Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SBPTEMBER 1990
w EIDAST
IWDMim
ir almennar íbúðir og sérhannaðar
íbúðir fyrir aldraða. Fjármögnun
getur til dæmis verið með þrennum
hætti.
I fyrsta lagi úr almenna húsnæð-
islánakerfinu. Bent er á að biðtími
eftir almennum lánum úr Bygging-
arsjóði ríkisins sé nú um 3 ár fyrir
þá sem eiga fasteign.
í öðru lagi er sérstakur lána-
flokkur áætlaður fyrir 60 ára og
eldri í Byggingarsjóði ríkisins. Er
þá heimilt að veita framkvæmdalán
til félagasamtaka eða sveitarfélaga
sem byggja sérstakar íbúðir fyrir
þennan aldurshóp. Lánin eru borg-
uð framkvæmdaaðilum á fram-
kvæmdatímanum og þegar bygg-
ingu lýkur breytt í föst lán.
í þriðja lagi er svo húsbréfamög-
uleikinn. Nefndin ályktar aðy hús
bréf geti hentað eldri borgurum vel
og auðveldað íbúðaskiptin. Sala
fyrri íbúðar verði viðaminni en áður
og hærra hlutfall söluverðs fáist
greitt við gerð kaupsamnings. Hús-
bréfín má síðan nota til að fjár-
magna kaup á nýrri íbúð eða geyma
sem sparnað en þau eru verð-
tiyggð, eru eignaskattsundanþegin
og bera góða ávöxtun.
Vakin er athygli á því í skýrsl-
unni að Sunnuhlíðarsamtökin hafí
tekið upp nýtt form hvað varðar
fjármögnun og eignafýrirkomulag
fyrir eldri borgara. Þar sé ávallt
gert ráð fyrir að íbúðir séu af mis-
munandi stærð og á hóflegu verði.
Rifjað er upp að Sunnuhlíðarsam-
tökin gerðu sérstakan samning við
Búnaðarbankann um að bankinn
annaðist ráðgjöf og lánafyrir-
greiðslu til skamms tíma til þeirra
sem þyrftu á aðstoð til skamms tíma
að halda vegna íbúðaskipta. Jafn-
framt var gerður samningur við
Kópavogskaupstað um að bærinn
fengi 10 prósent af öllum byggðum
íbúðum samtakanna til ráðstöfunar
og leigu fyrir aldraða. Bærtnn ann-
ast greiðslu vaxta og afborgana af
lánum en hinir öldruðu greiða leigu
fyrir afnot hennar og þurfa þar af
leiðandi ekki að stofna til skulda.
Af skýrslunni má ráða að nýjar
leiðir Sunnuhlíðarsamtakanna hafa
mælst vel fyrir og líklegt að fetað
verði í ríkara mæli inn á þær braut-
ir á næstunni.
Ásgeir Jóhannesson er einnig
formaður Sunnuhlíðarsamtakanna
sem hafa lyft Grettistaki í þessum
málum í Kópavogi. Nú þegar hafa
samtökin reist samtals 40 íbúðir,
28 eru í byggingu við Fannborg,
og aðrar 40 við Kópavogsbraut, auk
þess hjúkrunarheimili, barnaheimili
fyrir börn starfsfólks og dagvistar
og þjónustumiðstöð.
Við Ásgeir hittumst til að ræða
hugmyndir sem fram koma í áður-
nefndri skýrslu en mér lék einnig
forvitni á að skoða Sunnuhlíð þar
sem beitt var aðferðum sem höfðu
varla þekkst áður og kannski. það
sem meira var; annað hugarfar og
nýstárlegar hugmyndir varðandi
hvað skyldi boðið uppá.
Byijað var að byggja hjúkrunar-
heimili 1980 og tveimur árum síðar
var tilbúin fyrsta álma þess. Ásgeir
segir að aldrei verði fullþakkaður
hinn mikli stuðningur sem kom frá
íbúum Kópavogs. Beðið var um að
hvert heimili í Kópavogi legði til
byggingarinnar sem svaraði hálfu
strætisvagnafargjaldi á dag. „Og
það var varla það heimili í bænum
sem varð ekki við beiðni okkar,“
segir hann.
Ásgeir sagði að við stofnun sam-
takanna 1978 hafí vitanlega verið
ígrundað hvaða leiðir skyldi velja
Litið í blaðið.
Flestum er
tyrirbestu
aó búaá
eigin vegum
ogþaöer
ódyrasl iyrir
þjóöféiagiö.
Katrin Arnar við skápinn ur bui Hvítárvallabarónsins.
Viö veröum aö fyigja
nútímanum - verndaóar
þjónustuíbúöir í staö vist
eöa elliheimiia.
