Morgunblaðið - 30.09.1990, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990
ATVINNUALGÍ YSINGAR
LANDSPÍTALINN
Barnaspítali Hringsins
Aðstoðar-
deildarstjórar
óskast nú þegar eða eftir samkomulagi á
eftirtaldar deildir:
Barnadeild 1, 12-E, sem er lyflækningadeild
fyrir 11 sjúklinga upp til 16 ára aldurs.
Barnadeild 3, 13-E, sem er handlækninga-
deild fyrir 13 sjúklinga frá 2ja—16 ára aldurs.
Unnin er þriðja hver helgi. Boðið er upp á
góðan aðlögunartíma.
Umsóknarfrestur um báðar stöðurnar er til
15. október 1990.
Upplýsingar veitir Hertha W._ Jónsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 601033
eða 601000.
Reykjavík, 30. september 1990.
RÍKISSPÍTALAR
Geðdeild Landspítalans
Sjúkraliðar
óskast til starfa nú þegar. Starfshlutfall fer
eftir samkomulagi. Vaktavinna.
★
Starfsmenn
óskast til starfa nú þegar. Um er að ræða
100% starf. Vaktavinna.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Guðnadótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
602600 eða 602649.
*Blóðbankinn
Hjúkrunarfræðingur
óskast til starfa sem fyrst. Um er að ræða
50% starf við blóðtöku eftir hádegi.
Upplýsingar veitir Sigurbjörg Jóhannsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 602027.
\
Reykjavík, 30. september 1990.
M B A
Bandaríkin
Óskum að ráðá mann, sem lokið hefur
„Mastersnámi" frá háskóla í Bandaríkjunum.
Fyrirtækið er stórt fyrirtæki með viðskipti
innanlands og erlendis.
Starfssvið: Ýmiss sérfræðileg verkefni unnin
með æðstu stjórnendum fyrirtækisins. Mat
á ýmsum fjárfestingamöguieikum. Þátttaka
í samningagerð innanlands og erlendis.
Skýrslugerð og greinaskrif.
Við leitum að manni með a.m.k. 2-3 ára
starfsreynslu að loknu „mastersnámi", sem
hefur þekkingu á íslensku viðskiptalífi og
áhuga á fyrirtækjarekstri.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með allar fyrirspurnir og um-
sóknir sem algjört trúnaðarmál.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„MBA 341“ fyrir 10. október nk.
Hagva nsurhf
Grensásvegi 13 Reykjavík Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Saumastörf
Verslunin Áklæði og gluggatjöld óskar eftir
fólki til sníðastarfa á saumastofu.
Vinnutími eftir samkomulagi.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á staðn-
um, ekki í síma.
Áklæði og gluggatjöld,
Skipholti 17A,
Reykjavík.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REVKJANESSVÆÐI
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Reykjanesi
óskar eftir að ráða til starfa:
. 1. meðferðarfulltrúa
Um er að ræða 50% starf á dagvinnutíma
við sambýli Svæðisstjórnar, Hrauntungu í
Kóp. Starfið felst í aðstoð við umönnun og
þjálfun fatlaðra heimilismanna.
2. deildarþroskaþjálfa
og meðferðarfulltrúa
á vistheimili fatlaðra barna í Hafnarfirði.
Starfshlutfall eftir samkomulagi.
3. Þroskaþjálfa/meðferðarfulltrúa
í 65% starf við hæfingarstöð Svæðisstjórn-
ar, Hnotubergi í Hafnarfirði.
4. Kona óskast
til að aðstoða fatlaða stúlku við daglegar
athafnir frá kl. 11-13 virka daga í tengslum
við skólagöngu.
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til
5. október.
5. þroskaþjálfa
og meðferðarfulltrúa
til starfa við nýtt sambýli fyrir fatlaða í
Njarðvík. Um er að ræða vaktavinnu, mest
kvöld og helgar.
