Morgunblaðið - 30.09.1990, Side 20

Morgunblaðið - 30.09.1990, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990 20 HOFSJOKULL i • Austurkvíslum Þjórsár veitt í Köldukvísl- Þórisvatn Þjórsárverin fyrrum 10km i NÝJUM VÖTNUM eftir Elínu Pálmadóttur EINS GOTT er að nota ekki gamla kortið sitt ef maður leggur leið sína um Sprengisand og hálendissvæðið með Þjórsá austanverðri. Þar er allt orðið þakið vötnum. Og eins víst að leiðinni loki ár eða skurðir, þar sem engir voru áður. Ekki lenda menn þó almennt í neinum hremm- ingum, því Sprengisandsvegur hefur verið lagaðar að nýj- um aðstæðum. Þetta er mannanna verk. Til að hlífa þessu einstaka náttúrufyrirbrigði sem Þjórsárverin eru, var tek- inn sá kostur að veita öllu því vatni sem óhætt væri að nýta til raforkuvinnslu úr kvíslum Þjórsár, austur í Köldu- kvísl, sem þá þegar hafði verið beint af leið og inn í hið mikla miðlunarlón Þjórsárvirkjananna, Þórisvatn. Og hvert stöðuvatnið af öðru varð til, tengd saman með ám og skurðum, hin svonefnda Kvíslaveita. Úr Kvíslaveitu streyma nú þegar um 550 gígalítar vatns á ári til miðlunar í raforkuverunum og brátt munu með kröfum um meiri raforku vegna nýs álvers bætast við 800 gígalítrar á ári úr síðasta áfanganum, Þjórsárlóni. Þannig mun Þórisvatn fá 1300 gígalítra árlegan forða úr Kvíslaveitu, álíka mikið og það fær annars staðar frá. Ferðalangarnir með farangur sinn á bakinu á leið í Arnarfell. Þeir eru þarna komnir í laxapokana og strigaskó sína utan yfir, til að komast þurrum fótum yfír ár og sprænur, sem urmull er af í Þjórsárverum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.