Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990
Rætt við Asgeir Jóhannesson um
Sunnuhlíðarsamtökin og tillögur
um framkvæmdaáætlun í hús-
næðismálum aldraðra
Eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur
„Það á ekki að ráðstafa gömlu
fólki eins og hlutum. Eldri kyn-
slóðin hefur byggt upp allt sem
er í þessu landi nú, staðið undir
kostnaði við hafnargerð, vegina,
atvinnutækin með sínu vinnu-
framlagi. Það á að hafa rétt á
því að lifa sín efri ár með reisn
og fá að halda fullum sjálfs-
ákvörðunarrétti. Það er lykilat-
riði ef við ætlum að halda uppi
þessu þjóðfélagi. Það á ekki að
skylda eldri borgara til að búa í
litlum íbúðum ef þeir hafa efni
á stærra og vilja til að búa
stærra. Verndaðar þjónustuíbúð-
ir eru framtíðarlausnin í mínum
huga, þar sem menn eiga að fá
eðlilega aðstoð eins og sjálfsagð-
an hlut en ekki eitthvert náðar-
brauð. En númer eitt: íbúðirnar
mega ekki vera svo dýrar að
fólk steypi sér í skuldir á efri
árum. Það er ósvinna."
Asgeir Jóhannesson, for-
stjóri, er formaður
nefndar sem félags-
málaráðherra skipaði
í febrúar 1990 til að
gera drög að tillögum um fimm ára
framkvæmdaáætlun í húsnæðis-
málum aldraðra í hveiju kjördæmi
á íslandi. Þessi nefnd hefur nú skil-
að áliti og ýmsar upplýsingar úr
skýrslunni verið birtar og þar hefur
kennt margra grasa, meðal annars
um eignastöðu eldri borgara á
íslandi.
Þar kom til dæmis fram að 92,5%
hjóna í Reykjavík sem. eru 65 ára
og eldri eiga fasteign, en 7,5%
ekki. Hlutfallið er töluvert annað
þegar litið er til einstaklinga, 57%
á sama aldri eiga fasteign en 43%
ekki. Þetta hlutfall er mjög svipað
í öðrum kjördæmum, hæst í Reykj-
aneskjördæmi þar sem 93,7% hjóna
á þessum aldri eiga fasteign og
62,1% einstaklinga. Meðal bæði
hjóna og einstaklinga er hlutfallið
lægst á Austurlandi, þar sem 86,6%
hjóna eiga fasteign og 52% einstakl-
inga. Meðaltal yfir landið allt ef að
91,7% hjóna í aldurshópnum 65 ára
og eldri eiga fasteign og 56,7% ein-
staklinga.
Birt eru drög að tillögum um
byggingu þjónustuíbúða í öllum
kjördæmunum næstu fimm árin og
gera drögin ráð fyrir að byggðar
verði 3.118 íbúðir, og skip.tist þann-
ig á landshlutana:
Reykjavík 1960, Reykjanes 309,
Vesturland 116, Vestfirðir 55,
Norðurland vestra 124, Norðurland
eystra 264, Austurland 141, Suður-
land 149.
Nefndin beinir síðan sjónum að
því hvernig megi fjármagna íbúðir
fyrir eldri borgara án þess að þeir
þurfi til dæmis að selja fyrri eign
löngu áður en flutt er inn eða setja
sig í skuldir sem reynist þungbær-
ar. Bent er á þá lánamöguleika sem
eru nú fyrir hendi bæði hvað snert-