Morgunblaðið - 30.09.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.09.1990, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ VEROLD SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990 Ódýrt að ferðast fljúgandi? ÞAÐ ER GAMAN að ferðast. Og hollt. Það eru raeira að segja svo forn vísindi að í elstu menningarheimildum okkar er bent á þetta. í Hávamálum er talið hverjum manni gagnlegt að hverfa um sinn af heimaslóð- um og fræðast um Iíf og starf í öðrum héruðum og löndum. Sá sem ekki gerði þetta var kallaður heimskur — ekki í þeim skilningi að hann væri vitgrannur eða kjáni heldur af því að hann þekkti ekkert nema það sem var honum næst, heima. Þessi forna merking orðsins heimskur er löngu flest- um gleymd rétt eins og að sæmilegt var það kallað til forna sem var svo gott að var til sóma. Svona breytist málið með tímanum. Fró Sverri Póli Erlendssyni ó s að er gaman að ferðast og nútímamanni nauðsynlegt. Sumir fara um langan veg vegna starfa sinna eða útréttinga og til að viðhalda ættartengslum og vinaböndum. Aðrir ferðast til þess að breyta út af hversdagsvana. Sumir fara um hér innanlands og kvarta oft undan því að það sé óbærilega dýrt nema legið sé í tjaldi og eldað á prímus. Miklu dýrara en að fara í hótelferð til útlanda. Þangað fara því margir og skoða til dæmis sólfar og sand í suðlægum löndum eða kynna sér mannlíf og menningu, mat og drykk á rólegri ferð um erlenda slóð. Svo eru líka til ferðavíking- ar, hetjur, sem leigja sér bíl og keyra látlaust meðan krafta nýtur og notfæra sér til hins ýtrasta að þurfa ekki að borga kílómetra- gjald eins og hjá bflaleigunum hér heima. Það er gaman að ferðast. En það er dýrt, ekki síst ef farið er fljúgandi. Ég held að flestir séu sammála því. Það kostar til dæm- is sem næst þijátíu þúsund krónur að fara með flugvél frá Kefiavík til einhverrar borgar í nálægu Evrópulandi, til dæmis Parísar, séu notuð ýtrustu afsláttargjöld. Þetta er álíka mikið og að fara þrisvar fram og til baka milli Akureyrar og Reykjavíkur. Þann- ig myndi það kosta mig rúmar 40 þúsund krónur að fara frá Akureyri til Parísar. Og fyrir þessa peninga fengi ég ekkert nema flugferðimar einar. Ég skil ekki af hveiju þetta er svona dýrt. Og ég skil heldur ekki hvers vegna það var ódýrara fyrir fólk, sem ég þekki, að fara í vetur fljúgandi til Noregs og þaðan til Ameríku með viðkomu í Keflavík en að fljúga héðan beint vestur! Ein- hvers staðar hlýtur eitthvað að vera mglað. Þessar ferðahugleiðingar spruttu sumpart af því að í vor auglýstu Flugleiðir hversu lifandi skelfing væri miklu betra og ódýr- ara að fara fljúgandi milli Akur- eyrar og Reykjavíkur en að aka á eigin bfl. Ég staldraði við og fór að reikna í huganum og fékk allt aðra niðurstöðu. Flugfar fram og aftur milli Akureyrar og Reykjavíkur kostar nokkuð á ell- efta þúsund krónur, um það bil sama og dagsferð til Grænlands með fararstjóm, skoðunarferðum og tveimur máltíðum auk fijáls aðgangs að fríhöfninni í Keflavík! Rútuferð tekur að vísu nokkurn tíma, en kostar fram og aftur fimm þúsund krónur. Þegar ég fór um daginn á bíinum mínum í Reykjavíkurferð var ég ekki miklu lengur á ferð en með þotu frá Reykjavík til Akureyrar og bensín báðar leiðir hefur kostað rúm ijög- ur þúsund. En ég hafði bílinn minn hjá mér óg gat farið ferða minna á Reykjavíkursvæðinu, skroppið til Keflavíkur og austur að Laugarvatni. Ósköp var þetta nú allt saman miklu ódýrara en hefði verið að fljúga og leigja sér bfl, ekki síst ef fjórir eða fímm hefðu ferðast saman. Það er ekk- ert ódýrt að fljúga, sérstaklega ekki innanlands. Ég sagði áðan að það tæki ekki miklu lengri tíma að fara akandi milli Akureyrar og Reykjavíkur en að fljúga með þotu. Venjuleg flugferð í gömlum Fokker með sandblásnum glugga- rúðum svo fátt sést af því sem flugmaður lýsir glögglega á góð- viðrisdegi tekur um það bil tvær klukkustundir, sé reiknað með stuttri ferð að og frá flugvelli, bið fyrir brottför, sjálfu fluginu og bið eftir farangri. Ég hef lent í því fyrirvaralaust að fara þessa leið með fullkomnustu og nýjustu þotum. Sú ferð getur varað um eða yfir íjórar stundir, sé reiknað með því sama og áður að við- bættri rútuferð milli Reykjavíkur og Keflavíkur og bið í Keflavík. Það er