónustu í s. 51600.
Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100.
Keflavík: Apótekið er opið kl. 9-19 mánudag til föstu-
dag. Laugardaga, helgidaga og almenna frídaga kl. 10-12.
Heilsugæslustöð, símþjónusta 4000.
Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á
laugardögum og ,sunnudögum kl. 10-12. Uppl. um lækna-
vakt fást í símsvara 1300 eftir kl. 17.
Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. — Apótekið opið virka
daga til kl. 18.30. Laugardaga 10-13. Sunnudaga 13-14.
Heimsóknartími Sjúkrahússins 15.30-16 og 19-19.30.
Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Ætlað börnum og ungl-
ingum í vanda t.d. vegna vímuefnaneyslu, erfiðra heimilis-
aðstæðna, samskiptaerfiðleika, einangrunar eða persón-
ul. vandamála. S. 622266. Barna og unglingasími 622260.
LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki. Skrifstofan
Ármúla 5 opin 13—17 miðvikudaga og föstudaga. Sími
82833.
Samb. ísl. berkla- og brjóstholssjúklinga, S.Í.B.S. Suður-
götu 10.
G-samtökin: Samtök gjaldþrota greiðsluerfiðleikafólks.
Uppl. veittar í Rvík í símum 75659, 31022 og 652715. í
Keflavík 92-15826.
Foreldrasamtökin Vímulaus æska Borgartúni 28, s.
622217, veitir foreldrum og foreldrafél. upplýsingar.
Opin mánud. 13-16. Þriðjud., miðvikud. og föstud. 9-12.
Fimmtud. 9-10.
Áfengis- og fíkniefnaneytendur. Göngudeild Landspítal-
ans, s. 601770. Viðtalstími hjá hjúkrunarfræðingi fyrir
aðstandendur þriðjudaga 9—10.
Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s. 21205. Húsaskjól
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í
heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun.
MS-félag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s.
688620.
Lífsvon — landssamtök til verndar ófæddum börnum.
S. 15111 eða 15111/22723.
Kvennaráðgjöfin: Sími 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22.
Fimmtud. 13.30 og 20-22. Sjálfshjálparhópar þeirra sem
orðiö hafa fyrir sifjaspellum, s. 626868/626878.
SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, Síðu-
múla 3-5, s. 82399 kl. 9-17.
Skrifstofa AL-ANON, aðstandenda alkohólista, Hafn-
aratr. 5 (Tryggvagötumegin 2. hæð). Opin mánud.—
föstud. kl. 9—12. Símaþjónusta laugardaga kl. 10—12,
s. 19282.
AA-samtökin. Eigir þú við áfengisvandamál að stríða,
þá er s. samtakanna 16373, kl. 17-20 daglega.
Fréttasendingar Ríkisútvarpsins til útlanda daglega á
stuttbylgju til Norðurlanda, Bretlands og meginlands
Evrópu: Daglega kl. 12.15-12.45 á 17493, 15770, 13830
og 11418 kHz. Kl. 18.55-19.30 á 15770, 13855, 11418
og 3295 kHz.
Hlustendum á Norðurlöndum geta einnig nýtt sér send-
ingar á 17440 kHz kl. 14.10 og 13855 kHz kl. 19.35 og
kl. 23.00.
Kanada og Bandaríkin: Daglega: kl. 14.10-14.40, 19.35-
20.10 og 2300-23.35 á 17440, 15770 og 13855 kHz.
Hlustendur í Kanada og Bandaríkjunum geta einnig oft
nýtt sér sendingar kl. 12.15 og kl. 18.55.
Að loknum lestri hádegisfrétta á laugardögum og sunnu-
dögum er lesið fréttayfirlit liðinnar viku.
ísl. tími, sem er sami og GMT.
SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar
Landspítalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl.
20.00. Kvennadeildin. kl. 19-20.. Sængurkvennadeild.
Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartími fyrir feður
kl. 19.30-20.30. Fæðingardeildin Eiríksgötu: Heimsókn-
artímar: Almennur kl. 15-16. Feðra- og systkinatími kl.
20-21. Aðrir eftir samkomulagi.Barnaspítali Hringsins:
Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspítal-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. — Geð-
deild Vífilstaðadeild: Laugardaga og sunnudaga kl.
15-17. Landakotsspítali: Alla daga 15-16 og 18.30-19.
Barnadeild: Heimsóknartími annarra en foreldra er kl.
16-17. — Borgarspítalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstu-
daga kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugar-
dögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðir: Alla
daga kl. 14-17. — Hvítabandið, hjúkrunardeild og Skjól
hjúkrunarheimili. Heimsóknartími frjáls alla daga. Grens-
ásdeild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30 — Laugar-
daga og sunnudaga kl. 14-19.30. — Heilsuverndarstöð-
in: Kl. 14 til kl. 19. Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. -
Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kkl. 15.30-
16.30. — Kleppsspítali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og
kl. 18.30 til kl. 19.30. — Flókadeild: Alla daga kl. 15.30
til kl. 17. — Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum. — Vífilsstaðaspítali: Heimsóknartími
daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. — St. Jósefsspítali
Hafn.: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlíö hjúkr-
unarheimili í Kópavogi: Heimsóknartími kl. 14-20 og eft-
ir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs og
heilsugæslustöðvar: Neyðarþjónusta er allan sólarhring-
inn á Heilsugæslustöð Suðurnesja. S. 14000. Keflavík -
sjúkrahúsið: Heimsóknartími virka daga kl. 18.30—
19.30. Um helgar og á hátíðum: Kl. 15.00—16.00 og
19.00-19.30. Akureyri — sjúkrahúsið: Heimsóknartími
aila daga kl. 15.30 -16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild
og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysa-
varðstofusími frá kl. 22.00-8.00, s. 22209.
