Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990
13
vann ég í næturklúbbi í New York.
Hann hét Palace Royal og þar seldi
ég sígarettur. Það var ágætt og ég
var aldrei neitt smeyk þegar ég var
að fara heim á kvöldin. En eigand-
inn sem var kínverskur, mikill ind-
ælismaður, varaði mig við að láta
karlmenn aldrei abbast upp á mig
né skyldi ég þiggja boð um að þeir
fylgdu mér heim eftir vinnu. Ég fór
að ráðum hans og allt gekk eins og
í sögu.“
Seinna var Katrín í tvö ár í Dan-
mörku í vinnu og við nám, en köm
heim 27 ára gömul og setti upp
saumastofu í Hafnarstræti og rak
hana í fimm ár að hún gifti sig og
sneri sér að heimilisstörfum.
„Ég er ánægð hérna, en þetta
er dálítið út úr. En ég fæ oft gesti
sem betur fer. Svo geng ég um hér
veit ekkert verra en svipta fólk
sjálfsvirðingu sinni og eðlilegum
rétti. Það er megingalli í öllum
umræðum og áformum um hús-
næðismál og húsnæðisþörf aldraðra
að það er ekki skilningur á að það
þarf ekki allt að vera dýrast og
íburðarmest. Við lögðum skýrar lín-
ur strax í upphafi að við vildum
byggja og búa allt þannig úr garði
eins og við í fulltrúaráðinu vildum
sjálf búa við þegar þar að kæmi.
Ég held að arkitektar og aðrir sem
að þessu unnu hafi verið fegnir að
fá alveg skírar línur og eftir þeim
var farið í hvívetna. Með því tókst
líka að halda kostnaði í lágmarki.
En við höfum einnig lagt okkur í
líma að góður apdi sé milli íbúa.
Við ætlumst til þess að fólk kvarti
beint við okkur sem höfum umsjón
Á rakarastofunni.
Um 90% allra Itjóna
eldrien 65 ára eiga
fasteign.
í kring en ég meiddist illa í mjöðm-
inni svo að ég fer gætilega. Verst
er að sjónin er mikið til farin svo
að ég get ekki lesið að gagni . . .
En það getur auðvitað haft sína
kosti, þá get ég heldur ekki lésið
reikningana sem ég fæ!“
Ég skoðaði einnig stúdíóíbúð
Karenar Sigurðardóttur sem er 49
fermetrar að stærð, öllu haganlega
fyrir komið og allt virkar ljómandi
rúmgott. Guðrún Guðmundsdsóttir
er í 3ja herbergja íbúð sem við
gægðumst í. Hún spilar á píanó á
öllum samkomum og skemmtunum
í húsinu og var nýkomin úr leikfími
sem hún er farin að sækja tvisvar
í viku í Digranesskóla. í vinnuher-
berginu gat að líta marga fagra
túbilaka sem maður hennar, Björn
heitinn Þorsteinsson, sagnfræðing-
ur, fékk á Grænlandi og í stofunni
blasti við stórt málverk af Laufeyju
Vilhjálmsdóttur, móður Guðrúnar.
Þessir íbúar fluttu allir þegar „höll-
in“ var tilbúin og una hag sínum vel.
Á efstu hæð er fundar- og sam-
komusalur. Þar eru skemmtanir á
laugardagseftirmiðdögum og dag-
skráin auglýst í lyftunni. Ibúarnir
geta líka fengið salinn til einkasam-
kvæma. Ásgeir segir að auk afmæl-
isveislna hafi verið haldnar þar
fermingarveislur barnabarna íbú-
anna og ýmislegt fleira.
„Það skiptir öllu máli að fólkinu
líði vel hér,“ segir Ásgeir. „Það er
mest um vert að andlega líðanin
sé góð - að það sé gaman. Ef fólk
sem er hér, hvort sem er í dagvist-
uninni eða í „höllinni“, finnur að
það getur ákveðið sín mál sjálft en
er ekki alltaf verið að ráskast með
það af einhveijum svokölluðum sér-
fræðingum, þá líður því betur. Ég
með húsinu ef það er ekki ánægt
eða einhveiju þarf að kippa í lag.
Það á heldur ekki að vera að
ætlast til að íbúar þurfí að útkljá
einhver praktísk mál varðandi sam-
eign eða annað. Því kemur ekki til
neinna rifrilda.“
»>Byggingar-nar eru sömuleiðis
mjög vandaðar,“ sagði Ásgeir, og
benti á að gluggar væru með ál-
klæðningi og útveggir með steni
sem hvort tveggja eru viðhaldsfrí
efni. Hvergi er leki því svalirnar
hvíla á stálvirkjum og því myndast
engin kuídabrú. „Það er um að
gera að sem flest sé þannig úr
garði gert að sem allra fæst tilefni
verði til að mönnum mislíki eða líði
illa.“
„Það sem skiptir sköpum í fram-
tíðaruppbyggingu og skipulagi í
þessu er að fólk hafi skilning á því
að það er flestum fyrir bestu að
búa á eigin vegum, því það er ekki
góður kostur að þurfa að lenda inni
á stofnun þegar fólk hefur kannski
tiltölulega góða heilsu. Því líður
ekki vel innan um mikið veikt fólk
ef það er sjálfbjarga að mestu
leyti. í vernduðum íbúðum eins og
hér geta þeir valið þjónustuna og
hafnað án þess að fórna einu né
neinu af sínum karakter. Og svo
er þetta langódýrast fyrir samfélag-
ið, ekki síst frá byggðasjóriarmiði.
Við verðum líka að fylgjast með
tímanum. Þegar ég var ungur mað-
ur í skóla eða vinnu þótti gott að
fá herbergi með öðrum. Nú sættir
ungt fólk sig ekki við minna en
litla íbúð. Það sama gildir um eldri
borgarana. Og hveijir eiga betur
skilið en þeir að búa við skuldlaust,
gott ojg skemmtilegt ævikvöld,“
sagði Asgeir Jóhannesson.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
FARKBRT [fíF|!
Safaríferð f Af ríku er topp-
urinn á ferðalögum.
Hrífandi náttúrufegurð,
jörðin eitt blómahaf.
Glæsihótel, gómsætir rétt
ir, fagrar baðstrendur.
:Si?
Hvernig líst þér á að sjá Viktóríu-
fossana, Krugerþjóðgarðinn, „Bló-
maleiðina" og skyggnast um af
| Góðrarvonarhöfða í glampandi sól?
4 sæti laus vegna forfalla.
Allra síðustu forvöð að bætast í
hópinn undir leiðsögn Ingólf Guð-
brandssonar.
■■
Haustskór verð kr. 3.995
Stærð: 36-41.
Litur: Svart-brúnt.
Efni: Leður.
Botn: Grófurgöngusóli.
Stærð: 36-41.
Litur: Svart-brúnt.
Efni: Leður.
Botn: Grófurgöngusóli.
Stærð: 36-41.
Litur: Svart-brúnt.
Efni: Leður.
Botn: Riflaðurbotn,
frekarþunnur.
Ath: Einnig mikió úrvol ofvönduóum íslenskum
gærufóóruöum kuldaskóm.
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluofsláttur.
Oomus Medica
S. 18519.
Kringlunni,
sími 689212
TOPg
---'SKORIÍÍN
ákk --------
VELTUSUNDI 1
21212
I