hins vegar ekki óeðlilegt að reikna með því að ökuferð frá dyrunum heima að húsdyrum í Reykjavík taki fimm til fímm og hálfan tíma — og þeir sem fara ögn hraðar en má hafa farið þessa leið á skemmri tíma en þotuferðin tekur. Það er dýrt að fljúga, og sífellt dýrara, því verðið á flugmiðum hækkar álíka ört og brennivínið, helsta tekjulind ríkisins! Köld eni kvennaráð SKÓLAFÉLAGI minn, sænskur, er mikið upp á kvenhöndina. Hann elskar allar konur af öllum stærðum og gerðum, og þær elska hann. Hann er það sem kallast kvennabósi. En það er einn galli á gjöf Njarðar. Hann hefur mjög fornar hugmyndir um hlutskipti og stöðu kvenna i þjóðfélaginu, sem i stuttu máli má líkja við að hlýðni við konu sé leiðin til helvítis. Ég skal útskýra þetta nánar. í vor var alþjóðlegur kvennadagur um heim allan og í skólanum barst þessi kvennadagur til tals. Var þar rætt um jafnrétti kynjanna og stöðu konunnar, á sænska vísu. Þessi sænski kunningi minn tók þátt í þessari umræðu og lýsti þeirri skoð- un sinni að kona án karlmanns væri eins og strengjalaus gítar, hún væri sköpuð til þess að sinna heimil- isstörfum og fengi mat fyrir að koma börnum í heiminn. Eins og við er að búast á kunn- ingi minn ekki lengur upp á pall- borðið hjá sænsku kvenþjóðinni eft- ir þessi ræðuhöld. Skólasystur okk- ar tóku hann í karphúsið og hefur hann ekki borið þess bætur síðan. Blessuð sé minning hans. Þessi umræða um stöðu konunn- ar í nútímasamfélagi varð ansi ijöug og skemmtileg. Spjótin beindust fljótlega að mér og ég var m.a. spurður að þvi hvernig væri að búa í konuríkinu íslandi. Ég varð eitt spumingarmerki. Konuríkinu Is- landi? Jú, stúlkumar höfðu séð þátt í sænska sjónvarpinu á síðasta ári um íslenskar konur í stjórnmálum. Þar hefði m.a. komið fram að einn stærsti stjómmálaflokkur íslands samkvæmt síðustu skoðanakönnun- um væri Kvennalistinn, auðvitað væri forsetinn kona og konur væru á hraðri siglingu upp metorðastiga í atvinnulífínu og pólitíkinni. Ég sagði auðvitað að það væri hrein unun að búa í konuríkinu Is- landi. Sænskar stallsystur þeirra mættu taka þær til fyrirmyndar. Lyst íslenskra kvenna væri blómleg, gáfur þeirra eigi síðri en karlmanna og ástríðum þeirra væra engin tak- mörk sett. Þar yrði engin kona skækja af eins manns völdum og meira að segja fengju íslenskar konur að halda eftirnafninu þegar þær gengju í það heilaga. Það fannst sænsku stúlkunum stórkost- legt, þetta væri allavega skref í áttina að alvöra jafnrétti. En fyrst datt andlitið af þeim þegar ég sagði að í fjölskyldu þar sem foreldrarnir ættu tvö börn, eitt af hvoru kyni, hefði engin í íjölskyldunni nákvæm- lega eins eftirnafn. Og steininn tók úr þegar upp úr kafínu kom að maður leitar að fornafninu í síma- skrá íslendinga en ekki eftirnafninu eins og tíðkast í flestum öðrum löndum. Hvar endar þetta, spurðu stúlkurnar og fannst mikið til íslenskra stajlsystra þeirra koma. — Við til íslands í sumar, sögðu þær hver í kapp við aðra og a.m.k. tvær þeirra sóttu um svokallað Nordjobb á íslandi i sumar. Allt í þágu kvenréttindabaráttunnar. Þegar þarna var komið sögu var ég vinsæll mjög meðal bekkjar- systra minna, þökk sé áræðni kven- fólksins á íslandi. Og til að auka vinsældirnar gerðist ég skáldlegur. Mundi eftir einhveijum gömlum málshætti sem hljómar á þá leið að maður án konu er eins og vasi án blóma. Ég var kominn upp á stjörnuhimininn. Áfram spunnust umræðurnar um jafnrétti kynjanna. M.a. áttu sænsku stúlkurnar bágt með að skilja hvers vegna það er ekki blanda af konum og körlum í skák- mótum þvi þær þóttust fullvissar um að konur væru engir eftirbátar karlanna á þeim vígstöðvum. Ég sagðist hafa skýringu á þessu. Ástæðan væri sú aðTtarl- menn notuðu svo þunga taflmenn að það þyrfti aflmikla vöðva til að lyfta þeim, vöðva sem konur hefðu ekki. Þetta spaug mitt féll ekki í góðan jarðveg hjá sænsku stúlkunum, og ég var umsvifalaust skipaður á bekk með öðrum karlrembusvínum. En einn lærdóm dró ég af þessum umræðum: Munnur kvenna er aldr- ei nógu lengi kyrr til að skeggið festi rætur. VORUM FRÁBÆ of ullorefnum, einlitum, rósóttum og mynstruðum í kópur og dragtir. Glæsilegt úrvol of einlitumog mynstruðum blússu- og kjólaefnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.