BILANAVAKT
Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hita-
veitu, s. 27311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgidögum.
Rafmagnsveitan bilanavakt 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar bilanavakt 652936
SÖFN
Landsbókasafn íslands: Aðallestrarsalur opinn mánud.
— föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 9-12. Handritasalur
mánud.-föstud. kl. 9-17 og útlánssalur (vegna heimlána)
sömu daga kl. 13-16.
Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla íslands. Opiö
mánudaga til föstudaga kl. 9-19. Upplýsingar um útibú
veittar í aðalsafni, s. 694326.
Borgarbókasafn Reykjavíkur: Aðalsafn, Þingholtsstræti
29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s.
79122. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheima-
safn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru
opin sem hér segir: mánud. — fimmtud. kl. 9-21, föstud.
kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn — Lestrarsalur,
s. 27029. Opinn mánud. — laugard. kl. 13-19. Granda-
safn, Grandavegi 47, s. 27640. Opið mánud. kl. 11-19,
þriðjud. - föstud. kl. 15-19. Bókabilar, s. 36270. Viö-
komustaðir víösvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn:
Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið í Gerðu-
bergi fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn miðvikud. kl.
10-11. Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12.
Þjóðminjasafnið: Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. kl. 11-16.
Árbæjarsafn: Opiö um helgar í sept. kl. 10—18.
Akureyri: Amtsbókasafnið: Mánud.—föstud. kl. 13-19.
Nonnahús alla daga 14-16.30.
Náttúrugripasafnið á Akureyri: Opið sunnudaga kl.
13-15.
Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. Sýn-
ingarsalir: 14-19 alla daga.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 12-18. Yfirlitssýning á verkum Svarvars
Guðnasonar 22. sept. til 4. nóv.
Safn Ásgríms Jónssonar: Lokað vegna viðgerða.
Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar við Sigtún er
opið alla daga kl. 10-16.
Húsdýragarðurinn: Opinn virka daga, þó ekki miðviku-
daga, kl. 13-17. Opinn um helgar kl. 10-18.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnu-
daga kl. 13.30—16. Höggmyndagarðurinn daglega kl.
Í1—16, alla daga.
Kjarvalsstaðir: Opið alla daga vikunnar kl. 11-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17. Þriðjudaga 20-22. Kaffi-
stofa safnsins opin. Sýning á andlistsmyndum.
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið
sunnudaga milli kl. 14 og 16. S. 699964.
Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir
sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. 13.30-16.
Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opið á miðvikudögum og
laugardögum kl. 13.30-16.
Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.—föst. kl.
10-21. Lesstofan kl. 13-19.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Opið alla daga nema mánu-
daga, kl. 14-18. Sími 54700.
Sjóminjasafn íslands Hafnarfirði: Opið alla daga nema
mánudaga kl. 14-18. Simi 52502.
ORÐ DAGSINS
Akureyri s. 96-21840.
Reykjavík sími 10000.
SUNDSTAÐIR
Sundstaðir í Reykjavík: Sundhöllin: Mánud. — föstud.
kl. 7.00-19.00. Lokað í laug 13.30-16.10. Opið í böð og
potta. Laugard. 7.30-17.30. Sunnud. kl. 8.00-15.00. Laug-
ardalslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30. Laugard.
frá kl. 7.30-17.30. Sunnudaga frá kl. 8.00-17.30. Vestur-
bæjarlaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30. Laugard.
frá kl. 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30. Breiðholts-
laug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30. Laugard. frá
7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30.
Garðabær: Sundlaugin opin mánud.-föstud.: 7.00-20.30.
Laugard. 8.00-17 og sunnud. 8-17.
Hafnarfjörður. Suðurbæjarlaug: Mánudaga — föstudaga:
7.00-21.00. Laugardaga: 8.00-18.00. Sunnudaga: 8.00-
17.00. Sundlaug Hafnarfjarðar: Mánudaga — föstudaga:
7-21. Laugardaga. 8-16. Sunnudaga: 9-11.30.
Sundlaug Hveragerðis: Mánudaga — fimmtudaga:
7-20.30. Föstudaga: 7-19.30. Helgar: 9-15.30.
Varmárlaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga — fimmtud.
kl. 6.30-8 og 16—21.45, (mánud. og miðvikud. lokað
17.45—19.45). Föstudaga kl. 6.30-8 og 16—18.45. Laug-
ardaga kl. 10-17.30. Sunnudaga kl. 10-15.30.
Sundmiðstöð Keflavíkur: Opin mánudaga — föstudaga
7-21, Laugardaga 8-18. Sunnudaga 9-16.
Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga — föstudaga kl.
7-9 og kl. 17.30-19.30. Laugardaga kl. 8-17. Sunnudaga
kl. 9-16. Kvennatímar eru þriðjudaga og miðvikudaga kl.
20-21. Síminn er 41299.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga — föstudaga kl.
7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnudaga 8-16. Sími 23260.
Sundlaug Seltjarnarness: Opin mánud. — föstud. kl.
7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10-17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.