Föndrað af áhuga undir lestri úr bók eftir Flosa Ölafsson.
til að leysa úr húsnæðismálum eldri
borgara í Kópavogi. Á stofnfundi
hefðu tvær leiðir einkum komið til
tals. Annars vegar sú hefðbundna
að skora á ríki og sveitarfélög að
gera úrbætur. Hins vegar að gera
eitthvað sjálf og var sú leið valin.
„Tekin var ákvörðun um að nýta
samtakamátt félagasamtaka í bæn-
um og allra Kópavogsbúa og hann
reyndist meiri en við höfðum þorað
að vona,“ sagði Ásgeir.
En eins og áður hefur verið vikið
■ að létu samtökin ekki aldeilis staðar
'numið þegar hjúkrunarheimilið
hafði risið af grunni og var tekið
til starfa. Þá kom röðin að barna-
heimili starfsfólks og þar næst
fyrsti áfanginn í þjónustúíbúðunum.
Hugmyndin byggði á þeirri skoðun
forráðamanna að íbúar gætu sjálfír
valið sér íbúð og tilfærsla úr fyrra
húsnæði færi fram án þess að við-
komandi stofnuðu sér í langtíma-
skuldir hvort sem þeir hefðu átt
íbúðir fyrir eða ekki. Kostnaði var
því haldið niðri og Sunnuhlíðaríbúð-
irnar virðast mér hljóta að vera
með þeim ódýrustu sem völ er á.
„Ég tel það hreint forkastanlegt að
eldri borgarar þurfí á fullorðins-
árum að skulda,“ eins og Ásgeir
orðar það.
Það er athyglisvert að velta fyrir
sér að þessi samtök hafa komið í
verk að byggja íbúðir, hjúkrunar-
heimili og þjónustumiðstöð meðan
stærri og voldugri sveitarfélög eiga
fullt í fangi með slík verkefni eða
önnur. Samtakakrafturinn er til
fyrirmyndar og sú afstaða að mínu
mati kórrétt að leita allra leiða til
þess að eldra fólk sitji ekki á efri
árum í skuldasúpu til að geta feng-
ið þá þjónustu og aðstoð sem það
hefur svo sannarlega lagt inn fyrir
á starfsævi sinni.
Sunnuhlíð stendur við Kópavogs-
brautina, þar er bjart og hlýlegt,
snyrtilegt og heimilislegt innandyra
sem utan. í annarri álmunni er
sjúkradeildin með 50 rúmum en í
hinni þjónustukjarninn. Þar er dag-
vistin, matstofa, föndurstofa, lítil
verslun og hvíldarherbergi. Ásgeir
segir að allmargir úr íbúðunum sem
eru í „höllinni" eins og sumir íbú-
anna kalla hana og tengd er við
hjúkrunarheimilið með „ástarbraut-
inni“, yfírbyggðum glergangi, komi
í mat um helgar og geri sér þannig
dagamun en eldar heima hjá sér
hvunndags. Ekki má gleyma því
að fólk í dagvistun er sótt á morgn-
ana og keyrt heim á kvöldin.
í þjónustumiðstöðinni er einnig
boðið upp á sjúkraþjálfun, snyrt-
ingu og hárgreiðslu og nú er verið
að vinna að því að setja stóran
heitan pott og böð í kjallara. „Já,
hann er stór þessi pottur," segir
Ásgeir. „Það verður vel fundafært
í honum.“
Ég veitti því athygli að þegar
komið er í tengiganginn að íbúðar-
blokkinni er blómaskrúð á göngum,
myndir á veggjum og umhverfi allt
hið persónulegasta. Ibúar hafa aug-
sýnilega mikinn áhuga á að gera
notalegt í kringum sig. Víða eru
litlir setustofukrókar sep íbúar
nota sér óspart að sögn Ásgeirs.
Þijár tegundir íbúða eru í hús-
inu, stúdíóíbúð, 2ja herb. og þriggja
herbergja. Við bönkuðum upp á og
fengum að skoða allar gerðir. Þar
hafði fólk hreiðrað um sig vel og
notalega og hreint ótrúlegt hve vel
rýmið nýttist alls staðar.
Katrín Arnar var í tveggja her-
bergja íbúð og við einn stofuvegg-
inn gríðarstór og tilkomumikill
buffet-skápur. „Hann er úr búi bar-
ónsins á Hvítárvöllum," segir Katr-
ín mér. Hún sagðist hafa vitað af
þessum skáp ung stúlka og fengið
hann í gegnum franska sendiráðið
1932. Katrín bjó Iengst af við Lauf-
ásveginn en fluttist í Sunnuhlíð fyr-
ir tveimur og hálfu ári, þá orðin
ekkja. Ásgeir segir að hún hafí víða
farið á yngri árum og hún jánkar
því.
„Ég fór til Bandaríkjanna og var
þar í þijú ár. Ég var að gera allt
mögulegt, í skóla, skoða mig um
og vinna. Meðal annars vann ég
við módelsýningar, var í vist og svo
0