Umsóknarfrestur er til 18. október.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir fram-
kvæmdastjóri í síma 641822.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Svæðisstjórnar Digranesvegi 5 í Kópavogi.
Ráðgjafi (P.R.)
Fyrirtæki, sem starfar við kynningar- og fjöl-
miðlaráðgjöf (PR), óskar að ráða reyndan og
fjölhæfan ráðgjafa til starfa.
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á
íslensku athafna- og þjóðlífi. Háskólamennt-
un dða sambærileg menntun er nauðsynleg.
Góð íslenskukunnátta, viðkomandi þarf að
geta skrifað og talað vel ensku, þekking á
öðru Norðurlandamáli, þýsku eða frönsku
nauðsynleg.
Fjölmiðlareynsla æskileg. Viðkomandi þarf
að geta starfað sjálfstætt og hafa stjórnun-
ar- og skipulagshæfileika. Verður að eiga
mjög auðvelt að umgangast viðskiptavini og
fjölmiðla.
Starfið er krefjandi og skemmtilegt fyrir
þann, sem býr yfir hugmyndaauðgi, skapandi
krafti og hefur þörf fyrir að takast á við lausn
vandamála og annarra úrlausnarefna.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með allar fyrirspurnir og um-
sóknir sem algjört trúnaðarmál.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Ráðgjafi,.(PR)‘‘ fyrir 10. október nk.
Hárgreiðsla -
afgreiðsla
Ein af þekktustu hárgreiðslustofum í
Reykjavík óskar eftir að ráða í afgreiðslu-
starf, sem er mjög fjölþætt. M.a. er hér um
að ræða afgreiðslu- og sölustörf á snyrtivör-
um og smávarningi fyrir konur, móttöku við-
skiptavina, skráningu tímapantana, innkaup
á vörum o.fl. Við leitum að manneskju sem
er glaðvær og á gott með að umgangast
fólk, hefur þjónustulund og er viljug að gera
öðrum til hæfis, er áreiðanleg, samviskusöm
og með nokkra skipulagshæfileika. Viðkom-
andi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Vilji - 9982“.
ISfRÍKISSPÍTALAR
Kópavogshæli
Aðstoðarmenn
óskast til starfa við endurhæfingadeild nú
þegar eða eftir samkomulagi. Um er að ræða
störf við sjúkraþjálfun og sundlaug staðar-
ins. Upplýsingar eru gefnar í símum 602725
og 602727 milli kl. 10-15 virka daga.
Þroskaþjálfi
óskast til starfa við sundlaug Kópavogshælis.
Upplýsingar eru gefnar í símum 602700 og
602725.
Reykjavík, 30. september 1990.
Kerfisfræðingar
- forritarar
Hugbúnaðarhúsið hf. óskar eftir að ráða fólk
með góða menntun eða reynslu til starfa við
hugbúnaðargerð og þjónustu við viðskipta-
vini okkar. Leitað er eftir samstarfsfúsu og
samviskusömu fólki sem er tilbúið að starfa
við krefjandi verkefni.
Við bjóðum:
Góð laun
Sveigjanlegan vinnutíma
Góða starfsaðstöðu
Skapandi verkefni
Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast leggi inn
skriflega umsókn. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á skrifstofu okkar.
Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál og öllum svarað.
H
rr——"Ý
B
HUGBÚNAÐARHÚSIÐ %
SÍÐUMÚLA 21 106 REYKJAVÍK S. 68 88 11
FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA
ARMULA 12 ■ 108 REYKJAVIK SIMI 84022
Frá Fjölbrauta-
skólanum við Ármúla
Óskum að ráða starfsmann með menntun og
starfsreynslu á sviði læknaritunar til að skipu-
leggja nám og námsefni fyrir læknaritara.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf nú þegar
því kennsla á brautinni hefst á vorönn 1991.
Umsóknum með upplýsingum um nám og fyrri
störf sé skilað til skólans fyrir 10. október.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari.
Skólameistari.